Dagblaðið Vísir - DV - 24.05.1985, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 24.05.1985, Blaðsíða 6
Max sportfatnaður á unga fólkið Léttur, smekklegur, klæðilefíur. Hentufíur til útiveru allt árið. Mariíar stærðir, marfrir litir. tíAtA/jt/A/ *3/ *3/ *?/ *J/ *J/ *?/>V «l/ *J/ /í* /S* /S* /S* /i /í* /S* /S* /S* /f» /s* /S* /S Opið alla daga kl. 9-19 / Notaðir Co / bílar FORD HUSINU Opið laugardaga kl. 10-17 Bílaleiga Bílakjallarans. Sími 84370. Bronco dísil Ranger 4x4, beinsk., blár/hvítur Suzuki pickup, yfirbyggður, 4x4, blár Mitsubishi pickup, yfirbyggöur, 4x4, blár Mazda RX7, beinsk., 5 gíra, 2ja dyra, hvítur Suzuki Alto, 4ra dyra, sjálfsk., rauður Suzuki Alto, 4ra dyra, blár Suzuki Alto 4ra dyra, sjálfsk., hvítur Mercedes Benz230 E, sjálfsk., P/ST, blár Saab 900 GLS, 2ja dyra, hvítur VW Jetta C/L, 4ra dyra, grár Ford Taunus GL 1600, 4ra dyra, blár Ford Taunus GL 1600, 4ra dyra, rauöur Lada Safir 1300 S, gulur Lada Sport 4x4, rauöur BMW318Í, útvarp/segulband, hvítur Mitsubishi Colt, 4ra dyra, blásans. Honda Accord, sjálfsk., rauöur, 4dyra Chevrolet Malibu, 2ja dyra, 8 cyl., grár Ford Fiesta L 1000, brúnn Ford Fiesta GL 1100, grár Torfæruhjól, Yamaha YZ490, hvitt/rautt Árg. Ekinn Verð 1979 700.000 1984 12.000 450.000 1981 52.000 440.000 1983 18.000 690.000 1985 500 300.000 1981 60.000 150.000 1983 19.000 240.000 1983 64.000 900.000 1982 45.000 430.000 1982 58.000 285.000 1982 23.000 350.000 1981 48.000 270.000 1982 47.000 150.000 1980 70.000 200.000 1982 35.000 450.000 1983 16.000 310.000 1981 65.000 280.000 1979 81.000 270.000 1984 10.000 280.000 1982 25.000 230.000 1984 170.000 Bílar væntanlegir frá Þýskalandi: Mercedes Benz 240 dísil, litað gler, B/S útvarp og kassetta, grár 1983 50.000 750.000 Range Rover4x4, B/S, útvarp, silver 1983 26.000 1.180.000 Mercedes Benz 250,4ra dyra, sjálfsk., litaö gler, silver 1979 60.000 550.000 Saab turbo 900, 5dyra, m/öllu, hvítur 1983 36.000 650.000 Mercedes Benz 280 E, sjálfsk., 4ra dyra, álfelgur, grænsans. 1980 60.000 720.000 ATH. Það vantar góða sölubíla á staðinn. og Ragnar Sigurðsson. BÍLAKJALLARINN ÍSJCSES F<>rdhúsi"u Hagkaup,. Símar 685366 og 84370. DV. FÖSTUDAGUR 24. MAI1985. Þafl er engin lognmolla yfir dvalargestum á Úlfljótsvatni yfir sumartimann. Neytendur Neytendur Neytendur SUMARDV0L 0G SUMARSTARF Yngra fólkiö þarf ekki aö kviöa aögeröaleysinu yfir sumartímann því aö margs konar starfsemi fer fram á vegum hinna ýmsu aöila til aö nýta sumariö sem best fyrir þessa aldurs- hópa. A vegum Æskulýösráös eru sumar- námskeið fyrir börnin í eigin hverfum — miðstöðvarnar eru Fellahellir, Bústaöir, Þróttheimar, Tónabær og Arsel. Einnig er svipuð starfsemi í ölduseisskóla og skátaheimiiinu v/- Neshaga. Þetta er ætlað bömum fæddum ’73—78, og kostar tveggja vikna námskeið 1.000 krónur. Mæting er klukkan tíu á morgnana og starfs- deginum lýkur um fjögur. Þátt- takendur hafa meö sér nesti og kostnaöur viö kynnisferðir er innifalinn í námskeiðsgjaldi. Iþrótta- og leikjanómskeið fyrir böm á aldrinum 6—12 ára veröa haldin frá 3. til 19. júní. Kenndar verða frjálsar íþróttir, knattspyma og ýmsir leikir. Gjald er 100 krónur. Námskeiöinu lýkur meö íþróttamóti á Laugardals- velli 20. júní. Starfsvellirnlr em átta talsins á þessu sumri og ætlaðir börnum á aldrinum 6—12 ára. Unnið aö smíðum allan daginn frá niu á morgnana til fimm á daginn. Hádegishlé er milli ki. tólf og eitt. Þátttakan er ókeypis og foreldmm eða forráöamönnum er heimilt að koma meö barninu og aöstoða viö smíðarnar. Skólagaröarnir verða á fjórum stööum — við Holtaveg, Asenda, og Stekkjarbakka og einnig í Árbæ, vestan Arbæjarsafnsins. Þeir em ætlaðir 9—12 ára bömum og kostar 200 krónur yfir sumarið. Sundnámskeið verða haldin fyrir börn, fædd 78 og eldri. Kennt alla virka daga nema laugardaga og kostar námskeiðið 650 krónur. Fyrra Þegar bílar mætast er ekki nóg að annarviki velútávegarbrún og hægi ferð. Sá sem á móti kemur veröur að gera slíkt hið sama en notfæra sér ekki til- litssemi hins og grjótberja hann. Hæfilegur hraði þegar mæst er telst u.þ.b. 50 km. UMFERÐAR Ð námskeiðiö er frá 3.-28. júní og þaö síöara 1. júlí til 26. júlí. Kennt veröur í Sundlaugunum í Laugardal, Sundhöll Reykjavíkur, Sundlaug vesturbæjar og laugum Arbæjarskóla, Breiöa- geröisskóla og Fjölbrautaskólans i Breiöholti. Siglingar em kenndar í Nauthólsvík eins og undanfarin sumur og ætlaðar börnum sem eru fædd 73—76. Námskeiðið er tveggja vikna og kostar 650 krónur. Framhaldsnámskeiö er fyrir börn fædd 71—74 og þar er gjaldið 750 krónur. Hestanámskeið er í Saltvik — reiðskóli, sem starfaö hefur á vegum Æskulýðsráðs Reykjavíkur og Hesta- mannafélagsins Fáks. Þátttakendur verða aö vera á aldrinum 8—14 ára og þátttökugjald er 2.700 eða 2.500 krónur, þaö fer eftir lengd námskeiðsins — tvær vikur eöa aöeins tæpar tvær vikur. Sumarbúðlr skáta að Olfljótsvatni taka á móti börnum á aldrinum 8—12 ára til dvalar í eina eöa tvær vikur. Verð fyrir vikudvöl er 4.200 krónur, fyrir hálfan mánuð 7.560 krónur og veittur er 10% afsláttur fyrir systkini. Sumarbúöir þjóökirkjunnar veröa i Laugargerðisskóla á Snæfellsnesi og dvölin þar er 12 dagar. Skipt er í tvo aldurshópa, 7—8 ára og 9—12 ára. Sumarbúðir KFUM og K em fyrir strákana í Vatnaskógi og stelpurnar í Vindáshlíð. Þar er hægt að finna eitthvað fyrir alla á aldrinum 9—17 ára. Og fyrir þá yngri er möguleiki á að komast í sumarbúöirnar aö ölveri. Veröiö er 3.940 fyrir dvöl í Vatnaskógi, 3.720 í Vindáshlíð og 3.950 fyrir dvöl í ölveri. Rétt er að taka þaö fram aö þessi námskeið em ekki eingöngu ætluð bömum í Reykjavík og nágrenni þótt auðvitað valdi búseta því að óframkvæmanlegt reynist fyrir lands- byggöarbörnin að sækja sum þeirra. Börn utan af landi, sem dvelja á höfuöborgarsvæðinu um tíma aö sumri geta að sjálfsögðu nýtt sér þau tækifæri sem þar bjóðast og einnig er tekið við bömum alls staðar að af landinu í þá starfsemi sem felur í sér næturdvalir á staönum. Nánari upplýsingar fást á eftir- töldum stöðum: Hjá Iþrótta- og tómstundaráði Reykjavíkur — sími 15937 og 21769, Skátahúsinu, sími 15484, Garðyrkju- stjóra Reykjavíkurborgar, sími 18000, KFUM og K, sími 13437 og Æskulýðs- starfi Þjóðkirkjunnar, sími 12445. A vegum Tómstundaráðs Seltjarnar- ness er ýmislegt í boði fyrir börnin í sumar. Leikjanámskeið fyrir 6—10 ára, gjald 1.100 krónur og útivistar- námskeið fyrir 11—13 ára fyrir 900 krónur. Einnig er golfnámskeið fyrir böm á aldrinum 10—13 ára og kostar það 1100 krónur og sundnámskeið fyrir þau sem fædd eru 79 og eldri. Það siðarnefnda kostar 800 krónur og er á vegum Sundlaugar Seltjarnarness. Siglinganámskeið Sigurfara verður í Bakkavör á Seltjarnarnesi og Knatt- spyrnudeild Gróttu heldur knatt- spyrnuskóla fyrir stráka á aldrinum 6—10 ára. Upplýsingar og innritun verða í félagsheimili Gróttu. -baj. Sumardvöl í sveit Sumardvalarheimilið að Kjam- holtum í Blskupstungum býður skipu- lagt hálfsmánaðar prógramm fyrir böm á aldrinum 8—12 ára. Þátt- takendur fara á hestbak og taka þátt í sauðburði og heyskap — allt eftir því hvað til fellur hverju sinni. Dvölin kostar 9.300 krónur og upplýsingar eru gefnar í síma 53443 á daginn — 17795 um helgar. A Þúfu i Kjós em vikunámskeið í hestamennsku fyrir börn á aldrinum 7—13 ára. Verðiö er 5.800 krónur og upplýsingar fást í síma 22997. Tölvuskólinn Framsýn býður kennslu á tölvur að Varmalandi í Borgarfirði. Þátttakendur mega vera á aldrinum 9—14 ára. Búið er í heima- vist á staönum og kennt á tölvur og haldiö íþróttanámskeið til skiptis. Verðið er 8.700 krónur fyrir eina viku. Sumarbúðlr ÆSK em við Vest- mannsvatn í Aðaldal. Eru þær ætlaöar börnum á aldrinum 7—13 ára og dvalartími er níu dagar. Verðið er 5.100 krónur og systkini afslátt þannig að fyrir hvert þeirra er dvalar- gjald 4.500 krónur. Kynnisferð í sveit á vegum Æsku- lýösráös Reykjavíkur og Sambands sunnlenskra kvenna býöur þriggja daga barnaskipti. Dvalið er í þrjá daga á sveitaheimilum á Suöurlandi og þátt- takendur skuldbinda sig til aö veita jafnöldrum úr sveitinni fyrirgreiðslu í Reykjavík. Aldur barna er 10—12 ára og fargjald 650 krónur.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.