Dagblaðið Vísir - DV - 31.08.1985, Side 36

Dagblaðið Vísir - DV - 31.08.1985, Side 36
FRETTASKOTIÐ Sími ritstjórnar: 68-66-11. Auglýsingar, áskrift og dreifing, sími 27022. Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt — hringdu þá i síma 68-78-58. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eða er notað í DV, greið- ast 1.000 krónur og 3.000 krónur fyrir besta fréttaskotið i hverri viku, Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við fróttaskotum allan sólarhringinn. LAUGARDAGUR 31. ÁGÚST 1985. Keflavík: Víkur- bær gjald- þrota —skuldirfyrir- tækisins nema tugummilljóna Víkurbær í Keflavík er gjaldþrota. Fyrirtækið hefur rekið tvær af stærstu matvöruverslununum á Suðurnesjum og var þeim báðum lokað á hádegi í gær eftir að beiðni um gjaldþrotaskipti höfðu borist frá eigandanum. Samkvæmt upplýsingum frá bæjar- fógetaembættinu í Keflavík nema skuldir fyrirtækisins tugum milljóna og óvíst hvort eignir fyrirtækisins hrökkva til ef ná á endum saman. Víkurbær hafði fengið greiðslu- stöðvun í 5 mánuði og átti að nota þann tíma til að koma f jármálum fyrirtæk- isins í lag. Það tókst ekki og verður úr- skuröur um gjaldþrotaskipti kveðinn upp hjá bæjarfógetanum í Keflavík á mánudaginn. -EIR. Frá og með 1. september kostar DV í áskrift 400 krónur á mánuði, í lausasölu virka daga 40 krónur og helgarblað 45 krónur. Grunn- verð auglýsinga verður 260 krónur hver dálksentímetri. iA|l £; ■"illP \i ómissandi LOKI Teigahverfið er að verða algjört Tauga- hverfi. . . Miklar verðhækkanir í Rotterdam að undanf örnu: NÍGERÍA HLEYPTl OLÍUVERDINU UPP — við Islendingar eigum nokkuð af birgðum á gamla verðinu Oliuverð á Rotterdammarkaði hefur skotist hressilega upp á við að undanförnu. Mest varð hækkunin í byrjun þessarar viku þegar byltingin varö í Nígeríu. En fyrr í mánuðinum hafði verðið tekið dágóðan kipp vegna árásar Iraka á olíustöðvar Irana á Cargeyju. „Veðrið hefur verið að hækka jafnt og þétt í allt sumar, en þó langmest undanfarnar vikur. Gasoh'utonnið kostaði til dæmis í vor 218 dollara, en var komið upp í 250 dollara núna í vikunni,” sagði Indriði Pálsson, for- stjóri Skeljungs, í gær. Indriði sagði að ýmsar ástæöur væru fyrir hækkuninni. Rússar hefðu minnkaö sölu á unninni oliu til Vestur-Evrópu. „En árásin á Cargeyju og byltingin í Nígeríu eru þó höfuöástæöur hækkananna að undanförnu,” sagöi Indriði. Sem dæmi um verðhækkanirnar á unnum ohuvörum í Rotterdam í ágúst, var tonnið af gasolíunni 7. ágúst 232 dollarar en skaust upp í 240 dollara við árásina á Cargeyju og upp í 250 dollara við byltinguna í Nígeríu. Þá hefur tonnið af svartohunni hækkað einnig í sumar á Rotter- dammarkaði, eða um 20 dollara. Og rekstrarkostnaður flugvéla á eftir að hækka. Þotueldsneytið hefur hækkað um 25 dohara, er nú í kringum 265 dollarar tonnið. Ekki hefur orðið mikilhækkun á bensínverði. Við Islendingar erum sagðir geta vel við unað þrátt fyrir þessar hækkanir. Við eigum birgðir á gamla verðinu. Þegar hður á haustið fara þó hækkanimar á Rotterdammark- aði að segja til sín. -JGH Ásta Eggertsdóttir við lóðina sem íbúar Teigahverfis vildu ekki að á risi hús fyrir fimm fötluð börn. DV-mynd S. Ekki ífyrsta skipti sem íbúar Teigahverfis mótmæla: Vildu ekki fötluð böm í hverfið — húsið skyggði á kvöldsólina í eldhúsglugga Mönnum hefur orðið nokkuð tíð- rætt um þau mótmæli sem risið hafa upp meðal íbúa í Teigahverfi gegn væntanlegri aðstöðu fangahjálpar- innar Verndar þar. En þetta er ekki í fyrsta skipti sem íbúar þar mótmæla komu nýrra gesta í hverfið. I fyrra stóð til að byggja þar heimih fyrir 5 fjölfötluð börn. Þvi var mótmælt kröftuglega af íbúum hverfisins og í því sambandi var safnað 160 undir- skriftum í mótmælaskyni. Niður- staðan varð sú að byggja verður þetta hús annars staðar í bænum. „Borgarráð var búið að sam- þykkja þennan stað. Og við töldum að hann væri mjög heppilegur fyrir þessa starfsemi og að þessi lóð nýtt- ist íbúum hverfisins ekki á nokkurn hátt,” sagði Ásta Eggertsdóttir, framkvæmdástjóri svæðisstjómar málefna fatlaðra í Reykjavík, í samtali við DV. Heimihð átti að vera við endann á Laugarnesvegi, vestur frá Laugar- neskirkju. Þar er stórt, autt svæði. Þar áttu 5 böm að dvelja. Þetta átti ekki að vera stofnun og ÖU starfsemi átti að fara fram annars staðar í borginni. Þessi staður var heppileg- ur hvað skólasókn barnanna snerti og einnig rétt við höfuðstöðvar Sjálfsbjargar. Þegar kom að því að auglýsa breytingar á skipulagi risu íbúar hverfisins upp. „Rökin hjá íbúum voru ákaflega léttvæg miðaö við þá starfsemi sem átti að fara fram þarna. Þau komu mér því á óvart og oUu mörgum von- brigðum og ekki síst foreldrum þess- ara barna, ” segir Ásta. Rök íbúa voru m.a. þau að þama hefði verið plantað nokkrum trjám á ári trésins og einnig að þetta væri grænn blettur sem ekki ætti að byggja á. Einnig höfðu íbúar áður mótmælt byggingu safnaðarheimUis á svipuðum slóðum. Þá kom einnig fram að húsið ætti eftir að skyggja á kvöldsólina í einum eldhúsglugga í hverfinu. Niðurstaða þessa máls varð sú að heimUið verður byggt í Laugardaln- um. Þessi mótmæli hafa orðið þess valdandi að framkvæmdum hefur seinkaö um marga mánuði og þær hafa orðið kostnaðarmeiri. Verkefni þetta hefur verið algjört forgangs- verkefni og á þessu ári hefur verið úthlutaö 5 mUljónum tU verksins. APH. Þráinn Bertelsson: Kvikmynd fyrirþýskt sjónvarp? Suður-þýska sjónvarpið hefur leitað eftir því við Þráin Bertelsson kvik- myndaleikstjóra að hann skrifi handrit aö kvikmynd sem gerð verði á vegum sjónvarpsins og jafnvel að hann leikstýri henni einnig. Þráinn staðfesti þetta í samtali við DV í gær. Hann sagði að von væri á manni frá suður-þýska sjónvarpinu hingað til lands tU viðræðna um málið eftir mánuð. Þá sagði Þráinn aö þessi sjónvarps- stöö hefði keypt sýningarrétt á Dalalífi ásamt forkaupsrétti að nýju kvik- myndinni sem Þráinn vinnur nú að — Lögguhfi. KRvann iónsmálið Iþróttadómstóll ISI kvað í gær upp dóm í svonefndu Jónsmáh þar sem íþróttafélögin Þróttur og KR deildu um hvort Jón G. Bjarnason, leikmaður KR, hefði verið löglegur er hann lék hluta úr kappleik þrátt fyrir leikbann. Dómstóll KSl hafði dæmt KR-ingum í hag. Þróttur áfrýjaði tU íþrótta- dómstóls ÍSI og í dómsorði, er kveðið var upp í gær, segir: ,dírafa áfrýjenda um ómerkingu allrar meðferðar máls fyrir dómstóli KSI, 16.8.’85 í málinu Knattspyrnufélag Reykjavíkur gegn Knattspyrnufélaginu Þrótti og um heimvísun tU löglegrar meðferðar fyrir dómstóh KSl er ekki tekin til greina.” KR vann. -EIR. Stórslasaðist íNorðurárdal ökumaður stórslasaðist í gærmorg- un er bifreið hans fór út af veginum við brúna yfir Norðurá í Norðurárdal. Tveir farþegar hans slösuðust minna. Tahð er að ökumaðurinn hafi misst stjórn á bifreiðinni í lausamöl með þeim afleiðingum að hún valt út af veg- inumogernúgjörónýt. -EIR.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.