Dagblaðið Vísir - DV - 31.08.1984, Side 4

Dagblaðið Vísir - DV - 31.08.1984, Side 4
4 DV. FÖSTUDAGUR 31. ÁGUST1984. Sögulegurfundur á Ólafsfirði: „VISSIAÐ VATNIÐ VÆRIVINSÆLT...” — stofnfundifélags um fiskiræktí r Olafsfjarðarvatni f restað vegna of mikilsáhugaá stofnun þess Stofnfundur hlutafélags, en fundi skyndilega frestaö vegna of mikils áhuga manna á stofnun félagsins. Hljómar undarlega. Slíkt átti sér þó staö á stofnfundi hlutafélags um fiski- rækt í Olafsf jaröarvatni sem haldinn var á Hótel Olafsfirði síðastliðið mið- vikudagskvöld. „Við í stjóm Veiöifélags Olafs- fjarðar lögðum fram tillögu þess efnis að fundinum yrði frestað,” sagði Sveinbjöm Ámason, bóndi á Kálfsá og formaður Veiðifélags Olafsf jarðar. „Astæðan er sú að í undirbúningi að stofnun félagsins höfum við gengið út frá þeirri forsendu að við ættum 20% í hlutafélaginu. Legðum fram milljón og að hlutaféð yrði um 5 milljónir. ” Stórfyrirtæki koma óvænt til skjalanna „A fundinum gerðist það hins vegar að áhugi nokkurra stórfyrirtækja á aö eignast hlutafé í fyrirtækinu reyndist mikill. Komin voru hlutaf járloforð upp á um 10 milljónir króna. Þar með var ljóst að okkar hlutur yrði aðeins 10 prósent. Við í stjórn veiöifélagsins töldum okkur ekki hafa umboö til að ganga frá samningum um stofnun þessa félags þar sem við kæm- um til með að eiga aðeins um 10%. En ég vil samt undirstrika að viö fögnum hinum mikla áhuga sem er á að stofna hlutafélagiö. Eg vissi að vatnið og vatnasvæðið væri vinsælt en aö það væri svona eftirsótt vissi ég ekki.” Hvað gerist? — Hvað er það sem þið í veiðifélag- inu ætllð að gera á næstunni vegna framhaidsstofnfundarins? „Við munum nú byrja á að ræða hina breyttu stöðu sem upp hefur komið og með hvaöa hætti við göngum inn í félagið. Staðan er sú að ánægja er með heildarhlutafjárupphæðina en ekki aö sama skapi að veiöifélagið eigi bara uml0%.” Veiöifélagiö er talsmaöur landeig- enda við vatniö og ána. Það er því þaö sem leigir hinu nýja hlutafélagi vatnið til afnota. „A undirbúningsfundi, sem haldinn var fyrir nokkru, var kosin þriggja manna nefnd um stofnun þessa hluta- félags. Við þessa nefnd vorum viö búnir að semja, svo sem um leigutíma og hvemig ætti að meta þær framkvæmd- ir sem veiðifélagið hefur verið með við vatnið á undanförnum árum. Þegar þessi samningur var gerður var gengiö Opið bréf tíl viðskiþtavina Kæri viðskiptavinur! Hinn 1. sept. munum við hætta að taka á móti kreditkortum VISA- ISLAND og EUROCARD til greiðslu á úttektum. Slík kort höfum við tekið um nokkurn tíma, en reynslan af þeim hefur ekki verið góð. Kortin stuðla að hærra vöruverði, sem er gagnstætt stefnu okkar, sem miðar að lækkun vöruverðs. Álagning verslana hérlendis er í lágmarki hvað matvöru áhrærir, en til- kostnaður hinsvegar mikill, og þá ekki hvað sist fjármagnskostnaður. Kreditkortin hafa aðeins reynst viðbót við þann kostnaðarlið sem kemur til með að renna út i verðlagið eins og annar dreifingarkostnaður. Þannig stuðla kreditkortin að hækkun vöruverðs á sama tíma og allt er gert til að lækka verðlag á nauðþurftum almennings. Kortin stuðla einnig að óréttlæti og mismunun í viðskiptahattum. En lít- um aðeins nánar á málin: Verslanir þær sem tekið hafa við kreditkortum þurfa að greiða 2-3% þóknun fyrir að lána viðskiptavinum sínum vöruna í allt að 40 daga. Ofan á þetta bætist vaxtatap, sem verslanir verða óhjákvæmilega fyrir. Ljóst er að hér er um umtalsverða fjármuni að tefla, sem renna til milliliðarins. Um óréttlætið er það að segja að næstum þrír af hverjum fjórum við- skiptavinum greiða úttekt sína út í hönd. Margir þeirra kvarta yfir þvt að fá ekki afslátt, og þær óskir er auðvelt að skilja. Það er ekki rettlatt að við- skiptavinir okkar njóti mismunandi fyrirgreiðslu að þessu leyti. Þá hefur komið í ljós að viðskipti með kreditkortum auka á pappirsvinnu í verslununum, meira en nokkurn óraði fyrir. Hefur sú vinna orðið umtals- verð jafnt hjá stórum verslunum sem smáum. Be’nt hefur verið á að kreditkortin séu nýjung, sem ekki verður spornað við. Vissulega kann það að vera sannmæli, en vert er að benda á í þvi sam- bandi að nær óþekkt er í nágrannalöndum okkar að gefinn sé kostur á mat- vöruúttekt gegn slíkum kortum. Við vonum að lokum að viðskiptavinir okkar skilji afstöðu okkar í þess- um efnum. Hún er tekin að vandlega íhuguðu máli, — með hag ykkar og verslunarinnar i huga. Vinnum saman að lækkuðu vöruverði! Með bestu kveðjum, Arnarhraun. Hafnarfiröi. Fjaröarkaup h/f, Hafnarfiröi. Hagkaup. Akureyri. Hagkaup. Njarövfk. Hagkaup. Reykjavlk. Hamrakjör. Reykjavík. Hólagarður, Reykjavlk. J.L. húsið. Reykjavlk. Kaupfélag Hafnfiröinga. Kaupfélag Reykjavíkur og nágrennis- Kaupfélag Suöurnesja. Kaupgaröur, Kópavogi. Kjöt og fiskur, Reykjavlk. Kostakaup h/f, Hafnarfiröi. Mikligaröur. Reykjavlk. S.S. búöirnar. Reykjavlk og Akranesi. Straumnes, Reykjavlk. Versl. Asgeir, Reykjavlk. Versl. Kópavogur, Kópavogi. Versl. Nonni og Bubbi, Keflavlk. Versl. Vlöir. Austurstrœti. Reykjavlk. Versl. Vlöir, Starmýri. Reykjavlk. Vikurbœr. Keflavík. Vörumarkaöurinn. Reykjavik og Seltjdrnarnesi. út frá því að við ættum um 20% í hluta- félaginu. Af þessu sést hvað best hve forsend- ur hafa breyst varðandi hið nýja fyrir- tæki,” sagði Sveinbjörn ennfremur. Þriggja manna nefndin orðin fimm manna Þriggja manna undirbúningsnefnd- in, sem Sveinbjöm ræðir um, er núorð- in fimm manna. 1 henni sitja Valtýr Sigurbjömsson bæjarstjóri, Sigurður Jóhannesson frá KEA, Eyjólfur Isfeld Eyjólfsson, fráSölumiöstöðhraðfrysti- húsanna, Sveinbjörn Arnason og Þor- steinn Ásgeirsson, framkvæmdastjóri Hraðfrystihúss Olafsfjarðar. Fyrir umræddan stofnfund var reiknað meö um 1 milljón frá veiði- félaginu, 1 milljón frá KE A og 1 milljón frá SIS, auk annarra hluta sem gerðu um 2 milljónir. Nöfn stórfyrirtækjanna A fundinum komu hins vegar hluta- fjárioforð frá Hraðfrystihúsi Olafs- fjarðar 1 milljón, Hraðfrystihúsi Magnúsar Gamalíelssonar 1 milljón, Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna 1 1/2 milljón, Eimskip 700 þúsund og Skeljungi 500 þúsund, auk annarra smærri hlutafjárloforða. Það voru þessi hlutafjárloforð sem settu menn út af laginu á stofnfundin- um á Hótel Olafsfirði. Þær raddir hafa heyrst fyrir norðan að umræddur fundur hafi verið ögn stormasamur, að KEA og SlS-menn hafi verið óánægðir. Þetta ber Sigurð- ur Jóhannesson, hjáKEA, tU baka. KEA: veiðifélagið haldi sínu „Við erum mjög ánægðir með þann áhuga sem er á fyrirtækinu. Hann virtist ekki vera fyrir hendi áður. En okkar mat er það að veiðifélagið eigi að halda sínum 20%, sem um hefur verið rætt og sé þannig leiöandi i þessu fyrirtæki.” — Þið eruð þá ekki að draga ykkur til baka? „Nei, ekkert slíkt hefur verið rætt,” sagðiSigurður. I lokin má geta þess aö í Olafs- fjarðarvatni og Fjarðará, sem rennur úr því, hefur verið mjög góð bleikju- veiði, og það sem af er sumri hafa öll veiðUeyfi verið uppseld. -JGH. De ielandske heste er meget eftertragtede ridedyr over hete Europa. Islandske heste brændemærkes Brandmærkede hove skal forhindre, at islandske he* ste ender i danske ride- stalde i stedet for at blive forvandlet til hakkebof og hestefilet. Eksportorer af islandsk hestekod har i nogen tid soptefter nve markeder for 300 levende heste er nu blevet sendt til Danmark for at ende pá danske slag- terier. Eksportorerne siger, at de fár omkring 30 pct. hojere pris for levende he- ste end for dode dyr. er ogsá betydeligt hojere end for en hakkebofkandi- dat. Eksport af rideheste er ogsá en indbringende ek- sportkilde for mange bon- der i Island, som de gerne vil beskytte. Fróttin um brennimerktu hestana í Ber/ingske Tidende. r Fréttir danskra blaða: Islensk hross brennimerkt — svo þau endi örugglega sem gúllas Samkvæmt fréttum danskra dag- blaða, sem eru að berast hingað til lands, eru íslensk hross, sem flutt eru út til slátrunar, brennimerkt á hófum svo þeim sé ekki ruglað saman við reiðhesta. Hófunum er svo aftur skilað til útflytjandans svo klárt sé að hrossin hafi endað á diskum danskra sælkera en ekki í hesthúsum reiðmanna. Frétt þessi birtist í hinu virta danska dagblaði BerUngske Tidende 27. þ.m. og er þar fjallað um ótta íslenskra hrossaútflytjenda um að sláturdýrin geti eyðUagt reiöhestamarkaðinn sé þeim stungið undan hjá slátraranum og sett í bás í hesthúsi. Þetta sé eftir- sótt vara víða í Evrópu og því beri aö fara að öUu með gát. _ „Þetta er aUt úr lausu lofti gripið,” sagði Bima Baidursdóttir sem sér um hrossaútflutning SIS. „Við höfum aldrei sent sláturhross til Danmerkur og hvað þá brennimerkt. Aftur á móti fór sending tU Belgíu í fyrri vUcu, 285 hestar tU slátrunar en þeir voru tagl- stýfðir til aögreiningar frá reiðhest- um.” -EIR.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.