Dagblaðið Vísir - DV - 31.08.1984, Page 2

Dagblaðið Vísir - DV - 31.08.1984, Page 2
2 DV. FÖSTUDAGUR 31. AGUST1984. Gunnar Guðbjartsson um lánveitingar úr kjarnfóðursjóði: „AÐEINS EITT LÁN VEITT” Frá Arnarl P. Haukssyni, blaða- manni DV, á aðaliundi Stéttarsam- bands bænda: „Það hefur aðeins eitt lán verið} veitt og það til Sambands egg jafram-; leiðenda. Þaö lán var veitt í tveimur i áföngum, 2 milljónir í hvort sinn,” sagði Gunnar Guðbjartsson, fram- kvæmdastjóri Framleiðsluráðs, í samtali við DV er hann var inntur eftir því hversu mörg lán hefðu veriö veitt úr kjarnfóðursjóöi fram að þessu. I máli hans kom ennfremur fram að reyndar hefði verðmiðlunarsjóður fengið tvö lán, annað í lok árs 1982, samtals 14,7 miiijónir kr., og hitt nú í ár að upphæð 38 milljónir kr., bæði lánin væru vísitölutryggð og lóniö 1982 hefði verið greitt strax á sumar- mánuöum siðasta árs. Lánin hefðu veriö tekin vegna þess að tekjur verðmiðlunarsjóðs bærust seint og væru þau notuð til að brúa bilið. Landbúnaðarráðuneytiö á eftir að ákveða lánskjörin á lánunum til Sambands eggjaframleiðenda en reiknað er með að það verði vísitölu- tryggt með vöxtum, veitt til nokk- urra ára. Sagði Gunnar að veð fyrir lánunum yrði tekið i eggjapökkunar- vél stöðvar Sambands eggjafram- leiðenda. Heimildir til lánveitinga úr kjam- fóðursjóði er aö finna í 12. grein laga nr. 95 frá 1981. Þar er gert ráö fyrir að landbúnaðarráðherra geti heimilaö ráðstöfun á fé úr sjóönum umfram hefðbundin verkefni. -FRI Milton Friedman ásamt konu sinni Rose á fundinum. DV-mynd Bj.Bj. Lausnaroro- ið er fre/s/ — sagði Milton Friedman ,^g get gefið ykkur iausn sem felst I einu oröi og það orð er frelsi. Island er lítiö land og sem slíkt hefur það enn meiri þörf fyrir frelsi en stærri lönd,” sagði Milton Friedman, hagfræðingurinn heimskunni, á fundi með blaöamönnum í fyrradag er hann var spurður um hvort hann gæti gefið okkur einhver ráð í efna- hagsmálum. Milton sagðist á fundinum lítið þekkja til íslenskra efnahagsmála, að vísu hefði Seðlabankinn sent hon- um skýrslu um þau áður en hann kom en það væri ekki nóg til að gefa ábyggileg ráð. A fundinum var Friedman spurður út í þá gagnrýni aö kenningar hans væru fyrst og fremst fyrir hina riku. ,3esta leiðin til aö gera fátækt fólk að ríku er frjálst hagkerfi,” sagði hann og benti á aö í frjálsu hagkerfi geta menn ekki orðið ríkir á því að fara i vasana á öðrum heldur veröa þeir það með því að bjóða vöru eða þjónustu sem aðrir vilja kaupa. Hann benti jafnframt á að meiri munur væri á lífsgæðum hástétta og. lágstétta í miðstýrðum sósíalískum ríkjum en hinum kapitalísku. Á fundinum var Friedman enn- fremur spurður hvort það væri ekki staöreynd að kenningar hans heföu ekki tekist eins vel í framkvæmd og þær litu út á pappímum. Var bent á Israel, Chile og Bretland í þessu' sambandi. Hvað lsrael varðaði sagði Friedman að þar hefði hann lært að betra væri að gefa ráð en þiggja þau. Hann hefði ráðlagt þeim en þeir ekki farið eftir þeim ráðum. Hvað Chile varðaði sagöi hann að allt hefði gengið mjög vel í byrjun, verðbólgan hrapaði úr 400% og í 10% og þeir hefðu náð góðum hagvexti. Síðan hefðu þeir gert þau mistök að festa gengi sitt við bandaríkjadollar jafnframt því sem kopar hefði faUið í verði en hvorugt væri hægt aö skrifa á reikning kenninga hans. Hvað Bretland varðaði sagöi hann að vandi þeirra væri að halda opinber- um útgjöldum í skefjumsem kæmi kenningum hans lítið við. Hann tók svo Japan sem dæmi um góðan árangur kenninga hans en frá árinu 1973 hafa Japanir fylgt sams-< konar stefnu og peningamagnskenn-; ingar hans ganga út á með mjög góð- um árangri. -FRI. Landbúnaðarráðherra á aðalf undi stéttarsambands bænda: Ekki meira frelsi þótt menn fari sjálfir með poka sína Frá Arnari PáU Haukssyni blaðamanni DV á aðalfundi Stéttar- sambands bænda á tsafirði: „Við eigum öU auðvelt með að skUja vilja bóndans til að haga búskap sínum eins og hann hefur löngun til. Það stoðar lítt aö auka framleiöslu þegar aðstæður eru þannig að árangur af þvi verður aðeins aukinn tilkostnaður,” sagði Jón Helgason landbúnaðarráð- herra í ávarpi sínu á aðalfundi Stéttarsambands bænda sem fram fer nú á Isafirði. Hann sagði að nú væri unnið að mörkun nýrrar framleiöslu- stefnu í landbúnaöi og væri mikUvægt að stjómunarreglur þær yrðu áhrifa- ríkar, réttlátár og einfaldar og megin- verkefnið væri að styrkja stöðu og af- komu íslensks landbúnaðar til hags- bóta fyrir aUa þjóðina. Hann gerði einnig að umræöuefni sínu þá atburði sem átt hafa sér stað i sölumálum kartaflna og annarra land- búnaðarvara. Hann sagöi að nú væri verið með múgsefjun og æsingi að brjóta niður þátt þess skipulags sem ánunnist hefði fram að þessu. .F'relsi er fagurt hugtak, en öUum ætti þó að vera ijóst að frelsi án skipulags er ringulreið og islenska þjóðin má alls ekki við því að efna til uppreisnar og ringulreiðar hvorki í landbúnaöi né á öðrum sviðum. Við hljótum að dást að glöggskyggni hins fræga rithöfundar á mætti múgsef junarinnar í sögu hans um nýju fötin keisarans, þegar kaupmaður getur í dag fengið fjölda manns tU að tyggja eftir sér að kartöfl- ur, sem hann hefur heUt úr poka í trog í homi verslunar sinnar, séu frjálsar. Þaö er haldið uppi látlausum rógi og svívirðingum um þá sem vUja vinna að hagkvæmni og skipulagningu á þessu sviði,” sagöi Jón Helgason land- búnaðarráðherra. Hann sagöi að frelsi kartöflubænda ykist ekki við það að þeir þyrftu nú að fara sjálfir miUi verslanameðpokasína. -GH. DV-mynd S. Eftirtektarveröar breytingar í Moskvu — hefur APN eftir Davíð Oddssyni borgarstjóra, sem nú heimsækir höfuðborg Sovétríkjanna „Það gleður okkur að dagskrá heim- sóknarinnar er mjög í samræmi við óskir okkar. Hún veitir okkur tækifæri til þess að fræðast meira um vandamál sem við höfum áhuga á í lifi sovésku þjóðarinnar,” sagði Davíð Oddsson borgarstjóri á fundi framkvæmda- nefndar borgarstjómarinnar í Moskvu. Davíð er formaður sendinefndar frá Reykjavík, sem þessa dagana eru í vikuheimsókn í höfuöborg Sovét- ríkjanna. Meö honum í för eru Markús öm Antonsson, Kristján Benediktsson og Sigurjón Pétursson borgarfulltrúar og Jón G. Tómasson borgarritari. I viðræðum við ráðamenn Moskvu- borgar hefur íslensku gestunum verið skýrt frá húsnæðis- og iðnaðarupp- byggingu í Moskvu, þróun samgangna í borginni og lausn vandamála verslunarþjónustu og heilsugæslu. Þá hefur þeim verið kynnt aöalskipulag um þróun Moskvu fram til ársins 2010. „Það gleður okkur að tekist hafa góð samskipti milli Moskvu og Reykja- víkur. Höfuðborgir landa okkar eiga margt sameiginlegt. Regluleg skipti á sendinefndum gera okkur kleift aö miöla hvorir öðrum af reynslu okkar,” sagði Davíð borgarstjóri að því er fram kemur í frétt frá APN-frétta- stofunni. „Við höfum áhuga á lausn byggingarvandamála i Moskvu. Moskva er lifandi borg og við sjáum að hún breytist ört. Eftirtektarverðar breytingar hafa átt sér stað frá síöustu heimsókn okkar hingað fyrir ekki svo löngu. Við óskum Moskvubúum velgengni við framkvæmd víötækra áætlana um þróun borgarinnar,” sagði Davíð. -KMU. Milton Friedman í sjónvarpi í kvöld: HANNES HÓLMSTEINN VILDI KLIPPA A GJALDTÖKUNA „Við gerðum Hannesi Hólmsteini ljóst að hvorki hann né aðrir utanhúss- menn klipptu viðtalsþætti sem teknir eru upp hjá sjónvarpinu og lét hann sér segjast”, sagði Sigurður Grímsson sem stjórnaði upptöku á viðtalsþætti við frjálshyggjumanninn Milton Friedman og sýndur verður í s jónvarpi í kvöld. „Þátturinn verður sýndur óstyttur hvað sem mótmælum Hannes- ar líður.” I viötalsþættinum sem þátt tóku í auk Friedmans og Boga Agústssonar fréttamanns þeir Birgir B. Sigurjóns- son, Stefán Olafsson og Olafur Ragnar Grímsson var komið inn á gjaldtök- una, þær 1200 krónur sem kostar að hlýða á meistarann og snæða á há- degisverðarfundi í Súlnasal Hótel Sögu á laugardag. Sjálfur tók Friedman spumingunni ekki illa þótt hann hefði ekki hugmynd um að það kostaði 1200 krónur á samkomuna. Aftur á móti þótti Hannesi Hólmsteini sem hér væri gengið á hlut íslenskra frjálshyggju- manna og gestgjafa Friedmans, að sögn Siguröar Grímssonar, og tók undir sig stökk inn I höfuðstöðvar upptöku- stjóra og setti fram kröfu um að spurn- ingin yrði klippt úr þættinum. Spunn- ust af þessu háværar deilur í skamma stund en Hannes varð að láta í minni pokann. Þátturinn verður því ekki klipptur og sem fyrr kostar 1200 krón- ur á fyrirlestur Friedmans. -EIR. Guðmundur settur yf irkennari GA Guömundur Helgason hefur verið mundi. I samræmi við lagaskyldu setti lýst innan veggja Gagnfræðaskólans. settur yfirkennari Gagnfræðaskóla menntamálaráðherra Guðmund til Sóttu þá tveir menn um; Guðmundur Akureyrar meðan skipaður yfirkenn- 3tarfans með bréfi 22. ágúst síðastliö- og Björn Sverrisson. Bjöm mun hafa ari er í ársfríi. Skólastjóri, kennararáð inn. tilskilinn réttindi en Guðmundur ekki. og skólanefnd mæltu öll með Guð- Forfallastaöa þessi var í vetur aug- -KMU.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.