Dagblaðið Vísir - DV - 31.08.1985, Side 14

Dagblaðið Vísir - DV - 31.08.1985, Side 14
14 dv. lau(;akimguh;íi. A(;usT nms. „SLÁÐU MIG, ELSKAN” — lostapyntarar og sjálfspyntarar sóttir heim Kyrir ofan (lyragættina stendur letraö „UeikfimLsalur”. Þegar inn er komiö er fátt sern minnir á að þarna hafi verið stunduð hefðbundin leik- fimi. Veggirnir eru svartir og bólstr- aðir ineð leðurlíki. ICina birtan sem þarna er, keinur frá veiku rauöu Ijósi, sem hangir í loftinu. Meðfram veggjunum hangir ótrúlegt úrval af hverskonar svipum, beltum, reimum og hlckkjum. Tveir svartir bjálkar standa í kross upp við einn vegginn. Við hliö þeirra stcndur rúm og búkki. Viö erum stödd í höfuöstöðvum Sam- taka sadista og masokista í Dan- mörku. Það kann að vera að þessi nöfn hljómi ókunnuglega í eyrum les- enda. Við því er lítið að gera því ekk- ert íslenskt orð virðist vera yfir þessi tvö fyrirbrigöi. Til að auövclda áframhaldandi lestur er rétt aö geta þess aö sadisti hefur ánægju af því aö pína aðra, og reyndar stundum nefndur á islensku lostakvalari eða lostapyntari. Masokisti er sá sem kann vel viö sig í návist sadistans, og gæti heitið á islensku sjálfspyntari. Þessi hegðun tengist kynferöislegri hegðun viðkomandi fólks. Samtökin segjast berjast fyrir því að allir eigi að vera jafnir, sarna hvernig þeir eru kynferðislega sinnaðir. En eins og gefur að skilja á þessi hópur, eins og aðrir hópar sem ekki eru eins lund- aðir í þessum málum og fjöldinn, mjög erfitt uppdráttar og mætir skilningsleysi frá fordómafullum fjöldanum. 400 meðlimir Norskur blaðamaður heimsótti samtökin fyrir nokkru og við skulum heyra hvers hann varð vísari. Höfuöbækistöðvar þessa sérstæða félagsskapar eru við Sorgenfrigade í Kaupmannahöfn. Hann hóf starf- semi sína 1979 og nú eru 400 meðlim- ir. Flestir þeirra búa í Kaupmanna- höfn, en einnig eru meðlimir erlendis frá. Eva Gall, Judith Hildebrand og Mikael Jensen, sem eru stödd í „leik- fimisalnum” þessa stundina, segja aö tala meðlima samtakanna segi lít- ið um hina raunverulegu útbreiðslu sadista og masokista. Herra og þræll „Við komum fram undir nafni og mynd. Það ætti að vera nóg til að sýna fram á að við erum ekki hættu- leg,”segirEva. I sambandi sadista og masokista Við þennan kross lætur fólk binda sig af frjálsum vilja og hefur mikla nautn af. er annar í hlutverki „herrans” og hinn í hlutverki „þrælsins”. Hins vegar er ekki gott að gera sér grein fyrir því að hægt sé að hafa kynferð- islega nautn af því að pína aðra og láta pína sig. „Við ræðum þetta stöðugt viö nýja meðlimi, en við höfum engin svör við því hvers vegna viö erum svona. Mér er nákvæmlega sama hver ástæðan er. Ég er löngu búin að sætta mig við aö það er þetta sem ég vil,” segir Eva Gall. Hún segist ekki geta hugs- að sér aö lifa venjulegu kynlífi. Hún gegnir hlutverki þrælsins. Judith er einnig þræll. Reyndar er ekki allt hennar kynlíf í þessum stíl. Samband af þessu tagi er áhugi, löngun, leikur og skemmtun segja Danirnir. „Eg get vel skilið að fólk eigi erfitt með að gera sér grein fyrir því að það geti verið gaman að láta loka sig inni í búri með höfuðhettu. Hins veg- ar myndum við aldrei gera slíkt ef okkur fyndist það ekki skemmti- legt,”segir Judith. Um þessi ákveðnu hlutverk segja þau aö þau séu valin af frjálsum vilja. Konurnar í hópnum segja að þær séu kvenréttindakonur og að þessi hlutverk þeirra í kynlífinu leiði ekki til þess aö þær séu kúgaðar í hinu daglega lífi. Samkvæmt upplýs- ingum um meðlimina er helmingur Uppi ð veggjunum hangir mikið úrval af hverskonar svipum og slag vopnum. kvenna „þrælar” og hinn helmingur- inn „herrar”. Tæki Svart leður, svipur, hlekkir, hand- járn, gapastokkar og kaðlar tilheyra kynferðishegðun hóps. I bækistöð þeirra í Kaupmannahöfn fyrirfinnst allt þetta og meira til. „Þetta er algjörlega frjáls staöur,” segja þau. Oft er erfitt að iðka kynlífið í venjulegum hverfum þar sem annað fólk býr. Hróp og skrækir eru oft mikilvæg í hita leiks- ins og gætu auöveldlega hneykslaö og valdið nágrönnum óþægindum. „Ég geng ekki dags daglega í svörtum leðurfötum. Ef hins vegar herrann minn myndi óska eftir því að ég færi þannig klædd út í bakarí, myndi ég að sjálfsögðu gera þaö,” segir Eva Gall. „En við förum ekki yfir mörkin,” segir Mikael. „Þegar það gerist er ekkert gaman. En stundum getur maöur þó fengið einn og einn mar- blett.” Samtökin halda reglulega nám- skeið í notkun allra þeirra tækja sem meðlimirnir nota. Með réttri notkun segja þau að tólin geti verið hættu- laus. En hvernig er það í hita leiksins berjandi með svipu, er ekki auðvelt að missa stjórn á sér? „Nei”, segja þau. Slys Það kemur í ljós að komið hefur fyrir að menn hafa látið lífið vegna notkunar tóla og tækja. Maður einn lét lífið hjá vændiskonu sem hann hafði látið binda sig fastan viö rúm- iö. Hann fékk hjartaáfall og gaf upp öndina, bundinn fastur í rúminu. „En þetta var bara slys, sem heföi getað komiö fyrir hvern sem er,” segir Eva. I blöðum sem sadistar og maso- kistar gefa út er oft hroðalegum að- ferðum lýst. I einni sögu í slíku blaði er kona bundin og pískuö sundur og saman þar til hún varla getur staöið. Þá er einnig hringjum stungið í gegn- um kynfæri hennar. En hversu langt frá raunveruleikanum er þetta? „Langt, mjög langt. En að sjálf- sögðu er til ríkt hugmyndaflug. Þaö eru allir sem hafa sína kynóra,” segir Judith. Hún hefur sjálf látið setja hringi í báðar geirvörturnar og einnig í blygðunarbarmana. Það er sárt en þaö er nú einmitt eitt af markmiðun- um. „Eg kveið ákaflega mikiö fyrir því að láta gera þetta. Mér hefði aldrei komiö til hugar að láta ein- hvern ókunnugan gera þetta. Eftir á er svæöiö í kringum þessa staði mjög tilfinninganæmt. Eg þoli þetta reyndar ekki mjög vel svo ég er búin að láta fjarlægja alla hringina nema einn. Lífsviðhorfin Þegar menn eru kynferðislegir þrælar og aörir herrar — hefur slíkt áhrif á lífsviðhorfin á öðrum svið- um? „Nei, við erum algjörlega venju- legt fólk. Við eigum böm og vinnum „Þessi svipa er skaðlaus. Á nám- skeiðunum hjá okkur læra meðlimirnir að nota þessi tól þannig að þau skaði ekki aðra," segir Eva Gall. okkar vinnu eins og aörir. Börnin okkar vita um hvers konar kynlíf við stundum,” segir Eva. Danirnir segja að hjá þessum 400 meðlimum séu jafnvel 400 aöferöir til að stunda kynlíf af þessari tegund. Það eru því margar aöferöir til að fá nautn af því að kvelja aðra og láta kvelja sig. Samtökin hafa í þessu sambandi komiö sér upp ráðgjafa- þjónustu fyrir þá sem eru haldnir kvalalosta eða öfugt. Og pegar sím- inn hringir og einhver byrjandi spyr um hvernig eigi aö fara að, fær hann það svar að það séu til hundruð að- ferða. Frjálst kynlíf 1 Danmörku hefur umræðan m.a. fjallað um ofbeldisklám og aörar tegundir af klámi. Samtök sadista og masokista eru ekki hlynnt banni á klámi af neinu tagi. Þau telja jafnvel að vændi ætti aö vera leyfilegt. Samtökin ferðast mikiö um landið og halda fyrirlestra í skólum. Þeir eru mjög virkir í allri umræðu um kynlíf. „Við erum ekki að þessu til að meiða hvort annaö þó svo að af og til komi fyrir að einn og einn taki of hart á. Hluti af ánægjunni er að öskra „Æ,Æ,” en þaö dugir ekki til ef masokistinn fær ekkert út úr því,” segja viðmælendurnir og eru ánægð- irmeðtilveruna. -ÞýttAPH. BILBOXIÐ bylting bílaeigenda á tölvu- og plastöld ★ Svellþykk plasthúö sem þolir grjótkast óendanlega vel. ★ Lungamjúk Diagonal dekk, sérhönnuö fyrir íslenskar aðstæður. ★ ★ ★ ★ Nýtist allan ársins hring. Vatnsþétt Rykþétt Tekur alían farangur í ★ Ferðalagið ★ Sumarbústaðinn ★ Berjaferðir ★ Skíðaferðir Stenst evrópska gæða- og öryggisstaðla. Þaulprófað í grjóthríð og vegleysum. BíLVANGURsf HÖFÐABAKKA 9 SÍMI 687300 og kaupfélögin um land allt.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.