Dagblaðið Vísir - DV - 03.05.1985, Blaðsíða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 03.05.1985, Blaðsíða 3
DV. FÖSTUDAGUR 3. MAl 1985. 3 OLGAÁNT Þaö var sérkennilegt andrúmsloft sem ríkti á ritstjóm dagblaðsins NT í gær. „Ert þú búinn að segja upp eða var þér sagt upp?” Þannig spurðu menn hver annan. Framtíðin var óljós hjá flestum. Sex blaðamönnum hafði verið sagt upp. Fimm blaðamenn, þar af tveir fréttastjórar, höfðu lagt inn upp- sagnarbréf. Aðrir voru ýmist að íhuga hvort þeir ættu að segja upp eða hvort dagblaðið NT myndi lifa mikið lengur. Magnús Olafsson sagði upp rit- stjórastarfinu síðastliðinn þriðju- dag. Sama dag sendi blaöstjómin tólf starfsmönnum uppsagnarbréf, sex mönnum á ritstjóm, fjómm í auglýsingadeild og tveimur inn- heimtumönnum. Flestir þeirra hafa starfað hjá fyrirtækinu í innan viö eitt ár. Það er þó ekki algilt. Annar innheimtumaðurinn, Sveinn Gam- alielsson, er búinn aö þjóna blaði Framsóknarflokksins í fjölmörg ár. Blaðamaður DV hitti Svein í gær. Hann baöst undan því að ræða um málið en DV fýsti til dæmis að vita hvort rétt væri að hann hefði lagt allt sparifé til Nútimans þegar það hluta- félag var stofnað um útgáfu NT fyrir ári. Þeir starfsmenn sem þegar hafa ákveðið að fylgja Magnúsi Olafssyni út af blaöinu eru Guðlaugur Berg- mundsson, Ámi Þórður Jónsson, Jón Daníelsson, Guðmundur Hermanns- son og Sverrir Albertsson. Tveir þeir síðasttöldu em fréttastjórar en hinir blaðamenn. -KMU. Samúel Örn Erlingsson íþróttafréttamaður: Guðjón Einarsson afhendir launaumslög Stjórnin ætti að læra mannasiði ,,Eg vil meina að stjóm blaösins sé ekki starfi sínu vaxin. Ef þessi stjóm ætlar aö halda áfram aö gefa út blaö, það er aö segja ef þeir ætla að halda áfram að sitja í stjóm, þá ættu þeir að byrja á því að læra mannasiði,” sagði Samúel öm Erlingsson, sem stjórnaö hef ur íþróttaskrif um NT frá upphafi. Hann hefur bráölega störf hjá Ríkisútvarpinu. „Þetta byrjaði vel. Hér hefur verið mjög góöur vinnuandi. Menn hafa lagt sig alla fram og blaðið hefur verið gott. En það kom bakslag í verkfallinu í haust. Þá fengum við nasaþefinn af því hvemig þessi stjórn er. I byrjun verkfalls var gengið frá því að blaðið gæti komiö út. En stjórnin stöðvaði það. Verkfallið varð til þess að draga máttinn úr blaöinu. Það kippti í raun fótunum undan því. Þessa sex vikna stöðvun skrifa ég algerlega á kostn- aö stjórnarinnar,” sagði Samúel örn. Hann sagði að peningamál blaðs- ins hefðu verið í ólestri. Það hefði bitnað á starfsfólkinu. Nefndi Sam- úel sem dæmi að fyrirtækið heföi dregið af honum skatta en ekki enn greitt þá tD hins opinbera. Megnið af því væri ógreitt enn. -KMU. Guðjón Einarsson skrifstofustjóri: Lifað átta hreinsanir ,,Eg er eins og Molotoff. Eg hef staðist allar hreinsanir,” sagði Guð- jón Einarsson, skrifstofustjóri rit- stjórnar NT. Hann var áður ljós- myndari Tímans. „Ég er elstur starfsmanna síðan Þórarinn hætti. Eg er búinn að lifa átta framkvæmdastjóra. Það hafa átta framkvæmdastjórar horfið síð- an ég byrjaöi árið 1950. Eg hef ekki taliö ritstjórana. Yfirleitt hefur þetta farið mjög snöggt, eins og í Rússlandi. Eg vona bara að þetta sé síðasta hreinsunin meðan ég er á blaðinu. Eg er búinn aö fá nóg af byltingum. I síðustu byltingu, þegar Elías Snæland fór, var ég trúnaðarmaður. Þá fékk ég alveg nóg.” — Hverju spáiröu um framtíð blaðsins? „Tíminn hefur níu lif eins og kött- urinn. Eg veit um átta framkvæmda- stjóra sem hafa horfið, skyndUega flestir,” sagðiGuðjón. -KMU. Fréttastjóramir Sverrir Albertsson og Guðmundur Hermannsson. Þeir hafe béflir sagt upp. DV-myndir: GVA. Sverrir Albertsson f réttastjóri: SKIL EKKISTJÓRNINA „Eg sagöi upp á þriðjudag vegna þess að þegar Magnús Olafsson rit- stjóri hættir vegna deUna við stjórn- ina álít ég minn starfsgrundvöll fara minnkandi. Mælirinn fylltist endan- lega þegar sex blaðamenn fengu reisupassann,” sagði Sverrir Al- bertsson, fréttastjóri á NT. Hann hefur starfað á blaðinu í eitt ár, þar af sem fréttastjóri frá því í janúar síðastliðnum. „Eg skil ekki ennþá hvað stjórnin er að gera. Eg get alls ekki séö að rit- stjóm blaösins hafi fengiö skýringar á því sem er að gerast. Eg held að við höfum haft meðbyr síðustu mánuði og verið í sókn. Og held að núna hafi einmitt verið tím- inn tU að herða þá sókn en ekki draga úrhenni,”sagði Sverrir. -KMU. Fellt að hætta við byggingu ratsjárstöðva Jökulfellifl 6 siglingu. Á innfelldu myndinni eru f brú skipsins Heiðar Krist- insson skipstjóri, Bjöm Bjömsson yfirvélstjóri og Axel Gfslason, forstjóri skipadeildar SÍS. DV-mynd GVA. SÍS í siglingum vestur um haf Jón Petersen með þrjór fyrstu bleikjurnar úr Elliðavatni í sumar en veiðin hófst I fyrra- dag. DV-mynd G. Bender. Tillaga Steingríms J. Sigfússonar Alþýðubandalagi og Kolbrúnar Jóns- dóttur Bandalagi jafnaðarmanna um að faila frá hugmyndum um að reisa nýjar hemaðarratsjárstöðvar á Is- landi var felld í sameinuöu þingi í gær. Aður hafði tUlaga Haraldar Olafs- sonar Framsóknarflokki um að vísa tiUögunni tU rUdsstjómarinnar verið feUd. Studdu allir viðstaddir þing- menn Framsóknarflokksins tiUögu Haraldar eöa þrettán. Nei sögöu 43 og 4 voru fjarverandi. Steingrímur Hermannsson gerði grein fyrir atkvæði og sagði m.a.: „A meðan hér á iandi er eftirUtsstöð tel ég rétt að sú stöð sé sem aUra best úr garði gerö tU aö sinna sinu hlut- verki. Því er ég hlynntur þvi að rat- sjórstöðvar verði endurreistar á Norðurlandi, á Vestfjörðum og endur- byggð á Suð-Austurlandi. Þannig að þaöan megi flytja þaö herUð sem þar er. Eg tel einnig súkar stöðvar mUdl- vægar fyrir öryggi íslensks flugs. Ég mun því styöja það að ratsjárstöðvar verði reistar. Hins vegar tel ég óeðU- legt að Alþingi ákveði einstök atriði i framkvæmd vamarsáttmálans og geti þá gert það með þingsályktun. Á þeirri forsendu og með tUvisun tU þess sem ég hef sagt styö ég að tUlögunni verði vísað tU rikisstjómarinnar og segi jó.” Tillaga Steingríms J. Sigfússonar og Kolbrúnar Jónsdóttur um að faUa frá því að reisa nýjar ratsjárstöðvar var feUd meö 42 atkvæðum gegn 15. Einn þingmaður, Haraldur Olafsson, greiddi ekki atkvæði og 2 voru fjar- staddir. Þeir 15 sem greiddu tUlögunni jóyrði voru 8 þingmenn Aiþýðubanda- lagsins, (2 voru fjarverandi), 1 þing- maöur úr Bandalagi jafnaðarmanna, 3 þingmenn Samtaka um kvennaUsta og 3 þingmenn úr Framsóknarflokki. Þeir síðasttöldu eru Guömundur Bjarna- son, PáU Pétursson og Ingvar Gíslason sem gerðu grein fyrir atkvæðum sínum. Guðmundur Bjamason þeirra fyrstur sagði m.a. „Hér er um hernaðarmannvirki að ræða og auk þess um nýbyggingu og útvíkkun hemaðarmannvirkja að tefla, en ekki viðhald eða endumýjun þeirra hemaðarmannvirkja sem fyrir eru í landinu. Flest bendir tU að með upp- byggingu þessa fyrirhugaða ratsjár- kerfis sé verið að smíða hlekk í keðju umfangsmikilla hemaðarmannvirkja sem ætlað er að festa Island i sessi sem herstöð um ófyrirsjáanlega framtíð.” Sagðist Guðmundur vera andvígur því að ganga gegn vilja heimafólks á Vest- fjöröum og Norð-Austurlandi. Undir hans orð tóku Páll Pétursson og Ingvar Gislason. Ragnar Amalds gerði grein fyrir at- kvæði sínu og vilja þingflokks Alþýðubandalagsins og lýsti andstöðu viö útþenslu yfirráðasvæðis banda- riska hersins á Islandi. Sagði hann að taka bæri tillit til vilja íbúanna á viðkomandi svæði. „Þingflokkurinn telur ekki sæmandi Alþingi aö skjóta sér undan skyldu sinni til að taka stefnumarkandi afstöðu í þessu umdeilda máli og f ráleitt að visa því til ríkisstjórnarinnar.” Nýtt skip hefur bæst í skipaflota Sambandsins. Hefur það hlotið nafnið Jökulfell og er ætlað að vera í sigling- um milli Islands og Ameriku. Skipið er útbúið til flutnings á fryst- um varningi á pöllum í lestum, svo og á varningi í gámum á þilfari. JökulfeU var smiöaö í Appledore í Devon í Eng- landi og var afhent Sambandinu 17. apríl síðastliðinn. Hingað komið er kaupverö skipsins 320 mUljónir. „Skip þetta er byggt eftir okkar hug- myndum fyrir okkar þarfir,” sagði Axel Gislason, forstjóri skipadeUdar Sambandsins. „Þótt hér sé um að ræða frystiskip em lestar skipsins þannig úr garði gerðar að breyta mó þeim með UtUU fyrirhöfn svo skipiö getur sem best nýst tU gámaflutninga og stykkja- vömflutninga einnig.” Axel sagði að JökulfeUið væri 3068 lestir að burðargetu og tæpra 94 metra langt. Vél þess væri 4080 hestöfl og að jafnaði mætti knýja skipið áfram með 14 sjómílna hraða. Skipið væri búið ÖU- um nýjustu tækjum og búnaöi. Mætti þar nefna aö nú í fyrsta skipti væri all- ur fiskur kominn á bretti er hann kærni um borð. Mikil vinna vegna lestunar og losunar sparaðist með því og kæmi það á móti háu verði skipsins. Ahöfn skipsins er tólf manns. Skipstjóri er Heiðar Kristinsson og yfirvélstjóri Bjöm Bjömsson. -KÞ Ingólfurmeð merkjasölu Björgunarsveit SlysavarnadeUdar- innar Ingólfs í ReykjavQc efnir tU ár- legrar merkjasölu sinnar um næstu helgi. Agóða sölunnar verður varið til upp- byggingar deildarinnar. Er það von björgunarsveitarmanna að borgarbú- ar sýni velvUja í verki og styðji starf sveitarinnar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.