Dagblaðið Vísir - DV - 12.03.1985, Page 28

Dagblaðið Vísir - DV - 12.03.1985, Page 28
28 DV. ÞRIÐJUDAGUR12. MARS1985. Rod nokkur Stewart ku hafa margt aö sýna og kom þaö berlega fram á dögunum. Stewart var á feröalagi um Ástraliu og fékk lítinn frið fyrir ijósmyndurum og popp- skríbentum. í einni aöförinni geröi goðið sér litið fyrir, leysti niður um sig og sýndi óæðri endann. Menn voru snarir og munduðu myndavél- ar sínar en hurfu svo á braut. 1 næstu útgáfum þariendra blaða birtist á forsíðum myudin af Stew- art, með allt niður um sig. Boy George og trommari hijóm- svcitarinnar Culture Ciub, Jon Moss, uröu viti sínu f jær af hræðslu er þeir voru á ferð í leigubil á Jamaiea fyrir skemmstu. Ástæðan var sú að leigubíllinn lenti í miðjum hópi óguandi götudrengja sem voru með uppsteyt og hótuðu öllu illu. Allt fór i hnút og leigubillinn komst ekki í gegn fyrr en þeir félagar höfðu ákveðið að telja upp úr vcskj- um sínum álitlega upphæð. ★ Hln 22 ára Elisabeth Truby á marga vini. En besti vinur hennar er samt höfrungurínn Bebe. Elfsa- betb býr á Miami og þar hefur hún tamið höfrunginn. Meðal annars hefur hann tekið upp á þeim ljóta ósið að púa sígarettur og reynir. Elísabeth aUt hvað hún getur að venja hann af þvi. Hún hefur kennt honum aö taka ýmislegt úr munn- inum á sér, til dæmis iakkrísbita. ★ Nýlega fæddi Farrah Fawcett sambýlingi sínum, Ryan O’Neai, barn. Ryan er þá orðinn faðir í ann- að sinn, en hann á dóttur fyrir, Tat- um, sem þykir skörungur hinn mesti og mun hafa haft ýmislegt að athuga við samband þeirra Farrah og Ryans. Barnunginn er af karl- kyni og á að heita Redmond James. Að lokum má geta þess að móður og barni heUsast vel. Sviðsljósið Sviðsljósið Sviðsljósið Sigurlið MR. Frá vinstri, Jóhann F. Haraldsson, Hlynur Grimsson, Kristján Hrafnsson og Agnar Hansson.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.