Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 13.11.1984, Qupperneq 5

Dagblaðið Vísir - DV - 13.11.1984, Qupperneq 5
DV. ÞRIÐJUDAGUR13. NOVEMBER1984. 5 Athvarf fyrir unga fíkniefnaneytendur „Eg vænti þess að nefndin verði skipuð til þess að hún geti lagt fram skjót og góð úrræði. Það er dýrkeypt- ara að bíða en framkvæma strax,” sagði Guðrún Agnarsdóttir þingmaður í viötali við DV nýlega. Guðrún er fyrsti flutningsmaður tillögu til þings- ályktunar á alþingi um athvarf fyrir unga fíkniefnaneytendur. Með- flutningsmenn eru Kristín Halldórs- dóttir og Sigríður Dúna Kristmunds- dóttir. Því standa allir þingmenn Sam- taka um kvennalista aðtillöguþessari. I henni er heilbrigöisráðherra falið aö skipa þriggja manna nefnd. Hún leggi fram fyrir 1. maí 1985 ákveönar til- lögur um það hvemig best sé að veita athvarf og heilbrigðis- og félagslega þjónustu þeim börnum og unglingum, yngri en 18 ára, sem eru illa haldin, andlega og líkamlega, vegna fíkniefna- neyslu. „Þetta athvarf er hægt að finna áður en byggð er unglingageðdeild sem líka er nauðsynleg,” sagði Guðrún. „Þaö verður að stemma á að ósi í þessum efnum, bæði til að líkna þessum hópi barna og unglinga, sem þegar eru háð fíkniefnum, og koma í veg fyrir að hann verði kveikjan aö öðrumstærri.” „Ríkisstjómin hefur þessi mál til at- hugunar, en bæði heilbrigöis- og dóms- málaráðherra, hafa fengið tillögur frá tveimur nefndum sem skipaðar vom til aö kanna þessi mál og leggja fram tillögur til úrbóta,” sagði Páll Sigurösson, ráðuneytisstjóri í heil- brigðisráðuneytinu. Hann var spurður hvort einhver afstaöa lægi fyrir um at- hvarf fyrir unga fíkniefnaneytendur. Sagði hann að töluverð viðbótarrými hefðu bæst við á undanfömum árum fyrir áfengissjúklinga. I þeim stofnun- um sem fyrir eru væri ekki aöskilin á- fengis- eða önnur vímuefnaneysla — yfirleitt væm neytendur ofneytendur á hvort tveggja. Kvað Páll Sigurðsson oft hafa verið deilt um akiursmörkin og margir horfið frá sérstökum unglinga- deildum. -ÞG. Endurmat á störfum kennara: „Alltaf hæfasta og besta fólkið í þekk- ingarfabrikkuna” „Skólinn er verksmiöja sem fram- leiðir þekkingu,” sagði Guðmundur Einarsson þingmaður í umræðu á al- þingi nýlega um endurmat á störfum kennara. Þingmaðurinn undirstrikaði mikilvægi þess „að í þá þekkingar- fabrikku verði alltaf ráöið hæfasta og besta fáanlega fólkið”, og líta beri á þessa atvinnugrein sem undirstöðuat- vinnuveg í þjóöfélaginu. Til umræðu var tillaga til þings- ályktunar frá öllum þremur þing- mönnum Samtaka um kvennalista, um endurmatá störfumkennara. Þar er lögð áhersla á aö brýna nauðsyn beri til að fram fari endurmat á störfum kennara þar sem tillit verði tekið til hinnar miklu ábyrgðar sem kennurum er lögð á herðar við stöðugt umfangsmeiri og f jölbreyttari fræðslu og uppeldi í siauknum mæli. Benda flutningsmenn á aö ekki sé síður um hagsmunamál foreldra en kennara að ræða og jafnframt þjóð- arinnar allrar. Lagt er til að fimm manna nefnd verði skipuö er skili áliti ekki síðar en sex mánuöum eftir sam- þykkt tillögunnar. .JCfnislega er þessi tillaga sam- hljóða þeim viðhorfum sem ríkja innan þess vinnuhóps sem skipaöur var af menntamálaráðherra á síðastliðnu ári til þess að fjalla um aukin tengsl heimila og skóla,” sagði Salome Þor- kelsdóttir þingmaður m.a. í um- ræðunni. „Vegna verkfallsins hefur nefndin ekki getað skilaö áfanga- skýrslu sinni til ráðherra, en skýrslan er nú í lokavinnslu.” Til þess að bæta samstarf heimila og skóla sagði Salome að nauðsynlegt væri að endur- meta störf kennara, meðal annars með tilliti til breytinga í þjóðfélaginu og aukinni ábyrgö kennara. Menntamála- ráðherra, Ragnhildur Helgadóttir, lýsti yfir stuðningi við meginefni til- lögunnar. -ÞG. Sjómannadagsráð tekur á næstu dögum í notkun fyrir aldraða 28 nýjar, verndaðar þjónustuíbúðir í Hafnarfirði. Ibúðimar eru í tíu raðhúsum, tvær og þrjár í hverju húsi. Þjónustuíbúðirnar eru byggðar samkvæmt ákvæðum í lögum um verndað þjónustu- og öryggishús- næði fyrir aldraða. Eru þessar nýju íbúðir í Hafnarfiröi annaðhvort í einkaeign eöa í eigu góðgerðafélaga og stéttarfélaga, en meirihluti íbúða er í einkaeign. Sérstök þjónustu- og öryggismiðstöð er síðan í Hrafnistu í Hafnarfirði.' mannadagsráð ætti vilyrði fyrir fimm svona íbúðahverfum í Garða- bæ og einnig væri í eigu þess stór lóð i Reykjavík. -EH. Að sögn Péturs Sigurðssonar, for- stöðumanns Hrafnistu í Hafnarfirði, þá hefur Sjómannadagsráð séð um framkvæmdir og aöstoðaö við út- vegun f jármagns meðan á byggingu íbúðanna stóö. Um áframhaldandi framkvæmdir sagði Pétur að Sjó- Nokkrirgastír skoða húsin á laugardaginn. DV-mynd S. NÝJAR ÍBÚÐIR FYRIR ALDRAÐA í HAFNARFIRDI Hann er íslenskur! Hann er lagaður að líkainanum! Hannfæstmeð eöa ánarmaogmeö hvaða áklæði sem er! Ef hann er 2000 krónum ódýrari en innfluttur stóll, hversu mikið gætir þú þá sparað í næsta skipti sem þú pantar 25 stóla fyrir fyrirtæki þitt? Rétt! 50.000 krónur. Hverniggæti fyrirtækið haft not af 50.000 krónum aukalega? Hvernig sem þú vilt nota peningana þá ertu alltaf velkominn. Hjá okkur gerir þú hagkvæm innkaup. Við opnum klukkan 8. STÁLIÐJAN hf SMIÐJUVEGI 5, KÓPAVOGI, SÍMI 43211

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.