Dagblaðið Vísir - DV - 31.08.1985, Qupperneq 5
DV. LAUGARDAGUR 31. ÁGUST1985.
5
Félag alifuglabænda mótmælir nýjum framleiðsluráðslögum:
Tilnefna ekki fulltrúa í Framleiðsluráð
„Viljum dreifa okkar framleiðslu með frjálsum hætti,” segir formaðurinn
Félag alifuglabænda sendi ekki
fulltrúa á aöalfund Stéttarsambands
bænda sem stendur yfir á Laugar-
vatni. Þá hefur félagið einnig ákveðið
að tilnefna ekki fulltrúa í 10 manna hóp
sérgreinasambanda sem á að taka sæti
í Framleiðsluráði.
„Ástæðan er sú að viö höfum frá
upphafi mótmælt hörkulega nýjum
framleiðsluráöslögum. Kosningar á
aðalfundinum áttu aö reka enda-
hnútinn á að koma okkur inn í þetta
nýja kerfi,” sagði Einar Eiríksson, for-
maður Félags alifuglabænda, við DV
um ástæöuna fyrir því að félagið vildi
ekki tilnefna fulltrúa.
Félag alifuglabænda standur á bak
við um 2/3 hluta af allri eggjafram-
leiðslu. Einar var spurður hvaða af-
leiðingar þetta hefði fyrir félagið.
„Við munum halda áfram aö berjast
fyrir því að halda áfram að dreifa
okkar framleiðslu með frjálsum hætti
líkt og verið hefur. Við viljum ekki að
komiö verði á framleiðslustjómun og
teljum að meö því sé verið aö skapa
sama vanda og við er að glíma í hinum
hefðbundnu búgreinum þrátt fyrir
stjómun á þeim síðastliöin 40 ár,”
sagði Einar.
Félag alifuglabænda var stofnað í
fyrra og var þá stofnað vegna klofn-
ings Félags eggjaframleiðenda.
APH
Mannréttindi
fótum troðin
— Lögvernd opnar skrifstof u
^"torfærukeppni|
Samtökin Lögvernd, félagsskapur
sem vinnur gegn því að mannréttindi
hins almenna borgara séu fótum troðin
hér á landi, hafa opnað skrifstofu í
Armúla 19 í Reykjavík. Er fyrirhugað
að hafa hana opna frá klukkan 18 til 21
alla virka daga.
I fréttabréfi frá Lögvernd segir
meðal annars: „Við hljótum að vera
orðin þreytt á hinum endalausu hótun-
um sem við erum beitt frá f jölmiðlum.
Opnaðu útvarp og þú heyrir: „Frá
hinu opinbera. . . o.s.frv.” Líttu í dag-
blaö og við þér blasa auglýsingar um
nauðungaruppboð í hundraðatali. Allt
þetta hefur viðgengist átölulaust allt of
lengi og því þarf að breyta tafarlaust.”
„Hækkun
íhafi”
snarlega
lækkuð
— þar með breyttist
afkoma álversins
úr tapi íhagnað
Breska endurskoðunarfyrirtækið,
Coopers & Lybrand, hefur gert athuga-
semd við ársreikning tslenska ál-
félagsins fyrir árið 1984. Það vill láta
lækka innkaupsverð á því súráli sem
keypt var 1983 og notað í fyrra, 1984.
Við þetta breytist afkoma fyrirtækis-
ins, fer úr 18,4 milljón króna tapi í 600
þúsund króna hagnað.
Framleiðslugjald Islenska álfélags-
ins, sem fyrirtækið greiddi vegna
ársins 1984, án tillits til fyrrgreinds
taps, var sem næst 1,5 milljónir dollara
eða um 51,6 milljónir króna.
Niðurstaða endurskoðunarinnar
hefur ekki áhrif til hækkunar á fram-
leiðslugjaldi Isal fyrir árið 1984 þar
sem hagnaður félagsins er mun lægri
en fastagjaldið sem það hefur þegar
greitt.
Þess má geta að íslenska ríkis-
stjómin og Alusuisse sömdu 17. júlí
síðastliðinn um nýjar viðmiðunar-
reglur sem eiga að koma í veg fyrir
ágreining um verðlagningu afurða Isal
og aðfanga til framleiðslunnar hér eft-
ir-___________________-JGH.
Ekkertboð
íEimskips-
né Raf ha-bréf
Ekkert tilboð hefur borist í hlutabréf
ríkissjóös í Eimskipafélagi Islands.
Ekkert tilboð hefur heldur borist í
hlutabréf ríkissjóðs í Rafha.
Að sögn Þorsteins Guðnasonar hjá
Fjárfestingarfélagi Islands, sem
annast söluna fyrir hönd ríkisins, hafa
nokkrir aðilar sýnt áhuga á hluta-
bréfum ríkisins í fyrrgreindum fyrir-
tækjum. Vonaðist Þorsteinn til að
tilboð bærust. -KMU
I Lögvernd eru nú 300 félagar.
maður er Anna Kristjánsdóttir.
For-
• Anna Kristjánsdóttir, formaður
Lögverndar: — Við erum orðin
þreytt á endaiausum hótunum.
DV-mynd GVA.
•}v«
i}\*
•}\*
’M
!}S
•}\«
•}\«
• «
}\*
•}\«
•}\«
VIÐ GRINDAVIK
verður haldin sunnudag 1. sept. kl. 14.
•iv
í S
m\%Z
!«■
•v
•S j
Ókeypis
fyrir börn.
KEPPT í TVEIMUR FLOKKUM:
Sérútbúnum bílum og götubílaflokki.
AÐGÖNGUMIÐI GILDIR SEM 10% AFSLÁTTUR í
BÍLABÚÐ BENNA. (MEKKA JEPPAMANNSINS.)
Góð skemmtun fyrir alla fjölskylduna.
Akið ekki utan vega.
•^Bíldbúð
Vagnhöföa 23
Lé 110 Reykjavik
Aukahlutir Varahlutir Sérpantanir Simi 685825
VAGNHJ®LIÐ
Véiaupptekningar
Vatnskassar og vólahlutir |
i ameriska bila á lager
M|og hagstætt veró
ív.v.r.v.n'r.r.r.^r.n'.ir.r.r.ir.r.r.r^ir.'.r.'.r.r.r.nn'r.r.r.r.r.r.'.r,
TILBOÐSHELGI
MIKLATORGI
POTTAPLÖNTUR,
20-50% AFSLÁTTUR
T.d. burkni kr. 200,-, áður kr. 300,-
Ástareldur kr. 200,-, áður kr. 250,-
Sértilboð á stórum
kærleikstrjám, kr. 140,-,
áður kr. 250,-
Smáplöntumarkaður
Hedera 90 kr. Kóngavínviður 90 kr.
Kaffitré 90 kr. Haimilisfriður 90 kr.
Slöngutré 90 kr.
Á grænmetismarkaðnum:
Krœkiber, 1 /2 kg, 40 kr. Tómatar, 1 kg, 72 kr.
Rifsber, 1 /2 kg, 85 kr.
Heimilisvöndur á aðeins kr.
180,-
T^r
'dSOC0 a. ölluro pottahlífum og
gjafavörum-
*}V
•Jv
•}v
•}v
*}v
*}v
•}v
■}v
•}v
*}v
•}y
•}v
•}v
»}v
•}v
:js
:jj:
»}y
:S
*}v
:«:
I
•}v
:U:
•}v
:lj:
I
»SV
•}v
|
I
i
I
I
k
1
1
»}\