Dagblaðið Vísir - DV - 01.12.1984, Side 14

Dagblaðið Vísir - DV - 01.12.1984, Side 14
58 DV. LAUGARDAGUR1. DESEMBER1984. MARC CHAGALL Framhaldaf bls. 57 vinur, hvernig stendur á því aö þeir eru svo margir nú á dögum sem skilja ekki framar skáldskap sköpunarinn- ar? Hvers vegna eru þeir svo margir sem loka sig inni í fangelsi gremjunn- ar? Hvers vegna eru þeir haldnir þeirri trú aö samferöamenn þeirra búi miklu meira yfir öfund og hatri en ástúðogvelvilja. Og íhugull á svip ber hann sjálfur fram svarið: „Þaö skortir ímyndunarafl, skortir þrá, góöleika og gæsku. Þeir eru ekki menn til aö velja. ChagaU er maður til að velja og ekki aðeins í myndum sínum. Hann elskar heiðríkjuna í tónlist Haydns og Mozarts, glitrandi ljósiö úti á lands- byggðinni og hiö upprunalega í trjám og runnum sem skýla húsi list- málarans í Sankt Paul en til þessa staðar flutti hann fyrir nokkrum árum. 1 St. Paul lifir ChagaU einkar óbrotnu iífi og allt öðruvísi en vænta mætti af einum mesta málara heims- ins og hátekjumanni. Og þar er hann öllum stundum, nú 97 ára gamaU, í víö- um, grófum sokkum og fremur tötralegri prjónatreyju við myndtrön- ur og málar myndir sinar og leiðir fram tigna fegurð sköpunarinnar fyrir þá er vilja sjá og geta séö. Hann viU leiða efnishyggjumennina frá vUlu síns vegar og gefa þeim hlutdeild í ímyndunarafli sínu. Þakka þér En geta má þess aö Chagall er enginn dramamaður eða skýjaglópur. Af hryggð virðir hann fyrir sér hvernig hatrið í heiminum sáir sér. „Við megum ekki ganga á hólm við hatrið með hatri,” segir hann og leggur áherslu á orðin. „Hvorki viö né stjórnmálamennirnir. Hver maður, hvar svo sem hann er í sveit settur, getur með vinnu sinni og framkomu lagt fram byggingarsteina í framtíðar- höH skUnings og sátta manna á meðal. Það væri miklu auðveldara, heldur hann fram, að menn lærðu aftur að vera þakklátir. A hverju kvöldi eftir aö hann gengur til hvUu kveður hann konu sína meö þessum orðum: „Þakka þér fyrir, Kava.” Ég hef sjaldan kynnst manni sem er eins þakklátur fyrir hvaða Utilræði sem er og þessi mikh Ustamaöur. Eg á honum margt aö þakka, dásam- legt málverk, aö ógleymdri tryggð hans og vináttu. Valentine er seinni kona Chagalls. Þau gengu ihjónaband árið 1952. Marc Chagall er sprottinn upp úti á landsbyggðinni. Litirnir, Ijósið og kyrrð heimahéraðs hans birtast i málverkunum. Morgunn heimsins varð til 1948. í miðpunkti Hani. Chagall telur skepnuna miðpunt heimsins. Brýning og von er boðskapur málverksins, „fíauði haninn og brúðhjónin. "Marc Chagall vann að þessu verkiá árunun 1939-1947.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.