Dagblaðið Vísir - DV - 03.05.1985, Side 5

Dagblaðið Vísir - DV - 03.05.1985, Side 5
5 DV. FÖSTUDAGUR 3. MAl 1985. Almannavarnirað Ijúka uppsetningu eigin talstöðvarkerfis um alltland: UTKALLA Nýtt VHF-talstöðvakerfi Al- mannavarna ríkisins gerbreytir að- stöðu til þess að gefa út viðvaranir og kalla út björgunarlið. Nú þegar er bein tenging úr aðalstöðvunum í Reykjavík við um 100 aðila á svæðinu frá Kirkjubæjarklaustri vestur um Faxaflóa. Samband næst nú á innan við mínútu við alla. Þaö tók áöur allt að hálfa klukkustund. Guðjón Petersen, forstöðumaöur Almannavama, segir aö ennfremur náist jafnskjótt samband við stjóm- stöðvar í öðrum landshlutum, sem síðan láti boð ganga um sín svæði. Nú er aðeins eftir að koma upp end- urvarpsstöðvum á norðanverðum Vestfjörðum, Norðurlandi vestra og Austurlandi. Því lýkur væntanlega á EINNIMMTU árinu og þá nær talstöövakerfiö um land allt. Endurvarpsstöðvarnar era nú fimm og fjölgar um helming. 112 aðilar eru þegar tengdir kerfinu. Það eru almannavarnanefndir, stjórn- stöðvar, lögreglustöðvar, sjúkrahús, björgunarsveitir, virkjanir og aðrir sem koma við sögu ef vá er fyrir dyrum. Kerfið er algerlega s jálfstætt og gengur nærri sama hvaö á dynur. Almannavamir hafa ennfremur beint samband við öll önnur fjar- skiptakerfi í landinu. Endurvarpsstöövar Almanna- varna kosta um 220 þúsund krónur hver, auk tenginga og uppsetningar. Talstöðvamar kosta um 20 þúsund krónur hver. Kostnaður við að koma kerfinu upp er því hátt í fimm millj- ónir. Að sögn Guöjóns Petersen verða í nýrri símaskrá allar upplýsingar um not almennings af kerfi Almanna- varna. Þar á meðal hvemig ná á sambandi við það hvar sem er á landinu. HERB „Hlægilegt ef þetta er eina lausnin” ,,Ef þetta á að verða eina lausnin þá er þetta stórhlægilegt,” segir Björn Olafsson, einn af forsvarsmönnum áhugamanna um úrbætur í húsnæðis- málum um frumvarpið um greiðslu- jöfnun. „Þeir geta bara sleppt þessu ef lausnin á að vera þessi. Húsnæðislánin eru ekki aðalvandinn. Annaðhvort verður aö gera þetta almennilega eða allt veröur vitlaust,” segir Bjöm. Björn segir að húsnæðishópurinn hafi farið fram á aö ffllum yrðu endur- greiddar þær upphæðir sem búið er að ofgreiða miðað við þær forsendur sem gefnar vora í upphafi lántökunnar. Þetta á við öll lán. Greiðslujöfnun átti að koma á eftir þegar búið yrði að leið- rétta þessar ofgreiðslur. Hópurinn hef- ur lagt til að tekinn verði upp skattaf- sláttur til að leiðrétta þessar ofgreiðsl- ur aftur í tímann. ,,Ef þetta er hins vegar eitt af mörg- um atriðum þá er þetta góðra gjalda vert,” segir Björn Olafsson. Ásmundur Stefánsson, forseti ASI, segir að viðræðum ASI og rikisstjórn- arinnar um lausnir í húsnæðismálum sé ekki lokið. „Það er ljóst að greiðslujöfnunin er ekki einhlít lausn á vanda þeirra sem era í greiðsluerfiðleikum,” segir Ás- mundur Stefánsson. Hann bendir á að ósvarað sé hver viðbrögð banka og líf- eyrissjóða verða. Einnig er ekki ljóst hver jir fá þessa frestun. Hann segir að grundvallaratriðið til lausnar sé að f á aukiö f jármagn til hús- næðismála. Annað mál, sem einnig verði að leggja áherslu á, sé að lækka verði vexti af lánum. Þá sagði Ás- mundur að í viöræöum ASI og ríkis- stjómarinnar undanfariö hefði veriö rætt um skattaafslátt, en á því sviði hefur ekki náðst niðurstaða. „Þannig að málin era enn í viðræöu og ríkis- stjómin sjálf lítur svo á að þeim sé ekki lokið,” sagði Asmundur. APH Hrafninnflýgur ísumar Kvikmyndin Hrafninn flýgur verður sýnd í sumar í Austurbæjar- bíói. Verður myndin með enskum texta endaerusýningamareinkum ætlaðar erlendum ferðamönnum sem og íslenskum námsmönnum sem dveljast hér heima aðeins á sumrin. Myndin veröur sýnd dag- lega á einni sýningu, klukkan sjö í Csalbíósins. Viðurkenndi dreif- inguáhassi Manni þeim sem var handtekinn á dögunum af fíkniefnalögreglunni og dæmdur í 30 daga gæsluvaröhald hefur verið sleppt úr haldi. Maöurinn viöurkenndi aö hafa séð um dreifingu á 700 grömmum af hassi. Hann upplýsti ennfremur að hann hefði veriö að selja hass fyrir annan mann. Sá var handtekinn á Keflavíkurflug- velli í mars sl. Maöurinn var þá góm- aður með 1,5 kg af hassi sem var límt utanumhann. -SOS Dyrhólaey lokuð 011 umferð ferðamanna um Dyrhóla- ey verður bönnuð frani til 25. júní. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Náttúravemdarráði en ráðið hefur ákveðið að notfæra sér heimild sína til að vernda dýralífið í eynni með þess- umhætti. BORGARNESDAGAR I LAUGARDALSHOLL 2.-5. MAI í KVÖLD: Kl. 18.45: Söngvar úr Ingiríði Óskarsdóttur, eftir Trausta veðurfræðing. Kl. 21.00: Tískusýning. Lukkugesturinn fær verðlaun. Vörusýning, matvælasýning, listsýning, leikir. Bragðið gómsæta rétti, skoðið listaverk 20 þekktustu listmálara landsins og spáið í silfur Egils — 10.000 króna verðlaun. Borgarnes er komið í bæinn. OPIÐ KL. 13-22. TIL SUNNUDAGSKVÖLDS Dregið i ivrsta flokki kl.6 í dag Nokkrir lausir miöar enn til sölu Munið að endumýjaí HAPPDRÆTTI Dvctlarheimilis aldraðra sjómanna

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.