Dagblaðið Vísir - DV - 25.07.1985, Síða 15
DV. FIMMTUDAGUR 25. JULI1985.
15
Lesendur Lesendur Lesendur |
Anthroposofísk f ræði
— leið til heilbrigðara lífs
Þuríður Stefánsdóttir, Ásbúð 46,
Garðabæ skrifar:
Á björtum sumardegi er þessi pistill
skrifaður, hugsaöur sem vakning til
allra þeirra sem áhuga hafa á anthrop-
osofísku starfi á Islandi.
Hvað er anthroposofískt starf?
spyr nú margur. Jú, því er til að svara
i stuttu máli að slflct starf byggist á
heimspekikenningum mannvinarins
Rudolf Steiner sem uppi var i Mið-
Evrópu árin 1861—1925. Hann gaf
mannkyni hreint ótrúlegan fróðleik í
formi fyrirlestra sinna er hann hélt
viða um heim til að gefa sem flestum
hlutdeild í auðlegð þeirri sem hann
átti. Hún var í formi óvenjulegra gáfna
og andlegs innsæis. 1 þessum fræðum
miðlar hann þekkingu öllum þeim sem
vilja rata veg heilbrigðara lífs í ljósi
þess að vér erum andlegar verur. I dag
er mikið starf byggt á þessari
þekkingu; m.a. í formi skóla- og
uppeldisstarfs víöa um heim. Nú um
skeiö hafa fáeinir aðilar unnið aö
uppbyggingu slíkrar starfsemi hér
á landi. Enn fleiri eru væntanlegir
erlendis frá að loknu námi í anthrop-
osofískum uppeldisfræðum til að hefja
starf.
Til að hægt sé að gróðursetja tré eða
blóm þarf frjóan jarðveg svo að
gróðurinn dafni. Því vil ég biðja þá
sem vilja gerast styrktarfélagar
anthroposofískrar starfsemi aö taka
nú höndum saman og sameina krafta
sina í raunhæf u starfi og námi.
I\l II Lll IU Ul.
Síöumúla 4, s. 91-687870
Tímarit fyrir alla
í rúminu, flugvélinni, bílnum,
kaffitímanum, útilegunni,
ruggustólnum, inni í stofu.
Hvar sem er, ef því er að
skipta, er upplagt
að lesaÚRVAL.
Júlí-
heftið
komiðé
blaðsölu
staði
Áskriftarsíminn er
27022
SKÓVAL
VID ÓDINSTONU
Karlmenn. . .
Nýkomnir beygjuklossarnir góðu, takkatöflur og fl.
Mjög góðir skór fyrir þá sem vinna á steingólfi.
*
Allar stærðir af strigaskóm,
íþróttaskóm, stígvélum.
*
Aukum enn gott úrval
af skóm á alla fjölskylduna. Margar gerðir af töflum
(takka), inniskóm, söndulum og götuskóm.
§
Þreyttir fætur fá örugglega
skó við sitt hæfi.
SKOVAL
VIÐ ÓÐINSTORG
ÓÐINSGÖTU 7, SÍMI 14955
SKÓVERSLUN FJÖLSKYLDUNNAR
Seljum í dag
Saab 99 GL supar árg.
1978,
4ra dyra, hnetubrúnn,
beinskiptur, 4ra gira, ek-
inn 140 þús. km, góður
blll.
TOGCUR HF.
SAAB UMBOÐIÐ
BÍLDSHÖFÐA 16.
SÍMAR 81530 OG 83104