Dagblaðið Vísir - DV - 31.08.1984, Síða 15
DV. FOSTUDAGUR 31. ÁGOST1984.
15
Furðusaga f rá Dalvík:
Ur kom óskemmt undan
valtara og veghef li
— „Glerið er að vísu aðeins rispað og önnur ólin farin af þvP’
Sterkasta úr norðan Alpa, eða að
minnsta kosti fyrir norðan? Sennilega.
Eða hefur þú heyrt um armbandsúr
sem kemur óskemmt eftir að veltari og
veghefill hafa „leikið sér” með það?
Hér kemur sagan. Hún gerðist á Dal-
vík.
„Við vorum aö leika okkur nokkrir
félagamir á skellinöðrum í sand-
gryfjunum í Höföa sem er nokkra kíló-
metra hér fyrir utan Dalvík,” sagði
Gunnar Gunnarsson, 15 ára eigandi
úrsins.
„Skyndilega tók ég eftir því, að ég
haföi tapað úrinu. Eg leitaöi lengi á
svæðinu, en fann það ekki. Þetta var
laugardaginn 18. ágúst.
Síðasta föstudag, hringir siðan
strákur í mig og segist hafa fundið
úrið. Hann þekkti það þar sem ég var
búinn að hefta i ólina.
Er ég spuröi hann hvar hann hefði
fundiö gripinn kom í ljós að hann var
að valta götuna Hólaveg hér á Dalvík
með handvaltara er hann kom auga á
það.
Þegar að var gáð hafði úrið borist
með möl sem tekin var úr Höfðanum
og borin var í Hólaveg. Síðan hafði
hefill heflað götuna margsinnis, auk
þess sem strákurinn hafði fariö
nokkrar yfirferðir á hand-
valtaranum.”
Gunnar sagði ennfremur að úrið
væri heilt eftir öll þessi ósköp. „Glerið
er að vísu aðeins rispað og önnur ólin
farin af því. En það getur víst ekki
talistmikið.”
Að vonum hafa raunir úrsins vakið
mikla athygli, fólk hefur orðið hissa.
Því er ekki úr vegi að minnast á í lokin
að úrið er af gerðinni Timex. -JGH
«sf§
DV-mynd FM.
Áhöfnin & Soffíu, þeir Om, Steinar og Sigurður.
Um borð í dæluskipinu Soffíu á Höf n:
„Botninn hér er svo
helvíti harður”
Sanddæluskipið Soffía hefur að und-
anfömu unnið viö aö dæla sandi úr
höfninni á Höfn í Homafirði en skipið
kom til Hafnar í vor. Nafn sitt mun
það, eftir því sem DV kemst næst, hafa
hlotið af stúlku sem afgreiddi í sjoppu
á Akureyri. Sá sem stjómar um borð
er Sigurður Halldórsson en hann vann
áður í áhaldahúsi bæjarins.
„Botninn héma er svo helvíti
haröur að verkið sækist seint. Ætli við
verðum ekki svona einn og hálfan
mánuö í viðbót hér,” sagöi Sigurður
Halldórsson, í samtali við DV er við
hittum hann þar sem Soffía lá við
bryggju þar sem olíuskipið var að
komið að losa og lesta.
„Botninn er svona þar sem
loönuskipin hafa pressað hann niður og
því er erfitt að dæla upp úr honum.,
Ástandið hefur verið þannig hér við
innsiglinguna að loönuskipin hafa
þurft að sigla inn á flóðinu á fullri ferð
en þau setjast svo niður á fjönmni
enda dýpið ekki meira en 3 metrar. Við
ætlum að auka það í 6 metra. Stefnt er
aö því aö öll loönuskipin geti siglt hér
inn en í fyrra sigldu þau iðulega
framhjá Höfn vegna þess hversu
grunn höfnin er,” sagði Sigurður.
1 máli hans kom einnig fram að þeir
ætla sér að ráöast á haft sem er í
innsiglingunni en yfir það þurftu skipin
yfirleitt að renna sér á fartinni eða
láta draga sig yfir það eins og sleða.
með togvírum úr landi.
I máli hans kom einnig fram að
ýmislegt slæddist upp úr höfninni með
sandinum, hlutir sem yfirleitt ættu
ekki að vera með. Skondnasti
hlutinn sem þeir hafa hingað til
fengið upp var full dós af sýrðum
gúrkum. -FRI.
Árnesingar
argir m jög út
í sjávar-
útvegs-
ráðherra
— hafa þó haft mikla trú
á honum, enda
maðurinn alinn upp
á Hornaf jarðar-
mánanum
Frá Regínu Thorarensen, fréttaritara
DV á Gjögri, Strandasýslu:
Ibúar Ameshrepps á Ströndum
eru argir mjög út í sjávarútvegsráð-
herra vegna þess að trillum hér hefur
verið bannað að fiska í tíu daga í ágúst.
Þennan tíma hefur veriö rjómalogn
og gott í sjóinn. Liður sjómönnum og
bændum illa að geta ekki róið tU
fiskjar á triUunum sínum sem eru jú
ekki stórvirk fiskiskip.
Strandamenn skUja ekki þessar að-
gerðir sjávarútvegsráðherra. Þeir
hafa tU þessa haft mikla trú á honum,
enda er hann uppalinn á Homaf jarðar-
mánanum og af sjómönnum kominn.
Er vonandi að gæftir verði góðar og
nægur fiskur er trillur Strandamanna
hefja aftur róður. Vonandi verður svo
líka á Homaf jarðarmánanum. -JGH
Urval
— i -----
ÚRVALSEFNI
\HO ALLRA HÆFI
ÁSKRIFTARSfMINN ER
27022
Lögtaksúrskurður
Að kröfu sveitarsjóðs Mosfellshrepps úrskurðast hér með að
lögtök megi fara fram fyrir ógreiddum útsvörum og aðstöðu-
gjöldum fyrir árið 1984 ásamt dráttarvöxtum og kostnaði.
Lögtök þessi mega fara fram á kostnað gjaldenda en á ábyrgð
sveitarsjóðs Mosfellshrepps að liðnum átta dögum frá birt-
ingu þessa lögtaksúrskurðar.
Hafnarfirði 27. ágúst 1984.
Sýslumaðurinn í Kjósarsýslu.
Hjólatjakkarnir eru komnir.
1,5 tonn kr. 3.290,
2 tonn kr. 3.590,-
STEINGRÍMUR BJÖRNSSON SF.
SUÐURLANDSBRAUT 12, REYKJAViK. SÍMAR 32210 - 38365.
Ætlarðu að mála húsið að utan?
Viö bjóöum sérkjör á BECKERS utanhússmálningu
10% útborgun og 7mánaða lánstímj
Gerlö verösamanburö
Um gæöin þarf enginn aö efast
Sænska gæöamálningin.
Vörumarkaðurinnht.
Ármúla 1 A — Sími 68-61-17.