Dagblaðið Vísir - DV - 22.10.1985, Blaðsíða 3
DV. ÞRIÐJUDAGUR 22. OKTÖBER1985.
3
Í Hvaragerði eru hafnar framkvæmdir við stórt hótel. Búið er að tyrfa og planta trjám.
Lúxushótel með golfvelli,
sundlaugum og leirböðum
Leirböð, leiksvið, sundlaug, golf-
völlur, ráöstefnusalur, heitir pottar,
læknir, sjúkraþjálfari. Þetta verður
meðal annars á nýja hótelinu sem
verið er að reisa í Hveragerði.
„Þetta verður alhliða hótel. Það á að
höfða jafnt til útlendinga sem
„Það er ekki ofsögum sagt að hingað
hafi komið 400 þúsund ferðamenn á
tímabilinu frá apríl til september,”
sagði Bragi Einarsson, eigandi Eden í
Hveragerði. Bragi stendur einnig að
tívolíinu Eden-Borg, sem er við
hliðina.
„Þetta eru bæði helgargestir, sem
eru í sunnudagsbíltúr, og aðrir ferða-
menn, bæði erlendir og innlendir. Svo
til allir erlendir ferðamenn, sem koma
til landsins, koma hingað til Hvera-
gerðis.
Þetta eru um tuttugu vikur sem
ferðamannatíminn er. Það koma
tuttugu þúsund manns í hverri viku. Á
sunnudegi er algengt að tíu þúsund
manns komi hingað inn. Þetta er
svakalegur fjöldi en það voru fáir
dagar í sumar sem komu færri en átta
til tiu rútur hingaö.
Tívolíið hefur dregið geysilega mikið
af ferðafólki hingað. Eg gæti trúað að
tslendinga,” sagði Helgi Þór Jónsson
er DV hitti hann í Hveragerði í gær.
Það er Helgi sem byggir hótelið fyrir
eigin reikning. Framkvæmdir hófust
fyrir mánuði.
„Það veröur unnið á fullu í vetur,”
það hefði verið 80 prósent meiri aðsókn
vegna þess. Hluta af þessari auknu
aösókn er veðrinu að þakka. Það
hjálpaði mikið í sumar,” sagði Bragi
Einarsson.
„Veturinn hérna er mjög ólíkur
sumrinu. Það er litið umleikis á
vetuma. Á haustmánuðum fer þetta
niður en strax í febrúar fer allt að
fyllast aftur um helgar. Ef heiðin er
fær fer fólk í sunnudagstúra strax í
febrúar.
Ég hef einnig byggt mikið á sumar-
bústaðafólki, sem er til dæmis í Gríms-
nesi, einnig fólki í ölfusborgum og fólki
sem er að heimsækja ættingja á heilsu-
hælið og elliheimilið, ” sagði Bragi.
Ferðamannaaukningin kallar á
stækkun hjá Braga. Hann er þessa
dagana að byggja við Eden. Hann er
aö stækka veitingaaöstöðuna og ætlar
að koma upp stærra og fullkomnara
eldhúsi. -KMU.
sagði Helgi. Spurður um
opnunardaginn svaraði hann: „1.
apriL” Brosið á andlitinu fékk DV-
menn til að taka þeirri dagsetningu
með fyrirvara. Ekki var þó annað að
heyra en að stefnt væri að því að opna
næsta sumar, að minnsta kosti hluta af
starfseminni.
„Hugmyndin vaknaði í vor þegar ég
var að vinna við að koma upp tívolíinu.
Þá sá ég Hveragerði í réttu ljósi, sá
þann mikla mannfjölda sem kemur
hingað. Þegar erlendu ferðamennimir
komu í röðum til okkar á vinnusvæðið í
tívolíinu og spuröu hvar hótelið væri
fór ég að velta þessu fyrir mér,” sagði
Helgi.
Hveragerðishreppur hefur úthlutað
Helga stóru landi undir hótelið, 2,5
hekturum. Þegar er búið að planta
trjám og tyrfa hluta af landinu. Byrjað
er að sfá upp fyrir húsgrunni.
1 hótelinu verða milli 40 og 50 gisti-
herbergi. Það verða þrír stórir salir
sem alls munu rúma yfir 700 manns.
Stærsti salurinn, sem verður með
leiksviði, rúmar 400 manns. Minni
salur á efstu hæð tekur um 100 manns.
Loks verður stór ráðstefnusalur.
Starfsemi hótelsins mun nálgast þá
starfsemi sem rekin er á heilsuhæli
Náttúrulækningafélagsins. Gert er ráð
fyrir tveimur sundlaugum, þar af
annarri sem barnalaug með renni-
braut. Einnig heitum pottum,
leirböðum og aðstöðu fyrir lækni og
sjúkraþjálfara sem verður fastur
starfsmaður.
Á stóru útisvæði verða tvær æfinga-
brautir fyrir golfmenn, önnur um 300
metra löng en hin til að æfa styttri
högg. Það verður einnig mini-golf-
völlur.
Hótelið er sérstaklega hannaö með
þaö í huga að hreyfihamlaðir eigi
auðvelt meö aö komast leiöar sinnar.
Kjartan Sveinsson teiknaði húsið.
Helgi Þór Jónsson leynir því ekki að
hann hefur mikla trú á Hveragerði.
„Jarðhitinn býður upp á ótal
möguleika,” sagði hann.
Helgi er verktaki að atvinnu. Meðal
annars hefur hann séð um viöhald hjá
álverinu í Straumsvík. Hann rekur
vélaleigu og á meðal annars stærsta
kranabíl á landinu.
-KMU.
Ólafur Viflir Björnsson og Bragi Einarsson við taikningu af Eden-Borg eins og hún verflur eftir stækkun
næsta vor.
Tívolí hefur sannað
tilverurétt sinn á íslandi
— segir f ramkvæmdast jóri Eden-Borgar f Hveragerði
„Tívoii hefur sannaö tilverurétt
sinn á Islandi í Hveragerði,” sagði
Olafur Víðir Bjömsson, fram-
kvæmdastjóri Eden-Borgar, en svo
nefnist tívolíið í Hveragerði.
„Reksturinn gekk ljómandi vel í
sumar. Þaö er óhætt að segja það.
Aðsóknin kenndi okkur að það er
betra að hafa tívolí í Hveragerði
heldur en í Reykjavík. Aðsóknin
hefði ekki orðið eins mikil í Reykja-
vík.
Þaö er eins og fólk þurfi aö fara út
úr bænum. Það er meira spennandi
að fara til Hveragerðis í tívolí,”
sagðiOlafur.
Akveðið hefur verið að stækka
tívolíiö verulega. Svæðiö verður
meira en tvöfaldað að stærð fyrir
næsta vor. Bætt verður við tækjum.
Á teikningu eru meðal annars stór
rússíbani og parísarhjóL Ekki er lík-
legt að þau komi fyrir næsta sumar.
Bæði er að rússíbaninn er dýr fjár-
festing og reyndar parísarhjólið líka.
En einnig spilar inn í að stór tæki
eins og parísarhjól taka á sig mikinn
vind. Ekki er víst að þau þoli íslensk
veður.
-KMU.
moo
Útlitsteikning afl hótelinu. Það er ó þremur hæflum. Þar verfla veitingasalir
fyrir 700 manns og 40 — 50 gistiherbergi.
400 þúsund ferða-
menn komu til
Hveragerðis
— á 20 vikum, segir Bragi í Eden