Dagblaðið Vísir - DV - 24.05.1985, Qupperneq 7
DV. FÖSTUDAGUR 24. MAl 1985.
7
Neytendur Neytendur
Á blaðamannafundi voru kynnt hin ýmsu mál Garðyrkjufélagsins og sagt
frá fyrirhugaðri dagskrá f tilefni afmœlisins. Forsvarsmennirnir, Ólafur
Björn Guðmundsson, Óli Valur Hansson, Sigriður Hjartardóttir og Björgvin
Gunnarsson.
Garðyrkja í eina öld
Garðyrkjufélag Islands á aldar-
afmæli um þessar mundir og í tilefni
þess er mikil gróska í öllu félagsstarfi.
Fyrirlestrar hafa verið haldnir
mánaðarlega að Hótel Hofi nú í vor og
fylgt eftir meö fyrirlestrum úti um allt
land. Félagsmenn eru nú um sex þús-
und og til samanburðar má geta þess
að áriö ’65 voru sjötíu manns sem borg-
uðu árgjald. Deildir á landinu öllu eru
fimmtán talsins.
Afmælisfundur verður haldinn að
Hótel Sögu þann 26. maí — hvítasunnu-
dag — þar sem sitthvað verður til fróð-
leiks og skemmtunar. Garðaskoöun í
vor og sumar í Reykjavík og nágrenni
verður skipulögð fyrir félagsmenn,
fræðsluferðir frá Reykjavík og reynt
verður aö koma þar á fót blómasýn-
ingu ef hentugt húsnæði fyrirfinnst.
Afmælispeningur hefur verið sleginn,
hannaöur af Sveini Olafssyni, og
gerður í kopar. Hann verður gefinn út
númeraöur og í mjög takmörkuöu upp-
lagi.
Ársrit félagsins var fyrst gefið út
árið 1895 og var það á lífi til 1901. Þá
var hlé fram að árinu 1920 en eftir
það má segja að það hafi komið út
óslitið fram að þessu afmælisriti.
Fréttabréfið Garðurinn kemur út
nokkrum sinnum á ári og inniheldur
fundarboð, fréttir, fræðslupistla og
fleira tii félagsmanna. Mestallt starf á
vegum félagsins er unnið í sjálfboða-
vinnu og því kauplaust með öllu.
Fyrstu hvatamenn að stofnun félags-
ins voru landlæknirinn Georg Schier-
beck og Arni Thorsteinsson landfógeti.
Þetta var árið 1885 og aðalmarkmiðiö
meö stofnun félagsins að glæða áhuga
landsmanna á garðyrkju. Fyrstu árin
var megináherslan lögö á aö hvetja
Meöal annars sem á dagskrá hefur
verifl vegna aldarafmœlisins er út-
gáfa veglegs afmælisrits. Þafl er
hvorki meira né minna en 320 siður
og meðal efnis er ágrip af sögu
Garðyrkjufélags íslands eftir Einar
I. Siggeirsson og Ingólf Daviðsson.
menn til ræktunar hollra garðávaxta
og aðstoða við útvegun fræja,
garðyrkjuáhalda og fleira þess háttar
enda mikið rætt um kartöflur og rófur.
A síðari árum hefur áhugi á skrúðgarð-
yrkju aukist mjög og einnig bygging
gróðurhúsa og heimavermireita. Á
blaðamannafundinum kom fram að
þetta væri mjög kynbundið — karlam-
ir væru allir í trjánum og byggingu
gróðurhúsa en konurnar sýndu
blómunum meiri áhuga.
Skrifstofan er að Amtmannsstíg 6 og
þar er nú þegar kominn vísir að safni
innlendra og erlendra handbóka um
garðyrkju fyrir áhugasama leikmenn
með græna fingur. Og til þess að gerast
félagsmaður þarf nánast engin skilyrði
að uppfylla — einna helst að muna að
greiða árgjaldið sem er fimm hundruð
krónur þetta árið. baj.
HEILSUGÆSLUSTÖÐIN ÁRBÆ
HRAUNBÆ 102d—102e
hef ur fengið nýtt símanúmer
671500
Framkvæmdastjóri heilsugæslustöðva.
FÖSTUDAGSKVÖLD
i JIS HÚSINUI í Jl! HÚSINU
OPIÐ I ÖLLUM DEILDUM TIL KL. 8 i KVÖLD
GLÆSILEGT ÚRVAL HÚSGAGNA Á TVEIMUR HÆÐUM Kynning á Þykkva- bæjarkartöflum frá 3-7.
OPIÐ LAUGARDAG KL. 9-1 6
Munið okkar
hagstæðu
greiðslu-
skilmála
Jón Loftsson hf.
Hringbraut
121 Sími 10600
TM-HÚSGÖGN
NÝR HORNSÓFI FRÁ
Nú bjóðum við nýjan hornsófa sem er hannaður með það fyrir
augum að verða við óskum viðskiptavina.
Fallegur og fyrirferðarlítill sófi á vægu verði.
Síðumúla 30, sími 68-68-22.
jslensk hönnun.
Islensk framleiðsla.
Mjög góðir greiðsluskilmálar.