Dagblaðið Vísir - DV - 24.08.1984, Blaðsíða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 24.08.1984, Blaðsíða 13
DV. FÖSTUDAGUR 24. AGUST1984. 13 Svikamylla þróunarhjálpar Á árunum 1972-1981 seldu Sovét- rikin þriöjaheimslöndum vopn fyrir 65 milljaröa dollara (og mest eftir Helsinki-samkomulag 1975). Sovét- rikin taka ekki þátt í Matvælastofnun Sameinuöu þjóöanna og veita vart aöra þróunarhjálp en þessa. 1 kjölfar vopnasölunnar koma svo „sérfræö- ingar” og „ráögjafar” sem segja fyrir um heppilega nýtingu á sölu- vörunni. Ýmsir ríkisleiötogar í þriöja heiminum telja vopnakaup og herskap nauösynleg til aö halda sér viö völd og mikilvægara en aö brauö- fæða alþýðuna. Neyð og gjafakorn Þýzka vikuritið SPIEGEL sendi fyrr á þessu ári fimm fréttaritara um þvera og endilanga Afríku. Niðurstaða þeirra var þessi: Þaö er víöa skortur, en hungursneyð fyrir- finnst ekki (SPIEGEL, nr. 29,1984). Þaö vantar vegi, vörubíla og geymsluhús. En þaö sem vantar fyrst og fremst er að bændur rækti sjálfir þau matvæli sem koma á markaöinn. Enginn bóndi getur keppt viö innflutt ókeypis gjafakorn. Gjafakornið veldur því, aö bændur gefast upp. Það borgar sig ekki aö sá. Meö þessu er grafiö undan sjálfs- trausti bænda í Afríku. Það endur- heimta þeir ekki nema þeim sé treyst til þess að yrkja jöröina og gert þaö kleift. Til þess þurfa þeir ef til vill leiðbeiningar um nýtingu vatns og lands (um áburöamotkun, um hvernig á að forðast ofbeit og uppblástur). En það sem þeir þurfa fyrst og fremst er sanngjamt verö ARNÓR HANNIBALSSON, DOSENTÍ HEIMSPEKI VIÐ HÁSKÓLA ÍSLANDS fyrir afurðir sínar. Gjafakomiö kippir fótunum undan sjálfstæðum búskap. Þaö hrekur bændur af jörðum sínum, gerir þá aö sjálfs- virðingarlausum betlurum. Það er hægverkandi eitur, segir ofannefnt vikurit. Svikamylla En gjafakornið og „þróunar- hjálpin” hefur fleira í för meö sér. Okeypis matur erlendis frá losar ríkjaleiðtogana undan því aö kaupa mat eöa leggja fram fé til fram- kvæmda í landbúnaöi (eöa í aðra fjárfestingu). Þaö fé sem þannig losnar er einatt notaö til aö kaupa vopn. Þannig hefur t.d. eyöimerkur- ríkið Malí yfir sovézkum M|IG orrustuþotum aö ráöa. Fyrir þær greiðir Malí með afrakstri af gull- námum landsins. Sovétríkin nota svo þann beinharða gjaldeyri sem þau græða á verzlun meö dauðann til aö kaupa matvæli (korn) í Banda- ríkjunum og viðar, og meö því bægja þau frá hungursneyð í Sovét- ríkjunum sjálfum. I þriöjaheims- rikjunum eru vopnin oft notuö til aö kúga þjóðernisminnihluta, eöa til að klekkja á þeim sem sýna framtaks- vilja og frumkvæöi og eru gagnrýnir á stjórnvöldin. Þaö eru korngjafarar, hjálpar- stofnanir, þróunarvikingar og kristi- legir kærleiksboöarar sem kosta þessa djöfullegu svikamyllu. Að sletta ölmusu Séra Guömundur Oskar Olafsson segist (Mbl., 4.8.) hafa heyrt í ís- lenzkum blöðum raddir um aö þriöjaheimsfólk eigi að bjarga sér sjálft. Varla hefur hann þaö eftir mér. Eg hef lagt til aö viö hjálpuðum þessu fólki til aö verða sjálfbjarga. Séra Guömundur segir frá betlara í Ghana. Hann segir þaö kristilega góömennsku að sletta ölmusu í betlarann, t.d. skreiðartöflum og fleira góögæti. En guösmaöurinn spyr ekki: Hvað (eöa hver) gerði Ghana-manninn aö betlara? Væri ekki vænlegra aö ráöast aö rótum trjánna og gá aö orsökum? Er mann- inum sýnd viröing meö því að kasta í hann smápeningi? Væri ekki nær aö hjálpa honum til aö hafa ofan af fyrir sér, t.d. meö því aö yrkja jörö? Eg álít aö fólk í Afríku og Asíu eigi sama rétt til sjálfsviröingar og aörir menn (t.d. Evrópumenn). Sá sem er neyddur til aö lifa af ölmusum og betli öölast ekki sjálfsviröingu. Þróunarhjálp til íslands Einn góöan veöurdag ákveöur Maddkaffi Sandíuleiötogi aö veita Is- landi þróunarhjálp. Risavaxin moska er reist í Reykjavík og einn þjóna hennar gengur rakleitt á fund séra Guðmundar Oskars Olafssonar og segir við hann: Nú skal ég kenna þér hina einu sönnu trú á hinn eina rétta guð og þaö með hverskonar hjáguð þessi er sem þú hefur þjónaö hingað til. — Jafnframt verður send hingaö nefnd sérfræðinga beint úr Sandíueyöimörkinni til aö kenna Is- lendingum aö veiða fisk og rækta jörö. Risatankskip kemur í Skerjafjörð meö ókeypis gjafabensín handa Is- lendingum, sem samkvæmt þróunar- hjálparfréttum þjást af bensínneyð. Það fylgir, að þessu veröi haldið áfram svo lengi sem Islendingar lofa að taka viö. Og séra Guðmundur Oskar Olafsson skrifar hugvekju í Morgunblaðið undir fyrirsögninni: Betlari var ég og brauð var mér gefið. Höfuðvandamálið Myndum viö telja það virðingar- auka að einhver þjóö eða ríki færi aö punda yfir okkur „þróunarhjálp”? (Er ekki Island náttúruauöæfalaust og atvinnuvegirnir í kaldakoli?) Eöa er þaö ekki svo, aö viö teljum okkur sjálfbjarga og viljum hafa okkar andlega og efnalega líf út af fyrir okkur og aö eigin hætti? Við eigum að viröa rétt annarra þjóöa til hins sama. Höfuðvandamál þriöja heimsins er hvorki fátæktin né hungrið, þótt sárt sé víöa (og ýkt mjög í þróunar- hjálparfréttum, því aö meö ein- hverju verða þróunarhjálparar að réttlæta sjálfa sig). Iðnríkin halda niðri veröi á útflutningsvörum þróunarríkja. Þau græða á því sjálf, en drepa þróunarríkin í dróma fátæktar. Síðan koma hjálpararnir á vettvang til að viðhalda kerfinu, og meö ofanlýstum afleiöingum. I þessu er höfuðvandamáliö fólgiö. Arnór Hannibalsson • „Iðnríkin halda niðri verði á útflutnings- vörum þróunarríkja. Þau græða á því sjálf, en drepa þróunarríkin í dróma fá- tæktar.” viðræður Sanngjörn nððurstaða Alusúisse: væri 20 mill á kWh Fulltrúar samninganefndar um stóriöju hafa nú haldið utan til Ziirich til frekari viöræðna við Alusuisse um hækkun raforkuverðs til Islenska álfélagsins h/f. Ef dæma má af fréttum fjölmiðla að undan- fömu er því miður ekki ástæða til mikillar bjartsýni á niöurstööur fundarins í Ziirich. Þvert á móti eru ýmsar blikur á lofti sem benda til að ef samningar verða gerðir í þessari lotu verði þeir langt frá því aö vera viðunandi fyrir Islands hönd. Ein af þeim er sú fullyröing, sem berg- málað hefur í fjölmiölum að undan- fömu um, aö meðalorkuverð til ál- vera í Evrópu sé nú 14,5 mill/kWh.' Sú spurning hlýtur að vakna hvort næstu fréttir af samningamálum veröi að samkomulag hafi verið gert um aö raforkuverö til ISAL hækki í 13 mill/kWh og aö samkomulagið verði byggt á þeim rökum að meðal- orkuverð til álvera sé 14,5 mill/kWh og að óhagræöið af því aö reka ál- verksmiðju á Islandi, miöaö viö ann- ars staðar í Evrópu, jafngildi u.þ.b. 1,5 mill/kWh í orkuverði. Vafasöm viðmiðun Undirritaöur hefur ekki undir höndum þá útreikninga sem liggja aö baki þeirri fullyrðingu aö meöal- verö til álvera í Evrópu sé nú 14,5 mill/kWh, en því veröur ekki trúaö að þessi tala sé úr lausu lofti gripin. Engu aö síður er fráleitt aö ganga út frá þessari tölu einni til viömiöunar í samningum um orkuverö til ISAL. Ástæöur þess erum.a. eftirfarandi: 1. I árslok 1981 var meðalorkuverö til álvera í Evrópu um 20 mill/kWh. Tímabundin lækkun á raforkuveröi hjá álverum sem að mestu kaupa orku frá skyldum aðilum, tímabundinn samdráttur í framleiöslu nokkurra álvera þar sem orkuverö er hæst og há skráning Bandaríkjadollars gagnvart Evrópugjaldmiðlum, nú sem stendur, eru þættir sem geta hafa leitt til þess aö sýna megi fram á aö í augnablikinu sé meöalverð til áliðnaðar mun lægra en þaö var fyrir 2—3 árum. Við ákvöröun um raforkuverð til ÍSAL á næstu árum og jafnvel áratugum er hlns vegar fulikom- lega óeðlilegt aö leggja til grund- vallar þessar sérstæðu og tíma- bundnu aðstæður sem nú ríkja í áliðnaði. 4, 2. Mjög stór hluti af allri orku til ál- vera í Evrópu er framleiddur í eigin orkuverum viökomandi ál- vera eða keyptur af sama eignar- aðila og á sjálft álverið. I þessu tilviki er ekki um viðskipti óskyldra aöila að ræða. Raforku- verð sem tíðkast í viðskiptum skyldra aöila getur ekki talist eölileg viðmiöun í samningum um raforkuverð til ÍSAL. 3. Island liggur mjög vel viö ál- mörkuöum bæði austan hafs og vestan. ISAL gæti því allt eins selt ál til Bandaríkjanna eins og til Evrópu. Meðalorkuverð til álvera í N-Ameríku er nú um 21 mill/kWh. Allur áliönaöur ALCAN í Kanada er þarna með- talinn þannig aö ljóst er aö ef ieinungis væri tekiö miö af viðskiptum óskyldra aöila væri þessi tala til muna hærri. Þegar á heildina er litiö jafngildir óhag- ræöiö af því aö reka álver á Islandi miöað viö í Banda- ríkjunum um 1 mill/kWh. Sam- keppnisfært orkuverö hjá ÍSAL gagnvart stærsta álmarkaði heimsins er þannig a.m.k. 20 mill/kWh. Það væri í hæsta máta óeðlilegt ef ekki ætti einnig að taka tillit til þessarar staðreynd- ar í samningum um orkuverð til ISAL. ISAL fær nú um 40% af allri for- gangsorkuframleiðslu Lands- virkjunar. Hvergi í heiminum fer jafnstór hluti af orkuframleiðslu einnar þjóðar til áliðnaðar, hvaö þá til eins fyrirtækis. Sjálfsögö krafa annarra atvinnufyrirtækja og heimila í landinu er sú aö kostnaði Landsvirkjunar viö orkuframleiðsluna verði skipt á réttlátan og eölilegan hátt á milli stóriöjunnar annars vegar og annarra orkunotenda hins vegar. Einhlít viömiðun viö meöalorku- verð í Evrópu tekur ekki tillit til þess hvað það kostar aö fram- leiða orkuna handa ISAL. Miðað viö eölilega kostnaðar- skiptingu ætti ISAL aö greiöa aö lágmarki 65% af orkuveröi til al- menningsveitna, sem nú er u.þ.b. 37 mill/kWh. Samkvæmt því ætti orkuverð til ISAL aö vera 24 mill/kwh. Ef reiknaö er meö að Kjallarinn FINNBOGI JÓNSSON, FRAMKVÆMDASTJÓRIIÐN- ÞRÓUNARFÉLAGS EYJAFJARÐAR HF. OGVARAMADURí STJÓRN LANDSVIRKJUNAR. Landsvirkjun heföi svipaðar heildartekjur eftir hækkun orkuverös til ISAL eins og nú, gæti orkuverö samkvæmt eðlilegri kostnaðarskiptingu veriö um 30 mill/kWh til almennings- veitna og um 20 mill/kWh til ISAL. 5. Framangreind viðmiðun um meöalorkuverð til áliðnaðar í Evrópu tekur ekki nema að tak- mörkuðu leyti tillit til gjör- breyttra forsendna í orku- og efnahagsmálum í heiminum frá því að upphaflegur raforku- samningur viö Isal var gerður. I skýrslu starfshóps um athugun á raforkuverði til Islenska ál- félagsins og út kom á vegum .iönaöarráöuneytisins áriö 1982 er rækilega fjallaö um þessi atriði. I starfshópi þessum áttu sæti aöilar frá iðnaöarráöuneytinu, Orkustofnun, Landsvirkjun og Rafmagnsveitum ríkisins. I skýrslunni er m.a. bent á breyttar forsendur um almennt orkuverð í heiminum, um raforkuverö til ál- iðnaðar, um framleiðslukostnaö raforku á Islandi, um aðgang ISAL aö tollfrjálsum ál- mörkuöum, um samkeppnisstööu ISAL gagnvart Evrópu og Banda- ríkjunum ásamt fleiru. Ekki eru tök á aö rekja nánar þessi atriði hér en í niðurstööum skýrslunnar segir m.a.: „Að öllu samanlögðu telur starfshópurlnn að gjör- breyttar forsendur frá því aö raf- orkusamningurinn var gerður 1966 og eftir endurskoðun hans 1975 réttlæti kröfur um að raf- orkuverðið til tSAL hækki í 15—20 mill/kWh miðað við verðlag 1982.” Miðað viö núgildandi verölag jafngildir þessi niður- staða því að raforkuveröið hækki í 17—22 mill/kWh og veröi að fullu verðtryggt. Niðurstaða Að mati undirritaðs stendur fyrr- greind niðurstaða um eðlilega hækkun raforkuverðs til ISAL full- komlega ennþá. Aö vísu hefur raf- orkuverð til álvera hjá skyidum aðilum í Evrópu lækkaö tímabundiö frá því sem það var á árinu 1981, en á móti hefur orkuverð í viöskiptum ó- skyldra aðila bæði í Evrópu og Bandaríkjunum hækkað verulega frá því sem það var 1981. Þá má minna á nýfallinn gerðardóm um raforkuverð til álverksmiðju Pechiney í Grikklandi og mjög mikla hækkun raforkuverös til Valco ál- verksmiöjunnar í Ghana nýlega. Þegar á heildina er litiö væri að mati undirritaðs ekki ósanngjörn niðurstaða samningaviðræðna sú aö raforkuverð til ÍSAL hækkaöi í 20 mill/kWh miöað viö núgildandi verölag og eðlilegt markaðsástand. Finnbogi Jónsson. ^ „ISAL fær nú um 40% af allri forgangs- orkuframleiðslu Landsvirkjunar Sjálfsögð krafa annarra atvinnufyrirtækja og heimila í landinu er sú að kostnaði Lands- virkjunar við orkuframleiðsluna verði skipt á réttlátan og eðlilegan hátt á milli stóriðjunnar annars vegar og annarra orkunotenda hins vegar.”

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.