Dagblaðið Vísir - DV - 26.10.1984, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 26.10.1984, Blaðsíða 8
8 DV. FOSTUDAGUR 26. OKTÖBER1984. Útlönd Útlönd Útlönd Utlönd Sif stutta gat vísað á morðingjann Frá Gunnlaugi A. Jónssyni f Lundi: Þrítugur maður hefur verið hand- tekinn fyrir morðið á konu á þrítugs- aldri í Stokkhólmi, sem DV skýrði frá í gær. Þaö var fjögurra ára göm- ul dóttir konunnar sem gat gefiö vís- bendingu um hver maðurinn er. — Maðurinn hefur áður komist í kast viö réttvísina og er háður fíkniefn- um. Litla telpan gat skýrt lögreglunni frá því að maöurinn hefði komið í heimsókn til móður hennar á mánu- dagskvöld. Þegar telpan var komin í rúmið byrjaði maðurinn að rifast við móðurina. — „Eg varö að setja kodd- ann yfir höfuðið til að geta sofnað,” sagði sú stutta. Næsta morgun fann telpan móöur- ina þar sem hún lá, „og var svo skrít- in þegar hún svaf”. Þegar stelpan komst ekki út um læstar dyr íbúðar- innar, fann hún sér sigreipi úr plast- pokum, festi annan endann uppi í íbúðinni en lét hinn falla út um glugg- ann. Síðan renndi hún sér niður fimm metra hæð og sótti hjálp. Ibúar fjölbýlishússins, þar sem moröið átti sér staö, segja að litla telpan hafi oft vakið athygli þeirra fyrir óvenjulega greind. Þykir afrek hennar enda með ólíkindum. t Ferðamálaráð Breta varð að bjarga strandaglópum heim af sólarströndum Grikklands. Frakkar í verkfalli Strandaglópar vegna gjald- þrots feröa- skrífstofu Opinberir starfsmenn í Frakklandi leggja niður vinnu í dag í eins sólar- hrings verkfalli til að mótmæla því að vísitölubætur hafa verið ákveönar aöeins 3% á þessu ári, þrátt fyrir um 7% veröbólgu. AUt flug leggst niöur, lestaráætlanir fara úr skorðum, bankar verða lokaöir, skólar og pósthús. Um 400 áætlunarferðum flugferða til og frá Frakklandi hefur verið aflýst í dag. Aðkomuflugvélar fá að lenda en engin flugtök leyfð og flugumferð yfir Frakklandi verður takmörkuö viö tíu til tuttugu prósent af því venjulega. Dali hefur reynst læknum sinum erfið- ur sjúklingur. Sautján ára gömul bresk ferðaskrif- stofa, Budget Holiday Group, hefur verið iýst gjaldþrota núna í lok sumar- annanna. Um 10 þúsund feröamenn á hennar vegum urðu þar með stranda- glópar í Grikklandi, á Kýpur, á Spáni og víðar við Miðjarðarhaf ið. Flug- og ferðamálaráð Bretlands varð að grípa til 4 milljón sterlings- punda skyldutryggingar feröaskrif- stofunnar til þess aö sjá þessu ferða- fólki fyrir fari heim og eins endur- greiða fólki heima sem innt hafði af hendi fyrirframgreiðslur vegna vænt- anlegra ferðalaga. Ferðaskrifstofa þessi velti 48 millj- ónum sterlingspunda á síðasta ári. Á vegum hennar störfuðu 290 fastráðnir starfsmenn og er þetta stærsta gjald- þrot sem komið hefur upp í breska ferðamannaiðnaðinum síðan Laker- flugfélagið var lýst g jaldþrota 1982. Da/i erfiður siúklingur Spánski listmálarinn, Salvador Dali, kýs helst dauðann, en skelfist hann samt, er haft eftir einum lækna hans. - ; Hinn áttrasði súrrealisti kom heim til sín í síðustu viku eftir sjö vikna legu á sjúkrahúsi vegna brunasára sem hann hlaut þegar kviknaði i svefnher- bergihans30. ágúst. Einn lækna hans segir í viðtali við spænskt læknarit að Dali hafi neitað að. fara úr rúmi, hafnað mat og flest gert til þess að spilla fyrir bata. Samt kvíði hann svo dauða sínum að hann hafi eiiift verið kallandi á læknana sem hann hafi síðan móðgað, klipiö og bar- ið. KOMDU MEÐ TIL KANARÍEY/A Komdu með til Kanaríeyja og njóttu lífsins í sólinni, þú getur valið um eins, tveggja eða þriggja vikna ferðir. Brottför alla þriðjudaga. Gististaðurinn á Kanaríeyjum er einn sá nýjasti og glæsilegasti: Barbacan á Ensku strönd- inni, vistleg smáhýsi eða rúmgóðar íbúðir, allt fyrsta flokks! Sundlaugar eru tvær og flóðlýstir tennisvellir. í þjónustukjamanum eru glæsilegir veitinga- staðir, barir og spilasalur. örstutt er í stóra verzlunarmiðstöð og á frábæran golfvöll. Smáhýsin í Barbacan eru glæsileg, með 1 —2 svefnherbergjum, nýtísku baði, fullbúnu eldhúsi og hverju húsi fylgir garður. Allt svolítið út af fyrir sig — bara fyrir þig. íbúðirnar í Barbacan eru rúmgóðar með dagstofu, stórum (sólbaðs)-svölum, fullbúnu eld- húsi, góðu baðherbergi og 1 —2-svefnherbergjum. Af svölum er gott útsýni og húsbúnaður allur er til sóma, islenski fararstjórinn á Barbacan er farþegum til trausts og halds og fylgir þeim í skemmti- legar skoðunarferðir um eyjuna. OG AMSTERDAM í hverri ferð er gerður tveggja daga stuttur stanz í Amsterdam á leiðinni út og á leiðinni heim (þá dvöl má auðveldlega framlengja). Amsterdam býður upp á stórborgarstfl með veit- ingastöðum, verziunum, skemmtistöðum, menningarverðmætum og alls konar ævintýrum. Gist er á Hótel Pulitzer í hjarta borgarinnar, sennilega eitt sérkennilegasta „klassa"-hótelið í Hollandi. Komdu með til Kanarí og Amsterdam — talaðu við okkur strax í dag. FERÐA MIDSTODIIXI AÐALSTRÆTI 9 S. 28133 CchUoC Tcouet

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.