Dagblaðið Vísir - DV - 24.05.1985, Side 36

Dagblaðið Vísir - DV - 24.05.1985, Side 36
FRETTASKOTIÐ (68) • (78)*(58) Sími ritstjórnar: 68-66-11. Auglýsingar, áskrift og dreifing, sími 27022. Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt — hringdu þá i síma 68-78-58. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eða er notað i DV, greið- ast 1.000 krónur og 3.000 krónur fyrir besta fréttaskotið i hverri viku, Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn. FÖSTUDAGUR 24. MAÍ 1985. Stjórastríðið á Selfossi: Saf na undir- skriftumtil stuðnings bæjarstjóranum „F61k tekur vel 1 þetta, þaö er alveg greinilegt. Fólk vill ekki missa bæjarstjórann enda er hann mjög vinsæll i bænum,” sagði Gisli Sigurðsson, kennari á Selfossi, f samtaliviðDV. Gísli er einn af forsvarsmönnum undirskriftalista, sem ganga nú meðal íbúa Selfoss þar sem skoraö er á bæjarstjóm Selfoss að leysa ágreining bæjarstjórans og veitu- stjórans þar í bæ svo bæjarstjórinn hætti ekki störfum. Eins og kunnugt er hefur bæjarstjórinn sagt upp starfi sinu vegna ágreiningsins. „Við byrjuðum að safna undir- skriftum á miövikudagskvöld og hyggjumst skila þeím i hendur bæjarstjórnar fyrir helgi,” sagði Gfsli. „Það er mikill hugur i mönnum vegna þessa og að þessari undirskriftasöfnun stendur fólk úr öilum flokkum. Viö vonumst til að fá undirskriftir meirihluta bæjarbúa. Það hlýtur að hafa áhrif á lausn þessa leiöindamáls," sagði Gfsli Sigurðsson. -KÞ. Drengurinn sem græddur varáfingur: Alluraðkomatil Oddur Snær Magnússon, fjögurra ára snáðinn sem græddur var á fingur ekki alls fyrir löngu, er allur aö koma til aö sögn foreldra hans Sirrýar og MagnúsarKjartanssonar hljómiistarmanns. Eins og DV sagði frá missti Oddur litla fingur hægri handar þegar hann var að leik viö heimili sitt í Hafnar- firöi. Högnvaldur Þorleifsson læknir græddí fingurinn á og tók aögeröin 14 klukkustundir. „Við fórum með hann í skoðun fyrir nokkrum dögum. Rögnvaldur var mjög ánægður með strákinn,” sagði mamma Odds. „Hann er ennþá með umbúöirnar, en þaö er búið aö taka saumana. Sáriö virðist gróa vei, að minnsta kosti hafði nöglin á fingrinum vaxið það mikið að við þurfum að kllppa hana. Við eigum svo að koma með Odd til Rögnvalds i næstu viku f frekari rannsókn.” -KÞ. ómissandi Það er skítt að fá ekki einu sinni að hneyksl- ast á kvikmyndahá- tíðinni. Styrkleikatakmörk bjórf rumvarpsins gagnrýnd: ff Þýðir svartamarkaðs- brask með alvörubjór ff „Samkvæmt frumvarpinu yröi aldrei leyft að fiytja inn alvörubjór. Má þar nefna Löwenbrau, Gull- Tuborg og Heineken sem við getum keypt nú i Frfhöfninni. Astæðan er sú aö hann er yfir þeim styrkleika sem hæstu mörkin eru sett við i frum- varpinu,” sagði öm Johnson hjá Skorra hf., sem hefur umboð fyrir Löwenbrau-bjórinn. „Þaö er algerlega búið aö klúðra þessu frumvarpi. Þar er gert ráö fyrir aö ekki megi flytja inn bjór, sem er yflr 4 til 5 prósentum aö styrkleika. Sá bjór, sem ég nefndi er yf ir 5 prósentum til dæmis er Löwen- brau5,5prósent. Min skoðun er sú aö þetta þýði einfaliliega að svartamarkaösbrask á aivörubjór veröi stundaö i stórum stfl. Hér veröl á markaönum, ef af verður, einhvers konar milliöl, sull, sem alis ekki hefur sömu gæði og aivörubjór. Þess utan er meö þessu frumvarpi einungis verið að hygla innlendu framleiöslunni,sú innflutta veröur utan viö þar sem til dæmis eru gerðar kröfur um að bjórinn, sem hér komi til með að verða til sölu, verði með íslenskum merkimlðum. Ekki eru þær kröfur geröar um vin sem hér er selt i ríkinu.” — Munt þú þá ekki geta flutt inn Löwenbrau, ef frumvarpiö veröur samþykkt? „Við getum orðaö það svo að ég get ekki boðið upp á þau gæði sem ég hefði viljað,” sagði örn Johnson. Sá bjór, sem seldur er i Frihöfninni hér, Karlsberg, Gull-Tuborg og Hein- eken er mllli 5 og 6 prósent að styrk- leika að sögn Frihafnarmanna. Is- lenski bjórinn sem þar er seldur, Thuie og Pólar, eru það einnig, sá siðamefndl er reyndar f uil 6 prósent. Þá er mjög nýlega farið að selja í Fríhöfninni Elefantbjór sem Karl K. Karisson hefur umboð fyrir. Er sá bjór hátt i 9 prósent aö sty rkleika. Samkvæmt þessu, og verði frumvarpið samþykkt, verður Fríhafnarbjórinn ekki leyfilegur á Islandi. -KÞ. ’W Vinnuslys varð á afgreiðslu Hafskips við Austurbakka í gœrmorgun. Ungur maður sem var að vinna viö uppskipun og stóö við lúgukarm í skipinu varð á milli karms og timburstæðu. Maöurinn var lagður á sjúkrahús mjaðmargrindarbrotinn. DV-mynd S. Bjórinn i Þá er bjórinn kominn í þá efri. I gær fór fram atkvæöagreiðsla í neðri deild Alþingis um bjórfrumvarpið. Endanleg afgreiðsla á frumvarpinu úr neðri deild var að 20 þingmenn greiddu atkvæði með bjórnum, en 16 reyndust andstæðingarnir. 4 voru fjarstaddir. Tvö ákvæði í breytingatillögum Hjörleifs Guttormssonar voru sam- þykkt en eitt fellt. Fellt var að 99% af hagnaði af sölu áfengs öls rynni til Framkvæmdasjóðs aldraöra. Eftir fyrstu umræðu um bjórfrum- varpið í efri deild í dag má búast við að því verði vísað til ailsher jamefnd- ar. Formaður þeirrar nefndar er Haraldur Olafsson (F). Aðrir nefnd- annenn eru Salome Þorkelsdóttir, Eiður Guðnason, Helgi Seljan, Eyj- ólfur Konráð Jónsson, Stefán Bene- diktsson og Valdimar Indriðason. Sagt er að aöeins eins atkvæðis meirihluti sé fyrir bjómum í efri deild. -ÞG Níðurstöður samræmdu prófanna á leiðinni: Utkoman svipuð og var í fyrra Yfirferð samræmdu prófanna er nú loKÍð. Verður byrjað aö senda niöurstöðurnar til skóianna i dag, föstudag. „Utkoman úr þessum prófum er ósköp svipuö og hún var 1 fyrra, hvorki verri né betri,” sagði Hrólfur Kjartansson hjá menntamála- ráðuney ti, í samtali viö DV. Aöspurður hvaöa skóli kæmi best út úr þessum prófum, sagöist Hrólfur ekki geta svarað þvi þar sem það væri trúnaðarmáL Prófin i ár vom ósköp svipuö og undanfarin ár nema hvaö fyrir- komulag þeirra, þaö er að segja hvað varðar einkunnir, er með breyttu sniðL Nú er ekki lengur notuð svoköliuð normalkúrfa, þar sem fyrirfram er ákveöið hversu margir skuli ná bestu einkunn, þeirri næst- bestu og svo framvegis. Ekki er lengur gefið i bókstöfum, heldur er gefiö i tölustöfum og er skalinn miili 1 og 10, rétt eins og i gamla daga. -KÞ. Godard ífýlu W4 \ 4 Franski kvikmyndaleikstjórinn Jean Luc Godard, sem boðið hafði verið hingað til lands sem gesti kvik- myndahátíðar hefur afþakkaö það boö. Þar með fellur úr dagskránni hin umdeilda mynd hans Eg heilsa þér María. Godard ætlaði sjálfur að koma með myndina hingað tii lands. Astíeða þessa mun vera sú aö Godard er í fýlu. A kvikmyndahá- tíðinni í Cannes fékk mynd hans ekki þær undirtektir sem hann vonaðist eftir. Fékk hún engin verðlaun en það sem verra var, Godard fékk rjómaköku i fésið frá reiöum áhorf- anda. Það mun sem sé ekki standa sem best í bólið hjá Godard þessa dagana og þess vegna afþakkaöi hann boð kvikmyndahátíðar. -KÞ. 4 4 i 4 4 4

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.