Dagblaðið Vísir - DV - 13.11.1984, Blaðsíða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 13.11.1984, Blaðsíða 14
14 DV. ÞRIÐJUDAGUR13. NOVEMBER1984. Sviðsljósið Sviðsljósið Sviðsljósið Nú er Borg- hjónunum borgið Þú segir ekki! Karl Bretaprins lék ný- lega póló með krónprins- inum af Jórdaníu. Að leik loknum ræddu krónprins- arnir eitthvert málefni sem slúðurdálkahöfundar hafa ómögulega getað komist að. Ræddu þeir um hvernig opna skuli kampavínsflöskur? Eða um hve stór Hinrik prins sé orðinn? Nú eða al- mennt um barnauppeldi? Borg-hjónin stefna nú aö nýju í hjónaband eftir hinn umtalaöa skiln- aö fyrir skömmu. Þau hafa fundið sér nýja maka og nú spá menn her- iegum brúðkaupum innan fórra vikna. Mariana Borg, sem áður hefur lýst því yfir aö hún muni gift- ast svo Qjótt sem auðið er, hefur nú fundið ungan og sætan. Jean-Pierre Marsan heitir hann og er að sögn vellauöugur. Bimi Borg gengur ekki síður vel að yngja upp því hann er kominn með eina 18 óra upp á arminn og brúð- kaup þeirra mun einnig verða innan fárra vikna. Jannike Björling heitir sú Iukkulega. Hún tjáði oss á dögun- um að það eina sem henni þætti leiðinlegt við sambandið við Bjöm væri að margir héldu að hún hefði hæit í Björn vegna peninganna. Það væri alrangt. Við trúum þessu svona rétt mátulega. Myndirnar hér á síö- unni taka af öll tvímæli um að allt sé í iukkunnar velstandi hjá hjónaleys- unum. Ný drottning komin íspilið? Rokkarinn góökunni, Freddie Mercury, er nú kominn á fast og um seinan fyrir ungpíur að klófesta hann. Þetta var þó góður biti því hann ku þéna 60 milljónir króna ó ári. Sú lukku- lega heitir Mary Austin og hefur til skamms tíma unnið á skrifstofu. Erfiðleikar leikkonu Ný mynd með Brooke Shields er nú væntanleg. Litlu munaöi að gerð myndarinnar hlyti sorglegan endi. Leikkonan átti að falla fyrir borð og látast drukknuö en við borð lá að hún drukknaöi. Snarráöum mönnum tókst þó að bjarga leikkonunni og vom margir um hituna. Ekki er vitaö til að neinn björgunarmanna hafi farist. Superman með skalla? Christopher Reeve óttast nú að hann muni aldrei framar leika Superman. Kappinn er nefnilega að missa hórið og sköllóttur getur Superman ekki verið. Reeve leitar nú ókaft ráða til aö stöðva hárlosiö en án árangurs. Þeir sem vilja leggja Reeve lið geta komið ráðum á framfæri við Sviðsljósið.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.