Dagblaðið Vísir - DV - 31.08.1984, Page 14
14
DV. FÖSTUDAGUR 31. ÁGUST1984.
Spurningin
Ertu
hjátrúarfull(ur)?
Þórunn Þórisdóttir húsmóöir: Þaö er
ég alls ekki. Eg held aö þaö fari mest
eftir uppeldi hvort fólk er hjátrúarfullt
eða ekki.
Indriöi Rósenbergsson sjómaöur: Nei,
ég er ekki hjátrúarfullur. Þó held ég aö
ekki sé hægt aö útiloka hjátrúna úr
daglegu lífi. Hún á vafalaust viö ein-
hver rök aö styðjast.
Örn Brynjarsson, starfsmaöur Hag-
kaups: Það er örugglega eitthvað til í
hjátrú en þrátt fyrir þaö er ég ekki hjá-
trúarfullur aö eðlisfari.
Sólrún A. Símonardóttir húsmóöir: Eg
myndi segja að ég væri hjátrúarfull.
Þó ég trúi að vísu ekki á töluna 13 þá
trúi ég á hulduhóla og slíkt.
K
Hreinn Sveinsson sjómaöur: Eg er alls
ekki hjátrúarfullur. Eg held aö þetta sé
bara ímyndun hjá fólki.
Asta Ásbjömsdóttir húsmóðir: Nei,
ekki er ég hjátrúarfull. Ég viöurkenni
samt hjátrú því að ég veit aö ýmsir
hafa jafnvel oröiö fyrir lifsreynslu í
þeim efnum.
Lesendur Lesendur Lesendur Lesendur
FRláLSLEGA FARIÐ
njnLwLkUn ■ itiiiir
MEÐ STAÐREYNDIR”
S.S. skrifar:
I Staksteinum Morgunblaðsins 21.
ágúst sl. er fjallað um útifund þann
sem stjórnarandstaöan stóö aö á
Lækjartorgi fyrr í sumar. Þar segir
aö flokkar þeir sem teljast til stjórn-
arandstööu hafi boriö ábyrgö á
launastefnu veröbólguáratugarins
og aö verðbólgan hafi mælst 130% á
liðnu ári. Greinarhöf undur segir:
. . . „Þegar veröbólgan mældist
130% á fyrsta ársfjóröungi liðins
árs, stefndi hún, og annar efnahags-
vandi, undirstööuatvinnuvegunum í
stöövun, meö viðblasandi .víötæku at-
vinnuleysi. Þannig blöstu mál viö er
núverandi ríkisstjórn var mynduð
síöla maímánaöar á liönu ári.
Arfleifö hennar fólst aö ööru leyti í
verulegum aflasamdrætti, rýrnun
þjóöartekna, hærri erlendum skuld-
um en þekkst hafa í Islandssögunni,
ógnvekjandi viöskiptahalla og út-
gjöldum ríkissjóös langt umfram
tekjur. Þaö voru hönnuöir þessa
þjóöfélagsástands sem efndu til
kjaramálafundarins á Lækjartorgi á
góöviðrisdegi fyrr í sumar. . . . Þeir
sem til fundarins boöuöu báru á-
byrgö á „launastefnu” veröbólgu-
áratugarins ef hægt er aö kenna
launaþróun þess tíma viö stefnu.”
Hér er heldur betur farið frjáls-
lega meö staöreyndir svo ekki sé
meira sagt. Hvorki Samtök kvenna á
vinnumarkaði né Bandalag
jafnaöarmanna haföi veriö stofnað á
veröbólguáratugnum. Alþýöu-
flokkurinn átti aðild aö ríkisstjórn
um eins árs skeiö, þ.e. 1978 til 1979 en
rauf þá stjórnarsamstarfiö vegna á-
greinings um efnahagsmál. Ekki
geta þessir flokkar og samtök því
hafa borið mikla ábyrgö á launa-
stefnu veröbólguáratugarins. Hins
vegar átti Sjáifstæöisflokkurinn
aöild aö ríkisstjórn árin 1974 tii 1978
en á því kjörtímabili náöi vitleysan í
fjárfestingum óaröbærra fyrirtækja
hámarki og nægir aö nefna Kröflu í
því sambandi.
Það voru einmitt fjárfestingar-
mistökin frá þeim tíma sem áttu sinn
þátt í aö verðbólgan mældist 130% á
liðnu ári. Afleiöing þessara hrika-
legu fjárfestingarmistaka er einnig
sú aö launafólk á íslandi býr viö
smánarlaun í dag. Af þeim fjórum
flokkum og samtökum sem stóöu aö
áöurnefndum fundi á Lækjartorgi
átti aðeins einn flokkur, Alþýöubanda-
lagiö, aöild aö ríkisstjóm tímabiliö
1980—1983 þegar veröbólgan mældist
*. ......................
130%. Ekki geta því hinir þrír
aöilarnir talist hönnuöir aö því
þjóðfélagsástandi sem skapaöist á
því kjörtímabili.
Morgunblaösmenn vilja af
skiljanlegum ástæöum gleyma aö
þaö var þáverandi varaformaöur
Sjálfstæöisflokksins, Gunnar heitinn
Thoroddsen, sem myndaöi og veitti
forstööu þeirri ríkisstjóm sem sat aö
völdum árin 1980—1983. Og eins og
kunnugt er átti Albert Guömundsson
fjármálaráöherra verulegan þátt í
tilurð þeirrar stjórnar. Sjálfstæöis-
flokkurinn ber því höfuöábyrgö á því
efnahagsástandi og þeirri arfleifö
sem núverandi ríkisstjóm tók viö.
Og að lokum lítil bón til Morgun-
blaðsmanna' Ljúgiöi ekki svo hratt,
viö lesendur höf um ekki við aö trúa.
„Réttarkerfi landsins
neitarað hjálpa mér”
M.J. kom á ritstjórnina og haföi frá
eftirfarandi að segja:
I lok júní í sumar komu til mín
menn frá Rafmagnsveitunni sem
kannski er ekki í frásögur færandi.
En þegar mér svo barst rafmagns-
reikningurinn fyrir undangengiö tima-
bil brá mér heldur í brún. Reikningur-
inn reyndist vera upp á tæpar þrjú
þúsund krónur, vegna umfram-
notkunar. Ekki var ég sáttur viö þetta
og hafði því samband viö þá hjá
Rafmagnsveitunni.
Kom þá í ljós aö mælirinn hjá mér
haföi veriö stopp þannig aö viö-
komandi starfsmenn höfðu áætlað
töluna og viðurkenndu þeir þaö en
engu yröi frekar breytt um þetta mál.
Þessu vildi ég ekki una og fór því til
Ram.sóknarlögreglu ríkisins til aö ná
fram mínum rétti. Máliö fór síöan
áfram til saksóknara.
En hvaö skeður. Þann 12. júlí berst
mér bréf frá ríkissaksóknara þar sem
segir aö af hálfu ákæruvaldins séu eigi
talin efni til aö veröa viö beiðni um
rannsókn. Því spyr ég: Hvar er rétt-
lætiö í þessu þjóðfélagi? Eg hef aug-
ljóslega veriö órétti beittur en réttar-
kerfi landsins neitar að hjálpa mér.
Hvaöer þátilráða?
Gjaf irnar ætlaðar bömum
Ung móðir hringdi:
Eg fór í tívoli á dögunum og þótti
þaö mjög gaman og út á þaö hef ég
ekkert aö setja. Mér þótti þaö einnig
skemmtileg uppákoma þegar sælgæti
var látið rigna yfir svæöiö úr flugvél.
En eitt fannst mér þó miður í sam-
bandi við þessa uppákomu. Það var að
sjá fulloröiö fólk ryöjast um og reyna
aö krækja sér í sælgæti og smádót sem
maöur heföi haldið að væri aöallega
ætlaö börnum. Dóttir mín, sem var
með mér, lenti í því aö fulloröin kona
reif af henni poka meö litlum leik-
fangakarli í. Barnið sagöist einnig
hafa séö fleiri fu.lloröna gera slíkt við
önnur börn. Aftur á móti bar ekki á því
aö börn væru að rífa hvert af ööru.
Vegna þessa langar mig til aö benda
þeim fullorðnu, sem eru viöstaddir
þessa skemmtun, á aö leyfa börnunum
aö njóta þess sem rignir niður.
Það skemmta sér allir vel í tívolíi.
Hér sjáum við kammersveit að leik. Hvíthöfði er ekki par hrifinn af slíkri
tónlist.
Popp fyrir f réttir!
Hvíthöfði skrifar:
Miðvikudaginn 22. ágúst birtist í
DV grein þar sem nokkrir valinkunnir
borgarar kvarta sáran yfir því aö
„þeirra” músík, þ.e.a.s. klassísk
músík og nútímatónlist sé ekki spiluö á
undan fréttum í sjónvarpi. Þeir stinga
einnig upp á þeirri „snilldarhugmynd”
aö sögur eöa ljóö veröi leikin á þessum
tíma. Þvílík fásinna! Ef fólk vill
kynnast ljóölist og slíku er miklu betra
aö gera það meö augunum heldur en
eyrunum. Og er ekki nóg aö hafa
klassíkina og nútímatónlistina á rás
æl?
Þaö hlýtur að vera þessum mönnum
ljóst aö þaö er ekki á allra færi aö
hlusta á klassík, hvaö þá nútímatón-
list. Þeir sem vilja klassík eöa nútíma-
tónlist ættu einfaldlega aö halda sig við
rás 1. Þaö er nóg af þessu þar.
Eg er viss um aö meirihluti þjóðar-
innar kærir sig ekkert um aö vera
kominn í vont skap áður en stríösfrétt-
irnar byrja aö dynja yfir hausa-
mótunum á þeim.
Upp meö húmorinn og popp fyrir
fréttir.
UM JAKKAFÖT
í ÞÓRSKAFFI
Liljahringdi:
Eg sá á lesendasíöunni á dögunum
bréf frá konu sem lenti í leiöindum í
Þórscafé út af fötum eiginmanns síns.
Eg hef svipaða sögu að segja. Þannig
var aö viö hjónin höföum veriö að
skemmta okkur í Broadway og
ákváöum aö fara í Þórscafé til aö hitta
kunningja okkar. En í dyrunum vorum
viö stöðvuö og manninum mínum
meinuð innganga vegna þess aö hann
var í mittisjakka en ekki í jakkafötum.
Dyravöröurinn tók þessu illa og neitaöi
að hleypa honum inn þó aö hann væri
mjög snyrtilega klæddur og með
„nauðsynlegt” bindi. Uröum við því
frá aö hverfa en ekki kom þaö aö sök
því viö fórum sem leiö lá á Sögu og
skemmtum okkur þar ágætlega. En er
ekki kominn tími til aö veitingahúsið
Þórscafé endurskoöi reglur sínar um
fatnað gesta? Þær eru löngu úr sér
gengnar.