Dagblaðið Vísir - DV - 24.05.1985, Blaðsíða 1

Dagblaðið Vísir - DV - 24.05.1985, Blaðsíða 1
DAGBLAÐIÐ —VISIR 116. TBL. - 75. og 11. ÁRG. FÖSTUDAGUR 24. MAÍ1985. Tilboð VSÍ kom f lestum verkalýðsforingjum í opna skjöldu: Samið við hluta ASÍ-sambandanna? Vinnuveitendasambandið er tilbúið að ganga til samninga þótt aðeins hluti landssambanda innan Alþýðusam- bandsins sýni vilja til samninga. „Ef bara hluti þeirra kemur þá erum við tilbúnir að tala viö þau. Það getur enginn tapað á að taka þessu tilboöi,” segir Vilhjálmur Egilsson, hagfræð- ingur VSI, í viðtali við DV. Neikvæðustu viöbrögðin við tilboði VSI hafa komið frá talsmönnum Verkamannasambandsins og gæti svo farið að það samband kysi að bíða til haustsins. „Ef þeir ná að knýja fram einhverja vitleysu í haust springur allt í loft upp og þá verða þeir, sem semja sjá nánarábls.3 núna, lausir mála 1. desember,” segir Vilhjálmur. Forystumenn verkalýðshreyfingar- innar hafa ekki enn tekið endanlega af- stöðu til tilboös VSI en ljóst er að það hefur komið þeim flestum í opna skjöldu. Flestir þeirra eru hins vegar reiðubúnir að líta nánar á tilboð VSI. -APH Hussein Jórdaníu- konungur á íslandi Keypti ullar- vörur á Kefla- víkurflugvelli — á leiöinni til viöræðna við Reagan Hussein Jórdaniukonungur staldraði viö hér á landi í klukku- tíma á leiðinni til Bandaríkjanna. „Hann var með konu sinni, bráð- huggulegri og enskri í fasi,” sagði Helgi Thorvaldsson, starfsmaður á Keflavikurflugvelli, þar sem Huss- ein stoppaöi í klukkutima. Hussein kom frá Amman í Jór- daníu í gegnum London. Hann var á leiðinni til eyju við austurströnd Bandaríkjanna þar sem kona hans dvelur jafnan. Hann mun ræða við Reagan Bandaríkjaforseta á mið- vikudag. A Keflavíkurflugvelli leit hann á íslenskan markað, og keypti þar mokkahúfu, teppi, bamaföt og fleira, fyrir um 10.000 krónur. -ÞóG Fjorio veröun Borgarfiröium hvítasunnuna — sjá bls. 19 Sumardvöl og sumarstarf — sjá bls. 6 Sex nýliðar í slökkviliði Reykjavíkur ésamt nokkrum fullgildum slökkviliðsmönnum voru við æfingu í reykköfun og slökkvistarfi i nótt. Notast var við æfingahús slökkviliösins að Foss- vogsvegi 33 sem hefur þjónað sem slíkt mörg undanfarin ér. Nú hefur húsiö lokið sínu hlut- verkl og brann til grunna I nótt. EH/DV-mynd S. Slökk viliðsmaður að slökkva í dýnunni úti é svölum. DV-mynd S. Eldur í fjölbýlishúsi: Nágranni sá reykinn og vakti fólkið Eldur kom upp í íbúðarhúsi við Meistaravelli í nótt. Þegar slökkvi- liðið kom á staðinn var mikili reyk- ur í einni íbúðinni en eldur logaöi í einu herbergi. I ibúðinni búa hjón með eina dóttur og vöknuðu þau við að nágranni hringdi dyrabjöliunni og varaði þau við. Reykkafarar slökkviliösins fór inn í íbúðina og slökktu í svamp- dýnu og stól sem loguðu. Neyðar- billinn kom á staöinn meö lækni sem leit á fólkið en þaö reyndist ekki hafa sakaö. Talsveröar skemmdir urðu af völdum reykst. -EH. Spennanmikil hjá stúlkunum í feguröarsam- keppninni — sjá bis. 21 SaganafGloriu — sjá myndbanda- síðuna á bls. 30 Sögulegttilboð — sjá bls. 12

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.