Dagblaðið Vísir - DV - 31.08.1984, Page 32

Dagblaðið Vísir - DV - 31.08.1984, Page 32
FRETTASKOTIÐ 68 78 18 SÍMINN SEM ALDREI SEFUR Sími ritstjórnar: 68-66-11. Auglýsingar, áskrift og dreifing, sími 27022. Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt — hringdu þá í síma 68-78-58. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eða er notað i DV, greið- ast 1.000 krénur og 3.000 krónur fyrir besta fréttaskotið i hverri viku. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn. Innbrotííbúð: Silfurmun- um stolið Miklu magni af silfurmunum var stolið úr íbúð í Reykjavík nýlega. Þjófnaðurinn var kærður til Rannsókn- arlögreglu ríkisins í fyrradag en þjóf- urinn hefur enn ekki náðst. Ekki er nákvæmlega vitað hvenær silfurmununum var stolið úr umræddri íbúð sem er á Hólavallagötu. Það getur hafa átt sér stað á tímabilinu frá síð- asta föstudegi til miðvikudags, en þá uppgötvaöist þjófnaðurinn. Var hann samstundis kærður til rannsóknarlög- reglunnar. -JSS Verslanir opn- ar á morgun Jæja, þá er hægt að fara að kaupa í matinn á laugardögum. A morgun er 1. september og kaupmenn hafa fengið grænt ljós frá Verslunarmannafélag- inu um aö starfsfólk verslana vinni einnig á laugardögum. Samkvæmt kjarasamningum Verslunarmannafé- lagsins er óheimilt að verslunarfólk vinni 10 laugardaga, frá 20. júní aö telja. Nú eru þessir 10 laugardagar liðnir og verslanir geta aftur haft opiö á laugardögum. Ekki er ljóst hve margir kaupmenn hafa opið í verslun- um sínum á morgun en þónokkuð margir hafaauglýstþað. ÞJH Kukl-platan The Eye: Fimm stjörn- ur í Sounds Nýjasta plata hljómsveitarinnar Kukls.The Eye, fær hæstu einkunn hjá tónlistartímaritinu Sounds, eða fimm stjörnur, en Sounds er eitt útbreidd- asta tímarit sinnar tegundar í Bret- landi. Gagnrýnandinn á vart orð til aö lýsa hrifningu sinni og líkir plötunni viö plötu Siouxsie and the Banshees , The scream. Kukl er nú á tónleikaferðalagi um Evrópu en nánar verður greint frá henni á Rokkspildunni á morgun. -FRI LUKKUDAGAR h 31. ágúst 44880 HLJÓMPLATA FRÁ FÁLKANUM AD VERÐMÆTI KR. 400,- Vinningshafar hringi í sima 20068 M Átök í Framsókn um Framkvæmdastofnun Atök standa í Framsóknarflokkn- um um framtíð Framkvæmdastofn- unar, sem er ofarlega á baugi í við- ræðum stjórnarflokkanna. I umræðu er að áætlanadeild stofnunarinnar verði lögð niður, byggðasjóði verði mikið breytt og framkvæmdasjóður fluttur yfir í bankana. Tveir fram- sóknarmenn í nefnd stjórnarflokk- anna, Finnur Ingólfsson, aöstoðar- maður sjávarútvegsráðherra, og Þorsteinn Olafsson, framkvæmda- stjóri h já StS, lýstu sig fylg jandi slík- um breytingum. Á móti standa öflug- ir framsóknarmenn svo sem Tómas Ámason, fyrrum ráðherra, og Bjarni Einarsson, framkvæmdastjóri hjá Framkvæmdastofnun. Viðræður stjórnarflokkanna hafa þokast sæmilega en töfðust nokkuð meðan Steingrímur Hermannsson forsætisráðherra brá sér í lax. Þessa daga standa átök um landbúnaðar- mál. Sjálfstæðismenn leggja áherslu á niðurfellingu kjarnfóðurskatts og munu þeir ætla að nota það sem skiptimynt, þannig að á móti verði frelsi í grænmetisinnflutningi ekki jafnmikið og þeir höfðu áður krafist. Ætlunin er að fækka ríkisbönkun- um niður í einn eða tvo. Steingrímur er sagður hafa samþykkt fækkun. Formenn stjómarflokkanna ræða nú einnig niðurfellingutekjuskatts af almennum iaunatekjum á svo sem þremurárum. Nefnd stjórnarflokkanna hefur skilað til formannanna tillögum um stofnun félags tii að hressa upp á at- vinnulífið. Yrði ríkið þar þriðjungs- aöili. Tiilagan er óafgreidd. Stjórnarliðar vonast enn eftir að ljúka viðræðum um helgina svo að þingflokkar og ríkisstjórn fái hug- myndirnar til meðferðar upp úr helgi. -HH Pólarbjórinn, 5,2%, rennur f gegn- um teljarakerfið og yfirvaldið, fulltrúar dóms- og fjármálaróðu- neytisins, fylgist grannt með. □V-mynd K.A. RÁÐUNEYTISVÖRÐUR MEÐAN PÓLARBJÓR ER TAPPAÐ iME JR-fiÍiTiÍYiiVÍáViiÍ LOKI Stórí bróðir fylgist með. Tveir ráðuneytismenn, fulltrúar dóms- og f jármálaráðuneytisins, mæta í vinnu í Ölgerð Egils Skallagrímsson- ar einu sinni í viku þegar sterka Pólar- bjórnum er tappað á flöskur. Eiga þeir að hafa eftirlit með að allt fari að lög- um og starfsfólk sé ekki að belgja sig út af Pólarbjórnum sem flæðir þar um allt þessa ákveðnu vikudaga. Yfirvaldið stendur sína vakt og starfsfólkið reynir að ljúka verkinu sem fyrst því að illu er best af lokiö og þá fara ráðuneytismennirnir aftur til síns heima á skrifstofumar í Amar- hvoli. Þrátt fyrir strangt eftirlit fulltrúa dóms- og f jármálaráðuneytisins verða alltaf viss afföll í hinni vikulegu átöpp- un. Tvöfalt teljarakerfi er í gangi, viö upphaf og lok átöppunarinnar og svo virðist sem 11/2 kassi hverfi þegar 600 kassar eru afgreiddir. Em það mest flöskur sem brotna eða em gallaðar á annan hátt. Svo mun starfsfólk fá aö súpa örlítið þegar yfirvaldið lítur undan, sem er sjaldan. „Það er alltaf einhver viss titringur í starfsfólkinu þessa daga sem við töpp- um á Pólarbjómum,” sagði verk- smiðjustjórinn í samtali við DV, „maður tekur jafnvel eftir spenningi hjá vegfarendum sem eiga leiö fram hjá.” Þegar vikuskammturinn af Pólar- bjómum er tilbúinn í kössum er honum ekið í lokuðum bíl upp á Grjótháls þar sem hann er geymdur bak við lás og slá, í rammgerðri geymslu sem vöktuð er með rafeindageislum. -Ent.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.