Dagblaðið Vísir - DV - 13.11.1984, Side 10
10
DV. ÞRIÐJUDAGUR13. NOVEMBER1984.
Frjálst, óhóö dagblað
Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF.
Stjórnarformaðurogútgáfustjöri: SVEINN R. EYJÓLFSSON.
Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: HÖROUR EINARSSON.
Ritstjórar: JÓNAS KRISTJÁNSSON og ELLERT B. SCHRAM.
Aðstoðarritstjórar: HAUKUR HELGASON og ELÍAS SNÆLAND JÓNSSON.
Fréttastjórar: JÓNAS HARALDSSON og ÓSKAR MAGNÚSSON.
Auglýsingastjórar: PÁLL STEFÁNSSON og INGÓLFUR P. STEINSSON.
Ritstjórn: SÍÐUMÚLA 12—14. SÍMI 686611. Auglýsingar: SÍÐUMÚLA 33. SÍMI
27022. '
Afgreiðsla, áskriftir, smáauglýsingar, skrifstofa: ÞVERHOLTI11. SÍMI 27022.
Sími ritstjórnar: 686611.
Setning, umbrot, mynda-og plötugerð: HILMIR HF„ SÍÐUMÚLA 12.
Prentun: Árvakur hf„ Skeifunni 19.
Áskriftarverðá mánuði 275 kr. Verð í lausasölu 25 kr. Helaarblað 28 kr..
Oflágt orkuverð
Nýjasti álsamningur íslenzkra stjórnvalda við
Alusuisse um orkuverð og önnur mál Isals er ekki
hrifningarefni. Það bezta, sem um hann er hægt að segja,
er, að hann er samningur. Sem slíkur bindur hann enda á
margra ára deilu og veitir vinnufrið næstu fimm árin.
Hitt jákvæða atriðið í samningnum er,að sættir tókust
um þau atriði, sem sett höfðu verið í gerðardóm. Isal
mun greiöa ríkissjóði um 100 milljónir króna og viður-
kenna þannig óbeint gamlar syndir. Þetta er um
þriðjungur af því, sem íslenzk stjórnvöld höfðu krafizt.
Margir hafa gagnrýnt þetta og sagt eðlilegast, að látið
yrði í gerðardómi reyna til fulls á hinar íslenzku bak-
kröfur. Hitt er þó líklegra, að í samstarfi sé betra að ná
samkomulagi heldur en að láta sverfa til stáls. Þaö er lög-
mál, sem gildir á ótal sviðum.
Svarta og stóra atriðið í þessum nýja samningi er
orkuverðið. Niðurstaðan hlýtur að valda verulegum von-
brigðum. Eftir mikið bjartsýnistal hinna íslenzku
samningamanna allt þetta ár, bjuggust margir við hærri
niðurstöðu en 13—14 eininga orkuverði.
Steingrímur Hermannsson forsætisráðherra hefur
sagt, að „við höfum ekki efni á að selja raforku mikið
undir 17—18 mills”. Og raunar er þegar vitað, að orku-
verð frá Blöndu og öðrum nýjum orkuverum verður ekki
undir 20 verðeiningum. Þetta stingur í stúf við samning-
inn.
Að vísu er því haldiö fram, að Búrfell sé gamalt
orkuver á gömlu kostnaðarverði. En óneitanlega fer að
verða eftirsjá í að hafa látið orkuna frá ódýrasta orkuveri
landsins í hendur fyrirtæki, sem statt og stöðugt neitar að
borga nálægt gangverði fyrir hana.
I sumar var ánægja íslenzku fulltrúanna svo mikil, eins
og hún kom fram í fjölmiðlum, að almennt var búizt við
niðurstöðu, sem væri einhvers staðar á milli síðustu kröfu
um 17 verðeiningar og síðasta boðs um 15 einingar.
Þessar tölur hafa greinilega verið ímyndun ein.
Fjölmiðlar eru auðvitað ábyrgir fyrir flutningi talna á
borð við þessar. Hins vegar gáfu raunar viðræður við
samningamenn tilefiii til að ætla, að ágreiningurinn lægi á
þessu 15—17 verðeininga bili. tJtkoman er hins vegar í
raim ekki nema 13—14 verðeiningar.
Eftir að íslenzkir fulltrúar ríkisvaldsins hafa nokkrum
sinnum farið halloka fyrir fulltrúum Alusuisse er ekki
nema eðlilegt, að úti í bæ fari að gæta nokkurrar svart-
sýni um framtíðina. Spurt verður, hvort búast megi við
einhver ju viti í verðandi álsamningum.
Sérstaklega er ástæða til að draga í efa, að Alusuisse sé
einmitt rétti aðilinn til að semja við um frekari álfram-
leiðslu hér á landi. Er bætandi á þá þjóðarsundrungu,
sem þegar hefur hlotist af óbilgirni Svisslendinga í við-
skiptum við enn óreynda Islendinga ?
Alvarlegast er, að áldeilan hefur verulega dregið úr
áhuga með þjóðinni á stóriðju yfirleitt. Hún er ekki lengur
umtalsverður þáttur í framtíðarsýn þjóðarinnar. Það er
miður, því að stóriðja er gagnleg, þótt hún sé ekki allra
meina bót, frekar en önnur starfsemi.
Af því að sjálft orkuverðið skiptir mestu máli í samn-
ingum við álver, hlýtur hinn nýi samningur að valda von-
brigðum. Búið er að gera hann og við hann verður staðið.
En fráleitt er, að hann stuðli að frekari áliðju eða annarri
stóriðju hér á landi. I því máli verður þjóðin áfram
sundruö. JónasKristjánsson.
Peningalaunahækkun
og láglaunamenn
Þaö var fagurt á f jöllum á laugar-
daginn, þótt loftvogin væri byrjuð að
falla á Samlagssvæðinu og dimmir
skýjabakkar væru í suðri. Orkoma
varinánd.
Víöa voru yfirgefnir bílar á Hellis-
heiði i vegkantinum, ellegar þeim
hafði verið ekið yfir veglausa jörð
nokkurn spöl, en einhver sagði aö
þarna væru rjúpnaskyttur á ferð.
Engar fregnir höfðum við þó af veiði, *
nema hvaö þetta hljóta að vera kjör-
in veiðilönd fyrir sjóndapra veiði-
menn, eða þá sem öröugt eiga með
að greina rjúpur frá kúm bænda, eða
sauöfé, en það kemur aö sögn blaða
alloft fyrir. Og svona mun það verða
fram til jóla, aö menn ganga til
rjúpna, því til eru þeir sem telja það
metnaöarmál aö jólamaturinn sé úr
eigin foröa, en ekki keyptur í búð.
Bryðja menn þá sín eigin högl á jól-
um og minnast þá einveru i öræfum
eða á heiðum uppi. Og skothvellirnir
glumdu í bergstálinu og í fjöllunum
meöan við ókum Heiðina.
Af Kambabrún var víðsýnt þennan
morgun, sól inn til fjalla, en tU aðsjá
úr fjarlægð virðist hálendið nú vera
ein drifhvít fegurð, eða landið er
snævi þakið. A vorum dögum telst
það þvi lita peningalega út, eftir aö
úrkoma á hálendi breyttist i mill og
dollara í staðinn fyrir hrakinga á
heiöarvegum og hroðalegar leysing-
arávorin.
Þjóðfélagið er nú smám saman að
jafna sig eftir verkfall BSRB, en þar
fengu tilvonandi borgarskæruliðar
að reyna sig ofurlitiö, því þaö er ekki
nóg að hafa skegg eins og Gevara,
seðlabánkastjóri á Kúbu. Menn
verða líka að kunna til verka.
Tekst að verja
kaupmáttinn?
Maðurinn sem er atvinnulaus, af
þvi að ekki er unnið í frystihúsinu og
vinnan i sláturhúsinu er líka búin,
hafði áhyggjur af kaupmættinum,
því allir greindari menn sjá, að þetta
voru ekki samningar fyrir fátækt
fólk. Einkum og sér í lagi þar sem
peningalaunahækkunin skellur á
strax. Og þótt það hljómi eins og
þversögn, að kauphækkun þrengi
kost manna, þá fer það nú samt
þanneigin, þvi í fyrsta lagi þá voru
láglaunamenn stærsti hlutinn af
þeim, sem ekki voru á launum í verk-
fallinu. Bréfberar og kennarar, svo
dæmi séu nefnd, og töpuöu þvi um
það bil 10% af árslaunum sínum í
vinnudeiluna. En allir hljóta að sjá,
að þegar búið verður að semja við
sjómenn, verslunarmenn og aðra
fjölmenna hópa, sem ósamiö er við
nú, þá hlýtur fiskverð að hækka,
launakostnaður útgeröar og fisk-
vinnslu var þó greiddur við þær að-
stæður, að tap var á allri útgerð og
allri frystingu. Þjóðhagsstofnun
telur þetta tap, meö óbreyttum vöxt-
um hafa verið um 6%, og gerir sú
stofnun þó yfirleitt lítiö til aö hræða
rikisstjórnina. Auðvitað þýðir þetta
gengisfellingu í einhverri mynd. Það
sama skeður í þjónustugreinum,
byggingarvinnu og öðru. Vísitala
byggingarkostnaðar mun hækka
eftir að hafa lítið hreyfst frá mánuði
Eftir helgina
JÓNAS
GUÐMUNDSSON
RITHÖFUNDUR
til mánaðar þar til nú. Og svo mun
„kaup bóndans” hækka og launa-
kostnaður í mjólkurstöðvum og
gr&utarhúsum samlagssvæðanna,
þótt sláturkostnaöur á hvern dilk sé
nú kominn niður i kjötprísa í útlönd-
um, enda varð hækkun milli ára nú
víst ekki meiri en 18%.
Skattaleiðin var betri
kostur
Allt mun þetta þvi hafa áhrif á
verðlag og það á næstu dögum og
vikum. Og þar sem láglaunamenn
borga það sama fyrir nauðþurftir
sinar, soðningu, mjólk og brauð, og
þeir sem hærri launin hafa verður
ekki annað séð en að staða láglauna-
fólks hafi aöeins versnaö i þessum
samningum, þegar auðsætt er aö
svonefnd peningalaunahækkun fer
beint inn í verðlagiö. Enginn getur
komið i veg fyrir þaö. Ekki einu sinni
rikisstjórnin. Og því hallast nú æ
fleiri að þvi að skattaleiöin svo-
nefnda hefði komið launavinnu-
mönnum og ómegöarfólki betur.
Þá heföu skattar og útsvar lækkað
á lægstu laun, en þessi leið var talin
kosta um 1400 milljónir króna.
Þetta átti aö f jármagna meö þvi að
fresta framkvæmdum og draga úr
hraöa á öörum. Þar átti aö fá um 800
milljónir króna, en það sem á vant-
aði hugsuöu menn sér að ná meö því
að skattleggja munað og miklar
eignir.
Sú viðbára, að með því að hafa
hendur i hári milliliöanna og að með
hertri skattheimtu, sé unnt að verja
þessa samninga, er blekking. Þessir
samningar eru nefnilega einkamál
viðsemjendanna og koma því hvorki
við hag ríkisins né milliliðanna; og
þeir uppræta ekki fátækt á Islandi.
Það er að visu hart aö þurfa aö
segja þaö, að þarna vissu verka-
menn og ríkisstjórnin meíra en ríkis-
starfsmenn, eða BSRB. Og þetta
munu menn, þvi miöur, þurfa að
reyna á næstu vikum, þótt einfeldn-
ingar þykist greina bata ó síðari
hluta næsta árs (1985).
Hitt stendur óhaggað, að við svo
búið mátti ekki standa. Farið var að
sverfa svo að láglaunafólki á Is-
landi, þannig að það varð að finna
leið til aö halda einfalda gerð af
heimili í landinu, þótt flest bendi
hinsvegar til þess að það hafi mistek-
ist eina ferðina enn.
220 volta kærleiksverk
A.m.k. er það svo, meðan við
getum talið upp nær endalaust,
hvaða hækkanir muni dynja yfir.
Raforka mun t.d. hækka.þarsemer-
lendar skuldir Landsvirkjunar eru
nú miklar og afborganir þyngjast við
gengisfellingu og kalla á hærri gjald-
skró, þrátt fyrir glæsilegan árangur
ólviöræöunefndar og iönaðarróð-
herra, sem fengið hefur fram um-
talsverðar hækkanir á raforku til
Álversins í Straumsvík. Hitt hlýtur
hinsvegar að vera spuming, hvort
Reykjavíkurborg, sem á helming
þessara orkuvera, á ekki rétt ó út-
hlutuðum arði af þessum samningi
sérstaklega því við hér á Samiags-
svæðinu erum sannast sagna orðnir
dálítið þreyttir á að eiga rafljósa-
félög eins og Landsvirkjun með rík-
inu, sem yfirleitt gefur sitt rafmagn,
ellegar veður öðrum kosti út í
skuldafen með byggöalínur, meðan
Rafmagnsveita Reykjavíkur, verður
sjálf að greiða sitt dreifikerfi á
kostnað borgarbúa og á sama tíma
og þeir borga byggðalínumar að
sínum hluta líka? Þó eru stofnlínur
Rafmagnsveitu Reykjavíkur ólíka
langar og hinar merku stofnlinur
Landsvirkjunar og RARIK.
Þá mun nýjasti búhnykkur Raf-
ljósafélagsins ótalinn, en vera ó leið-
inni í pósti. Sumsé reikningurinn
fyrir Kröflu, sem mun vera upp ó tvo
milljaröa, þannig aö það em nú fleiri
en rjúpnaskyttur, sem þekkja ekki
stórgripifrá fugli.
Það er i sjálfu sér ekkert við þaö aö
athuga þótt rikisstjómin vilji gefa
rafmagn, en um það em mörg dæmi.
Þá er Landsvirkjun rekin eins og
hvert annaö hagstjómartæki. En þaö
væri þó viðkunnanlegra ef ríkissjóð-
ur greiddi slik 220 volta kærleiksverk
sjólfur og sæi þó einstök sveitar-
félög, eins og Reykjavík, i friði. Og
þar sem Reykvíkingar eiga nú
Landsvirkjun nær hálfa, auk hins
sem þeir eiga sem hluti af þjóðinni, er
það talsvert þreytandi til lengdar,
þegar sveitaþingmenn og ráðherrar
tala um Landsvirkjun eins og hvert
annað rikisfyrirtæki. Eins og sakir
standa veit maöur þó ekki um neina
rafstöö alfarið í rikiseign, nema
Kröfluvirkjun. önnur orkuver eru
sameign, eða séreign sveitarfélaga.
Rétt eins og Gjaldheimtan í Reykja-
vík og Skýrsluvélar rikisins og
Reykjavíkurborgar eru sameign
ríkis og borgar.
Það er þvi vægast sagt mjög óviö-
felldið ef ríkisvaldiö ætlar aö leggja
þessa tiu megavatta þjáningu sina,
eða Kröfluvirkjun fram sem nýtt
hlutafé í Landsvirkjun. Nóg var það
þegar ríkiö borgaöi hlut sinn með
stofnlínum, eða með eigin dreifi-
kerfi. En hvaö um þaö:
Álverið greiðir nú 14 mill fyrir raf-
orku. Hjörleifur Guttormsson er í
New York.
Jónas Guömundsson
rithöfundur.