Dagblaðið Vísir - DV - 24.08.1984, Page 6
6
DV. FÖSTUDAGUR 24. AGUST1984.
Tóku 90 gísla eftir
flugrán á Indlandi
Boeing 737 flugvél indverska flugfé-
lagsins, meö um 90 manns innanborðs,
er á flugvellinum í Lahore í Pakistan
eftir aö flugræningjar sneru henni
þangað frá Indlandi. Talið er að flug-
ræningjamir séu sikkar.
Flugvélinni var rænt þegar hún var á
leið til Srinagar í Kashmir í morgun.
Vélinni var rænt 33 mínútum eftir að
hún hóf sig á loft frá Chandigarh í Pun-
jab fylki sem er heimaland sikka á Ind-
landi.
Pakistönsk yfirvöld voru mjög treg
til að gefa vélinni lendingarleyfi í
Lahore, en gáfu leyfið þegar flugstjóri
vélarinnar sagði lítið eldsneyti vera
eftir.Sendiherralndlands í Islamabad,
höfuöborg Pakistans, mun vera á leið
til Lahore, samkvæmt síðustu fréttum.
Vélin var á flugi milli þeirra fylkja á
Indlandi þar sem hvað róstursamast
varfyrrísumar.
Neyðarástand fram-
undan á Indlandi?
Sovéther
skipti litlu
Forseti Rúmeníu, Nicolai Ceaus-
escu, þykir hafa gert lítiö úr hlut sov-
éska hersins í Rúmeníu við lok síðari
heimsstyrjaldarinnar. Um þessar
mundir fara fram hátíðahöld vegna
þess að 40 ár eru síðan landið var frels-
aö undan oki nasista og ýmislegt bend-
ir til að meiri háttar endurskoðun
Rúmeníusögunnar eigi sér stað meðal
ráðamanna.
I ræðu lofaði Ceausescu sovéska her-
inn almennt fyrir framgang í styrjöld-
inni en lagöi mikla áherslu á þátt hins
örsmáa rúmenska kommúnistaflokks í
aö reka nasista úr landinu.
Taliö er að þessi nýja söguskoðun
geti leitt til enn frekari árekstra milli
Sovétmanna og Rúmena.
Ekki er víst að Sovétmenn verði
ánægðir með hina nýju söguskoðun
Ceausescus.
'2*
sn* - ™ .
‘ >*..■ __________________________
Ein áreiðanlegasta sönnunin um áhuga Sovétmanna á ströndum Svíþjóðar fékkst þegar þessi kafbátur strandaði á
skeri nálægt flotastöðinni í Karlskrona.
Útlönd Útlönd Útlönd Útlönd Útlönd
SOVÉSKT NJÓSNA-
LID í SVÍÞJÓD
Sovéskir njósnarar hafa í hundruð-
um skipta gengið á land á ströndum
Svíþjóðar frá kafbátum og kaupskip-
um að sögn hernaðarsérfræðinga í
London.
Ritstjóri árbókarinnar Jane’s
Fighting Ships segir að slík liö hafi far-
ið á land í Svíþjóð að minnsta kosti 150
sinnum undanfarin 20 ár.
Ritstjórinn, John Moore, sagði aö Uö-
in væru skipuð mönnum úr mismun-
andi deildum sovéska hersins og væru
undir stjóm leyniþjónustu hersins.
Þetta væru sérlið, „þjálfuð í árásarað-
gerðum, skemmdarverkum, njósnum
og stjómmálamoröum”.
Moore sagði að lítið væri vitað um
þessar aðgerðir en hann hefði undir
höndum vissar upplýsingar sem vörp-
uðu ljósi á þær.
Sænskir stjórnmálamenn hafa ásak-
að Sovétríkin um að hafa í hyggju að
nota Svíþjóð sem stökkpall til árásar á
Noreg ef til stríðs kemur. Sovétmenn
hafa vísað þeim ásökunum á bug.
I febrúar sl. sagði fyrrverandi
stjómara-indreki, sem flúöi frá Sovét-
ríkjunum, að sovéska hemum hefði
verið skipaö að rannsaka og kortleggja
skandinavísku strandlengjuna.
,,Áætlunin er að senda kafbáta inn á
sænsku og norsku firöina um leið og
neyðarástand skapast í alþjóðamál-
um,” sagöi stjómarerindrekinn,
Arkady Shevchenko.
Tveir Norðmenn týnd
ir í Himalajafjöllum
Norskir fjallagarpar bíða nú í norska
sendiráöinu í Pakistan eftir aö fá að
fara í þyrlu aö leita tveggja félaga
sinna sem eru týndir í fimm kílómetra
hæð í fjalli einu í Himaiajafjall-
garöinum. Margar vikur eru síöan
félagamir tveir lögðu upp í að klifra
fjallið Trangóturninn sem er talið ill-
kleifasta fjall í heimi, og talið er víst að
þeirséulátnir.
En vinir þeirra tveir sem nú eru í
Islamabad, höfuðborg Pakistans, vilja
freista þess að ná í lík þeirra. Það tók
þá langan tíma að fá leyfi til að fara
upp á svæöið í þyrlu og nú bíða þeir
baraeftirflugveðri.
Þyrluferðin, ef af nenni verður,
verður hið mesta glæfraflug, enda
erfitt að stjóma þyrlu í fimm kíló-
metra hæð. Þá er alveg óvíst hvort
hægt er að koma manni niöur á fjallið,
því að öllum líkindum eru fjallgöngu-
mennimir týndu einhvers staðar í
þverhníptu berginu. En Norðmennirn-
ir tveir í Islamabad eru staðráðnir í að
gefast ekki upp fyrr en í fulla hnefana.
Þeir vita nokkurn veginn hvar
mennirnir týndu eru og eina leiðin til
að komast að því hvað gerðist hjá þeim
er að fara upp í þyrlu. Ganga upp
f jallið tekur þrjár vikur og mennirnir
tveir, sem týndir em, Hans Christian
Doseth, 25 ára, og Finn Dæhli, 29 ára,
eru einhverjir reyndustu fjallgöngu-
menn Noregs og litið vit í að senda
fleiri í ferð sem sennilega yrði beint í
sama dauða og beið garpanna tveggja.
Um 50.000 manns mættu á mótmæla-
fundi gegn Indiru Gandhi í Nýju Delhi í
gærkvöldi. Aöalstjarna fundarins var
hinn brottrekni aðalráöherra Andhra
Pradesh, N.T. Rama Rao. Aðrir ræðu-
menn vom flestir stjómarandstööu-
leiðtogar landsins þar á meðal Maneka
Gandhi, tengdadóttir forsætisráðherr-
ans.
Nær allir ræöumenn sögðu landið
vera á barmi nýrra neyðarráðstafana,
líkt og árið 1975 þegar Indira Gandhi
lýsti yflr neyðarástandi og tók sér ein-
ræðisvöld. Verkalýösfélög hafa gengiö
í liö með stjórnarandstöðunni og ætla
aðtaka þátt í ,,bjargiðlýðræðinu”-deg-
inum á laugardag.
Blóðugir bar-
dagar lögreglu
og skæruliða
Lögregla og her í Chile drápu í gær
átta grunaða vinstrisinnaða skæmliða
í fimm aöskildum aðgeröum.
I borginni Concepcion, í suöurhluta
Chile, skaut lögregla 34 ára gamlan
mann til dauða þegar hann varðist
handtöku, að sögn opinberra aðila.
Þegar lögregla réðst síðar inn á heimili
mannsins flúðu tveir vopnaðir menn,
hertóku strætisvagn með farþegum og
reyndu þannig að komast undan lög-
reglunni. Hún notaði táragas til að
neyða mennina tvo út og skaut þá síð-
an, eftir byssubardaga, segir lög-
reglan.
Nokkrum tímum síðar vom tveir
vopnaðir menn sem rændu leigubíl
skotnir eftir 40 mínútna eltingarleik.
Einn óbreyttur borgari var einnig
drepinn í bardaganum og lögreglu-
maðursærðist.
I borginni Los Angeles, í Chile, var
einn maður drepinn í „fyrirbyggjandi
aðgerðum” gegn skæruliöum.
Tveir skæruliðar í viðbót voru drepn-
ir 400 kílómetrum sunnan Los Angeles
í lögregluárás, að sögn heimilda í innan-
ríkisráðuneytinu.
Ríkisstjóm Chile hefur ásakað
vinstrisinnaða skæruliða um aö hafa
komið fyrir fjölda sprengja nálægt
orkulínum, bönkum og opinberum
byggingum á þessu ári.
I gær sagði verkalýösráðherra
landsins líka af sér vegna ágreinings
um endurbætur á verkalýðslögum. Ráð-
herrann, Hugo Galvez, vildi milda
sumar aðgerðir herstjórnarinnar í
Chile.
Ungfrúrúti
með krullujárn
Fimmtán sætustu stúlkur Bret-
landseyja flúðu út úr hótelinu sínu í
gær með krullujámin í hárinu þeg-
ar uppvíst varð um eld í bygging-
unni.
Nokkram tímum fyrir upphaf
Ungfrú Bretlands-keppninnar
kviknaði í bíl á bílastæði í kjallara
hótelsins og varð að senda alla út
úr hótelinu í um klukkutíma. Flest-
ar stúlkurnar vora aö þvo hár sitt
þegar brunatilkynningin kom.
Sigurvegarinn í keppninni mun
taka þátt í keppninni Ungfrú veröld
í London í nóvember.