Dagblaðið Vísir - DV - 31.08.1985, Side 12
12
DV. LAUGARDAGUR31. AGUST1985.
Stálgeymir
Til sölu er 600 m3 stálgeymir smíðaður 1978, t.d. hentug-
ur fyrir vatnsveitur. Upplýsingar eru veittar í síma 93-
4132.
Útöoð
Vegagerð ríkisins óskar eftir tilboðum í
eftirtalin verk:
Steingrímsfjarðarheiði II
(Lengd 2,6 km, fylling 46,000 rn3, burðarlag 12,000 m3 og
sprengingar 5,000 m3).
Verki skal lokið 1. júlí 1986.
Styrking Hólmavíkurvegar 1985
(Lengd 14 km, styrking 25,000 m3).
Verki skal lokið 10. nóvember 1985.
Útboðsgögn verða afhent hjá Vegagerð ríkisins Reykjavík
(aðalgjaldkera) og hjá Vegagerð ríkisins Isafirði, frá 2.
september 1985. Tilboðum skal skila fyrir kl. 14.00, 16.
september 1985.
Vegamálastjóri.
ÚRVALS NOTAÐIR
Arg. Km Kr.
Mazda 929, sjálfsk.. 1981 36.000 310.000
vökvast.
Range Rover 1981 56.000 950.000
Opel Rekord 2,0 lúxus 1982 79.000 395.000
Opel Kadett GL, 2ja dyra 1985 10.000 450.000
Daihatsu Charade runab. 1983 25.000 265.000
Volvo 244 DL, sjálfsk. 1982 44.000 420.000
Mazda 323,5d. 1980 70.000 180.000
Daihatsu Charmant 1979 150.000
Chrysler Le Baron st. 1979 51.000 390.000
Toyota Crown d. 1981 85.000 400.000
Oldsm. Cutl. Brogh., 2ja dyra 1980 53.000 450.000
Vauxhall Chevette 1977 48.000 95.000
Ford Escort LX 1600 1984 20.000 400.000
Dodge Omni 1980 67.000 260.000
Toyota Carina GL 1981 67.000 250.000
Opel Ascona 1983 22.000 440.000
Citroén CX 2400, st. 1983 57.000 650.000
Opel Ascona Berl. hatchb. 1982 44.000 400.000
Volkswagen Golf 1981 66.000 235.000
Ch. pickup 4x4 1982 29.000 650.000
Aro 244 jeppi 1979 41.000 180.000
Ch. Chevy sportvan, 11 manna 1979 400.000
Pontiac Grand Prix 1979 300.000
Ch. Caprice CL st.d. 1982 101.000 850.000
Buick Century Brougham 1982 49.000 695.000
Opel Rekord Bexl. dísil 1982 134.000 390.000
CH. Malibu sedan 1980 320.000
Izusu Trooper bensín 1982 38.000 610.000
Mercedes Benz 200 1972 138.000 210.000
Opiö virka daga kl. 9—18 (opiö i hádeginu).
Opiö laugardaga kl. 13 — 17.
Simi 39810 (bein lina).
BSLVANGURsf
HÖFÐABAKKA 9 SÍMI 687300
Laxdalshús á Akureyri
Nýsmíðadar
fornminjar
Laxdalshús er sérkennilegt dæmi
um nýsmíðaöar fornminjar. Að utan
ber það góðlátlegan svip hins gamla
húss, sem hér var í tæpar tvær aldir.
Annað kemur í ljós innan dyra, enda
er mér sagt, að húsið sé 85% nýsmíöi.
Neðri hæðin, sem er fyrst og
fremst kaffihús í tveimur stofum, lít-
ur alls ekki út eins og fornminjar,
heldur eins og einingahús úr Bo
Bedre. Kuldalegt er þar mannlaust.
Þegar fólk er komið og búið að
kveikja á kertunum, getur hæðin
samt oröið nokkuð rómantísk á
skandinaviska vísu, en hljóðbær.
Til skamms tíma var borðað niðri.
en nú er rishæðin oröin aö um 40 sæta
matsal. Hún er ekki eins eininga-
hússleg. Viöarliturinn er bara í gólfi,
veggjum og súð, en hvítt í lofti, stiga-
gangi og bar í miöjum sal. Ekki er
eins kuldalegt uppi, en jafnhljóð-
bært. Notalegast er að sitja við
norðurgluggana, þar sem tré er fyrir
utan.
Laxdalshús hefur smám saman
verið að breytast í veitingahús. Það
byrjaði sem kaffistofa. Síöan fór það
að bjóða upp á fáa rétti fyrir leiksýn-
ingar og snarl eftir þær. Síðast þegar
ég vissi, var farið að hafa opið öll
kvöld og bjóða fullgildan matseðil,
en ekki enn farið að hafa opið í há-
deginu.
Samt er þetta tæplega matar-
gerðarhús. Fólk fer ekki hingað tii að
svala matarást sinni. Þaö kemur, af
því aö innan um timburveggi og
kertaljós finnst því þægilegt að tala
um væntanlega eöa nýafstaðna sýn-
ingu á Edith Piaf í leikhúsinu. Lax-
dalshúsi er ætlað aö vera skjól fyrir
menningarvita eins og Torfan í
Reykjavík.
Séra Jóni sinnt
t bæði skiptin voru hvítir klæðis-
dúkar á borðum, en gestir fengu
munnþurrkur úr pappír. I síðara
skiptið sá þjónninn allt í einu og rétti-
lega, að slíkár þurrkur hæföu ekki
háu verölagi staðarins og setti
klæðisþurrkur á okkar borö. Hann
hafði samt ekki fyrir því að skipta
um á hinum borðunum. Hér er þann-
ig gert upp á milli gesta. Þeir séra
Jónar fá betra atlæti, sem annars
væru taldir líklegir til vandræða.
Vínseðill Laxdalshúss var nauða-
ómerkilegur. Hann var samt ná-
kvæmlega þrisvar sinnum betri en
seðlar salanna í Sjallanum. Til
viðbótar við Chateau de Saint Laur-
ent var nefnilega líka hægt að fá
Santa Christina og Gewurztraminer.
Hið síöasta er mikilvægt, af því að
það þýðir, aö eitt drykkjarhæft hvít-
vín er þó á boðstólum.
Matseðillinn var mátulega langur,
með tveimur súpum, tveimur for-
réttum, fjórum fiskréttum, fjórum
kjötréttum og tveimur eftirréttum.
Hann var handskrifaður og gert ráð
fyrir, aö honum væri breytt á nokk-
urra vikna fresti. Síðast, þegar ég
k«n, var í boði nýr seðill með sumum
réttum áhugaverðum, svo sem
silungasúpu, laxakæfu, pönnu-
steiktri blálöngu og koníaksristuðum
lunda.
Nánari athugun leiddi í ljós, að blá-
löngunni var ætlað að vera á seðlin-
um í nokkrar vikur. Kokkur, sem
býður upp á slíkt, er liklegur til að
stunda veiöiskapinn í frystikistunni
og hafa dálæti á örbylgjuofninum.
Þessi tvö tækniundur geta sam-
anlagt dugað fyrir kleinur, en eyði-
leggja allan fisk.
Mér er sagt, að gott kaffihlaðborð
sé í Laxdalshúsi. Eg hef ekki prófað
það. En ég hef kynnzt eldamennsk-
unni og komizt að þeirri niðurstöðu,
að húsið hafi ekki bætt matargerðar-
list á Akureyri. Matreiðslan reyndist
ekki aðeins lakari en í Smiðjunni,
Mánasal og Kea, heldur einnig
nokkru síðri en í Bautanum, sem er
þó mun ódýrara veitingahús.
Fyrstu réttirnir héldu staðnum
uppi. Silungssúpan var sérstaklega
góð, með mögnuöu silungsbragði,
borin fram með hveitiflautu og
þriggjakornabrauöi, svo og smjöri í
álpappír. Þetta var bezti rétturinn,
sem prófaður var.
Laxakæfan var lagskipt og þrílit,
með laxi, reyktum laxi og grænmeti.
Þetta leit skemmtilega út, en lax-
bragðiö vantaði. Áður haföi ég fengið
hér betri kæfu, bragðsterka fiski-
kæfu. I síðara skiptið var kæfan bor-
in fram meö skemmtilega hringlaga
ristarsneið og góöri dillsósu úr sýrö-
um rjóma.
Skreytilist í
matar stað
Annað meðlæti kæfunnar var fall-
egt og gott, sérlega góöur kapers,
vínber, ananasbiti og sneið af kiwi.
Þaö átti þó eftir aö koma í ljós, aö
þetta meðlæti var staölaö, því aö það
fylgdi lika með aðalréttunum.
Hins vegar fylgdi þeim ekkert hrá-
salat, aðeins svokallaður „garni-
túr”, sem íslenzkir kokkar halda, að
sé eitt af hástigum matargeröarlist-
ar. „Garnitúr” er skreytilist í formi
Jónas Kristjánsson
skrifar um
veitingahús
og litum, sem á að gera miöur ætan
mat lystugan í útliti. Skreytingar
þessar eru ekki sérstaklega ætlaðar
til matar sjálfar og koma því ekki í
stað hrásalats.
Lambageiri á teini var næstum
grár af mikilli eldun. I fyllingunni
var ostur og mynta, sem yfirgnæfði í
bragöi. Þrátt fyrir myntuna var lika
mikið magn af steinselju á diskinum,
ef til vill í samkeppnisskyni. Enn-
fremur kartöflur, sem velt haföi ver-
i
w
E3 1
Kokkahúfur eru fyrir matreiðslu og
blóm fyrir umhverfi og þjónustu, en
krónupeningarnir tákna verðlagið.
iö upp úr steinselju og síðan brún-
aðar sykurlaust, ágætur matur.
Einnig ofsoðið brokkál. Og loks
skreyting sú, sem áður er getið.
Koníaksristaöi lundinn var borinn
fram með nákvæmlega þessu sama,
staðlaöa meðlæti og til viðbótar dósa-
peru með rifsber jasultu og grænkáls-
blaði. Lundinn sjálfur var ekki til-
takanlega ofeldaður, en reyndist þó
fremur þurr, eins og lunda hættir
stundum til að vera.
Annar ísinn var sagður með
heitum ananas og piparmyntusósu.
og hinn með koníaksristuðum jarðar-
berjum. Þetta voru ómerkilegir ísar
með dósaávöxtum. Safinn á hinum
síðamefnda var hreinn niðursuðu-
dósasafi án nokkurs votts af koniaki,
ekki einu sinni af matargerðar-
brandíi.
Kaffi með konfekti kostaði 65 krón-
ur, hæsta verð á Akureyri.
Miðjuverð þriggja rétta máls-
verðar með kaffi og hálfri flösku af
ódýrasta frambærilegu víni var 1.202
krónur á mann. Það er sami verð-
flokkur og Smiðjunnar og Hótel Kea,
nokkru lægri en Mánasalar og
nokkru hærri en Lautar.
Erfitt er að sjá, að nýsmíðaðar
fornminjar einar sér hafi erindi í
þennan háa verðflokk, sem var fyrir
þéttskipaöur matsölum. Sameigin-
legt einkenni allra þessara veitinga-
húsa Akureyrar er, að þau voru
þunnskipuð gestum eða tóm, þegar
þau voru prófuð.
Gaman væri, ef einn þessara
veizlusala reyndi að koma sér upp
áþreifanlegri sérstöðu til að réttlæta
verðið, til dæmis matreiðslu, er risi
upp úr átakslausu metnaðarleysi.
-Jónas Kristjánsson.
Es.
Skýringarmyndir víxluöust meö
grein hér í blaðinu fyrir réttri viku
um veitingahúsið Laut. Réttur átti
fjöldi blómvanda að vera einn og
fjöldi krónupeninga tveir.
Matseðill
255 Koníaksbœtt trjónukrabbasúpa
240 Rjómalöguð silungasúpa
280 Laxapaté meö dillsósu
235 Blandaðir síldarréttir
480 Smjörsteiktur karfi með jógúrtsósu
490 Rauðspretta að hcetti Laxdalshúss
495 Pönnusteikt blálanga með hvítvínssósu
580 Reyktur lax meö eggjahrœru
570 Koníaksritaður lundi
620 Rauðvínsgljáð hamborgarkótiletta
780 Nautabuffsteik með sinnepssteiktri kálfalifur
580 Lambageiri fylltur með camembert osti og myntu
150 ís með heitum ananas ogpiparmyntusósu
170 ís með koníaksristuðumjarðarberjum