Dagblaðið Vísir - DV - 31.08.1985, Síða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 31.08.1985, Síða 28
28 DV. LAUGARDAGUR 31. ÁGUST1985. Nauðungaruppboð sem auglýst var í 28., 31. og 34. tbl. Lögbirtingablaös 1984 á Kúrlandi 21, þingl. eign Hilmars Ólafssonar, fer fram eftir kröfu Jóns Finnssonar hrl. á eigninni sjálfri miövikudag 4. september 1985 kl. 10.30. Borgarfógetaembættiö l Reykjavlk. Nauðungaruppboð sem auglýst var 142., 51. og 57. tbl. Lögbirtingablaös 1985 á Deildarási 20, þingl. eign Tryggva Kristjánssonar, fer fram eftir kröfu Gjaldheimt- unnar I Reykjavlk á eigninni sjálfri miövikudag 4. september 1985 kl. 16.15. Borgarfógetaembættiö I Reykjavik. Nauðungaruppboð sem auglýst var 1105. tbl. Lögbirtingablaös 1984 og 10. og 13. tbl. þess 1985 á hluta í Skógarhllö 10, þingl. eign Landleiöa hf., fer fram eftir kröfu Hákonar H. Kristjónssonar hdl., Baldvins Jónssonar hrl. og Gjald- heimtunnar I Reykjavlk á eigninni sjálfri þriöjudag 3. september 1985 kl. 11.00. Borgarfógetaembættið (Reykjavlk. Nauðungaruppboð sem auglýst var 1101. og 109. tbl. Lögbirtingablaös 1984 og 3. tbl. þess 1985 á hluta I Engjaseli 31, tal. eign Guömundar Glslasonar, ferfram eft- ir kröfu Arnar Höskuldssonar hdl., Guöjóns Á. Jónssonar hdl., Helga V. Jónssonar hrl., Sveins H. Valdimarssonar hrl. og Jóns Ingólfssonar hdl. á eigninni sjálfri þriöjudag 3. september 1985 kl. 13.30. Borgarfógetaembættið í Reykjavík. Nauðungaruppboð sem auglýst var I 42., 51. og 57. tbl. Lögbirtingablaðs 1985 á hluta I Gyöufelli 12, þingl. eign Auöar Kristófersdóttur, fer fram eftir kröfu Skúla J. Pálmasonar hrl., Einars Jónssonar hdl. og Gjaldheimtunnar I Reykjavík á eigninni sjálfri þriðjudag 3. september 1985 kl. 15.15. Borgarfógetaembættið I Reykjavlk. Nauðungaruppboð sem auglýst var I 51., 55. og 57. tbl. Lögbirtingablaös 1984 á hluta I Æsufelli 6, þingl. eign Siguröar G. Kristinssonar, fer fram eftir kröfu Ólafs Gústafssonar hdl. og Gjaldheimtunnar I Reykjavlk á eigninni sjálfri þriðjudag 3. sept. 1985 kl. 15.00. Borgarfógetaembættiö I Reykjavlk. Nauðungaruppboð sem auglýst var 1101. og 109. tbl. Lögbirtingablaös 1984 og 3. tbl. þess 1985 á hluta I Krummahólum 10, þingl. eign Hauks Nikulássonar o.fl., fer fram eftir kröfu Inga H. Sigurössonar hdl. og Gjaldheimtunnar I Reykjavlk á eigninni sjálfri þriöjudag 3. september 1985 kl. 15.45. Borgarfógetaembættiö I Reykjavlk. Nauðungaruppboð sem auglýst var I 102. tbl. Lögbirtingablaös 1984 og 2. og 8. tbl. þess 1985 á hluta I Hrafnhólum 4, tal. eign Sveins Þ. Gústafssonar, fer fram eftir kröfu Gjaldheimtunnar I Reykjavlk á eigninni sjálfri þriöjudag 3. september 1985 kl. 16.15. Borgarfógetaembættið I Reykjavlk. Nauðungaruppboð annað og slöasta á Mjóuhlíð 2, þingl. eign Ellnar Gunnarsdóttur og Ólafs Arnarsonar, fer fram eftir kröfu Gjaldheimtunnar I Reykjavlk, Jóns Ingólfssonar hdl., Ævars Guðmundssonar hdl., Róberts A. Hreiöars- sonar hdl., Ólafs Gústafssonar hdl., Jóns Þóroddssonar hdl., Búnaöar- banka Islands og Tómasar Þorvaldssonar hdl. á eigninni sjálfri þriöjudag 3. september 1985 kl. 10.45. __________________Borgarfógetaembættið I Reykjavlk. Nauðungaruppboð sem auglýst var I 102. tbl. Lögbirtingablaös 1984 og 2. og 8. tbl. þess 1985 á hluta I Nönnufelli 1, þingl. eign Birnu Björnsdóttur, fer fram eftir kröfu Gjaldheimtunnar I Reykjavlk, Veödeildar Landsbankans, Þorvald- ar Lúövlkssonar hrl., Guðjóns Á. Jónssonar hdl. og Steingrfms Þor- móössonar hdl. á eigninni sjálfri þriðjudag 3. september 1985 kl. 14.45. Borgarfógetaembættið I Reykjavík. Nauðungaruppboð sem auglýst var f 105. tbl. Lögbirtingablaðs 1984 og 10. og 13. tbl. þess 1985 á Kambaseli 42, þingl. eign Einars M. Þórarinssonar, fer fram eftir kröfu Tryggingast. rlkisins og Guðjóns A. Jónssonar hdl. á eigninni sjálfri þriöjudag 3. september 1985 kl. 14.15. Borgarfógetaembættiö I Reykjavlk. Stolt íslendinga? Þesar íslenska verður danska Eitthvaö það ljótasta sem talið er að íslendingur geti gert móðurmáli sínu er að sletta í það dönskum orð- um. Það er álitið mun verra en að sletta ensku eða öðrum f ínni tungum. Ekki ætla ég að fullyröa nokkuð um ástæðu þessa en hún hlýtur að tengjast yfirráðum Dana hér á landi áður fyrr. En í þessu sem öðru eru menn talsvert á eftir tímanum. Tím- inn er nefnilega afstætt hugtak og mér finnst stundum eins og hann líöi undarlega hægt á lslandi. Það er eins og sumir átti sig ekki á því að Danir eru farnir heim til sín en aðrir komnir í staðinn. Ég sá það einu sinni haft eftir ráð- herra að amerísk-islenska flugstöðin í Keflavík væri stolt Islendinga. Ég er þess fullviss að svipuö orð hafa verið notuð um dansk-íslenska kónga fyrráöldum. Vont mál sem ber að forðast Til að forða Islendingum frá þeim hörmungum að ruglast á íslensku og dönsku hafa vísir menn lagt það á sig að merkja einstök orð sem vont mál sem beri að forðast. I orðabók- um er þetta t.d. gert með spum- ingarmerki fyrir framan orðið. Og oftar en ekki er um að ræða orð kom- in úr dönsku. Ekki virðist þó vera til nein regla um þetta atriði. Sumar „slettur” fá náð fyrir augum orðabókarhöfunda en aðrar ekki. Og þaö er hreint ekki auðvelt að sjá eftir hver ju er farið. Sagnirnar að ske og brúka og lýs- ingarorðin slæmur og nískur eru öll tökuorð frá 16du öld. Hvernig skyldi standa á því að menn amast viö ske og brúka en engum, ekki einu sinni málhreinsunarmönnum, dettur í hug að amast við slæmur og nískur? Spyr sá sem ekki veit. Að korta, kort og kortér I Orðabók Menningarsjóðs er sett spumingarmerki við sögnina að korta (=stytta, spara) en nafnorðin kort og kortér fá ekkert slíkt. Og maður skyldi ætla að á þessum þremur orðum væri einhver munur. En því er ekki að heilsa. Þetta eru allt tökuorð úr dönsku og þangað komu þau úr lágþýsku sem Danir kalla platþýsku. Nú er það ekki einu sinni svo vel að Þjóðverjar hafi fundið upp þessi orð. Nei, nei, þau eiga sér miklu lengri sögu. Orðið kort er komið úr grísku, kjártes, sem ku þýða pappir. Sögnin að korta á rót að rekja til latneska orðsins curto (að stytta) en kortér er komið af latneska orðinu quartus (=fjórði). Og hvers vegna er þá gerður mun- ur á notkun þessara orða i íslensku? íslensktunga 28. Eiríkur Brynjólfsson Finnst mönnum að þessi setning úr Islandsklukkunni, „Mundi þá fara að kortast saga Jóns Hreggviössonar,” hefði verið betri svona: „Mundi þá fara að styttast saga Jóns Hregg- viðssonar?” Um þetta mál, útrýmingu töku- orða, f jallaði Stefán Karlsson í grein í Samvinnunni 1971. Þar mælir hann með nýyrðasmíð en segir jafnframt: „En ég er andvígur skipulagðri út- rýmingu tökuorða sem hafa unnið sér þegnrétt í tungunni því að fækkun tökuorða jafngildir minnkun á orða- forða tungunnar og dregur úr mögu- leikum á að segja þaö sama á tvo eöa fleiri vegu, annaðhvort til þess að forðast endurtekningar, ellegar til þess aö aðlaga sig að mismunandi stíl eða aðstæðum...” Mikill og fjölbreyttur orðaforði hefur löngum verið talinn aðall íslenskumanns og við skulum hafa hugfast að mestu stílsnillingarnir hafa ekki vílað fyrir sér að nota slett- ur og slangur til að prýða með texta sína. Um grús og möl. Einn af málvörðum Ríkisútvarps- ins fjallaði í Daglegu máli þann 15. ágúst sl. um oröin grús og möl. Þannig var mál með vexti að vörubíl- stjórar hjá Vörubílstjórafélaginu Þrótti auglýstu að þeir tækju að sér að útvega fólki meðal annars möl og grús. I Daglegu máli var haft fyrir satt aö möl og grús væri nákvæm- lega það sama. Um það ætla ég ekki aö deila en umsjónarmaður þáttar- ins taldi aö vörubílstjórarnir töluðu dönsku þegar þeir auglýstu að þeir tækju að sér að bjarga fólki um grús. Eg fullyrði hins vegar aö setning- in: Eg skal selja þér tonn af grús er íslenska en alls ekki danska. Orðið möl er norrænt orð, þ.e. það var til áður en norræna greindist í sundur. Orðið grús er hins vegar tökuorð í íslensku, komið úr dönsku á seinni öldum, jafnvel á þessari öld. Það telst vera tökuorð í dönsku frá tímabilinu 1500—1700. Það er komið úr þýsku og er talið vera skylt orðun- um grjón og grautur. Orðið grús tengist þannig einkar þjóðlegu mat- aræði sem er við hæfi hárra sem lágra eins og dæmin sanna. Niðurstaða mín er þessi: Ef vöru- bílstjórar eöa aðrir á Islandi hafa áhuga á því að aka um með grús og selja fólki er að sjálfsögðu ekkert athugavert við það og ekki nokkur ástæða fyrir nokkurn mann að halda því fram að þeir séu aö tala dönsku. Hver gefur leyfi? I framhaldi af þessu vaknar spurn- ingin um þaö hvað gefi mönnum leyfi til að fella dóma yfir málfari ann- arra? Því er til að svara að þaö er próf í íslensku frá Háskóla Islands. Þang- að fara menn sem stúdentar (úr latínu, studere sem þýðir m.a. að læra), ljúka þaðan baccalaureorum artium prófi (úr latinu) eða cand. mag. (úr latínu). Þá getamenn orðið doktorar (úr latínu, sögninni að docere sem þýðir að kenna) og jafn- vel endað sem prófessorar (úr latínu). Þannig læra menn að greina á milli góðs og ills í þessum efnum og að segja fólki til um það hvenær það tali dönsku og hvenær íslensku. Es. Það þarf varla að taka fram að undirstrikuðu oröin hér að ofan eru í orðabókum án allra varúðarmerkja.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.