Dagblaðið Vísir - DV - 01.12.1984, Blaðsíða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 01.12.1984, Blaðsíða 16
60 DV. LAUGARDAGUR1. DESEMBER1984. ÁSTLÁUS SKÁLDSAGA OG ER INS SALTKJÖT ÁNIBAUNA Fyrir framan Þjóöviljahúsið stendur grænt DBS reiöhjól. ..Skyldi þetta vera hjól Áma Bergmanns?” líður í gegn um kollinn á leiöinni upp hringstigann. Árni situr inni á skrifstofu sinni sem er ekki af stærri geröinni. Á skrifborö- inu er einhverra hluta vegna ræðupúlt. (Þaö kemur síöar í ljós aö Arni er slæmur í baki og stendur því stundum viö púltið og les blöðin.) Fyrir framan skrifboröiö er ljósleit- ur dívan sem Arni flytur sig í og býöur til sætis bak viö eigið skrifborö. — Nú ert þú afkastamikill blaöamað- ur, ritstjóri, krítíker og kennari fyrir utan skáldskapinn. Hvernig gengur aö samræma þetta allt? „Blaöamennskan hefur náttúrlega h jálpaö aö því leyti aö hún heldur mér í stöðugri æfingu. En hún er hættuleg lika. Hún venur mann á allt of mikinn hraöa og óðagot. Hvað snertir það að vera gagnrýn- andi sagöi einn vinur minn, sem er rit- höfundur, þegar ég gaf út Geirfuglana aö ég væri annaöhvort snarruglaöur eöa óvenjuhugaður aö vera búinn aö skrifa um annarra manna verk í 20 ár og taka svo upp á þessum f janda. Þaö er svo ríkur vani hér að hugsa sér gagnrýnendur og rithöfunda sem tvo f jandsamlega hópa aö menn muna ekki eftir því aö rithöfundar hafa veriö mjög drjúgir viö gagnrýni. Gagnrýn- endur Moggans eru til dæmis skrif- andi. Ég hef sjálfur haft gaman af aö vera báöum megin viö borðiö. Eg skil betur hvernig rithöfundi getur sárnaö viö ritdómara. Það er eiginlega alveg óhjákvæmilegt aö honum sárni. Vegna þess blátt áfram að rithöf undurinn veit miklu meira um bókina — oftast. Þaö hefur aö vísu komiö fyrir aö rit- höfundar hafa ekkert skiliö í eigin verkum,” segir Arni eftir umhugsun. ,En hvaö snertir tímann til skrifta þá hef ég notaö þriggja mánaöa leyfi og einnig tekið leyfi á eigin kostnaö. Strokiö í burtu þangaö sem ég heyröi ekki í síma og sá engin blöö. Þaö þýðir aö yfirleitt hef ég ekki getað unnið í samfellu. En þaö er allt í lagi. Eg hef fariö eina umferö og látiö hlutina í salt. Safnaö losaralegum hugmyndum á blööámilli.” Hefur gaman afþví — Til hvers skrifarðu? ,,Ég held að maður hljóti aö skrifa vegna þess aö maður hefur gaman af því. A.m.k. er ég ekki haldinn neinni sjálfspyntingarhneigð. Sumir segja að menn skrifi af ofmetnaði, drambsemi. Aö menn skrifi til að líkja eftir guöi al- máttugum. Til þess aö búa til einhvem heim sem þeir bera ábyrgð á. Mér hefur alltaf fundist skemmtileg- ast í sambandi við skáldsögu aö upp- lifa þaö hvernig þaö sem maöur hefur í raun og veru séð og heyrt í lífi sínu og það sem aldrei geröist hristast saman og eitthvaö nýtt verður til úr því. Sumir likja því við að það sé gaman aö búa til böm. — Hvað sem verður um afdrif þeirra úti í heiminum,” bætir Ámivið. — Sækiröu mikið í eigin reynslu- heim? ,,Sagan gerist í Reykjavík, Irlandi og Frakklandi. Hún fjallar um miö- aldra kennara sem er hálfdasaöur og leiður á uppeldisfræði, pólitík og konu sinni. Hann talar mest út í hött og í hálfkæringi — niöursallandi. Hann f eröast um Baskaland og kynn- ist írskri stúlku og takast meö þeim góöar ástir. Þau kynnast mönnum úr aöskilnaðarhreyfingu Baska. Alrlandi kynnist hann bróður hennar sem er í IRA. Hann er kominn inn í miöjan vanda smárra þjóða, sem hafa verið óheppn- ar meö nágranna og hafa ástæöu til að óttast aö tunga þeirra, og annað þaö sem þær einar eiga, sé aö hverfa. Pólitisk hermdarverk Kennarinn dregst rúmlega til hálfs inn í samstarf við IRA. Hann rekur er- indi IRA á Islandi. Dregst inn í hluti sem eru miklu háskalegri heldur en hann b jóst við. Nú er það til dæmis meö þennan söguvettvang, Irland og Baskaland, aö ég var fyrir nokkmm árum aö hjóla um lrland og nota minnisblöð þaöan. Ur þeirri ferö hefi ég náttúruna, bæjar- brag, krár þar sem IRA-menn er aö finna og fleira. En eftir aö Islendingur- inn er kominn í nánari tengsl við IRA veröur ímyndunarafliö að taka viö. I samtölum hans við IRA er sumpart ýmislegt notað sem málsvarar IRA hafa notaö fyrr og síðar. Mótrökin gegn þeirra málflutningi er eitthvað sem ég bý til til þess aö skapa andstæö- ur. Hvað snertir bæinn í Baskahéraði Frakklands — hvers vegna el'kend- umir hittast í frönskum Baskabæ — þá var ég þar í fýrra með fjölskyldu minni. Mér fannst gaman og tilvaliö aö þau væru að ganga þar um götur. Meö því móti var einnig hægt aö koma þriðju smáþjóöinni aö og sýna bæði hliðstæöur og andstæður í hlut- skipti þjóöa, sem hafa til lengri eöa skemmri tíma verið nýlenduþjóðir. Þessi kappræöa sem fer fram um pólitísk hermdarverk er tengd því aö ég hef skrifað mikiö um alþjóöamál og þá þessa hluti. Þó að sagan sé engin rétt- læting á terrorisma þá langar mig til aö íslenskir lesendur skilji betur en áöur hvers vegna IRA og ETA nota þessar baráttuaðferöir sem þær beita. I leiðinni vil ég minna á að þaö hefði ekki þurft að muna miklu í íslenskri sögu til þess aö hér heföi skapast ein- hvers konar irskst ástand. Þaö gæti h'ka aö því komið í þessum heimi þar sem tilvera smáþjóöa er aldrei sjálf- sagður hlutur og „global village” dreifir úr sér og þurrkar út allan grein- armun. I slíkum heimi gætu Islending- ar fyrr eða síðar lent í svipaðri aðstööu og til dæmis Baskar.” Ljóðskáld þarf að vera eins og nýfætt lamb — Nú byrjar þú fremur seint að skrifa skáldsögur. Helduröu að það hafi slæm áhrif ? ,,Eg hugsa aö það sé gott aö byrja aö yrkja ljóð mjög ungur. En aö mörgu leyti er ekki gott aö byrja að skrifa Þessi kafli er framarlega í bókinni Með kveðju frá Dublin og lýsir þeim aöstæðum sem valda því aö aðalpersónan, friðsæll enskukennari að nafni Björn, þráir annað og merkilegra líf. Fjölskyldulíf Aðkoman heima var ömurleg eins og hann hafði búist viö. Hundrað sígarettustubbar, öskulag yfir öllu, tóm glös eöa brotin í hverju herbergi, úldnar matarleifar á hverj- um diski. Það var parti niðri í kjallara hjá Stínu, Palli mættur og einhverjir fleiri, græj- umar á fullu. I can’t get no satisfaction. Eg fæ ald-rei fullnægj-una. I can’t get NO! Get- urðu ekki skrúfaö niður í þesstun andskota Stína? bað hann þegar hún kom til að sækja kók í ísskápinn. Má maður aldrei vera í friöi, sagöi hún og ætlaði niöur aftur. Eg ætlaöi að fara aö sofa sagöi hann. Það er nú föstudag- ur, sagði hún. Hvar er mamma þín? spurði hann. Hún er með einhverjum kerlingum. Ætli þær fari ekki í Hnútinn. I Hnútinn. A endastööina. önnur vikan semsagt, Stórstyrjöld í vændum eöa grátur og gnístran tanna. Þaö er kominn norðan- garri, kannski veröur hún útí í Laugardaln- um. Hann tók teppi, fór inn í kompuna sína og lagöist á dívaninn. Hörkurokk hristi húsiö með miklu sándi. Yfir skrifboöinu var gömul eftirprentun af Van Gogh sem hafði skorið af sér eyrað og gefið hóru — mikið frelsi væri að vera orðinn geðveikur eins og hann. Hann setti Wagner á plötuspilarann. Siegfried síglir á Rín með lúðraþyt, bregður skínandi sveröi á loft og vill höggva á poppdynkina, á hjartslátt næstu kynslóðar. Þegar þau sem munu landiö erfa vora komin á ball hlustaöi hann á Chopin og skipaöi sjálfum sér fyrir: ekki hugsa um annað. Ekki muna hvaö Chopin er aö þvaöra í bréfum til ástkvenna sinna, ekki bera saman, ekki öfunda þann sem vann mikil verk, hugsaöu ekki um að þessir ljúfu tónar eru undur og stórmerki sköpunarinnar. Þegiðu. Vertu aleinn. Leitaðu hvergi stuönings. Kastaðu þér hik- laust út á sextugt djúp aðdáunarinnar. Um morguninn sá hann merki um að Kaja væri komin heim og gekk hljóölega um til aö vekja hana ekki. En þá heyrði hann umgang í svefnherberginu og ískur í skáphurö, hún var að draga afréttarann fram úr náttborð- inu. Ertu þama Bjössí? A ekki aö heilsa manni? Hún lá upp í rúmi reykjandi og vildi tala viðeiginmanninn. Hva, eru menn hættir aö sofa í sínu rúmi? Flakka bara út og suöur. Það er ólíft héma fyrir skitapest, sagöi hann og reiddist sjálfum sér. Byrjar það enn, byrjar þaö rétt eina ferðina enn. Jesúsminn annaöeins. Af hverju tekur snyrtimennið þá ekki til? Eigum viö kon- urnar að hugsa fyrir öllu? Skyrtumar hér og buxurnar þar og inniskómir og steik í ofnin- um handa Bjössa mínum sem er svo fínn og gáfaður aö stelpurnar í máladeild pissa á sig. Einn morgunn af átján. Hvað hafði hún séð viö þessa rauðhærðu kennarablók sem var ekki neitt neitt en þóttist langt yfir hana hafin og alla? Hvaö hafði hann séö viö þessa fullu belju meö freðýsuaugun sem gat ekki einu sinni hunskast til að viöurkenna að hún væri alki? Þau voru saman strax í menntaskóla og' lífið var svo skemmtllegt og ástin svo stór- kostleg aö þau gleymdu oftast að tala saman. Þau þurftu þess ekki. Þau vora fal- legasta parið í árganginum, fólk sneri sér við á götu til að horfa á eftir þeim. Þau voru uppi fyrir daga pillunnar en stukku fyrr en flestir aðrir yfir óléttumúrinn: þú mátt gera

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.