Dagblaðið Vísir - DV - 03.05.1985, Blaðsíða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 03.05.1985, Blaðsíða 16
16 DV. FÖSTUDAGUR 3. MAI1985. Spurningin Hverjir heldur þú að verði Reykjavíkurmeistarar í' knattspyrnu? Margrét Símonardóttir verslunar- mær: Eg hef tröllatrú á liöi Vals, mér finnst Framliöiö ekki nægilega traust- vekjandi. Gunniaugur Rögnvaldsson rallöku- maður: Þaö veröa annaöhvort Fram eða Valur. KR-ingar eru ekki nógu góðir í ár. Gunniaugur Johnson hugmaöur: Fram verður Reykjavíkurmeistari. Þeir eru svo miklir hug- og hestamenn. Hrafn Þorgeirsson afgreiðslumaður: Valur. Þaö má meö sanni segja um Valsmenn að þeir geta báöir nokkuö. Kristín Benediktsdóttir kennaranemi: Eg fylgist ekkert meö knattspyrnu en ég giska á aö Valur hafi það. Egill Helgason blaðamaður: A KR ekki neina möguleika ? Lesendur Lesendur Lesendur Lesendur Kvemahand- bolti með rsmáu letri’ Langsokkur er óhress meö þá tskmörkuðu ethygli og um- fjöllun sem kvennehendboltl fwr I blöðum. Langsokkur skrlfar: Það er kunnara en frá þurfi að segja aö kvenmenn a»fa handbolta, alveg eins og karlmenn. Þarf ekki að leita lengra en til íþróttafélaganna sjálfra, svo ekki sé nú talað um landsliöiö. Þaö er sama sagan alls staðar; meistaraflokkur karla er andlit félaganna út á viö og því er nauðsynlegt aö öll fyrirgreiðsla til þeirra komi fyrst. Síðan er hægt að afgreiða kvenfólkið ef einhver tími eöa peningar eru eftir. öll umfjöllun í blöðum um kvenna- flokkana eru í mesta lagi 5—6 línur í smáu letri, það er að segja ef ekki þarf að blása upp að eitthvert enskt fótboltaliö sé að kaupa varamann einhvers annars liðs. Það er til skammar hve litla umfjöllun þessir flokkar fá. Við eigum ungar og efni- legar stelpur sem leggja metnað sinn í aö standa sig fyrir sín félagslið og landsliðið en þeirra er hvergi getið. A undanfömum árum hafa 1—2 dagblöð látið sig þessi mál varða en það endist ekki langt fram á keppnis- tímabilið. Þaö er ekki mesta máliö að komast í blöðin en fyrst það eru íþróttasíður í blööunum af hverju á þá ekki aö fjalia jafnmikið um kven- mennogkarlmenn? Kvennalandsliöiö, sem nú er að æfa af fullum krafti fyrir væntanlega landsleiki viö Norðmenn, hefur litla sem enga athygli fengið. Það eina sem fram hefur komiö er smáfrétta- tilkynning frá HSI. Landsleikimir sem fara fram fyrstu vikuna í maí nk. hafa ekkert verið auglýstir. Hvemig er svo hægt að ætlast til að fólk mæti til að horfa á Ieikina ef það veitekkiafþeim? Stelpurnar i iandsliöinu hafa æft mjög vel síöastliðnar vikur undir stjórn Viðars Símonarsonar þjálf- ara, með góðri aðstoö kvennalands- liðsnefndar. Því ekki aö sýna að við styðjum við bakið á kvennalandslið- inu og mæta og hvetja þær til sigurs í viðureigninni við norska liðiö? Áframlsland! Sumar- hátíð Alþýðu- bandalagsins ogfríðar- ganga DV hefur borist athugasemd vegna ummæla Ágústs Guðröðar- sonar á Sauðanesi á beinni linu við Steingrím Hermaunsson, forsætls- ráðherra. „Ágúst Guðröðarson telur að meirihluti heimamanna sé á móti byggíngu ratsjárstöövar á Langa- nesi. Segir alinennan sveitafund í Svalbarðshreppi hafa mótmælt byggingu ratsjárstöðvar. Það rétta er um þann fund að segja að þetta mál var ekki í aug- lýstri dagskrá fundarins en kom tii umræðna. A fundinum kom skýrt fram að menn töldu að ratsjárstöð- in væri ekki hernaðarmannvirki og tillagan samþykkt sem mótmæli gegn einhverju öðru. Þennan fund sátu þrjátíu manns og rúmlega helmingur samþykkti tillöguna. Ibúar hreppsins eru um 130. Hvað við kemur fundi utanríkis- ráðherra þá töluðu sex heimamenn á móti og voru fimm þeirra frá þeim tveimur heimilum sem að bænarskrá stóðu. Oft er þögn sama og samþykkt. Fund þennan sóttu 180—200manns. Hvað friðargöngu viðkemur, voru á milli 160 og 170 göngumenn, með ungmönnum talið, sem tóku þátt í göngunni. Af fréttum af göng- unni mætti ætla að það hafi eingöngu verið heimamenn sem tóku þátt í henní. Það rétta er að Alþýðubandalagið hélt sumarhátið hér í sýslunni þann sama dag. Hún var auglýst vestan Axarfjarðar- heióar. Er liða tók að því að gangan hæfist tók fólk það sem mætti á suxnarhátíðinaað streymattil Þórs- hafnar, ásamt þingmanni flokks- ins, Var þar ó ferð með fóíki úr öðrum sýslum. Hvaö heimamenn væru margir í þessari göngu kom ekki fram. Hvers vegna ekki?’’ Fyrir hönd Vestrænnar sam- vinnu á N-Austurlandi. Björgvin Þéroddsson, Ulfar Þórðarson, JónAðalbjörnsson. Sveinn er ósáttur viö aksturslag strætisvagnabilstjóra. Forgangur strætisvagna: Stofnar öðrum f lífsháska Sveinn Þorsteinsson, Siglufiröi, hringdi: Fyrir stuttu ók ég eftir Laugavegin- um, rétt við sjónvarpshúsið. Eg keyrði framhjá strætisvagni sem var kyrr- stæður á stoppistöð en þegar ég var kominn um hálfa leið fram eftir vagninum svínaði hann fyrir mig. Eg mátti hafa mig allan við að forðast slys, fara yfir á hina akreinina og aka á móti umferð. I raun var ég heppinn að engan sakaði. Nú veit ég að strætis- vagnarnir hafa vissan forgang í umferðinni. Þaö er hins vegar of langt gengið þegar bílstjórar nota sér þenn- an forgang þannig að um hreinan yfir- gang er að ræða. Það er háskalegt þegar þeir eru farnir að stofna manni í lífsháska með tillitslausu aksturslagi. JamesDean áskjáinn 3870-9585 skrifar. ‘ j ; .? ; I tilefni þess aðí ár eru 30 árliðlnfrá ; ‘ sviplegum dauða biqs stórkostlpgó - » leikara James Byron Dean langar piig 5: að biöja sjónvarpið um aö sýna-kvilí- ?■ myndir þær sem hann lék í. Hann náá því miður aðeins að leika 'í þremur , myndum á sinni stuttu ævi og ættu þær . aö vera frekar ódýrar sökum aidurs, ' Myndir þessar eru af einhverjum óskiljanlegum ástæðum ófáanlegar á myndbandaleigum hérlendis og er það í sjálfu sér furðuleg pólitík því enn þann dag i dag er James Dean dýrkað- ur umallan heimaf fólki á öllumaldri. James Dean og Elisabeth Taylor 1 myndinni Giant.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.