Dagblaðið Vísir - DV - 03.05.1985, Side 2
2
DV. FÖSTUDAGUR 3. MAl 1985.
Unn'td að upplýsingaöflun á vegum landlæknisembættisins:
Á kvaröanir um vamir
gegn AIDS í næstu viku
„Ákvarðanir um aðgerðir gegn
sjúkdómnum AIDS, áunninni ónæm-
isbæklun, liggja fyrir í næstu viku.
Þangað til verður unniö af fullum
krafti að söfnun upplýsinga o.fl. sem
liggja þurfa fyrir áður en ákvarðan-
imareruteknar.”
Þetta sagði Guðjón Magnússon
landlæknir er DV ræddi við hann.
Guöjón sagöi að undanfarið hefði
verið unnið á vegum heilbrigðisyfir-
valda að söfnun ítarlegra upplýs-
inga vegna fyrirhugaðra aðgerða
gegn AIDS hér á landi. Væri m.a.
verið að athuga hversu mikinn kostn-
að það hefði í för með sér að setja af
stað rannsóknir á blóði frá blóðgjöf-
um. Samhliða þeim þyrfti að hefja
fræðslustarfsemi fýrir almenning og
heilbrigðisstéttir.
Landlæknir sagði að þeir sem söfn-
uðu ofangreindum upplýsingum
hefðu fengiö frest fram að helgi til að
skila af sér. 1 næstu viku yröu svo
teknar endanlegar ákvarðanir um
vamirgegnsjúkdómnum. -JSS
Reykjavíkur■
borgá fram-
færslumetið
Fjárhagsaðstoð Reykjavíkurborgar
við borgarana, svokölluð framfærsla,
nam í fyrra 644 krónum á hvem íbúa.
Þetta er ótvírætt landsmet. Akur-
eyrarbær sá til dæmis af „aðeins” 211
krónum á íbúa, tæplega þriðjungi
framfærslunnar í Reykjavík.
Þetta kemur fram í úttekt sem lögð
var fram í félagsmálaráði í Kópavogi.
Framfærsla í Kópavogi nam 281
krónum á íbúa, í Hafnarfirði 200
krónum. Af þessum fjórum stærstu
sveitarfélögum í landinu er Kópavogur
því í öðru sæti í framfærsluútgjöldum.
HERB
Bæturalmanna-
trygginga hækka
um7“12%
Bætur almannatrygginga hækkuöu
um 7% frá 1. maí sl. Þá hækkuöu bóta-
upphæðir tekjutryggingar og heimilis-
uppbótar um 12% frá sama tíma.
Einstakir bótaflokkar verða því
eftirfarandi: EUi- og örorkulífeyrir kr.
4.653, hjónalífeyrir kr. 8.376, full tekju-
trygging einstaklinga kr. 6.819, full
tekjutrygging hjóna kr. 11.528,
heimiUsuppbót kr. 2.051, bamalífeyrir
vegna eins bams kr. 2.849, mæðralaun
vegna eins barns kr. 1.786, mæðralaun
vegna tveggja barna kr. 4.679, mæðra-
laun vegna þriggja barna kr. 8.300,
ekkjubætur kr. 5.832 og fæðingarorlof
kr. 20.808. -JSS
Hólmanes kom
með 120tonn
til Eskif jarðar
Togarinn Hólmanes kom tU Eski-
fjarðar í gær eftir tíu daga útivist með
120 tonn af blönduðum fiski, ýsu,
þorski og ufsa. Skipstjóri í ferðinni var
Finnbogi Böðvarsson. Sjómenn hér
segja mér að það hafi verið rudda-
veður á miðunum í vetur og ekki gott
tU veiða. Hér er sól, blankalogn og 10
stigahitiíforsælu.
Regína Thorarensen Eskifirði.
Ráðstef na um
starfsemi meðal
aldraðra
Menningarsamband aldraðra á
Norðurlöndum heldur ráðstefnu dag-
ana 9. til 14. maí að Hótel Esju. Mark-
mið ráðstefnunnar er að kynna starf-
semi meðal aldraðra í hverju landi og
að þátttakendur beri saman bækur
sínaríþeim efnum.
Þetta er í fjórða skipti sem
Menningarsambandið heldur
ráðstefnu sem þessa og í fyrsta skipti
sem hún er haldin á Islandi. Um sjötíu
manns sækja ráðstefnuna, þar af 20
Islendingar.
Tryggvi Ólafsson 6 gangi i Reykjavík. Heima i Kaupmanna-
höfn er hann aftur 6 móti með Tívolí ó aóra hönd og gleöikon-
ur og heróín ð hina. DV-mynd W
Tryggvi Ólafsson sýnir í Listasafni ASÍ:
Úr heróínhverfi
niður í Grensás
„ÞyngsUn eru orðin miklu meiri í
Danmörku en var hér áður fyrr. Þeg-
ar ég settist að í Kaupmannahöfn
fyrir 24 árum voru bjartsýnistímar.
Bítlarnir léku á tónleikum í næstu
götu og næga vinnu var að fá. Nú er
þetta allt breytt; atvinnuleysi, eitur-
lyfjaneysla, ein allsherjar örvænt-
ing.”
Tryggvi Olafsson listmálari er
kominn tU Reykjavíkur meö fjöldann
allan af myndum sem hann sýnir í
Listasafni ASI við Grensásveg 4.—
27. maí. Myndir sem eru eftirsóttar á
Norðurlöndum og reyndar víðar.
Tryggvi unir hag sínum vel í Kaup-
mannahöfn þó svo hann búi með
konu og börnum í heróínhverfi borg-
arinnar, við Stampesgade, aðeins
spölkorn frá Istedgötu þar sem eitur-
lyfjaneytendur og vændiskonur
stunda starf sitt og neyslu.
„Það er hálfundarlegt lífið þama í
hverfinu. Á morgnana iðar allt af Ufi
á stóra kjötmarkaðinum, yfir hádag-
inn fellur ró á en um kvöldið hefst
næturUfiö og stendur þar til hrópin á
kjötmarkaðinum byrja aftur. Þetta
er undarleg hringiða og ég bý í henni
miðri, með TívoU á aðra hönd og
gleöikonumar og eitrið á hina. Þrátt
fyrir það tmfla eiturlyfjasjúkling-
arnir mig ekkert. Þeir brjótast
aldrei inn í sínu eigin hverfi, þar
verða þeir að hafa aUt í góðu lagi,”
sagði Tryggvi Olafsson.
I framhaldi af sýningu Tryggva
gefur Listasafn ASI út skyggnubók
með litskyggnum af 12 verkum Usta-
mannsins. Em þær helst ætlaðar út-
iendingum svo og tU kennslu í skól-
um.
— En hvað kosta myndir
Tryggva?
„ÆtU meðalverðið sé ekki svona
35.000 krónur. Sumar eru miklu ódýr-
ari, aðrar miklu dýrari,” sagði
Tryggvi. -EIR.
Mal togarans Sjóla fyrir gerðardóm:
„ Verkinu ekki lokið
og ekki vel unnið”
Gerðardómur mun að öllum
Ukindum skera úr um ágreining miUi
SUppstöðvarinnar á Akureyri og
eigenda togarans Sjóla um viðgerðir á
togaranum. SjóU kom til Hafnarfjarð-
ar síðdegis í fyrradag og hefur verið
ákveðið aö ljúka viðgerðum á honum
þar.
„Slippstööin telur sig hafa lokið því
verki sem samið hafði verið um. Hlut-
lausir aöilar telja hins vegar að verkiö
sé ekki nægilega vel unnið og ekki
lokið.
Við höfum nú þegar greitt tUboös-
verðið og þá viöbótarreikninga sem við
höfum samþykkt. Einnig hefur verið
lögð fram bankatrygging fyrir því sem
er ágreiningur um og sem fer fyrir
gerðardóm,” sagði Haraldur Jónsson,
framkvæmdastjóri Sjólastöðvarinnar i
Hafnarfirði.
SUppstöðin á Akureyri vildi að
gengið yrði frá þessum greiðslum áður
en togarinn færi frá Akureyri. Reynt
var að fá lögbann á togarann en hann
fór áður en það f ékkst.
„Við erum ósáttir yfir því að hægt sé
að sigla skipinu burtu án þess að sam-
komulag sé gert um það,” segir
Gunnar Ragnars, forstjóri SUpp-
stöövarinnar. Hann segir að það sé
fyru-sláttur hjá eigendum Sjóla að
segja að verkinu sé ekki lokið. Það hafi
farið í prufuferð og engin athuga-
semd hefði komiö frá fulltrúum þeirra.
Hins vegar hefði Siglingamálastofnun
gert athugasemdú- við nokkur atriði en
þau væru öll fyrir utan umsamið verk.
APH
Borgamesdagar'85 íLaugardalshöll:
Tölvuknattspyrna og
þingmannasöngur
Borgamesdagar ’85 standa yfir
þessa daga í Laugardalshöll og verður
þar margt tU gamans gert. Hátíðin var
sett í gær með pompi og pragt og henni
lýkur á sunnudagskvöld.
Meðal skemmtiatriða í dag, föstu-
dag, verða flutt atriði úr gamanleikn-
um Ingiríði Oskarsdóttur eftir Trausta
Jónsson veðurfræðing. Er það leUc-
deUd Ungmennafélagsins Skallagrims
sem flytur og hefst sýningin klukkan
18.45. Þá verður síðar um kvöldið
tískusýning.
A laugardag hefjast hátíöahöldin
klukkan 14 með því að þingmenn
Vesturlands taka lagið. Að því loknu
verður haldið Islandsmeistaramót í
tölvuknattspymu. Einnig verða tísku-
sýningar.
Á sunnudag hefst skemmtunin
einnig klukkan 14 með úrsUtakeppni í
tölvuknattspyrnunni, verkalýðskórinn
í Borgarnesi tekur nokkur lög og
haldin verður golfkeppni, púttmót á 9
holu golfveUi í kjallara Laugardals-
haUar. Þá leika Björn Leifsson og Ingi-
björg Þorsteinsdóttir samleik á klarin-
ett og píanó og tískusýning verður um
kvöldiö.
Alla dagana verða valdir lukkugestir
hvers dags og dregið verður daglega í
happdrætti en aðgöngumiðar að
sýningunni gUda sem happdrættis-
miðar.
Þá má geta þess að SkaUagrímur,
leikdeUd ungmennafélags Borgarness,
flytur gamanleikinn Ingiríði Oskars-
dóttur tvisvar í Austurbæjarbíói
föstudaginn 3. maí. Er fyrri sýningin
klukkan 20.30 ogsúsíðari 23.30. -KÞ
Fjárhagsáætlun Kopavogsbæjar:
Framkvæmdir fyr-
ir 107 milljónir
Aætlaö er að framkvæmdir á vegum
Kópavogsbæjar og bæjar og ríkis á
þessu ári kosti um 107 mUljónir króna.
Þar af koma 47 mUljónir sem rekstrar-
afgangur bæjarins. 60 miUjónir koma í
rUcisframlögum og gatnagerðar-
gjöldum. Hins vegar á að verja 86
mUljónum króna tU þess að bæta
rekstrarstöðu bæjarins.
Sú upphæð kemur gegnum svo-
kaUaðar fjármagnshreyfingar. Ætlun-
in er að lækka skuldir um 60 mUljónir á
árinu. Einnig er gert ráð fyrir að
útistandandi gjöld bæjarbúa og fyrir-
tækja tU bæjarins hækki um 27
miUjónir króna. Kópavogsbær mun
greiða 19,2 mUljónir á árinu í vexti og
verðbætur.
Heildartekjur bæjarins eru áætlaöar
410 miUjónir í álögðum gjöldum og 98
mUljónir í þjónustugjöldum. Þar af
eiga útsvör að gefa 240 miHjónir, fast-
eignaskattar 56 mUljónir, aöstööugjöld
46 miUjónir og hlutur í söluskatti 42
miUjónir.
Rekstrargjöld eru áætluð 374
mUljónir króna. Þar af fer mest til
félagsmála, 80 miUjónir. TU fræðslu-
mála 60 miUjónir, tU reksturs og
viðhalds gatna og holræsa og
umferðarmála 34 miUjónir, æskulýðs-
og íþróttamála, skrúðgarða og úti-
vistar 23 mUljónir og tU reksturs SVK
15 milljónir.
Rekstrarafgangur er áætlaður 133
mUljónir króna. Þar af fara síðan 86
miUjónir tU þess að bæta fjárhagsstöð-
una, eins og fyrr segir, en 47 miUjónir
tilframkvæmda.
HERB