Dagblaðið Vísir - DV - 22.10.1985, Side 1
DAGBLAÐIÐ —VISIR
241. TBL. -75. og 11.ÁRG. - ÞRIÐJUDAGUR 22. OKTÓBER 1985.
Flugvólin i læknum við Hólmavíkurflugvöll i gær. Mennirnir blotnuðu i fæturna.
DV-mynd Kristjón Jóhannsson.
Þrír menn sluppu
þegar flugvél
stakkst f læk
— rann f ram af fiugbrautinni við Hólmavík á Ströndum
Þrír menn sluppu ómeiddir þegar
lítil eins hreyfils flugvél rann fram af
flugbrautarenda á Hóltnavík og
stakkst ofan í læk laust fyrir klukkan
15 í gær. Flugvélin, TF-STR
skemmdist töluvert.
Um borö í flugvélinni, sem er
fjögurra sæta af gerðinni Cessna 172,
voru flugkennari, flugnemi og farþegi.
Flugvélin var að koma frá G jögri.
I lendingu á Hólmavíkurflugvelli
tókst ekki að stöðva flugvélina á 746
metra langri flugbrautinni með þeim
afleiðingum að hún rann fram af
brautarendanum. Féll hún fram af um
þriggja metra háum endanum og niður
í læk f yrir neöan og fór hálf á kaf. Vatn
náöi upp að sætum.
Mennirnir komust út úr vélinni
óskrámaðir en blautir í fæturna.
Annar vængur flugvélarinnar
bognaði upp, skrúfan beyglaðist og
skemmdir urðu á vélarhlíf.
Veður var fremur óhagstætt til flugs,
rigningarsuddi og vindur upp í 30
hnúta. Taliö er að sviptivindar geti
hafa átt þátt í óhappinu. Á flug-
vellinum höfðu menn á orði í gær að
vindur stæði úr öllum áttum.
Eigendur flugvélarinnar eru fjórir
Strandamenn, þrír frá Hólmavík og
einn frá Gjögri. -KMU.
Ef ekki verða breytingar á starf-
semi Unesco hafa nokkur ríki gefiö
til kynna að þau muni segja sig úr
samtökunum. Þar á meöal er
Island. Bretland, Vestur-Þýska-
land, Japan, Kanada og Norður-
lönd hafa varað við þeirri stefnu
sem Unesco hefur tekið. Fulltrúar
þessara ríkja hafa bent á hin
upphaflegu markmið Unesco, sem
eru menningartengsl og fræðsla.
Þykir starfsemi Unesco bera of
pólitískankeim.
Sem kunnugt er hættu
Bandaríkjamenn að styrkja
Unesco á síðasta ári en árlegur
styrkur þeirra til samtakanna var
um 43 milljónir dollara.
Andri Isaksson á sæti i
framkvæmdaráöi Unesco og situr
nú fund samtakanna í Sofíu. Hann
fylgir þar fram ýmsum skipulags-
breytingum á stofnuninni.
-ÞG
Varaformanns-
embættin ÍBSRB:
Engin kona
f innst enn
Enda þótt konur séu í meirihluta
í BSRB, Bandalagi starfsmanna
ríkis og bæja, gengur brösótt að
finna þar konu sem gefi kost á sér í v
sæti 2. varaformanns sambands-
ins. Þegar þing BSRB hófst, í
gömlu Rúgbrauösgerðinni við
Skúlagötu, klukkan 10 í morgun var
þessi fulltrúi kvenna ófundinn þrátt
fyrir miklar hvíslingar undanfarna
daga.
Þær Guðrún Ámadóttir meina-
tæknir og verkfallsstjóri og Sigur-
veig Sigurðardóttir hjúkrunar-
fræðingur hafa verið títt nefndar til
sögunnar en hvorag gefur nú kost á
sér. Aftur á móti slást karlar um
sæti 1. varaformanns. Albert
Kristinsson, formaður Starfs-
mannafélags Hafnarfjarðar, vill
halda sætinu. Að honum sækir Har-
aldur Hannesson, formaður Starfs-
mannafélags borgarinnar.
Albert er talinn mun sterkari á
þinginu, meðal annars þar sem
hann er nú 1. varaformaður og
Haraldur virðist í ónáð hjá stórum
hópum, ekki síst konum í bandalag-
inu. Engin breyting er á því að
Kristján Thorlacius muni taka
endurkjöri sem formaður.
Auk kjaramála verða skipulags-
mál BSRB ofarlega á baugi á þing-
inu svo og úrsögn Kennarasam-
bandsins. Fleiri aðildarfélög eru
óróleg og ýjað er að úrsögn Starfs-
mannafélags Reykjavíkurborgar,
nái formaður þess ekki sæti 1.
varaformanns. Þingið stendur
framívikulok.
nbKJB
NÆR HALF MILLJON FERÐAMANNAIHVERAGERÐI
sjá fréttir á bls. 3