Dagblaðið Vísir - DV - 31.08.1984, Side 7
DV. FÖSTUDAGUR 31. ÁGUST1984.
7
Útlönd
Útlönd
Útlönd
Útlönd
Útlönd
Stjóm mynduð í Israel
Shimon Paros ætlar að byrja í forsætisráðherrastólnum í nýju stjórninni
0/7....
Shimon Peres og Yitzhak Shamir
hafa ákveðið að skiptast á um að halda
forsætisráðuneytinu í Israel í þjóð-
stjóm Verkamannaflokksins og Likud-
bandalagsins. Peres, formaður Verka-
mannaflokksins, verður fyrst forsætis-
ráðherra í tvö ár en síðan tekur Sham-
ir, núverandi forsætisráðherra, við.
Á meðan annar formaðurinn er for-
sætisráðherra verður hinn varaforsæt-
isráðherra og utanríkisráðherra sam-
kvæmt samkomulaginu sem þeir náðu
ígær.
Peres og Shamir munu hittast aftur
í dag til nákvæmari viðræðna um fyrir-
hugaö stjórnarsamstarf. Að sögn ríkis-
útvarpsins í Israel verður Yitzhak
Rabin, einn af leiðtogum Verkamanna-
flokksins, varnarmálaráðherra öll
fjögur ár hins fyrirhugaða samstarfs.
Likud mun í staðinn halda f jármála-
ráðuneytinu.
.... siðan er ætlunin að Yitzhak Shamir, núverandi forsætisráðherra, taki
sár aftur sæti i stóinum.
I samsteypustjóminni verða 24 ráð-
herrar; 12 frá Verkamannaflokknum
og bandamönnum þeirra og 12 frá
Likud og smáum flokkum sem styðja
bandalagið.
Það var Likudbandalagiö sem fyrst
lagði til að flokkamir tveir skiptust á
um forsætisráðherraembættið. Verka-
mannaflokkurinn lagðist í öndverðu
gegn hugmyndinni. Til að auðvelda
samningaviðræðurnar ákváöu þeir að
geyma spuminguna um forsætisráð-
herrann þangað til undir lok viðræðn-
anna.
Verkamannaflokkurinn heldur 44 af
120 þingsætum á ísraelska þinginu.
Likud heldur 41. Fjölmargir minni
flokkar halda svo öðrum sætum.
Hafa Norðmenn ekki efni á
að þiggja eldflaugar?
Pétur Ás tvaldsson í Osló:
Bandaríska varnarmálaráðuneytið
hefur boðist til að láta Norðmönnum í
té endurgjaldslaust 27 loftvamaeld-
flaugar af Roland-gerð, að verðmæti
10,5 milljarða norskra króna. Haft er
eftir heimildarmönnum í bandariska
ráðuneytinu að Bandaríkjamenn vilji
losa sig við þessar eldflaugar sem
Norðmenn höfðu um tíma hug á að
kaupa.
Anders C. Sjaastad, vamarmála-
ráðherra Noregs, lýsti því yfir i gær að
boð þetta yrði varla þegið af ýmsum
ástæðum. Norðmenn hafa þegar samið
um kaup á Hawk-eldflaugum og það
yrði dýrt að rifta þeim samningum.
Kæmu flaugarnar til Noregs yrði einn-
ig að byggja sprengjuheld flugskýli og
breyta flaugunum verulega.
Bandaríkjamenn hafa núna hannað
eldflaugar sem taka þessum flaugum
fram og telja Roland-flaugamar henta
beturí Evrópu.
Tf
í
DANSSKOUNN .
DANS-NYJUNG
Innritun er hafin í byrjendahópa. Framhaidsnemendur, hafið samband sem fyrst,
yngstir 4ra ára, kennt verður í Tónabæ, Æfingastöðinni Engihjalia 8, Kópavogi og
i Mosfellssveit. Við kennum diskó — jass, lotur sem staka dansa, og break.