Dagblaðið Vísir - DV - 12.03.1985, Page 29

Dagblaðið Vísir - DV - 12.03.1985, Page 29
 DV. ÞRIÐJUDAGUR12. MARS1985. 29 Sviðsljósið>• Sviðsljósið ,.AÐ ÉTA EÐA VERA ÉTIM” (Jrslitakeppnl framhaldsskóla íræðumennsku Þaö var mikil stemmning í Háskóla- bíói aö kvöldi miövikudagsins 6. mars þegar DV-menn bar aö garöi. „Hverjir eru bestir?” Helmingur salarins reis úr sætum og öskraöi: „Emmerr”. Hinum megin var kallaö: „Hverjir vinna keppnina?” Nú reis hinn helmingur salarins upp og svarið var: „Emmkáá”. Greinilegt varaöviö höföum ekki farið húsavillt. Þetta var staðurinn þar sem keppa átti til úrslita í ræöumennsku milli Menntaskólans í Reykjavík og Menntaskólans í Kópa- vogi. Alls voru um 1.500 manns saman komin til aö fylgjast með keppninni. Eins og af framansögöu má ráöa, var stemmningin ótrúleg, fánar og borðar á lofti, lúörablástur og bumbu- sláttur. Er ræöuliðin gengu í salinn ætlaöi allt aö tryllast. Hvor skólinn fagnaöi sínum mönnum. Liöin voru þannigskipuö: Svo sem algengt er um keppni af þessu tagi var margt skondið sem hraut af vörum ræðumanna. Til aö gefa einhverja hugmynd um þaö sem sagt er og fullyrt í keppni sem þessari fara hérá eftir nokkuratriöi: „Þúertnúmeirigosinn. .. ” ,, . . . alltaf sorglegt þegar skyn- samt fólk tapar taki á tungunni og fer aö mæla fram orö af óviti. ” „. . . þegar ég vakna upp á morgnana eins og vönkuö rolla og.. . ” „ . . . veröur mér á að segja í fyrsta tíma á morgnana helíum. Er þaö ekki fyrsta frumefniö semkomst á þing?” „ . . . staurblindiir skottulæknar ar bjóða út botnlangaskurði...” ,,. .. kæfa þessa tillögu í fæðingu >» Menn skemmtu sér stórkostlega þetta kvöld. Keppnin fór í alla staði vel fram, drengileg keppni og skemmtileg. Liö Menntaskólans í Reykjavík, Agnar Hansson, liösstjóri, Kristján Þóröur Hrafnsson, frummælandi, Hlynur N. Grímsson, meömælandi og annar meömælandi var Jóhann Friögeir Haraldsson. Liö menntaskólans í Kópavogi: Sveinn Gíslason, liðsstjóri, Pétur M. Olafsson, frummælandi, Sigríður Agnarsdóttir, meömælandi og Jón G. Stefánsson, annar meömælandi. Dómarar voru frá J.C. og voru: Haraldur Hermannsson, Siguröur Her- mannsson og ÖrlygurSigurbjörnsson. Fundarstjóri var Jónas Friörik Jónsson. Fram kom í upphafi aö alis 19 skólar, af þeim 20 sem útskrifa stúdenta, sendu liö til þessarar keppni og þetta væri aðeins endapunkturinn á löngum ferli. Fyrir fundi þessum lá eftirfarandi tillaga: „Öll einokun innan hins íslenska lýöveldis skal lögö niöur.” Meömælendur voru lið MR, liö MK andmælendur. Hófst svo keppnin og var framan af tvísýn. Mátti vart á milli sjá hvort liðanna stæöi sig betur. Eftir fyrri umferð var gert hlé og sýnd frumleg skemmtiatriði. Hófst keppnin svo aö nýju og fór þá aö skýrast hverjir yrðu sigurvegarar. Fór svo aö menn reynd- ust sannspáir um úrslit. Er dómarar kynntu úrslit, ætlaöi allt um koll aö keyra. Dómarar gáfu 2901 stig, sigur- liöiö hlaut 1488 stig, hitt 1413. Munurinn var því ekki verulegur. Þaö var liö Menntaskólans í Reykjavík sem varö sigurvegari. Það átti einnig besta ræðumanninn, Jóhann F. Har- aldsson. Jóhann fór á kostum og ljóst er aö þar fer afar skemmtilegur ræöumaður sem meira á eftir aö kveöa aö síöár. Það var Ingimar Sigurðsson, landsforseti JC, sem afhenti verölaunin, bikar mikinn, farandgrip, gefinn af JC Island og Samvinnu- feröum-Landsýn. Gleði sigurvegaranna var aö vonum mikil og í samtali viö þá kom fram að sigurinn hafði veriö sætur. Aðspurðir sögöu þeir félagarnir: Agnar, Kristján, Hlynur og Jóhann aö undir- búningur hefði hafist tíu dögum fyrir keppni, er þeir fengu að vita um efniö. Undirbúningurinn heföi aöallega fariö fram á heimilum þeirra þar sem þeir heföu hist og samiö ræöumar. Agnar sagöi aö ræðumar væm yfirleitt samd- ar fyrirfram en þó væm gloppur þar sem skjóta mætti inn mótrökum og svörum. Ræðulið MK. Frá vinstri, Jón Gunnar Stefánsson, Sveinn Gíslason, Sigriður Agnarsdóttir og Pétur Már Ólafsson. Jane Wyman, hin sjötuga leik- kona í Falcon Crest og fyrrverandi eiginkona Ronalds Reagan, hefur orðið sér úti um nýjan „vin”. Það er hinn 72 ára gamli stríðskappi, Frank McCarthy, sem hin síðari ár hefur snúið sér að kvikmyndafram- leiðslu með striðsmyndir sem sér- greln. Máski fter Wyman hlutverk sem stríðshetja i rnestu mynd Mc- Carthys. Varla varð sonur Nastössju Kin- ski átta mánaöa áður en hún fór að >ykkna undir belti á nýjan ieik. Það er barnsfaöir Kinski, Ibrahim Moussa, sem á alla sökina á þessu. Naumast eru það lætin. Þrátt fyrir öll möguleg mótmæli gcgn veiðimennsku bresku kon- ungsfjölskyldunnar lætur Karl, prins af Wales, sem ekkert sé og heldur áfram að skjóta. Kunnugt er að kona hans, Diana, er ekki yfir sig hrifin af að Karl skull eyða tíma sínum í velðimennsku en skotgleðin virðist ekkert minnka. Nýlega tók prinsinn próf í skotfimi og stóðst það með ágætura. Það virtist því fátt scm fengið gæti prinsinn til að hætta veiðimennskunni. Skoðanakannanir í Bretlandi hafa leitt í ljós að Andrew prins er vinsælastur allra í konungsfjöl- skyldunni. Samkvæmt fréttum í er- lendum blöðum um þessar mundir hefur hann nú fengið vinnu á frei- gátunni „HMS Braxen” sem mun sigla í 5 mánuði samfellt í Suöur- höfum. Hann slnnir auðvitað sínum skyidustörfum um borð en að auki stendur hann fyrir tónleikum, kvik- myndasýningum, dansleikjum og á þeim ætlar hann sjálfur aö þeyta skífur.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.