Dagblaðið Vísir - DV - 13.11.1984, Qupperneq 2
2
DV. ÞRIÐJUDAGUR13. NOVEMBER1984.
ASÍ-þing haldið eftir hálfan mánuð:
Leitað víðtækari
samstöðu um forystu
Á nœsta þingi Alþýöusambands
Islands, sem haldiö veröur dagana
26. til 30. þessa mánaöar, er stefnt aö
ýmsum skipulagsbreytingum er fela
i sér aö skapa breiöari pólitíska sam-
stööu um forystu ASI.
Miöstjóm ASI hefur samþykkt að
leggja fyrir þingiö tillögu til laga-
breytinga um að kosnir verði tveir
varaforsetar í staö eins og aö mið-
stjómarmönnum veröi f jölgaö um 3,
úr 13 í 16.
Asmundur Stefánsson, forseti
ASI, er sem kunnugt er alþýöu-
bandalagsmaöur og Bjöm Þórhalls-
son varaforseti sjálfstæöismaöur.
Taliö er liklegt að annar varaforseti
veröi úr röðum alþýðuflokksmanna
ef tillagan fæst samþykkt á þinginu.
Tillaga sama efnis var reyndar lögö
fyrir síðasta þing ASI en var felld.
Karl Steinar Guönason, varafor-
maður Verkamannasambandsins,
og Jón Helgason, formaður Einingar
á Akureyri, em taldir koma til
greina sem fulltrúar krata. En einn-
ig em uppi hugmyndir um aö þetta
embætti veröi skipaö konu og em þá
taldar koma til greina Þóra Hjalta-
dóttir, formaður Alþýöusambands
Noröurlands, og Sigrún D. Elíasdótt-
ir, formaöur Alþýðusambands Vest-
urlands. Sem stendur eiga aðeins
tvær konur sæti í miðstjóm ASI,
Aðalheiöur Bjamfreösdóttir, for-
maður Sóknar, og Þórunn Valdi-
marsdóttir, fyrrverandi formaður
Framsóknar og núverandi fram-
kvæmdastjóri félagsins. ÖEF
Framsókn varar við
óheftri frjálshyggju
„Fundurinn varar við óheftri frjáls-
hyggju sem kollvarpaö getur þvi þjóö-
félagi menningar, jafnræöis og vel-
feröar sem leggja ber áherslu á aö
tryggja,” segir meðal annars í stjórn-
málaályktun miðstjórnar Fram-
sóknarflokksins frá síðustu helgi. Þá
fagnaöi miöstjórnin þeim mikla
árangri sem ríkisstjórn Steingríms
Hermannssonar hefur náö í efnahags-
málum og síöan segir: „Miöstjórn
Framsóknarflokksins telur að hiö
fyrsta verði að hefja undirbúning aö
gerö þeirra kjarasamninga sem taka
eiga gildi í árslok 1985 meö þaö aö
markmiði: 1. Að verðbólga minnki og
stöðugleiki skapist í efnahagslífinu
þannig aö kaupmáttur aukist. 2. Aö
leitað sé samstööu í nýsköpun atvinnu-
lífsins sbr. áætlun ríkisstjómarinnar
er veröi grundvöllur að bættum kjör-
um í þjóðfélaginu. 3. Að skapa víötæka
samstööu um gerð kjarasamninga. 4.
Aö auka kaupmátt lægstu launa hlut-
fallslega meira en hærri launa,
minnka launamun í þjóðfélaginu og
koma á eðlilegu samræmi á kjörum
hinna ýmsu þjóðfélagshópa. 5. Aö beita
ýmsum öömm aögerðum en beinum
launahækkunum svo sem skattalækk-
unum og öörum opinberum jöfnunar-
aögeröum til aö bæta afkomu launa-
fólks. I því skyni verði öll tekjuöflun
ríkis og sveitarfélaga tekin til endur-
skoöunar fyrir næstu kjarasamninga.
6. Aö kjarabætur veröi í samræmi við
aukningu þjóöartekna og stööu þjóöar-
búsins. 7. Að kjarasamningar séu til
a.m.k. tveggja ára. 8. Aö gerö sé rót-
tæk atlaga gegn skattsvikum og neöan-
jaröarhagkerfi.”
Ennfremur segir í stjómmála-
ályktun miðstjórnar Framsóknar-
flokksins að núverandi stjómarsam-
starfi beri aö halda áfram enda náist
samstaða meö flokkunum um aögeröir
í efnahagsmálum.
-EIR.
Sáð yfír hluta salarins á stofnfundi Frjáisrar fjölmiðlunar siðastiiöinn laug-
artiag. DV-mynd: S.
Starfsmenn Frjálsrar f jölmiðlunar:
Óska sérsamninga
innan fyrirtækisins
Starfsfólk Frjálsrar fjölmiðlunar,
sem gefur út DV, Vikuna og Urval,
kom saman á Esjubergi á laugardag
til að stofna starfsmannafélag.
Slíkt þætti ekki tíöindum sæta, nema
fyrir þær sakir aö Starfsmannafélag
Frjálsrar f jölmiölunar hefur óskaö eft-
ir því viö viökomandi stéttarfélög aö fá
aö gera sérstakan kjarasamning innan
fyrirtækisins. Starfsmenn Frjálsrar
fjölmiðlunar tilheyra fjórum stéttarfé-
lögum, Blaðamannafélagi Islands,
Verslunarmannafélagi Reykjavíkur,
Félagi bókageröarmanna og Verka-
kvennafélaginu Framsókn. Forsvars-
menn þessara félaga hafa tekið vel í þá
hugmynd að starfsfólk fyrirtækisins
geri sérstakan samning til lengri tíma
og meö meiri kauphækkunum en lág-
markssamningar stéttarfélaganna
fela í sér. Enn liggur þó ekki fyrir
hvemig slíkir samningar skuli útfærö-
ir.
Á fundinn á laugardag var mætt-
ur rúmur helmingur starfsmanna
Frjálsrar fjölmiðlunar. Mikill einhug-
ur ríkti um stofnun starfsmannafé-
lagsins og um aö leita nú þegar leiöa til
aö gera sérsamninga.
Loðnukvótinn
tvöfaldaður
Sjávarútvegsráöuneytiö hefur
ákveðiö aö auka heildarloönuveiöi-
kvótann úr 195 þúsund lestum í 390
þúsund lestir. Er hverjum báti heim-
ilt að veiöa tvöfaldan þann afla sem
honum var úthlutaður meö reglugerö
frá 26. september 1984, um loönu-
veiðar á haustvertíö 1984 og vetrar-
vertíöl985.
Ákvöröun þessi er tekin á grund-
velli bráöabirgöatillagna frá Haf-
rannsóknastofnuninni sem staö-
f estar voru á fundi fisk veiöiráögjafa-
nefndar Alþjóðahafrannsóknaráðs-
ins í byrjun síðustu viku.
Nú standa yfir frekari bergmáls-
mælingar á loönustofninum á vegum
Hafrannsóknastofnunar og er þess
vænst aö niðurstöður þeirra liggi
fyrir fljótlega og veröur þá tekin af-
staða til frekari veiöa á yfir-
standandi loðnuvertíð.
Skoðanakönnun:
NT fær út fylgis-
aukningu Framsóknar
NT birti í gær niöurstöður skoö-
anakönnunar sem þaö blað hefur
gert. Framsóknarflokkurinn hefur
bætt miklu viö sig samkvæmt«þessari
könnun og benda menn á aö NT er
tengt Framsóknarflokknum. Samtök
um kvennalista hafa einnig bætt viðsig
en Alþýðuflokkur, Alþýöubandalag og
Sjálfstæöisflokkur tapaö miðað viö síð-
ustu kosningar. Áberandi er hve illa
Alþýöubandalagið fer út úr könnun NT
ef boriö er saman viö síðustu
kannanir DV.
NT segir aö kannanir blaðanna gefi
góöa mynd af þeim hreyfingum sem
eiga sér staö í þjóöfélaginu á hverjum
tíma. Vísar NT þar einnig til DV-
kannana og segist nota DV-aöferðir.
Talsverður munur er víða í útkomu
NT-könnunarinnar og DV-könnunar
sem birt var 23. október. Hreyfingar á
fylgi flokka mætti ef til vill athuga meö
samanburöi á niöurstööum kannana
NT, næst þegar þaö blaö gerir könnun,
en líklega má lítinn lærdóm draga af
samanburöi þessarar NT-könnunar viö
síðustu DV-kannanir. Til þess virðist
NT-könnunina skorta ýmislegt.
Ef teknir eru þeir sem tóku afstööu í
könnun NT veröa niðurstööur þessar. I
sviga úrslit síöustu þingkosninga:
Alþýðuflokkur 8,9% (11,7), Fram-
sóknarflokkur 23,6% (19%), Bandalag
jafnaöarmanna 7% (7,3), Sjálfstæðis-
flokkur 37,8% (39,2), Alþýðubandalag
13% (17,3), Samtök um kvennalista 9,4
(5,5). Niöurstööur síðustu
DV-könnunar voru þessar (þeir sem
afstööu tóku): Alþýöuflokkur 6,2%,
Framsóknarflokkur 15,8%, Bandalag
jafnaðarmanna 8,4%, Sjálfstæðis-
flokkur 40,4%, Alþýöubandalag 19,9%,
Samtök um kvennalista 9%. Flokkur
mannsins er á blaöi í könnunum DV og
NT meö0,2%.
-HH.
Endurbætt
sjómannalög
„Ég vænti þess aö nefndin taki umfrágildandilögum. Einnýmælieru
frumvarpiðtilgagngerrarskoöunarog til dæmis þau aö sé skipverjum, sem
þaö fái svo afgreiðslu á þessu þingi þar starfað hafa samfellt í þjónustu sama
sem það er lagt fram svo snemma útgeröarmanns í 15 ár eða lengur vikið
þings,” sagöi Matthías Bjamason úr starfi án nægra ástæöna þá eigi þeir
samgönguráöherra í efri deild í gær er rétt á launum. Skulu þeir samkvæmt
hann lagði fram frumvarp til sjó- frumvarpinu eiga rétt á sérstakri upp-
mannalaga. Var frumvarpið lagt fram bót sem nemi eins mánaöar launum ef
í annaö sinn nú og eftir fyrstu umræöu um yfirmenn er aö ræöa og annars
vísaö til samgöngunefndar. Nokkrar skululaunmiöuðviöl5daga.
breytingar eru á þessum sjómannalög- -ÞG
Jafntefli Í23. einvígisskákinni íMoskvu:
Allt samkvæmt áætlun
— segja liðsmenn áskorandans,Garrí Kasparovs
Heimsmeistaraeinvígiö í Moskvu,
sem hófst af svo miklum krafti,
viröist nú engan enda ætla aö taka.
Fjórtánda jafntefliö í röð sá dagsins
ljós í gær er þeir félagar tefldu 23.
einvígisskákina. Þetta var stutt
skák, aðeins 22 leikir, og fremur
bragödauf. Karpov komst ekkert
áleiöis gegn drottningarbragði
Kasparovs og eftir mikil uppskipti
undirrituöu þeir friöarsamningana.
Staöan því enn óbreytt, 4—0 Karpov í
vil.
I herbúðum Kasparovs ríkti
almenn ánægja meö þessi úrslit og
liösmenn hans sögöu aö „allt gengi
samkvæmt áætlun”. Kasparov hefur
í síöustu skákum sætt sig viö jafntefli
og „teflt meira með kjafti og klóm”,
eins og einn skákunnandi komst aö
oröi. Þaö var einmitt hann sem bauð
jafntefli í skákinni í gær enda hafði
honum tekist aö jafna taflið auöveld-
lega.
Aö sögn sérfræðinga í Moskvu
bendir gangur einvígisins til þess, að
Kasparov hafi ofmetiö möguleika
sína í upphafi en hafi nú loks gert sér
grein fýrir því að Karpov er ekkert
lamb aö leika við. Þaö gæti reynst
heimsmeistaranum erfitt aö vinna
tvær skákir til viðbótar ef mótherj-
inn tekur enga áhættu. Margir eru
þeirrar skoöunar aö Alþjóðaskák-
sambandiö hljóti í Ijósi þessarar
reynslu að endurskoða reglumar
varöandi heimsmeistaraeinvígið. Nú
eru jafntefli ekki talin meö og ein-
vígiö gæti þvi dregist úr hömlu.
Tuttugasta og f jóröa skákin verður
tefld á miövikudag og þá hefur
Karparov hvítt.
Hvítt: Anatoly Karpov.
Svart: Garrí Kasparov.
Drottningarbragð.
1. Rf3 d5 2. d4 Rf6 3. c4 e6 Rc3 Be7 5.
Bg5h66. Bh4
Þannig tefldi Karpov síöast í 17.
skákinni en í 19. og 21. skákunum lék
hann 6. Bxf6 Bxf6 7. Dd2, sem er
skarpara framhald.
6. — 0—07.Hcl
Tartakover-afbrigðið, 7. e3 b6 var
til umræðu í 17. skákinni en Karpov
komst ekkert áleiöis og samið var
um jafntefii eftir 22 leiki — algeng
lokatala í þessu einvígi. Hróksleikn-
um brá fyrir í einvígi Karpovs og
Kortsnoj í Merano fyrir þremur ár-
um og reyndar teflist skákin nú líkt
og ein viöureignin þá.
7. —dxc4!?8.e3
Hann komst tvö skref fram meö
peðið en þaö er allt of hættulegt!
8. —c5 9. Bxc4 cxd410. Rxd4
Hann vill ekki taka á sig stakt peö
á miöborðinu meö 10. exd4 en texta-
Skák
Jón L. Árnason
leikurinn er ósköp bitlaus. Karpov
reyndi þetta gegn Kortsnoj en svart-
ur jafnaði taflið án nokkurra vand-
kvæða.
10. —Bd711.0-0 Rc612. Rb3
Svartur hefur þrengri stöðu og því
eru öll uppskipti honum í hag.
12.—Hc8 13. Be2 Rd5! 14.Bxe7
Léttir á svörtu stööunni en 14. Bg3
Rxc3 15. Hxc3 Rb4 var heldur ekki
vænlegt til árangurs.
14. —Rcxe715. Rxd5
E.t.v. er 15. Re4!? síðasti mögu-
leikinn til þess aö flækja málin.
15. —Rxd516. Hxc8 Dxc817. Dd4 Db8
18. Bf3 Rf6 19. Rc5 Bb5 20. Hdl b6 21.
Re4Rxe4 22. Bxe4Hc8
a b c d e i g h
Svartur hefur jafnaö tafliö og nú
var frekari vopnaviöskiptum hætt.
Fram aö þessu hefur Kasparov þurft
aö hafa fyrir því aö ná jafntefli meö
svörtu en nú átti hann ekki í erfið-
leikum. Er hann kannski aö sækja í
sigveðrið?
Helgarskákmótið í Eyjum
Ásgeir Þór Ámason og Helgi Ölafs-
son urðu efstir og jafnir á 26. helgar-
skákmóti tímaritsins Skákar og
Skáksambands Islands, sem haldiö
var í Vestmannaeyjum um helgina.
Þeir hlutu 6 v. af 7 mögulegum en í
3.-6. sæti uröu Jón L. Ámason Jón
Hálfdánarson, Guðmundur Halldórs-
son og Guömundur Sigurjónsson meö
51/2 v. Enginn keppandi hlaut 5 v. en
fjölmargir 4 1/2 v. Keppendur á
fimmtatug.
I síðustu umferð gerðu Helgi og
Jón L. jafntefli en Ásgeir komst upp
að hlið Helga með sigri gegn Sævari
Bjamasyni í spennandi skák.
Frammistaöa Sigurgeirs Gíslasonar
vakti athygli. Hann vann m.a. Bene-
dikt Jónasson, geröi jafnt við Jón L.
Ámason og hlaut öldungaverölaun á
mótinu.
Mótiö tókst í alla staði mjög vel og
móttökur heimamanna voru höfðing-
legar. JLÁ