Dagblaðið Vísir - DV - 12.03.1985, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 12.03.1985, Blaðsíða 6
6 DV. ÞRIÐJUDAGUR12. MARS1985. Útlönd Útlönd Útlönd Útlönd Ufrarbólgaog hjartakvilli Frá Fréttastofu APN á íslandi: Læknar segja að Térnénko hafi þjáðst af iungnasjúkdómi sem fór versnandi vegna sjúkdóms í hjarta. Líðanin fór versnandi, segja opinberar yfirlýsingar, vegna króniskrar lifrarbólgu. Klukkan 19.20, sunnudaginn 10. mars, hætti hjartað að slá. Krufning leiddi í ljós að sjúkdómsgreiningin var rétt, segir yfirlýsingin. Útföríná miövikudag Frá Fréttastofu APN á tslandi: Utför Térnénkos verður á miðvikudag, klukkau eitt eftir hádegi á Rauða torginu. Dagarnir í gær, í dag og á morgun hafa verið yfirlýstir sorgardagar. Á útfarardaginn verður felld niður kennsla í skólum. Þegar jarðneskar leifar Térnénkos veröa lagðar til hinstu hvíldar verður skotið af fallbyssum í ölium höfuðborgum Sovétlýðveldanna. Þá verður vinna lögð niður í ölium fyrirtækjum í Sovétríkjunum í fimm mínútur, nema þar sem framleiðsia er stöðug, svo sem i verksmiðjum, á járnbrautum og öðrum sUkum f yrirtækjum. öll skip munu þeyta flautur i þrjár mínútur. G orbatsév formaður útfarame fndarinnar Frá APN fréttastofunni á tslandi: Mikhaíl Gorbatsév var skipaður formaður útfararnefndar til að skipuleggja útför Térnénkos. Eftir dauða Andropovs var það Térnénko scm var formaður útfararnefndar hans. Andropov var formaður út- fararnefndar Bréznevs. Aðrir í útfararncfndinni voru Gromyko utanríkisráðherra, Romanov, Grishin, Vorotnikov, Tikhonov forsætisráðherra, Aliev og fleiri. Tilsýnisídag ogámorgun Frá Fréttaþjónustu APN á tslandi: Lík Téménkos er nú á viöhafnar- börum í Súlnasalnum í Húsi verka- lýösfélaganna. Því var komið þar fyrirstraxígær. Salinn átti að opna almenningi klukkan 10 fyrir hádegi að staðar- tíma í dag. Hann verður opinn í um 12 tíma í dag og lengur á morgun til að veita Sovétmönnum tækifæri til að kveðja þjóöarleiðtogann fyrr- verandi í hinsta sinn. Bushverður viðútfórina George Bush varaforseti verður fyrir bandarísku sendinefndinni sem fer til Moskvu til að vera við útför Téménkos forseta á morgun. — George Shultz utanríkisráöherra og Arthur Hartman, bandariski sendiherrann í Moskvu, verða einnig við jarðarförina. — Bush varaforseti, sem var einnig við út- farir tveggja forvera Térnénkos (Andropovs og Brésnefs), vonast til að ná stuttum fundi við Gorbat- sév í þessari heimsókn. b'til viðbrögð Fregnir frá Moskvu bera það með sér að almenningur þar hafi bragðist við andlátsfregninni með forvitni og undrun en að öðru leyti ekki látiö sér mikið um finnast. — „Hvað snertir það mig?” heyrðist ein húsmóðir tauta þar sem hún olnbogaöi sig í biðröð við matvöru- búð. „Ég þarf samt að kaupa í matlnn.” Téménko frestun á.. Forsetatíð Térnénkos markar ekki stórt spor í sögu Sovétríkjanna, hvað sem hann hefði getað beitt sér ef hann hefði gengið heill til skógar. Duldist þó ekki umheiminum aö val hans sem arf- taka Andropovs forseta hafði einungis komið sem málamiölun til bráöa- birgða, á meðan valdaklíku öldung- anna í Kreml óaði tilhugsunin um áframhald þeirrar umbóta- og „hreinsunar”stefnu sem Andropov hafði markað. Höfðu þeir þó áður gengiö framhjá Térnénko til þess að velja Andropov eftir fráfall Brésnefs, sem virtist sjálfur hafa ætlað sér að koma Térnénko í sitt sæti. Af fátæku bændafólki Konstantín Ustinovits Témcnko fæddist fátækri bændafjölskyldu í þorpinu Bolshaja Tes í Novoselovsk- héraðinu þann 24. sept. 1911 og varö fljótt eins og börn þess tíma að ganga til fullra starfa hjá óðalsbændunum. Slíkur jarðvegur elur af sér hrifningu fyrir kenningunni um alræði öreig- anna, og sem táningur var Térnénko þegar farinn að vinna hjá - kommúnistaflokknum. Allt til 1930 vann hann við áróðurs- og upplýsinga- deild Komsomol í Novoselovsk, en bauö sig til herþjónustu í Rauöa hernum og þjónaði í þrjú ár í landa- mærasveitunum. Þegar Térnénko haföi lokið herþjón- ustu hóf hann aftur störf í þágu flokks- ins og gegndi ýmsum ábyrgöarstööum bar til Téménko, átti eftir að fleyta þeim síðarnefnda til æðstu metoröa í valdaklíkunni í Kreml. 1971 var hann kominn í miðstjórn og 1978 var hann orðinn fulltrúi í framkvæmdanefnd flokksins. — En þótt Brésnef ætlaði Téménko greinilega stóran hlut, þá fór samt ekki á milli mála að aðrir Kreml- verjar báru ekki jafnmikið traust til hans, og þótti meðal annars vanta á aö Térnénko heföi sannað forystuhæfi- leika sína með formennsku flokks- deildar eða borgarstjóm eöa forsætis- ráðherrasetu í einhverjuRáðstjómar- rikjanna, eins og nauðsyn þykir væntanlegum þjóðarleiðtoga þarna eystra. Enda gengu þeir framhjá honum og völdu Andropov þegar Brésnef var all- ur. Hitt var meira tilviljun að Andro- povs skyldi njóta svo stutt viö. Svo að Téménko var valinn til að miðla mál- um milli öldunganna og ungu ljónanna, sem vom orðin óþreyjufull að bíða síns tíma. Var þó vitað að Téménko gekk ekki heill til skógar, þótt menn hafi ekki grunaö að hann ætti svo skammt eftir. Engin spor á alþjóðavettvangi Þau mál sem hæst bar af heimsmál- unum, á meðan Téménko var leiðtogi, erfði hann Öll frá forverum sínum. Afganistan, Póllandsvandamálið og fleira vora komin til fyrir hans tíð og í Novoselovsk og Ujar-héraði. Sótti hann ýmsa æðri skóla flokksins til und- irbúnings frekari störfum og var árið 1948 orðinn yfirmaður áróðurs- og upp- lýsingadeildar miðstjómar flokks- deildar Moldavíu. Verndarvætturinn Einhvern tíma á næsta áratug tókust kynni með honum og Leónid Brésnef, sem síðar átti eftir að kalia Térnénko til trúnaðarstarfa í Moskvu. Vinfengið við Brésnef og það traust, sem hann eru óleyst enn, þegar hann hverfur frá. Jafnvel sniðganga ólympíuleikanna í Los Angeles var bein afleiðing þess að Bandaríkin höfðu sniðgengið ólympíu- leikana í Moskvu fjórum árum fyrr. Ákvörðunin, sem tekin var fy rr á þessu ári um að hefja aö nýju Genfarviðræð- urnar við Bandaríkjamenn um tak- mörkun kjamavopna, er löglega skil- getiö afkvæmi Gromykos utanríkisráð- herra, sem hvort eð er hefur ráðið mestu um utanríkisstefnu Sovétríkj- anna bæði fyrir tíð Térnénkos og eins á meðan hann vermdi f orsætið. Konstantin Térnénko, forseti Sovétrikjanna . . . sá siðasti i þrenningu, sem varð að stjórna úr sjúkrarúmi öðru risaveldanna. Mikhaíl Gorbatsév, sem nú hefur veriö valinn eftirmaður Téménkos sem leiðtogi sovéska kommúnista- f lokksins og um leið valdamesti maður Sovétríkjanna, er byrjun nýs tímabils í sögu Sovétríkjanna, sem síðasta ára- tuginn hefur markast mjög af öldr- uðum leiötogum þrotnum að heilsu. — Gorbatsév er aðeins 54 ára gamall og tuttugu árum yngri en fyrirrennari hans var þegar hann kom tii valda. Þar með er Gorbatsév yngsti maður- inn, sem sest hefur í leiötogasæti Sovétríkjanna, síðan Josef Stalín leiö. Aldurs síns vegna ætti hann að geta setið við völd að minnsta kosti 20 á r. Gorbatsév hefur haft skjótan frama innan valdakerfis Sovétríkjanna. Hann kom til Moskvu fyrir aðeins sjö árum og varð fljótt hægri hönd Júrí Andropovs, sem undir lokin virtist ætla honum leiðtogasætið eftir sinn dag. Þreyði valdatíð Térnénkos Þegar framhjá Gorbatsév var gengið til þess að velja Térnénko eftir fráfall Andropovs, heföi slíkur ósigur í valdabaráttu í Kreml einhvem tíma fyrr á árum veriö undanfari frétta um að hinn sigraði hefði flust til embættis rafveitustjóra austur í Síberíu. En þegar hann tveim mánuðum síðar var valinn til formennsku utanríkisnefnd- ar þingsins, mátti sjá teiknin á lofti. Þá stöðu höfðu skipað á undan honum Andropov sjálfur, á meðan hann treysti sig í sessi til að taka viö af Brésnef, og á undan honum enginn annar en aðalhugmyndafræðingur flokksins, Suslov gamli Það sæti gat enginn tekið, sem ætla mætti aö væri á leiðinni út í kuldann. — Þegar það einu sinni fimmtugur orðinn. Hann hafði getið sér orð sem góður skipu- leggjandi með góðum árangri í að auka afköst á landbúnaðarsviði heima í sínu héraði þar sem hann var orðinn formaður flokksdeildarinnar í Stavropol aðeins 35 ára gamall. — Hann er fæddur í mars 1931 í Káksus- þorpi einu skammt frá Stavropol, sem er miðstöð eins helsta komræktar- svæðis Sovétrík janna. Með landbúnaðinn á sinni könnu Fyrstu tvö árin, sem Gorbatsév vann að því að koma landbúnaöinum til þess að standa betur við fimm ára- áætlanirnar, voru uppskerabrestir en hann stóð af sér gagnrýni og tókst upp úr því að sýna fram á að tilraunir hans til úrbóta skiluðu árangri. Þær byggö- ust á því aö losa bændur og fram- kvæmdastjóra samyrkjubúanna ögn undan miðstýringunni og örva til betri afkasta með bónusgreiðslum í hlutfalli við framleiðslu, eða beinum hlut í hagnaðinum. I tíö Andropovs var Gorbatsév falin hagsýslan og æ fleiri ábyrgðar- og áhrifastörf og varð stöðugt meira áberandi meðal sovéskra valda- manna. Hann heimsótti Kanada 1983 og var við flokksþing portúgalska kommúnistaflokksins í desember sem gaf honum nokkum reynslustimpil á sviði utanríkismála sem hverju leið- togaefni er nauðsynlegt. — I báðum þessum utanferðum kom Gorbatsév vel fyrir í augum Vesturlandabúa. Þótti fagmannlegur og skarpur. I veikindum Andropovs var Gorbatsév sá sem bar valdaskipanir leiðtogans til æðstaráðsins, en entist ...tilkomu Gorbatsévs síðan var Gorbatsév sem á sama þingi bar upp tillöguna um að kjósa Téménko forseta Sovétríkjanna og flutti um hann langa lofræðu, duldist engum lengur að samkomulag hefði tekist milii keppinautanna að tjalda- baki. Téménko yrði til bráðabirgða en framtíðin væri Gorbatsévs. Skólaðir af kerfinu Gorbatsév er lögfræðingur útskrif- aður frá Moskvuháskóla en talinn vera sá Kremlverja sem best ber skyn á efnahagsmál. Margir ætla að hann muni taka upp merki Andropovs viö að hrista upp í hægfara hagkerfi Sovét- manna og reka iðnað og landbúnaö til Mikhail S. Gorbatsév, hinn nýi leiðtogi Sovótrikjanna, varð ekki sniðgenginn öðru sinni. meiri afkasta og hagkvæmni. Aðrir eru þó ekki trúaðir á að til æðstu valda komist í gegnum flokksbáknið aörir en harðsoðnir kerfiskurfar sem ólíklegir séu til þess að hrófla í miklu við kerfis- pýramídanum, enda gæíi þá orðið við rammanreip að draga þar sem öldungarnir í Kreml njóti enn mikilla valda. Gorbatsév hafði ekki verið nema tvö ár í Moskvu, þegar hann varð fastafull- trúi í æðstaráðinu 1980 í tíö Brésnefs sem fól honum framkvæmd umbóta- áætlana í landbúnaöi. Þá var hann ekki ekki tími til þess að treysta sig í sessi áður en Andropov féll f rá. Bið á breytingum Viðbúið þykir að hann verði fyrst um sinn að fara sér hægt við umbætur í efnahagsmálum. Jafnvel líklegt að nýi leiðtoginn geti ekki fyrstu þrjú eöa fjögur árin komið sínum fylgismönn- um til embætta á meðan öldungahóp- urinn má sín enn einhvers. En ýmsir ætla Gorbatsév aö hyggja á að opna Sovétríkin til meiri tæknivæðingar og sveigjanlegra hagkerfis, þegar fram í sækir, sem leitt gæti til betri lífskjara fyrir almenning í landinu. Þar í eygja menn meiri vonir til bættrar sambúðar austurs og vesturs ef slíkar spár ræt- ast. Nýtt andlit á alþjóðasviðinu Á sviði utanríkismála mun hand- bragðs Gromykos utanríkisráðherra gæta mest fyrst um sinn, en þó hefur mönnum af utanförum Gorbatsévs til þessa — og þá sérstaklega heimsókn hans og konu hans, Raisa, til Bretlands í desember í vetur — sýnst ásjóna Sovétríkjanna í líki leiðtogans munu breytast til þess sem á Vesturlöndum þykir meira aölaöandi. Gorbatsév þótti hress í bragði, glettinn og þægi- legur viðkynningar. Jafrivel svo að Washingtonstjórninni þótti nóg um aö- löðunarhæfni þessa nýja andlits Sovét- ríkjanna.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.