Dagblaðið Vísir - DV - 31.08.1984, Page 3
DV. FÖSTUDAGUR 31. AGUST1984.
3
Gengur á aflakvóta togaranna
Fjórir sprungnir
— 32 til viðbótar eiga 30 prósent
eða minna eftir af af lakvótanum
Þrjátíu og sex togarar landsmanna
eiga 30 prósent eöa minna eftir af afla-
kvóta sinum, samkvæmt upplýsingum
Jakobs Jónssonar hjá Fiskifélaginu.
Þar af eru f jórir þeirra sprungnir. Það
eru Beitir frá Neskaupstað, Björgúlfur
frá Dalvík, Krossanes frá Breiðdalsvík
og Asbjörn frá Reykjavík. Þá eiga sjö
togarar eftir milli 10 og 20 prósent af
kvótanum og 25 milli 21 og 30 prósent. I
allt eru í togaraflota landsmanna 104
togarar.
Þeir sjö togarar sem eiga eftir milli
10 og 20 prósent af aflakvótanum eru
Hólmatindur frá Eskifirði, Hafnarey
frá Breiðdalsvík, Aðalvík frá Keflavík,
Hegranes frá Sauðárkróki, Sléttanes
frá Þingeyri, Páll Pálsson frá Hnífsdal
og Bessi frá Súða vík.
Hinir 25 togaramir eru Brettingur
frá Vopnafirði, Drangey frá Sauðár-
króki, Sigurey frá Siglufirði, Sölvi
Bjarnason frá Tálknafirði, Elín Þor-
bjamardóttir frá Suðureyri, Sigur-
björg frá Olafsfirði, örvar fra Skaga-
strönd, Svalbakur frá Akureyri, Skipa-
skagi frá Akranesi, Skafti frá Hofsósi,
Kaldbakur frá Akureyri, Stakfell frá
Þórshöfn, Jón Vídalín frá Þorlákshöfn,
Björgvin frá Dalvík, ögri frá Reykja-
vík, Rauðinúpur frá Raufarhöfn,
Olafur Bekkur frá Olafsfirði, Sigluvík
frá Siglufirði, Snæfell frá Hrísey, Már
frá Olafsvík, Eyvindur Vopni frá
Vopnafirði, Ljósafell frá Fáskrúðs-
firði, Haraldur Böðvarsson frá Akra-
nesi, Klakkur frá Vestmannaeyjum og
Sunnutindurfrá Djúpavogi.
Það lætur því nærri aö 34 prósent af
togaraflota landsmanna eigi 40 prósent
eða minna eftir af aflakvóta sínum.
-KÞ
Þurfa verðandi feður ekki að gæta hreinlætis?
Beint af salerni
f keisaraskurð
„Eg vona bara að ég þurfi ekki að
hafa fataskipti á salerninu næst þegar
ég verð viðstaddur fæðingu afkvæmis
míns,” sagði nýbakaður faðir, nýkom-
inn af fæðingardeild Landspítalans þar
sem eiginkona hans hafði alið honum
barn sem tekið var með keisaraskurði.
Það var auðsótt mál að fá að vera
viðstaddur fæðinguna en þar sem um
keisaraskurð var að ræða varð faðir-
inn að klæðast sérstökum spítalabún-
ingi, hvítum bol, hvítum buxum, hylja
hár sitt og setja upp öndunargrímu. Til
að hafa fataskipti var honum vísað inn
á salerni. „Það var einn annar á leið út
af saleminu þegar ég fór inn og sá fór
beint inn á skuröstofu líkt og ég síðar.
Að sjálfsögðu þvoði ég mér um hendur
fyrir aðgerðina þó ekkert skilti hafi
verið þama uppiá vegg sem hvatti
verðandi feður til aö þrífa sig áður en
haldið væri inn á skurðstofuna,” sagði
sá nýbakaöi og bætti því við að salerniö
væri ákaflega óvistlegt, t.d. vantaði
setuna á klósettið.
Ljósmyndari DV fékk ekki leyfi til að
mynda þetta „búningsherbergi” fæð-
ingardeildarinnar og einu svörin sem
hægt var að fá hvers vegna verðandi
feður þyrftu endilega að hátta sig á sal-
emi áður en farið væri beinustu leið
inn á skurðstofu voru þau að aðrar
vistarvemr væru ekki til í húsinu.
-EIR.
DV-mynd: Bj.Bj.
Athuga fyrst
hvort hún
getur flogið
— segirBjörnThoroddsen semerað
Ijúka smíði tvíþekju
Það er ekki á hverjum degi sem Is-
lendingur tekur upp á því að smíða sér
tvíþekju heima í bílskúr. Bjöm
Thoroddsen, flugstjóri hjá Flugleiðum,
gekk með þann draum lengi í magan-
um. Fyrir nokkrum árum ákvað hann
að láta gamla drauminn rætast.
Þessa dagana er Bjöm að leggja síð-
ustu hönd á verkiö. Flugvélin er að
verða tilbúin. Búast má við að hann
fljúgi henni innan mánaðar.
Flugvélina flutti hann fyrir nokkm
úr bilskúmum sinum yfir í flugskýli
Flugleiða á Reykjavikurflugvelli. Þar
er nú verið að setja mótorinn á hana og
gera hana klára til reynslukeyrslu.
„Þaö verður fyrst að athuga hvort
hún getur flogið,” sagði Bjöm sem
stefnir að því að ræsa hreyfilinn áður
envika erliðin.
Þessi heimasmíðaða tvíþekja kallast
Pitch-Special. Hún er ein af mörgum
tegundum smávéla á markaðnum sem
menn smíða heima hjá sér. Menn
kaupa yfirleitt teikningu, efni og mótor
en sjá síðan sjálfir að mestu um smiöi
og samsetningu.
Pitch-tvíþekjan er einn kunnasti
gripurinn af þessu tagi. Hún hefur
skapað sér orð fyrir góða flugeigin-
leika.
-KMU.
ALMENN TJASKIPTI
„Námskeiðin era ætluð fólki á öll-
um aldri sem vill styrkja persónu-
leika sinn,” sagði Andri öm Clausen
leikari en hann er að fara af stað með
námskeiö i almennum tjáskiptum
hinn 8. september næstkomandi.
Hvort um leiklistamámskeið væri
að ræða sagði Andri ekki svo vera.
„Markmið námskeiðanna er aö þátt-
takendur kynnist eigin getu og hæfi-
leikum og læri að nýta þá i samskipt-
umviðaðra.”
Það er allt of algengt að menntun,
reynsla, viska, velvilji og skilningur
nýtist mönnum ekki sem skyldi
vegnatjáskiptaörðugleika þeirra.”
-JGH
87
hestöfl
LADA
Canada
er sérútgáfa
af LADA fyrir Canada
markað, þar sem eru geröar auknar kröfur
um útbúnað og öryggi fyrir farþega og
öryggi i umferðinni.
Kostirnir eru það margir í gæðum og útliti að þeir verða ekki taldir upp hér en
kíktu við, skoðaðu og spjallaðu viö sölumennina sem veita allar nánari upplýs-
ingar um þennan ,,spes“ þíl.
Verð áður 218.000,-
afsláttur 20.000,-
Verð nú 198.000,-
Lán samkvæmt samkomulagi.
Ath. Hér er aðeins um fáa
bíla að ræða.
Bif reiöar & Landbúnaöarvélar hf
Suðurlandsbraut 14
Skiftiborð
38600
Söludeild
31236