Dagblaðið Vísir - DV - 30.10.1984, Page 1
DAGBLAÐIÐ — VÍSIR
234. TBL. — 74. og 10. ÁRG. — ÞRIÐJUDAGUR 30. OKTÓBER 1984.
Takast samningar milli
BSRB og ríkisins í dag?
— nwmnatpiJM litnria fvrirnn ntáiih tafet vacrna líriifu R.CPR iiftf eabaninntrinf vatrnn ksamntáia
Þegar DV fór í prentun skömmu
fyrir hádegi voru allar líkur á aö
samningur tækist milli BSRB og fjár-
málaráðuneytisins á næstu klukku-
stundum.
Meginatriði samningsins lágu fyrir í
morgun. Samkomulag var orðið um að
laun hækkuðu um 10% næstu mánaða-
mót og síðan kæmi 800 króna hækkun
ofan á alla launaflokka 1. desember.
Sem uppbót fyrir septembermánuð
yröu greiddar 2500 krónur og síðan
4000 krónur ofan á persónuuppbót í
desember. Þann 1. maí kæmi eins
launaflokks hækkun en ágreiningur
var um hvernig staðið skyldi aö ann-
arri eins launaflokks hækkun sem
koma skyldi 1. nóvember. Samningur
var þó ekki talinn geta strandað á því
atriði, heldur var helsti ásteytingar-
steinninn krafa BSRB um sakar-
uppgjöf vegna kærumála sem ýmis
fyrirtæki hafa lagt fram vegna verk-
fallsvörslu.
BSRB hafði fallið frá tilraun sinni til
aö ná inn í samninginn kaupmáttar-
tryggingu, en þess í stað var komið
ákvæði um að heimilt væri að segja
upp samningnum 1. september á næsta
ári. Samningur þessi er talinn geta
fært um 16,5% meöaltalskauphækkun
á samningstímanum eða um einu
prósenti minna en nýgerður
samningur bókagerðarmanna. Hann
yröi hins vegar 2,1% hærri en tilboð
f jármálaráöherra á sunnudag.
Skömmu fyrir hádegi var gert hlé á
samningaviöræðum á meðan fulltrúar
einstakra aðildarfélaga BSRB í 60-
manna nefndinni ræddu um tilboðið.
Tilboðið hafði þá ekki verið borið undir
atkvæði í nefndinni.
Mikil óánægja greip um sig í 60-
manna nefndinni í nótt er fyrstu
morgunblöðin bárust í Karphúsiö. INT
var greint frá samningsdrögunum og
voru þau þá talsvert lægri en nefndin
hafði samþykkt að unnt væri að gefa
eftir. Þá höfðu samningamenn BSRB
ekki rætt stöðu málanna við nefndina í
14 klukkustundir eða frá því fundur
hófst klukkan 1 í gærdag. Töldu menn
aö erfiölegar myndi ganga að fá sam-
þykki nefndarinnar eftir þessi vinnu-
brögð. -ÓEF/óm.
Haraldur Steinþórsson, varaformaður BSRB, í áköfum viðrœðum við samningamenn
rikisins, Þorstein Geirsson og Indriða Þorláksson.
... en þrátt fyrir miklar annir í nótt gáfu menn sér tíma til að taka eina skák og narta i kjúkl-
ingslæri. DV-myndir GVA
Samningur BSRB sleit
viðræðum ASÍ og VSÍ
—skatta-
leiðin
endanlega
úrsögunni
Laust fyrir klukkan 8 í morgun
slitnaði upp úr viðræöum Alþýðusam-
bandsins og Vinnuveitendasambands-
ins.Þarmeðerskattalækkunarleiðin í
samningum talin endanlega úr sög-
unni. Nýr fundur hefur verið ákveðinn
klukkan 14 á morgun.
Ástæðan fyrir því að skattaleiðin er
úr sögunni er samningur BSRB sem nú
liggur næstum fyrir. 1 honum felast of
miklar la unahækkanir aö mati VSI.
Laust eftir klukkan 6 í morgun ætlaði
VSI að leggja fram samningstilboð til
ASI um afnám tvöfalda launakerfisins
í áföngum á samningstímanum en um
það var orðiö samkomulag í megin-
atriöum. I tilboðinu var einnig gert ráð
fyrir að í stað kaupmáttartryggingar
yröi settur á fót gerðardómur skipaður
tveimur fulltrúum frá hvorum aöila og
oddamanni sem aðilar réðu á víxl.
Gerðardómurinn skyldi meta kaup-
máttarþróun og semja um hækkanir ef
verölagshækkanir færu umfram
ákveðin mörk. Ágreiningur var þó
milli aðila um útfærslu þessarar hug-
myndar. Samninganefnd ASI neitaði
að taka við þessu tilboði þar sem ekki
var nægilega gengið frá kaupmáttar-
tryggingu.
Samninganefndarmenn ASI töldu að
samningur um 18% meöaltalskaup-
hækkun á samningstímanum væri í
sjónmáli. Þaö er miðað við launa-
hækkanir ásamt skattalækkunum.
Viðræðurnar slitnuðu sem fyrr segir
vegna þess að BSRB hafði samið um
meiri launahækkanir en skattaleiðin
gerir ráð fyrir og ágreiningi ASI og
VSI um kaupmáttartrygginguna. ÓEF
Samninganefnd VSf bíflur mefl tilboflið i höndunum fyrir utan fundarsal samninganefndar ASf i húsakynnum Vinnuveitendasambandsins vifl
Garðastræti. Á endanum var samninganefndin gerfl afturreka mefl tilboflifl þar sem ASÍ vildi ekki taka við þvi. DV-mynd GVA