Dagblaðið Vísir - DV - 25.07.1985, Blaðsíða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 25.07.1985, Blaðsíða 26
26 DV. FIMMTUDAGUR 25. JULI1985. „Sagan kemur til með að leggja sinn dóm á þessa ráðstefnu og allar hennar samþykktir." Gerald Ford. og vesturvelda. Samþykktar voru vissar skoröur á heræfingum hvors aöila um sig og skuldbundu vamar- bandalögin tvö sig til aö tilkynna hinu um fyrirhugaðar heræfingar meö vissum fyrirvara. Aö auki var samþykkt aö ef fjöldi hermanna á heræfingum færi yfir ákveðið mark skyldi viðkomandi þjóö eða hemaðarbandalag leyfa fuiltrúum hins aö fylgjast meö. Skyldi siík sam- vinna og uppiýsingaskyida hemaðaryfirvalda draga úr spennu og óvissu um hemaðarbrölt gagnaöilans. Endalaust ráðstefnuhald Þrátt fyrir endalaus skoöanaskipti um raunverulegt mikilvægi Helsinki- sáttmálans eru flestir þó sammála um aö áframhaldandi fundahöld þátttökuríkjanna 35 síöustu tíu ár hafi verið til hagsbóta. Árangurinn hafi reyndar ekki veriö mikill en rík- in hafi haft allt að vinna og engu aö tapa. I kjölfar Helsinkisáttmálans hafa þátttökuríkin fundað um evrópsk öryggismál reglubundiö. Oryggismálaráðstefna Evrópu hefur verið haldin í beinu framhaldi af samþykktum Helsinkisáttmálans. Rikin komu saman í Belgrad 1978, í Madrid reglulega frá 1980—1983, i Stokkhólmi á síðasta ári og búiö er aö boöa til næsta fundar rikjanna 35 í Vínarborg á næsta ári. Eftir að Reagan komst til valda í Bandaríkjunum hefur hann verið óvæginn í gagnrýni sinni á meint brot Sovétmanna á Helsinkisátt- málanum. Forsetinn hefur harölega gagnrýnt Kremlverja fyrir aö til- kynna ekki um meiriháttar her- æfingar meö réttum fyrirvara og bjóða ekki fulitrúum Atlantshafs- bandalagsins að fylgjast meö. Formlegt afmælisboð Þátttökuríkin, Bandaríkin, Kan- ada og öll ríki Evrópu nema Albanía, senda utanríkisráðherra sina til Helsinki 1. ágúst næstkom- andi til aö minnast tíu ára afmælis undirritunarinnar meö pomp og prakt. Fréttaskýrendur telja að „afmælisfagnaöurinn” verði nær eingöngu formlegheit. Þó hafa menn ekki gleymt því tækifæri er fuiltrú- um gefst til óformlegra viðræðna á meöan á afmælisboðinu i Helsinki stendur. Á öðrum vettvangi Helsinkisam- þykktanna er litið um raunverulegan ávinning. Sex vikna ráðstefnu um mannréttindamál, er haldin var í Ottawa, lauk í skipulögðu fússi þátt- tökuríkja. Eins og einn stjórnar- erindrekinn orðaði það: „Menn virt- ust aðeins sammála um aö vera ósammála.” Fyrirhuguð er ráöstefna í Bem í næsta mánuði um fjöiskyldumál og vegabréfsáritanir. Fundafúss í Ottawa er ekki tilefni mikillar bjart- sýni um árangur þeirrar samkomu. Sambúð stórveldanna fór kólnandi eftir innrás Sovétmanna i Áfganistan í desember 1979 og ólguna í Póllandi áriðeftir. Kalda stríðiö virtist aftur komiö í algleyming og samskipti stórveld- anna voru með minnsta móti. Á síðustu fimm árum hefur ráö- stefnuvettvangur Helsinkisáttmál- ans verið eina tilefni þar sem fulltrú- ar stórveldanna hafa komið saman og fundað um stöðu sína. Stjóm- málaskýrendur telja að þrátt fyrir litinn afrakstur alls fundahaldsins til þessa megi greina örlitla vonarglætu í samskiptum stórveldanna. Sú vonarglæta sé til komin vegna þess lágmarkssambands sem tekist hefur að halda vegna reglubundinna funda öryggismálaráðstefnunnar og þeirra óformlegu stórveldaviðræðna sem þar hafi átt sér stað. Fordþiðan skjalfest. Ford Bandaríkjaforseti 09 Brósnef, leiðtogi Sovétríkjanna, við undirritun Helsinki- sáttmðlans 1. ógúst 1975. Utanríkisróðherramir, Kissinger og Gromyko, óttu drjúgan þótt í undirbúningi ráðstefnunnar. Tíu ár f rá undirritun Helsinkisáttmálans: Mikilvægur fríðar- áfangi eða marklaus pappírssnepill? Evrópu. Með undirskrift Helsinki- sáttmálans fengu þau formlega staðfestingu vesturveldanna á þess- ari landamæraskipan. Vesturveldin lögðu megináherslu á aö fá Sovétrík- in til að samþykkja ákveðin grtmd- vallaratríði er vörðuðu mann- réttindamál. Að áliti Vesturlanda höföu mannréttindi löngum verið fótum troðin í Sovétríkjunum og nú sóttu þau fast aö Kremlverjum um endurbætur. Megininntak Helsinkisáttmálans Mikilvægustu atriði sáttmálans koma fyrir í þrem síðustu köflum Hið glœsilega Finlandia hús í Helsinki þar sem þátttökuríkin 35 skrrfuðu undir. hans. öryggismál í Evrópu, sam- vinna á sviði efnahagsmála, vísinda, tækni og umhverfismála, auk sam- starfs á sviði mannréttindamála. Sá hluti sáttmálans er fjallaði um öryggismál Evrópu tiltók tíu grund- vallaratriði um samskipti ríkja er farið skyldi eftir. Fullkomið jafnræði á milli fullvalda og sjálfstæðra ríkja, ríki skyldu ekki hóta beitingu her- valds eða beita við framkvæmd utanríkisstefnu, óvefengjanleg landamæri, engin afskipti af innan- ríkismálum hver annarra og virð- ing fyrir mannréttindum og grund- vallarréttindum einstaklinga. Á sviði mannréttindamála sam- þykktu ríkin 35 að virða grundvallar- mannréttindi eins og skoðana- og tjáningarfrelsi einstaklingsins, að auðvelda samskipti vina- og vensla- fólks er byggi hvort sinum megin við jámtjald og minnka hömlur stjóm- valda á upplýsingastreymi til borgaranna. Á sviði hermála var samþykkt að auka samskipti á milli herja austur- „Ekki benda ó mig". Helsinki- sóttmólinn í höfn en menn greinir ó um efndirnar. Sífelldar ósakanir stórveldanna um brot ó sáttmólanum hafa stórlega grafið undan trú manna ó mikilvsagi hans. En ófram halda fundahöldin. Útlönd Útlönd Útlönd Útlönd „Mikilvægur sigur fyrir þá er aðhyllast frið og öryggi á plánetu okkar." Leonid Brésnef. „Mikilvægur sigur fyrir þá er að- hyilast frið og öryggi á plánetu okkar,” sagði Leonid Brésnef, leið- togi Sovétríkjanna, 1. ágúst 1975, fyrir tæpum tíu árum, við undirskrift Helsinkisáttmálans um frið og ör- yggi í Evrópu. Með samþykkt öryggissáttmálans hófst samvinna 35 Evrópuríkja um öryggis- og vígbúnaðarmál er miðaði að slökun spennu í álfunni og þíöu í samskiptum ríkja. Meö undirritun sáttmálans skuld- bundu málsaðilar sig til að virða ríkjaskipan þá og stöðu landamæra sem komist hafði á við lok síðari heimsstyrjaldar. Fyrir tíu árum var slökunarstefna stórveldanna í algleymingi. Aðeins voru liðin þrjú ár frá undirritun SALT I samningsins um takmörkun kjarnavopna auk toppfunda leiðtoga Bandaríkjanna og Sovétríkjanna á skömmu tímabili. Andi slökunar lá í loftinu. Sljákkað hafði í norðangarra kalda stríðsins og raunverulegur vilji virtist vera á batnandi sambúð austurs og vesturs. Auðmýking Bandaríkjamanna í Víetnam til- heyrði sögunni. Töluvert var enn í grimmdarverk Rauða hersins í Afganistan. Leiðtogi Sovétríkjanna var bjart- sýnn í ávarpi sínu eftir lokaundir- skriftina í Finlandia húsinu í Hel- sinki. Utanríkisráðherrar 35 Evrópu- ríkja, báðum megin járntjalds, höfðu sameinast í ailsherjarsáttmála friðar og samvinnu Evrópuríkja. Aldrei áður hafði slík samþykkt ver- ið gerð. Ekki þurfti gamalmenni til að minnast stríðshörmunganna í Evrópu fyrir aðeins rúmum þrem áratugum. Bjartsýni þjóöarleiötoga var þó bundin vissu raunsæi. Gerald Ford, þáverandi forseti Bandaríkjanna, varaði menn við og sagði að raunverulegur friður væri annað og meira en undirskrifað pappírssnipsi. „Sagan kemur til með að leggja dóm sinn á þessa ráðstefnu og allar hennar samþykktir. Ekki vegna þeirra loforða er við efnum til heldur hvemig okkur teksf að efna þau,” sagði Bandaríkjafors _*ti. Ágreiningur urn mannréttindaákvæði Að tíu árum liðnum eru menn ekki sammála um hvort samþykktir Hel- sinkisáttmálans hafi i raun náð markmiði sínu og dregið úr spennu ríkja á milli. Vestræn ríki, með Bandaríkin í broddi fylkingar, hafa sakað Sovétmenn og fylgifiska þeirra í Austur-Evrópu um síendur- tekin brot á mannréttindaákvæðum sáttmálans. Minnst er á fangelsanir pólitískra andófsmanna og skort á ferðafrelsi borgara i rikjum austan- tjalds. Tregða sovéskra yfirvalda tii að leyfa fólki að flytjast úr landi hef- ur einnig verið ofarlega á baugi. Sovétmenn ásaka Vesturlönd hins vegar fyrir aukinn vígbúnað í Evrópu og fyrir afskipti af innan- ríkismálum með því að gagnrýna meint brot á mannréttindum í Sovétríkjunum. Fékk hver sitt? Það er almennt álit stjómmála- skýrenda á Vesturlöndum að með Helsinkiundirrituninni hafi náðst ákveðin málamiðiun á milli austurs og vesturs. Austurblokkin sótti það fast að fá formlega viðurkenningu vesturveld- anna á iandamæraskipan í Evrópu eftir stríð. Sovétrikin telja það höfuð- atriði í utanríkisstefnu sinni að tryggja vesturlandamærin gegn hugsanlegri óvinainnrás meö vin- veittum landamæraríkjum Austur- Umsjón: Hannes Heimisson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.