Dagblaðið Vísir - DV - 22.10.1985, Side 2
2
DV. ÞRIÐJUDAGUR 22. OKTOBER1985.
—. Sjávarútvegsráðherra:
Oraunhæft að taka
skrapdagakerfi að
Á fjóröungssambandsþingi Fiski-
deilda á Vestf jöröum, sem haldið var
um helgina, var kvótakerfinu hafnaö
og samþykkt aö stefna bæri að eins-
konar skrapdagakerfi. Þá var einnig
samþykkt að fiskveiðistjómun ætti
aö vera til fimm ára og jafnframt aö
þaö ætti aö ákveöa aflamagn fyrir-
fram þessi fimm ár.
„Ég er sammála Vestfiröingum aö
það sé nauösynlegt aö vita hvers
konar stjómun sé framundan á
veiðunum. Hins vegar tel ég aö þaö
sé ákaflega erfitt aö ákveða afla-
markið til langs tíma. Það geta alltaf
komið upp einhverjar breytingar á
því sviði. Eg er því þeirrar skoöunar
aö þaö sé óskynsamlegt aö ákveöa
aflamarkið til lengri tíma en eins árs
í senn,” sagði Halldór Ásgrímsson
sjávarútvegsráöherra í viötali viö
DV.
— En er skrapdagakerfiö raun-
hæfurkostur?
„Eg minni á að það voru miklar
kvartanir yfir því þegar það var á
sínum tíma og ég tel aö þaö sé mjög
gallað. Eg tel það vera gallaðra kerfi
en það sem við búum viö núna. Viö
verðum líka aö viöurkenna aö öll
stjórnun hefur sína kosti og galla.
Mín skoðun er sú aö það sé óraunhæft
að taka upp skrapdagakerfið aö
nýju,” sagöi Halldór.
APH
Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkursvæðis:
Nýjung
hjá Eiðfaxa
Sú nýjung hefur veriö tekin upp hjá
tímaritinu Eiöfaxa að birta ættbók
hrossa fyrir árið 1985.
Árlega fara fram f jölmargar sýning-
ar þar sem kynbótahross eru leidd til
dóms en hin siöari ár hefur nokkuö
skort á aö dómsniðurstöður væru birt-
ar almenningi. Á þessu veröur nú ráöin
bót og í því tbl. Eiöfaxa sem nú er aö
koma út verður birt skrá yfir alla stóö-
hesta sem færöir voru í ættbók á árinu,
en þeir eru 18 talsins. Einnig veröur
birt skrá yfir 50 fyrstu hryssumar sem
færöar voru í ættbók, auk ítarlegra
upplýsinga.
-JSS
„Við lokum ef þú fjar
lægir ekki stólana”
— þetta stóð í tilkynningu sem verslunareigandi við Síðumúlann fékk
„Mér var tilkynnt aö ef ég myndi
ekki fjarlægja stólana strax yröi
versluninni hjá mér lokað,” sagöi
Steingrímur Felixson, verslunar-
eigandi í Síðumúla, en hann fékk
heimsókn Heilbrigðiseftirlits
Reykjavíkur sl. föstudag.
„Viöskiptavinir mínir óskuðu eftir
aö ég fengi mér stóla hér í
verslunina. Eg varö strax viö ósk
þeirra og lét smiöa þrjá barstóla,”
sagöi Steingrímur þegar hann sýndi
okkur stólanaþrjá.
„Mér var tilkynnt aö til þess aö fá
aö hafa stóla hér inni yrði ég aö
sækja um veitingaleyfi og til að fá
veitingaleyfi þyrfti ég að hafa eldhús
hér á staðnum. Þessar reglur eru
löngu úreltar og eru skerðing á
persónufrelsi. Það er hreint
furöulegt að ég skuli ekki fá aö veita
viöskiptavinum nu'num þá þjónustu
sem ég get. Þaö er eingöngu
vinnandi fólk hér á svæðinu. Hingaö
koma ekki börn og unglingar. Þá hef
ég ekki opið hér á kvöldin,” sagöi
Steingrímur.
Steingrímur sagöi að Heilbrigöis-
eftirlitið heföi einnig bent honum á
aö hann mætti ekki hafa öskubakka á
boröum. „Mér var bent á aö setja
límmiða upp á vegg með áletruninni:
Við reykjum ekki hér. Það er hreint
furöulegt aö það skuli mega selja
tóbak hér en fólk fái ekki aö reykja,”
sagöi Steingrímur.
„Eg vil taka þaö fram að
mennimir frá Heilbrigðiseftirlitinu
sýndu kurteisi. Þeir voru aðeins aö
vinna eftir úreltum lögum og reglum
sem maöur á erfítt aö sætta sig við,”
sagðiSteingrímur.
-SOS
„Fórum fjórir frá Skotveiðifélagi Is-
lands og vorum tveir og tveir saman,
bjuggum aö Sveinatungu. En veöurfar-
ið var afleitt og viö, ég og félagi minn,
fórum niður um hádegi á laugardag og
fengum lítiö. Það var slydduhríð þar
sem viö vorum uppi viö Tröllakirkju. ”
— En hvernig gekk hinum?
„Hinir tveir, þeir voru fram í myrk-
ur og svo komu þeir, annar með 11
rjúpuroghinn meö8.”
— Tröllakirkja?
„Fór upp í Tröllakirkju að noröan-
veröu, en Tröllakirkja er svipmikiö
f jall vestan viö Holtavörðuheiöi, norö-
ur af Snjófjöllum. Af Tröllakirkju er
afar víösýnt.”
— Nú voruö þiö aö Sveinatungu,
hvernig var það?
„Gott veiðiheimili, herbergi meö
kojum og mjög þægilegt fólk, þetta er
skemmtilegt framtak. Þegar félagarn-
ir komu ekki eins fljótt og vonast var
eftir var variö frá Sveinatungu fram á
heiði til aö athuga með þá höröustu,
svo þetta fólk hugsar um þá sem hjá
þeim eru. Skotveiöimennimir komu
skömmu seinna.”
— Svo það hafa margir fariö til
rjúpna um helgina?
„Þaö hafa verið svona 15—20 manns
á Holtavöröuheiöi aö sunnan um helg-
ina, skotveiöimenn voru í Munaöarnesi
og höfðu þeir fengið mest 40 í vikunni.
En tregt var hjá þeim um helgina og
veöurfariö spilaöi inn í þar. En veiði-
svæðiö er á alla kanta og þaö hefur
talsverö veiði verið um miöja vikuna.
En rjúpan er ennþá ofarlega í Borgar-
firöinum og töluvert labb í hana. ”
G. Bender.
Staingrimur — sést hér tylla sér é einn af stólunum þremur. Hann
heldur é bréfi frá Heilbrigðiseftirliti Reykjavikursvœðisins. Þessir þrir
stólar voru mjög vinsœlir. Menn gótu tyllt sér ó þé — sporðrennt einni
pylsu, drukkið gos og lesið dagblöðin.
Veðurfar hef ur
spillt rjúpnaveiði
Rjúpnaveiöin heldur áfram og
mönnum gengur misjafnlega, veður-
farið hefur spilaö mikiö þar inn í. Nú
var fyrsta rjúpnahelgin og skotveiði-
menn fóru til rjúpna. Við náðum tali af
Braga Melax, stjómarmanni í Skot-
veiðifélagi Islands, sem fór í Borgar-
fjörðinn.
— Voruö þiö margir?
Rjúpur, rjúpur og aftur rjúpur er það sem allt gengur út ó þessa stundina.
DV-mynd G. Bender
--
■ -:-'V **
Það getur verið leiðinlegt að ganga til rjúpna sé veðurfarið slœmt eins og
var þegar þessi mynd var tekin. DV-mynd G. Bender