Dagblaðið Vísir - DV - 01.12.1984, Page 20

Dagblaðið Vísir - DV - 01.12.1984, Page 20
64 Framhald af bls. 63 Paul: Já. Þaö var ágætt spjall, sem er mér mikil huggun vegna þess aö mér finnst leiðin- legt aö viö skyldum aldrei setjast niöur og gera út um okkar mál í eitt skipti fyrir öll. Sem betur fer fyrir mig fór mjög vel á meö okkur í síðasta sinn sem viö töluðum saman í síma og okkur sinnaöist ekki neitt. Þaö heföi alveg eins getaö fariö á hinn veginn. Oft görguöum viö hvor á annan og skelltum svo á. „Það skrýtna gerðist aö viö allir — Bítlarnir þrir, vinir Johns — brugö- umst viö dauöa hans á sama hátt. Viö fórum bara allir í vinnuna þennan dag. Þaö gat enginn okkar hangið heima viö meöþessarfréttir.” Playboy: Manstu um hvaö þiö töluðuð? Paul: Þetta var bara mjög ánægjulegt spjall um fjölskyldu hans, fjölskyldu mína. Hann naut lífsins; Sean átti stóran þátt í því. Og hann var aö fara af staö aftur í músíkinni. Eg man að hann sagði: „Guð minn góöur, ég er eins og Mímí frænka, þvælist hér um í morgun- sloppnum og gef kisunum og elda matinn og laga te. Þessi húsmóðir vill komast út á vinnu- markaðinn!” Hann var rétt í þann mund aö gefa út Double Fantasy. Playboy: I flestum viötölum sagðist John ekki sakna Bítlanna. Trúöir þú honum? Paul: Hvaö skal segja. Ég held aö hann hafi ekki saknaö Bítlanna. Maður eins og hann end- ar Bítlatímabilið sitt og byrjar Yoko-tímabiliö sitt og vill ekki aö þessi tvö svið hafi áhrif hvort á annað. Eftir aö hann byrjaði meö Yoko voru Bítlarnir bara til trafala. Eg held að hann hafi haft nógan áhuga á þessu nýja lífi sínu til þess aö hann saknaði Bítlanna í raun og veru ekki neitt. Linda: Ef John væri á lífi væri hann sjálf- sagt enn aö staglast á því aö hann væri miklu hamingjusamari núna. Playboy: Og trúiröu því ekki? „Kvöldin eftir að viö fréttum af moröinu fórum viö heim, við horfðum á alla fréttatíma í sjónvarpinu, við sátum bara þama með alla krakkana og grétum allt kvöldiö. Gátum ekki annað.” Linda: Þaö sorglega er aö bæöi John og Paul áttu viö sín vandamál aö glíma og þeir elskuöu hvor annan og þeir heföu svo sannarlega getaö hjálpast aö. Ef þeir heföu bara talaö saman! Mér finnst þetta ömurlegt vegna þess að ég var einhver stelpa frá New York þegar ég kom til sögunnar. Ef ég heföi bara vitað þaö sem ég veit núna. . . Þaö eina sem ég gat gert var að fylgjast með þeim í þessum leikjum sínum... Playboy: En var það ekki ljóst allan tímann aö John vildi bara vinna meö Yoko? Linda: Nei. Eg veit aö Paul dauölangaði til þess aö fara aö vinna meö John á nýjan leik. Eg veit líka að John dauðlangaði til þess aö fara aö semja upp á nýtt... dauðlangaði. Fólk sagöi alltaf, tja, hann er aö hugsa um Sean, hann er húsfaöir og allt þaö, en hann var ekki hamingjusamur. Hann gat ekkert samiö og þaö var aö gera hann vitlausan. Paul heföi get- aö hjálpaö honum, leikandi létt. Playboy: Hefur samband ykkar viö Yoko breyst eftir aö John dó? Linda: No comment! Ég er aö grínast. En þettasagði hún. „Sem betur fer fyrir mig fór mjög vel á meö okkur John í síðasta sinn sem viö töluöum saman í síma. Okkur sinnaöist ekki neitt en oft görguöum viö hvor á annan og skelltum svo á.”

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.