Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 24.08.1984, Qupperneq 11

Dagblaðið Vísir - DV - 24.08.1984, Qupperneq 11
DV. FÖSTUDAGUR 24. AGUST1984. 11 Alltað þorna upp fyrirnorðan: - voru tilmæli mín tii íbúa Svalbarðseyrar „Vinsamlegast ekki vökva garð- ana ykkar og ekki þvo bílana.” Þessi tilmæli fengu íbúar á Sval- barðseyri og nágrenni frá vatns- veitu Svalbarðseyrar. „Það hefur varla rignt svo heitið geti hér frá því í júní. Þetta hefur haft það í för með sér að vatn er af skornum skammti,” sagöi Bjarni Hólmgrimsson, oddviti á Sval- barðseyri. Hann sagði ennfremur að vatns- ból þeirra í Vaðlaheiöi væri orðið rýrt. „Það er oröiö óvenjuþurrt í fjallinunúna.” — Enhafahlotistafvandræði? „Nei, ekki enn sem komið er. En ef ekki kemur rigning fyrir slátur- tíöina, þá lendum við í vandræðum. Það er augljóst. Þið ættuð að láta okkur fá eitthvað af rigningunni ykkar fyrir sunnan.” Svo mikill þurrkur er nú fyrir noröan að víða eru heilu lækirnir þomaöir upp. -JGH Nfgeríu- mennkomnir tilskreiðar- kaupa Fulltrúar frá Nígeríu eru hér á landi þessa dagana og ræða við skreiöarútflytjendur um hugsanleg kaup á þeirri skreið sem til er. Við- skiptin hafa verið lengi í deiglunni og á tímabili í vor virtist sem af þeim gæti orðið þá og þegar. Enn er óljóst hver árangur verður af við- ræðunum nú. Verðmæti þeirra skreiðarbirgða sem til eru mun vera á annan millj- arðkróna. HERB Vísitala byggingar- kostnaðar: Hækkar um0,15% I samræmi við þá ákvörðun ríkis- stjómarinnar aö vísitala bygging- arkostnaðar skuli áætluð fyrir þá mánuði sem hún er ekki reiknuð lögformlega hefur Hagstofan áætl- að hana eftir verðlagi í fyrri hluta ágúst 1984. Reyndist hún vera 164,85 stig, reiknuð með tveimur aukastöfum (desember 1982 = 100). Samsvarandi vísitala miöuð við eldri grunn (október 1975 = 100) er2443stig. Vísitala byggingarkostnaðar miðað við júlíverölag 1984 var 164,60 stig, og er því hækkun henn- ar frá júlí til ágúst 1984 0,15% Hagstofan tekur það fram að við uppgjör verðbóta á fjárskuldbind- ingar, samkvæmt ákvæðum í hvers konar samningar um að þær skuli fylgja vísitölu byggingarkostnað- ar, gilda hinar lögformlegu vísitöl- ur sem reiknaðar era á þriggja mánáöa fresti. Aætlaðar vísitölur fyrir mánuöi inn á milli lögákveð- inna útreikningstíma skipta hér ekkimáli. Verzlunarskóli íslands verður settur 10. september nk. kl. 2 e.h. í hátíðarsal skól- ans. Verzlunarskóli íslands. Tilkyiming til skattgreiðenda Dráttarvextir vegna vangreiddra þinggjalda verða reikn- aðir að kvöldi föstudags 5. september nk. Vinsamlegast gerið skil f yrir þann tíma. Fjármálaráðuneytið, 22. ágúst 1984. Kennarar— Kennarar Kennara vantar að grunnskóla Eyrarsveitar Grundarfirði. I skólanum eru 140 nemendur frá forskóla og upp í níunda bekk. Skólinn er að stórum hluta í nýlegu húsnæði með sérkennslu- stofum og góðu skólasafni. I Grundarfirði búa liðlega 700 manns. Húsnæði er fyrir hendi. Æskilegar kennslugreinar eru: enska, danska, stærðfræði eðlisfræði, kennsla yngri barna og kennsla í athvarfi. Upplýsingar gefur skólastjóri, Gunnar Kristjánsson, í símum 93-8619 — 93-8685 eða 93-8802. N'e'3 \an<Js«'e- ui0Y\e\9at fa\\toVsS°

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.