Dagblaðið Vísir - DV - 30.10.1984, Síða 15
DV. ÞRIÐJUDAGUR 30. OKTOBER1984.
15
Iróttir
íþróttir
íþrótt
íþróttir
íþróttir
Fær Ásgeir „grænt
Ijós" hjá Stuttgart?
.ííWŒfíiiiiSSSÍ .
• Valur Valsson sést hér (t.h.) kljást
við Kristinn Jónsson á landsliðsæfingu
á gervigrasveilinum i Laugardal á
sunnudaginn. Valur er í landsliðshópi
Tony Knapp.
DV-mynd Brynjar Gauti.
Dan f rá í
sex vikur
Sænski landsllðsma&urinn Dau Cornelius-
son, fyrrum félagi Ásgeirs Sigurvinssonar hjá
Stuttgart, getur ekki leiki* með ítalska
félaginu Comos næstu sex vikurnar. Dan var
skorinn upp við brjósklosi í hné á sjúkrahúsi í
Linköping í Svíþjóð fyrir helgina. -SOS.
r Barcelona "1
j áf ram á j
j sigurbraut i
IBarcelona hélt áfram sigurgöngu I
sinni á Spáni á sunnudaginn þegar *
I félagið lagði Atletico Madrid að |
* velli — 2—1 í Madrid. Það var V- ■
I Þjóðverjinn Bernd Schuster sem I
I lagði upp fyrra mark Barcelona I
| sem Ramon skoraði. Mexíkaninn *
IHugo Sanchez jafnaði fyrir Madrid I
en síðan kom það í hiut varnarleik-1
Imannsins Migueli Barnardo að |
skora sigurmark Barcelona á 84. .
f mín.
IBarcelona er í efsta sæti á Spáni — eina I
félagiö sem er taplaust með 14 stig eftir ■
Iátta leiki. Valencia og Sevilla eru meö tólf I
stig og síÖan koma Sporting og Atletico ■
Madrid meö tíu stig. Real Madrid er með |
— til að leika með íslendingum gegn Wales í Cardiff. KSÍ er nú að vinna
að þvíað fá Ásgeir lausan ÍHM-Ieikinn
Ásgeir Sigurvinsson hefur mikinn
hug á að leika HM-leikinn gegn Wales í
Cardiff 14. nóvember og er hann til-
búinn að mæta í slaginn ef hann fær
„grænt ljós” hjá Stuttgart, sem á að
leika gegn Hamburger SV í
Bundesligunni sama kvöid og leikið
er í Cardiff. Landsliðsnefnd KSl er nú
að vinna að þvi að fá Ásgeir lausan frá
Stuttgart í leikinn gegn Wales, sem er
þýðingarmikill fyrir tsland.
Tony Knapp landsliðsþjálfari hefur
nú valið 24 manna hóp fyrir leikinn
gegn Wales. Aðeins einn leikmaður í
hópnum hefur ekki leikið landsleik —
það er Eggert Guömundsson, hinn
efnilegi markvörður, sem leikur meö
sænska liðinu Halmstadt.
Þeir 24 leikmenn sem Knapp hefur
valiö eru þessir: Markverðir: Bjarni
Sigurðsson, Akranesi, Þorsteinn
Bjarnason, Keflavík og Eggert Guð-
mundsson, Halmstadt. Aðrir leik-
menn: Árni Sveinsson, Akranesi,
níustig.
-sos.
• Ásgeir Sigurvinsson.
Arnór Guðjohnsen, Anderlecht, Ársæll
Kristjánsson, Þrótti, Ásgeir Sigurvins-
son, Stuttgart, Atli Eövaldsson,
Diisseldorf, Guðmundur Steinsson,
Fram, Guðmundur Þorbjörnsson, Val,
Guðni Bergsson, Val, Janus Guðlaugs-
son, Fortuna Köln, Lárus Guðmunds-
son, Uerdingen, Magnús Bergs,
Ribbeck ráðinn
til Dortmund
— tuttugasti og sjöundi þjálfari félagsins
síðan Bundesligan var stofnuö, árið 1963
Erich Ribbeck hefur verið ráðinn
þjálfari hjá Borussia Dortmund eftir
að forráðamenn knattspyrnufélagsins
vestur-þýska höfðu rekið þjálfara og
framkvæmdastjóra félagsins fyrir
nokkrum dögum.
Ribbeck þessi, sem er 47 ára gamall,
var aðstoðarmaöur hjá Jupp Dervall
þegar hann þjálfaöi landsliö Vestur-
Þjóðverja. Samningur hans hjá Dort-
mund gildir út þetta keppnistímabil.
Koma Ribbecks til liðsins virðist hafa
haft góö áhrif á leikmenn liðsins vegna
þess að þeir unnu góðan sigur á laugar-
daginn í Bundesligunni. Dortmund lék
á útivelli gegn Waldhof Mannheim og
sigraði, 1—2. Sigur er nokkuö sem leik-
menn Dortmund hafa hingað til aðeins
þekkt af afspurn. Liðið hefur leikið 10
leiki í deildinni og aðeins hlotið sex
stig. Þess má geta aö Ribbeck er 27.
þjálfarinn sem ráðinn er til Dortmund
frá því að Bundesligan var stofnuð árið
1963. Aður hefur hann þjálfað hjá Ein-
tracht Frankfurt og Kaiserslautern.
-SK.
Braunschweig, Njáll Eiðsson, KA,
Pétur Pétursson, Feyenoord, Ragnar
Margeirsson, Keflavík, Sigurður Grét-
arsson, Irakis Salonika, Sigurður Jóns-
son, Akranesi, Sæbjörn Guðlaugsson,
KR, Sævar Jónsson, CS Brugge, Valur
Valsson, Val, Þorgrímur Þráinsson,
Val og Gunnar Gíslason, KR.
Yfirlýsing Lárusar
Tony Knapp landsliðsþjálfari var
búinn að velja þennan hóp áður en yfir-
lýsing frá Lárusi Guðmundssyni, um
að hann gæfi ekki kost á sér í landsleik-
inn gegn Wales, birtist í viðtali við
hann í einu dagblaðanna fyrir helgina.
Sú yfirlýsing hefur vakið mikla at-
hygli og eru menn á því að þar hafi
Lárus hlaupið á sig.
— ,,Eg fór hálfgerða fýluferð til
Glasgow,” sagði Lárus, sem var vara-
maður í leiknum gegn Skotlandi á
dögunum, og var óhress aö hafa ekki
verið inni í myndinni hjá Knapp og
ekki fengið að spreyta sig.
Auðvitað hlýtur það aö vera metn-
aöur allra knattspymumanna að leika
landsleiki en því miður komast ekki
nema ellefu leikmenn í byrjunarlið
hverju sinni. — „Lárus hefur greini-
lega ekki séö á varamannabekk
Skota,” sagði einn landsliðsmaður Is-
lands þegar hann sá yfirlýsingu Lárus-
ar.
Já, þaö voru engir aukvisar á bekkn-
um hjá Skotum — leikmenn eins og
Charlie Nicholas, Arsenal, John Wark,
Liverpool, Steve Archibald, Barce-
lona, sem kom „fýluferð” frá Spáni og
Gordon Strachan, Man. Utd. I lands-
liðshópinn komust ekki leikmenn eins
og Mark McGhee, fastaleikmaður með
Hamburger SV, og Alan Hanssen, mið-
vörður Liverpool.
Það er ljóst að með yfirlýsingu Lár-
usar er hann búinn að glata rétti sínum
á landsliðssæti — a.m.k. undir stjórn
TonyKnapp. -SOS
Ballesteros
setti nýtt
vallarmet
- lék 18 holur á 61 höggi á Nissan
Open í Japan í gær en haf naði í 5. sæti
Bandarikjamaðuriun Lanny
Wadkins vann sér inn 3,5 milljónir
ísl. króna með sigri á „Nissan
open” í Japan í gær. Wadkins lék á
266 höggum sem er 14 höggum
undir pari vallarins sem leikið var
á.
Það sem vakti þó mesta athygli
var frábær spilamennska Spán-
verjans Severiano Ballesteros á
öðrum degi keppninnar. Ballest-
eros lék þá 18 holur á 61 höggi, niu
höggum undir pari vallarins og er
það nýtt vallarmet. Nick Price
varð í öðru sæti á mótinu á 270
höggum en hann er frá Suður-
Afríku. Lítt þekktur kylfingur frá
Formósu varð í þriðja sæti á sama
höggafjölda. Tom Watson, Banda-
ríkjunum, varð fjórði í 273 höggum
og Severino Ballesteros varð síðan
fimmti á 274 höggum. Hann lék
síðustu 18 holurnar á 73 höggum og
sú frammistaða varð þess öðru
fremur valdandi að hann varð ekki
ofar í keppninni. SK.
• Erich Ribbeck — nýi þjálfarinn hjá
Dortmund.
Ab Faf ie
tekur við
Feyenoord
Feyenoord tilkynnti i gær að félagið
væri búið að ganga frá þvi að Thijs
Llbregts, þjálfari félagsins, fái sig
lausan til að gerast þjálfari griska
liðsins Aris Saloniki. Libregts átti
erftir átta mánuði af samningi sinum
við Feyenoord. Libregts hefur samið
við Aris um að hann verði þjálfari fé-
lagsins út þetta keppnistimabil og það
næsta.
Leikmenn Feyenoord óskuöu eftir
því við stjórn félagsins að Ab Fafie,
sem hefur verið aðstoðarþjálfari
Feyenoord, taki við stöðu Libregts og
varðfélagiðviðóskþeirra. -SOS.
óttir
íþróttir
íþróttir
íþróttir
Sævar Jónsson.
Sævar er í
V-Þýskalandi
Frá Kristjáni Bernburg frétta-
manni DVíBelgíu:
— Sævar Jónsson, landsliðsmið-
vörður í knattspyrnu, hefur gengið
tveggja daga leyfi hjá CS Brugge
til að fara til V-Þýskalands til
viðræðna við félagslið þar sem
hefur sýnt áhuga á honum. For-
ráðamenn v-þýska félagsins munu
síðan koma til Belgíu á fimmtudag-
inn til að sjá Sævar leika með CS
Brugge í bikarleik gegn Ant-
werpen.
Þaö var vitaö að Schalke hafði
um tíma áhuga á að fá Sævar, en sá
áhugi er ekki fyrir hendi ennþá.
Það bendir allt til aö þaö sé ekki lið
í „Bundesligunni”, sem Sævar er
nú hjá til að kanna aðstæður.
-KB/-SOS.
Frost sigur-
vegari
íRanders
Morten Frost frá Danmörku varð
sigurvegari i opna skandinavíska
meistaramótinu í badminton sem
lauk í Randers í Danmörku á
sunnudaginn. Hann vann sigur á
Kínverjanum Han Jian í úrslita-
leik, 15—lOog 15—9.
• Kínverska stúlkan Han Alping
varð sigurvegari i einliða leik
kvenna — vann löndu sína Wu Dixi,
9—11,11—2 og 11—2 í úrslitaleik.
-SOS.
Ovett er
orðinn góður
Steve Ovett, hlauparinn snjalli
frá Bretlandi, sem keppti i 1.500 og
800 m hlaupi á OL i Los Angeles,
sagði í gær að hann væri orðinn
góður af veikindum þeim sem hann
hefur átt við að glima og myndi
geta farið að æfa af fullum krafti
fyrir jól. Eins og menn muna þá
átti Ovett við öndunarerfiðleika að
eiga á OL og varð að hætta i 800 m
hlaupi. -SOS
fþróttir