Dagblaðið Vísir - DV - 24.08.1984, Qupperneq 5
DV. FÖSTUDAGUR 24. AGUST1984.
5
Sighvatur Hafsteinsson, bóndi á Mei, ásamt Engilbert Jensen sem hefur
aðstoðað hann við kartöfluuppskeruna.
Sölukerfið úrelt
„Þaö er ekki aö vita hvaö gerist,”
segir Sighvatur Hafsteinsson, bóndi á
Mel, er hann var spurður aö því hvort
hann væri að hugsa um að selja
kartöflur sínar beint til verslana.
„Nú sem stendur sel ég mínar
kartöflur til Grænmetisverslunarinn-
ar, en ég er tilbúinn að selja kar-
töflumar beint ef tækifæri gefst.”
Sighvatur hefur verið kartöflubóndi
í Þykkvabænum í 5 ár og rekur bú með
föðursínum.
,,Ég tel að núverandi sölukerfi sé
úrelt og það væri mjög ánægjulegt að
það kerfi ætti eftir aö breytast. Mitt
álit er það að þaö eigi aö koma til móts
við kröfur neytenda. Þeir eiga að geta
valið þær kartöflur sem þeir vilja
kaupa.”
-APH.
Kagkaup
greiðir niður
kartöflurnar
Páll Guðbrandsson, bóndi í Há-
varðarkoti, sagði að það væri slæm
þróun að kartöflur væru seldar beint til
kaupmanna, sérstaklega þegar ljóst
væri að kartöflurnar þar væru niður-
greiddar af versluninni.
— En er kerf ið að hryn ja ?
„Þaö gerir þaö náttúrlega með
þessu áfpamhaldi ef verslanirnar ætla
að greiða kartöflurnar niður. ”
— En ert þú ánægöur með Græn-
metisverslunina?
„Þaö eru margar hliöar á þessu
máli. Greiðslufyrirkomulagið hjá
Grænmetisversluninni er mjög gott og
fáum við mánaðarlega greitt fyrir
kartöflumar.
En þar má samt laga ýmislegt. Eg
vil leggja áherslu á sölumennsku og
því miður er hún ekki til í Grænmetinu.
Við viljum yfirtaka Grænmetisversl-
unina og þaö er ýmislegt sem við
höfum á takteinunum sem gæti bætt á-
standið.”
Páll sagði að það væri brýnt atriði
að neysla á kartöflum ykist. En að
hans mati verða bændur að hafa sterk
sölusamtök til að annast söluna á
Páll Guðbrandsson, bóndi i Hávarð-
arkoti.
kartöflunum.
„Það sem er nú að gerast í kartöflu-
málum er fyrst og fremst áróður frá
kaupmönnum. Og þaö er ljóst að þetta
á eftir að hafa áhrif á þann veg að
kartöflur lækka í verði og það geta
bændur ekki ráöið við,” sagði Páll.
, ,V ið megum ekki á neinn hátt missa
þetta úr höndunum á okkur þannig að
þaö fari að verða undirboð. Þaö er það
sem kemur í kjölfarið á því þegar
kartöflur eru seldar beint til kaup-
manna.”
Páll sagði að það væri hans skoðun
að bændur ættu að standa jafnt að vígi
gagnvart sölunni og ættu að hafa
tryggingu fyrir því að geta selt í hlut-
falli viðframleiðslusína. -APH.
TIL SÖLU
Báturinn er ca 1,5 tonn meö SABB dísilvél, 8—10 hestafla,
bátur og vél í góöu standi.
Upplýsingar í síma 92-7003 og 92-7135.
Eitthvað fyrir
piá
Vió leggjum áherslu á
fjölbreytni í skrifborðs-
stólum og vandaða vöru.
15 ára reynsla hefur
kennt okkur margt og
ennþá vinnum við að því
að bæta framleiðsluna
og auka úrvalið.
Líttu inn til okkar,
við höfum ábyggilega
eitthvað fyrir þig.
STÁUÐJANhf
SMIÐJUVEGI 5, KÓPAVOGI, SÍMI 43211
Einkaviðtal Vikunnar
við Pierre Cardin
- eða var það kannski einkaviðtal Pierre Cardin við blaðamann
Vikunnar? Það er kannski vandséð hvort er hvort, en svo mikið
er víst að þessi frægasti af öllum frægum tískuhönnuðum var
fullur af áhuga á íslandi og lát hann ótæpilega í Ijós í þessu sér-
stæða og hressilega Vikuviðtali.
Hverju svaraði steinninn?
Umsögn dómnefndar: Óvenjuleg frásögn
um óvenjulegar kringumstæður, og á sem
slfk erindi til almennings. - Þetta er frá-
sögnin sem fókk önnur verðlaun i sam-
keppninni vikan og tilveran.
Ljós í Viðeyjarstofu
Jónas Arnason rithöfundur fer á gömlu, góðu kostun-
um í þessum frásöguþætti ór daglega lífinu.
Svæðanudd gegn höfuðverk
og nó er kennt hvernig nudda skal fingurna til að losna
við fjandans hausverkinnl
0G ÁRÍÐANDI TILKYNNING FRÁ
AUGLÝSINGADEILDINNI:
Nú er það auglýsingaverðið sem gildir!
Litaauglýsing í Vikunni margborgar sig!
Beinn sími auglýsingadeildar: 68 53 20.
Bílasýning í Los Angeles
Sveinbjörn Guðjohnsen sýnir okkur myndir af
nokkrum völdum „hot rods" sem voru á sýn
ingu þar fyrir vestan fyrr í sumar.