Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 31.08.1984, Qupperneq 28

Dagblaðið Vísir - DV - 31.08.1984, Qupperneq 28
36 DV. FÖSTUDAGUR 31. ÁGUST1984. Sælnú!... Stórlega ýktar fréttir birtust á 'dögunum um okkar ástkæra Paul Young í Mogga. Þar sagði að sá ungi væri gersamlega bú- inn að missa röddina og gæti farið aö leita sér að annarri vinnu: hann myndi alténd ekki framar geta sungið. Það mun rétt vera og frá því greint hér í Smælki um dag- inn að Palli fékk einhverja siæmsku í hálsinn og varð að gefa sönginn upp á bátinn um hríð. Hann er nú óðum að ná sér samkvæmt áreiðanlegum heimildum og smáskifa frá honum og konungsfjölskyld- unni er væntanleg í október, breiðskifa mánuði siðar... Nýja smáskifan frá Rockwell er gamalt gullaldarlag Bítl- anna, Taxman, sem George Harrison samdi... Margir muna eftir lagi Special AKA um daginn: Nelson Mandela. Nýtt lag frá þessari gæða- hljómsveit er komið út og heitir: What I Ldke Most Girlfriend... Nýjasta hefti tímaritsins Record Mirror er ÚTRÚLEGT ÚRVAL GÓÐRABÍLA. GÓÐ KJÖR GÓÐ ÞJÓNUSTA. SUÐRÆN ÁHRIF Fyrir um það bil tveim órum skaust breska hljómsveitin Haircut 100 upp á stjörnuhimininn með sinni fyrstu plötu. Tónlist þeira þótti nokkuö fersk og notuðu þeir óspart blásturssveit til aðstoöar og bar tóniist þeirra nokkurn keim af henni. Mest áberandi í þessari sex manna hljómsveit var söngvarinn, Nick Heyward. Fljótlega eftir ný- fengnar vinsældir varð sprenging innan Haircut 100 og Nick Heyward yfirgaf hljómsveitina og hefur síðan hafið eigin sólóferil. Hinir piltarnir í Haircut 100 héldu þá áfram þótt stjaman væri ekki innan- borðs og hafa þeir nú sent frá sér nýja plötu, Paint And Paint. Að vísu eru þeir aðeins orðnir fjórir, Mark Fox sem tekið hefur við söngnum af Nick Heyward, Graham Jones, Les Nemes og Phil Smith. Þeim til aðstoðar er svo verður að segja eins og er að stefin eru frekar í daufara lagi en hressilegar út- setningar bjarga mörgum þeirra. Það má segja um Haircut 100 að hún sé að einhverju leyti undir suðrænum áhrif- um, sérstaklega kemur það fram í út- setningum fyrir blásarasveitina. mikiö lið aðstoðarhljóðfæraleikara sem setur sterkan svip á tónlistina. Það eru ellefu lög á Paint And Paint og eru þau öll eftir þá félaga. Það Nýjar... p lötur Nú hef ég ekki hlustað á fyrstu plötu Haircut 100 svo að ég get ekki miðaö við hana. I fyrstu virkaði Paint And Paint mjög fersk á mig, en eftir því sem ég hlustaði á hana oftar fóru ein- staka gallar að koma betur í ljós. Utsetningamar em of keimlíkar, sér- staklega þegar tillit er tekið til þess að blásarasveit er með i spilinu og söngurinn veikur. Ekki get ég ímyndað mér að innan um lögin á Paint And Paint leynist lag sem líklegt er til vinsælda en best þykja mér lögin Thirteen Years, Benefit Of Doubt og Infatuation þar sem blásarar fá einna helst að njóta sín. Þrátt fyrir ýmsa vankanta er Paint And Paint hin hressilegasta og best er að taka það sem á borð er borið í smáskömmtum. HK. is samin um George Best> þegar hann var upp á sitt besta: Belfast Boy með Don Farndon og Georgie (He’s the Best) með Dave Horsfall. Sjálfur gaf Goggi út plötu ekki alls fyrir löngu ásamt unnustu sinni Mary Stavin: Keep Fit And Dance... Á for- síðu Record Mirror er mynd af skosku hljómsveltinni Biuebells í búningi Celtic, rokkarar eru látnir spá um úrslit deildarinnar og njinnst er á frægasta atvinnumann- inn í knattspyrnu sem lagöi söng fyrir sig: fyrrum mark- vörð spánska liðsins Real Madrid: Julio Iglesias... Nýja lagið frá Malcolm McLaren heitir Madam Butt- erfly og mamma ykkar mun kannast við það... Nokkrar rokkóléttur en fyrst eitt hryggbrot: Susan Sarandon, bandarísk leikkóna, mun hafa sagt nei við bónorði frá David Bowie... Pat Benater væntir sín í mars, lika Chrissie (Hynde, Davies) Kerr og Patti Hansen frauka Keith Richards. Börnin munu erfa rokkið... Glænýtt lag frá Azrec Camera heitir: All I Need Is Everything. Minna má ekki gagn gera... Góða helgi! -Gsal EDDY GRANT - GOING FOR BROKE: Með bölvun á hælunum Sögusagnir herma að Eddy Grant telji sig lýstan bölvun og þar hafi galdranorn verið aö verki. Astæðan fyrir þessu frjóa ímyndunarafli er þessi: plötur hans, smáar og stórar, hafa selst báglega upp á síðkastið. Annað kemur líka til: þegar allt var í lukkunnar veistandi og Electric Avenue í toppsætum vinsældalista úti um víða veröld blessaði afrískur kven- klerkur Eddy Grant og átti að launum aö fá ákveðna prósentu af sölu á plöt- um Grants frá hljómplötufyrirtækinu RCA. Það neitaði hins vegar að verða við þeirri ósk og þá lýsti presturinn bölvun á tónlist Eddy Grant og sagði hana falla í grýttan jarðveg. Og sú hefur orðið raunin. Viðtökur við þessari nýju plötu, Going For Broke, og smáskífunum: Romancing the Stone og Till I Can’t Take Love No More hafa verið einkar fábrotnar og raunar merkilega litlar miðað við fyrri vinsældir Eddy Grant. Má vera að að- dáendur hans hafi allt í einu fengið sig fullsadda af þeirri tónlist sem hann hefur upp á að bjóða og hefur í raun ekki breyst neitt að gagni árum saman. Og það er sosum ekki eftir miklu aö slægjast á þessari breiðskífu og margtuggnir frasar áberandi; ef eitthvað er nálgast Eddy æ nær fágaðri diskótónlist sem iðulega í mínum eyr- um hljómar ósannfærandi og tilgerðar- leg. Eddy er að sönnu fjölhæfur, ekki verður það frá honum tekið. Hér leikur hann að venju á öll hljóðfæri, semur, útsetur og stjómar upptöku, — en and- rikið hefur setið einhvers staðar eftir og hlustandinn situr uppi með geril- sneydda tónlist. Það er helst i lokalaginu sem Eddy sýnir einhverja snerpu sem tónskáld: þetta er rólegt og fallegt lag sem vinnur á og heitir: Blue Wave. önnur lög hafa ekki gripið athygli mína og EDDY GRANT. allt eins víst að bölvunin ein sé ósvikin í söngvum Eddy Grant. -Gsal spyrnu: sparkvertíðin í Bret- landi enda að hef jast og popp- ið tengt fótboltanum á marg- an hátt. Tvö lög voru til dæm-

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.