Dagblaðið Vísir - DV - 31.08.1985, Síða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 31.08.1985, Síða 10
DV. LAUGARDAGUR 31. ÁGUST1985. íbúð óskast 2ja til 3ja herbergja íbúð óskast til leigu fyrir starfsmann okkar. Upplýsingar í síma 83366. PRENTSMIÐJAN ODDI. Starf í brunadeild Óskum eftir að ráða starfsmann í brunadeild til almennra skrifstofustarfa. Æskilegt að umsækjendur geti byrjað sem fyrst og hafi til að bera hæfni í skrifstofustörfum. Umsóknareyðublöð og upplýsingar hjá starfsmannahaldi, Ármúla 3, sími 81411. SAMVINNU TRYGGINGAR ARMULA3 SIMI 81411 STARF í SKÝRSLUVÉLADEILD Óskum eftir að ráða operator í skýrsluvéladeild vegna tölvukaupa. Æskilegt að umsækjendur hafi góða undirstöðumenntun. Hér er um að ræða lifandi starf fyrir réttan og áhugasam- an aðila. Nánari upplýsingar og umsóknareyðublöð hjá starfs- mannahaldi, Ármúla 3, sími 81411. SAMVINNU TRYGGINGAR ÁRMÚLA3 SÍMI81411 Rover 3500 83 Til sölu ROVER 3500 VAIM-DEN-PLAS '83 ekinn 57 þús. km, sóllúga, rafmagn í rúðum og speglum, mjög fullkomin ökutölva (test-tölva), beinskiptur, aflstýri, aflbremsur. Má ath. með ódýrari bíl upp í. Þetta er einn alveg sérstakur. BÍLASALA MATTHÍASAR v/Miklatorg. Símar 24540 - 19079. GRUNNSKÓLINN Á ÍSAFIRÐI AUGLÝSIR SÉRKENNARAR— ÞROSKAÞJÁLFAR Grunnskólinn á Isafirði óskar að ráða til sérdeildar skólans 1. Forstöðumann 2. Kennara og þroskaþjálfa i störfunum felst annars vegar skipulagning og uppbygging sérdeildar og hins vegar kennsla og þjálfun nemenda á þjálfunar- og hæfnisskólastigi. Ennfremur sérkennsla rtemenda í hinum almenna grunn- skóla. Hér er um nýjan starfsvettvang að ræða sem býður uppá fjölbreytt viðfangsefni og spennandi uppbyggingar- starf. Nánari upplýsingar veita formaður skólanefndar grunnskólans, Lára G. Oddsdóttir, í síma 94-3580, skóla- stjóri grunnskólans, Jón Baldvin Hannesson, í símum 94- 3146 og 94-4294 og sérkennslufulltrúi fræðsluskrifstofu Vestfjarða, Valborg Oddsdóttir, í síma 94-3855. Skólanefnd. Hringferð um landið Síðasti hluti FJALLGANGA 0G HÓTELDVÖL Eins og ég sagöi frá i síðasta þætti hafði konan mín spáð bliðviðri fram að helgi enda fór svo að það stytti ekki upp þá daga sem við áttum eftir að dvelja á Austurlandi. Á suðurleiöinni brá hins vegar til betri tíðar og þar hafði sýnilega ekki rignt mikið því að Blautakvísl var til dæmis álíka blaut og æðsti templar Stórstúku Islands og fannst okkur dálítið einkennilegt að aka yfir brú sem engin á rann undir. Enn undarlegra fannst okkur þó þegar okkur var sagt í Skaftafelli að þar væri foss sem ekkert vatn væri í ogvildustrákar fara og skoða þennan foss og voru alveg jafnstaðráðnir í því þótt ég segði þeim að þeir gætu alveg eins skrúfað frá biluöum krana og horft á hann. Upp að fossinum var nefniiega tveggja stunda gangur fyr- ir venjulegt fólk aö sögn þeirra sem til þekktu en ég lagði ekki í að reikna út hvað ég yrði þá lengi á leiðinni. — Væri ykkur ekki sama þótt við færum bara og skoðuöum Skeiðarár- sand? lagði ég til málanna. Skeiöar- ársandur er nefnilega á jafnsléttu og þar aö auki virtist mér stutt að fara. Ekki voru strákar hrifnir af þess- ari uppástungu og sögðu að ef þá langaöi til aö horfa á sand gætu þeir gert það í sandkassanum heima hjá sér. — Ur hverju eru sandkökur búnar til? spurði sá fimm ára þegar við vor- um lagðir af stað upp að vatnslausa fossinum. — Ætli þær séu ekki búnar til úr hveiti og smjöriíki, sagði ég másandi og blásandi þar sem við vorum farn- ir aö ganga upp í móti. — Eru þær þá ekki búnar til úr sandi? spurði sá fimm ára og var al- veg hissa á þessu. Eg kunni ekki viö aö segja hon- um að gyðingakökur væru líka búnar til úr hveiti og smjörlíki enda var mér orðið dálitið erfitt um mál en komst þó ekki hjá því að spyrja hvort hann væri orðinn brjálaður þegar hann bað mig allt í einu að bera sig á háhesti það sem eftir væri upp að fossinum. — Ef þú ert orðinn þreyttur getum við snúið við mín vegna, sagöi ég en þá var sá stutti ekki þreyttari en svo að hann fór að hlaupa upp eftir stígn- um og sagðist bara hafa verið aö grínast. Þeir sem hafa lent í þeim lífsháska að fara í fjallgöngu eftir að hafa gengið i hæsta lagi á milli stofunnar og eldhússins heima hjá sér síðastliö- in þrjátíu ár vita að til að byrja með veröur maður alveg ógurlega móður, síöan fær maður verk í kálfana og að lokum sinadrátt í tæmar og þegar svo er komið óskar maður þess heitt og innilega að einhver fossspræna komi í ljós svo að maöur geti skrökv- að því að afkvæmi sínu að nú séum við loksins komnir að fossinum og því mál að halda til baka. Sem betur fer þurfti ég ekki aö grípa til þessa ráös því að stuttu áður en ég ákvað aö gefast upp hvað sem hver segði kom í ljós foss og þegar sá fimm ára spurði hvort þetta væri fossinn sem við ætluðum að skoða var ég alveg ógurlega fljótur að játa því. Á niðurleiðinni bar fátt til tíöinda og þegar viö höfðum aftur jafn- sléttu undir fótum kom okkur feögunum saman um að þaö væri lítill vandi að stunda svona göngu- feröir að því tilskildu að fjalls- hlíðarnar lægju eingöngu niður í móti. Hóteldvöl Við hefðum vafalaust skemmt okk- ur lengur í Skaftafelli ef við hefðum ekki átt bókað tveggja manna her- bergi talsvert langt frá þjóðgarðin- um og urðum við að vera komin á hóteliö að sögn konunnar minnar að minnsta kosti áður en við færum að sofa. Á hótelinu komumst við að raun Fimm hundruð manna mót i Flórída — Spassky, Seirawan og Benjamin deildu sigrinum Það er ekki á hverjum degi sem skákmót er haldið á glæsihóteli þar sem finna má hér um bil allt sem hugurinn gimist. Opna bandaríska meistaramótið fór fram á einu sliku, í Hollywood í Flórída, og virtist íburður þar engu minni en í kvik- myndaborginni frægu í Kalifomíu. Við hótelið er baðströnd, golf- og tennisvöllur og verslunarmiöstöð svo fátt eitt sé talið og þar leið skák- mönnum eins og kóngum á borði sínu. Tæplega fimm hundruð skákmenn frá ýmsum löndum tóku þátt í mót- inu, þar af fimm Islendingar: Sævar Bjarnason, Dan Hansson, Ingvar Ás- mundsson, Jóhann Þórir Jónsson og Þorsteinn Gauti Sigurðsson píanó- leikari sem býr í Flórída. Islending- unum tókst ekki að ná í sneið af verð- launafénu, sem var samtals 30 þús- und dalir, en Þorsteinn Gauti hlaut sérstaka viðurkenningu fyrir frammistöðu sína sem stigalaus skákmaður. Heimsmeistarinn fyrrverandi, Boris Spassky, var heiðursgestur á mótinu og ásamt honum voru líklegir til þess að blanda sér í baráttuna Yasser Seirawan, Bandaríkjameist- arinn Alburt, Dzindzhihasvhili (fjár- hættuspilarinn með langa nafnið) og góðkunningjar okkar Islendinga de- Firmian, Lein og Gurevic. Séra Lombardy var einnig meðal þátttak- enda, eða a.m.k. einhver sem líktist honum. Hann var fremur fámáll við íslensku keppendurna. Og Florencio Campomanes, forseti Alþjóðaskák- sambandsins, tefldi með en hann mun hafa átt erfitt uppdráttar gegn „minni spámönnunum”. Spassky tókst að reka af sér slyðruorðið og varð efstur ásamt Seirawan og Benjamin með 10 v. af 12 mögulegum. Spassky tefldi af meiri hörku en oft áður en leyfði þó nokkur jafnteíli gegn lítt þekktum skákmönnum, m.a. gegn kornungum Bandarikj amanni. I síöustu umferð vann Spassky Lev Alburt auðveld- iega og Benjamin vann Bandaríkja- manninn Kogan. Joel Benjamin vakti heimsathygli er hann varð yngsti Bandaríkjamaðurinn nokkru sinni til þess að ná meistarastyrk- leika — sló met Bobby Fischers um nokkra mánuði. Nú er Benjamin liö- lega tvítugur og á 2535 stig þótt ekki sé hann enn orðinn stórmeistari. Seirawan, sem tryggöi sér sæti í áskorendakeppninni á dögunum, lét sér nægja jafntefli í síðustu umferð- inni gegn þeim skákmanni sem mest kom á óvart á mótinu. Dozorets heit- ir sá og er tiltölulega nýfluttur til Flórída frá Sovétríkjunum. Þar hef- ur hann varla verið nema miölungs skákmaður en í Ameríku mátar hann alla. Þykir góður í flækjunum og strategían er á stundum dýpri en gengur og gerist. Hann er kominn af léttasta skeiði en fróðlegt verður að fylgjast með því hvort hann nær aö koma undir sig skákfótunum í nýja landinu. Næstir á eftir þeim þremenningun- um komu Robert Byrne, Dozorets, Joshi og Celerio — nöfn sem utan eitt eru framandi í skákdálkum. Þeir hlutu 91/2 v. og tókst að skáka mörg- um meistaranum. Meðal þeirra sem hlutu 9 v. voru Gurevic og Lein. Af Islendingunum hlaut Sævar flesta vinninga, 8 1/2, Dan hlaut 8 v., Jóhann Þórir 7 v. og Þorsteinn Gauti 5 1/2 v. Ingvar varð að hætta keppni eftir 7 umferðir en var þá kominn með 6 v. Sævar var rétt við verð- launapallinn en sagðist hafa teflt of vélrænt. Þó kom það sér vel gegn mótherjum sem vildu leita á vit ævintýra. I einni skákinni vildi óþekktur Bandaríkjamaður afstýra drottningakaupum og jafnteflislegu endatafli og lék drottningu sinni út í horn, til a8. „Ég hef aldrei fengiö vitlausari leik á móti mér,” sagði Sævar sem lék hrók til c7 og þar með var andstæðingurinn óverjandi mát. Dan tefldi nokkrar fjörugar skákir og „grjótgarðsvörn” Jóhanns Þóris reyndist bæði vel og illa. Bandaríkja- mennimir neyttu allra bragða gegn honum. Einn kom með skákklukku sem gekk ekki nema öðrum megin og þarf ekki að spyrja hvorum megin það var. Ingvar tefldi vandað og lét ekki slá sig út af laginu í byrjuninni eins og svo oft áður. Nú kom hann vopnaður drekaafbrigðinu alræmda af Sikil- eyjarvörn. Hann fékk tvisvar tæki- færi til þess að beita drekanum og þótt kunnáttan væri kannski ekki upp á marga fiska tókst honum að ramba á bestu leiöina og endurbætti „teóríuna” í báöum skákunum. Hvítt: Herstrom (Bandaríkin) Svart: Ingvar Ásmundsson Sikileyjarvöra. 1. e4 c5 2. Rf3 d6 3. d4 cxd4 4. Rxd4 Rf6 5. Rc3 g6 6. f4 Rc6 7. Rxc6 bxc6 8. e5 Rd7 9. exd6 exd6 10. Be3 Rf6 11. Dd4Be7! Afbrigðið sem hvítur teflir er talið fremur bitlaust en ef svartur er ekki með á nótunum getur hæglega farið illa. Leikir Ingvars eru viðurkenndir af fræðimönnum en það tók langan tíma að finna þá yfir borðinu. 12. Be2 0—013.0—0 He8! ? I skákinni Szabo—Reshevsky á ólympíumótinu í Helsinki 1952 var leikið 13. —c5 14. Dd2 d5 15. Bf3 Bb7 16. Hadl Hb8 og svartur náði að jafna taflið. Leikur Ingvars felur í sér gildru sem andstæöingurinn fell- urí. 14. f5? Bxf515. g4 abcdefgh 15. —Rxg4! 16. Bxg4 Bf6 Svartur nær manninum aftur því að drottningin getur ekki valdað báða biskupana. 17. Df4 Be5 18. Dh6 Bg7 19. Df4 Bxg4 20. Dxf7+ Kh8 21. Df4 Bf5 22. Hadl Be5 Með peð yfir og biskupaparið er svartur náttúrlega með yfirburða- stööu. 23. Df2 De7 24. Hfel Dg7 25. Kg2 Hab8 26. a3 Hxb2 27. Hxd6 Hf8! Einfaldara en 27. —Bxd6 28. Bd4 He5 því að nú fær hvítur engin gagn- færi. 28. Bd4 Bxd4 29. Dxd4 Dxd4 30. Hxd4 Hxc2+ 31. Re2 He8 32. Kfl c5 33. Hd5

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.