Dagblaðið Vísir - DV - 31.08.1984, Blaðsíða 1
DAGBLAÐIÐ — VÍSIR
200. TBL. — 74. og 10. ÁRG. — FÖSTUDAGUR 31. ÁGÚST 1984.
W,
40 bátar og 4 togarar
búnir nteð afíakvótann
Tæplega 40 bátar og 4 togarar úr
fiskiskipaflota landsmanna eru
búnir meö aflakvóta sinn samkvæmt
upplýsingum Jakobs Jónssonar hjá
Fiskifélagi Islands. Um 20 bátar til
viðbótar eiga eftir innan viö tíu
prósent af kvótanum og 32 togarar
eiga eftir þrjátíu prósent eöa minna
af sínum aflakvóta.
„Þaö hafa allir vitað það aö afla-
kvótinn er ekki meiri en þetta. Það er
því furðulegt að menn skuli ekki
skipuleggja veiðarnar betur en
þetta,” sagði Halldór Ásgrímsson
sjávarútvegsráðherra í samtali við
DV þegar þessar tölur voru lagöar
undir hann.
— Þýða þessar tölur það að flota
landsmanna verði öllum lagt innan
skamms?
„Stjórnvöld eru alltaf spurð að því
hvort þau vilji bera ábyrgð á því að
skipunum verði lagt. Eg spyr á móti:
Telja menn það ráðlegt að ganga
meira á fiskistofnana en orðið er?
Þaö vita það allir sem vilja að hættu-
ástand hefur verið í sjónum. Nú sjá-
um við fram á bata. En til þess að
hann verði þurfa stofnarnir að fá
möguleika til að byggjast upp,
fiskurinn verður að fá að hrygna í
friði.
Mér finnst umræðan um þessi mál
snúast alltof mikið um næstu daga og
mánuði. Menn gleyma alveg fram-
tíðinni. En er það ekki mikiö atriði að
við höfum fisk til að veiða á komandi
árum? Eg tel það meira um vert,”
sagði Halldór Ásgrímsson.
Sjá einnig blaðsíðu 3.
-KÞ
Verkalýðsleiðtogar á Norður- og Austurlandi:
ENDURMETA
KRÖFUGERÐ
með hliðsjón af útkomu samninga á Vestfjörðum
Verkalýðsleiötogar á Norður- og
Austurlandi virðast reiðubúnir aö
endurskoða launakröf ur f élaga siima
með hliösjón af kröfum Alþýðusam-
bandsVestfjarða.
„Þeir hafa mikið til síns máls,”
sagði verkalýösleiðtogi á Norður-
landi um afstöðu Vestfirðinga í sam-
tali við DVI morgun. „Kröfur þeirra
einkennast af raunsæi.”
Forystumenn í verkalýðshreyfing-
unni á Austurlandi reiknuðu meö að
kallað yrði saman til formannafund-
ar í fjórðungnum um leið og samn-
ingar tækjust á Vestfjörðum. Kröfu-
gerðin yrði endurmetin í ljósi þeirra
samninga.
Alþýðusamband Vestfjarða hefur
sem kunnugt er farið fram á 7% al-
menna launahækkun 1. september og
9,5% hækkun til fiskvinnslufólks.
Samningafundi sem átti að vera í
gær var frestað til klukkan 14 í dag.
Samkvæmt upplýsingum DV má
reikna með að samningar takist
fljótlegafyrirvestan. EA
r
NYTA FÆREYINGAR
VEKHHEIMILDINA?
„Við höfum fjallað um skeyti Hall-
dórs Ásgrímssonar í landstjórninni.
Viö munum senda svar til hans og það
kemur fljótlega, þó ekki í dag,” sagði
Pauli Ellefsen, lögmaður Færeyinga, í
samtali við DV í morgun.
Hann endurtók það sem hann hefur
sagt áður hér í blaðinu, að það værí
ekki í valdi landstjórnarinnar að
stöðva veiðamar, þegar hann var
spurður hver viðbrögð landstjómar-
innar yrðu.
— Það hefur verið sagt að þið hafið
borgað Grænlendingum 3 milljónir
fyrir að fá að veiða þarna. Er það rétt?
„Færeysku skipin hafa greitt Græn-
lendingum eitthvað en ég þekki ekki
samninga einstakra skipa.”
— Því hefur verið haldið fram hér að
þið ætliö ekki að veiða þennan kvóta,
eins og gerðist 1981?
„Eg get ekki svarað þessu öðruvísi
en svo að færeysku skipin eru þama á
svæðinu,” sagöi Pauli Ellefsen. -KÞ
Bil þsssum hvolfdi vifl Rauðhóla siðdagis í gœr. Aðeins ökumaðurinn var i bílnum og lenti hann i lausa-
möl skömmu áður en hann kom að rimlabrúnni þarna með fyrrgreindum afleiðingum. Hann slapp
ómeiddur. DV-mynd S.
Aðeins eitt ián veitt
úrkjarnfóðursjóði
— sjá bls. 2
Úr kom óskemmt
undanvaltaraog
veghefii
- sjá bls. 15
ísienskhross
brennimerkt
— sjá bls. 4
Lausnarorðið er
frelsi
— sagði Milton Friedman
-sjábls.2
Beint af salerni í
keisaraskurð
— sjá bls. 3
Er að Ijúka smíði
tvíþekju
— sjá bls. 3
ÁfangihjáDan
-sjábls.34
Svipað veðurum
helgina
-sjábls.39
PeresogShamir
mynduðu stjórn í
ísrael
— sjá erlendar f réttir á
bls. 6 og 7