Dagblaðið Vísir - DV - 22.10.1985, Side 4

Dagblaðið Vísir - DV - 22.10.1985, Side 4
4 DV. ÞRIÐJUDAGUR 22. OKTOBER1985. Menning Menning Menning Menning Hólmfriður Árnadóttir — Pappírsverk. Pappirssjóður Sýning Hólmf ríðar Ámadóttur í Gallerí Borg Meö því merkilegra sem gerst hef- ur f nútímalistum er uppgangur pappirs sem sjálfstæös listmiöils. Þá þróun má rekja aftur til frum-kúb- ismans þegar þeir Pikassó og Braque tóku aö viöa aö sér efni úr dagblöðum og tímaritum og líma þaö á stríga. Þessi aöföng urðu síöan út- gangspunktur fyrir ýmisleg máluö tilbrigði. En þeir Píkassó og Braque höföu minni áhuga á sjálfum pappírnum heldur en því sem á honum stóð, orðanna lögun og hljóðan. Þetta skeytingarleysi þeirra gagnvart pappímum kom þeim, eöa kaupend- um verka þeirra, siöar í koll, því samklippur þeirra hafa bæði upplit- ast og dottiö í sundur i timans rás. Pappír eins og leir Mér segir svo hugur um aö áhugi á eðliseinkennum pappirs hafi ekki vaknað meðal myndlistarmanna fyrr en á sjötta áratugnum. Þá höföu listhandverksmenn gert merkilegar tilraunir meö pappír og pappirs- massa, grafíklistamenn fylgdu í kjöl- farið, og upp úr 1960 voru myndlist- armenn eins og Rausehenberg farnir aö meöhöndla pappír eins og leir. Þeirri þróun hafa þeir haldiö áfram, Frank Stella og David Hockney. Islenskir myndlistarmenn hafa verið tregir aö gútera pappír sem fullgildan listmiöil. Aö undanskild- um tilraunum nokkurra textíllista- manna meö pappírsmassa er þaö eiginlega ekki fyrr en í verkum þeirra Hólmfríöar Ámadóttur og Bjargar Þorsteinsdóttur að pappir fær aö njóta sín til fulls. Hólmfríður sýndi pappírsverk í Myndlist Aðalsteinn Ingólfsson Listmunahúsinu fyrir þremur árum, að mig minnir, einföld verk en blæ- brigðarik. Siöan hefur hún sýnt með textílfólki á Textíltriennalinum svo- nefnda. Úr biksvörtu í skjannahvítt Hólmfríöur viröist í stööugri sókn sem myndlistarmaður. Þótt einfald- leikinn sé enn í fyrirrúmi í myndum hennar tekst henni að tæpa á ótal möguleikum í uppbyggingu, áferö og litrófi. Hún gengur að mestu leyti út frá ákveðnu frumlagi, stórum pappírsformum sem hún krumpar, rífur til og frá, eða pressar. Þessi form gefa tóninn, ef svo má segja, bæöi i lögun og litbrigöum, og siöan tekur listamaðurinn miö af þeim, þegar hún skapar þeim andlag. Þótt litir séu hér nefndir í tengsl- um viö myndir Hólmfríöar er réttara aö tala um litatóna. Hún er nefnilega ekki að bruðla meö liti heldur spilar hárfint á gráskaiann, allt frá bik- svörtu upp í skjannahvítt, með ein- stökum björtum litræmum inn á milli. Því verður áhorfandinn næm- ari fyrir því sem gerist á yfirborði pappírsins en ella: samhljóman gljúpra pappírsbúta og haröra, tog- streitu ýfðra flata og glansandi, og hvernig þessir partar allir eru skeyttir saman, stundum með gyllt- um eða silfruöum saumi. Þ6 er í þessum verkum sterk rým- iskennd, áréttuö meö flötum sem steyptir eru hver ofan á annan. Sem sagt: gagnvönduð myndlist sem tekst aö vekja alls konar kenndir meö áhorfandanum. AI Fyrsta hlutabréfið íHlað- varpanum Anna Siguröardóttir, stofnandi og forstööukona Kvennasögusafnsins, hlaut fyrir stuttu að gjöf fyrsta hluta- bréfiö í Hlaövarpanum við Vesturgötu. Er þaö viöurkenning fyrir störf hennar í þágu kvenna. Hlutabréf í félaginu geta hluthafar sótt á skrifstofu Hlaövarpans. DV-mynd GVA. Iðnþing hefst a fimmtudaginn — stendur íþrjá daga Iðnþing Islendinga, hið 41. í röðinni, veröur haldiö á Hótel Sögu, Reykjavík, dagana 24., 25. og 26. október nk. Iðnþing kemur saman annaö hvert ár og hefur þaö æðsta vald í málefnum Landssambands iönaðarmanna — samtökum atvinnurekenda í löggiltum iðngreinum. Á Iönþingum er fjallað um margvísleg mál sem varða Land- samband iðnaðarmanna og aðildar- félaga þess. Sammerkt með þessum Leiðréttingá Vegna mistaka féll eftirfarandi málsgrein brott úr kjallaragrein Guðrúnar Jónsdóttur sl. föstudag: „Viö getum fylgt fast eftir kröfum um endurmat til launahækkunar á málefnum er þo að þau f jalla öll með einum eða öörum hætti um hagsmuna- mál þeirra sem fást viö iðnrekstur á sviði hinna löggiltu iðngreina sem og almennt um þau margvíslegu vanda- mál sem innlendur iðnaður á við að stríða í bráö og lengd. Aö þessu sinni eiga yfir 200 fulltrúar seturétt á Iðnþingi. Ætla má að um eöa yfir 350 manns verði við setningu þingsins sem fram fer í Súlnasal Hótel Sögu fimmtudaginn 24. okt. nk. kjallaragrein störfum kvenna þannig að verkþættir eins og umönnun, þjónusta og fram- leiðsla verði metnir til jafns við hátt metna verkþætti í karlastörfum.” í dag mælir Dagfari______________í dag mælir Dagfari___________I dag mælir Pagfari Er Byggðastofnunin hættuleg? Framkvæmdastofnun ríkisins var lengi þrætuepli stjómmálamanna. I f yrravetur var gripið til þess ráðs aö sklpta um nafn á þessari rfkisstofn- un og heltir hún nú Byggðastofnun. Þeir sem höföu haft horn í síöu Framkvæmdastofnunarinnar hrósa sér af þvi aö hafa lagt hana niður, enda þótt enginn viti til þess að neitt hafl breyst nema nafnið. Segir ekkl meira af þvi nema hvað uppi hafa veriö hugmyndir um að Byggða- stofnun flytjl bækistöðvar sínar norö- ur tU Akureyrar. Þykir þaö í sjálfu sér eðlilegt þar sem stofnunin hefur þann tflgang aö skammta dreifbýl- Inu styrki og ölmusufé eftir geðþótta þelrra þingmanna sem eiga þingsetu sína undir kjósendum fyrir norðan ogneöan. Allt heitir þetta landsbyggðarpóU- tik og hefur það markmið að haf a at- kvæðln í lagi með þeirri aðferð að pkHHfcn.ar hafi sem greiðastan að- gang að fjárhlrslum Byggöasjóös og Byggöastofnunar. Nýlega var gert samkomulag um að Guðmnndur Malmquist skyldi ráöinn forstjóri stofnunarinnar og getur það varla þýtt annað en að stjórnarflokkarnir telji Guðmund þennan geta þjónað hagsmunum sin- um með því að hafa hann í vasanum. Lítið hefur farið fyrir forstjóran- um enn sem komið er og er ekki í frá- sögur færandi þangað til svo bar við að eitt dagbiaðanna hafði við hann viðtal nú um helgina vegna hug- myndarinnar um að Byggðastofnun- in flytti norður. I viðtalinu kemur fram að stofnun- in hefur ráðiö sér ráðgjafa til aö kanna hvaða áhrif þaö hafi á Akur- eyri að stofnunin flytji þangað. Nú hefði maöur að vísu haldið aö Byggðastofnun hefði nú þegar á sin- um snærum urmulinn allan af ráö- gjöfum sem eru sérhæfðir í því að lrnnnn hvaða áhrif það hefur á lands- byggðinni þegar ríkisstofnanir eru settar þar niður. En sjálfsagt veitlr ekki af einum ráðgjafanum til. Nú er ekki gott að átta sig á þvi hvort þurfi frekari könnunar við að Byggða- stofnun hafi Ult af þvi að vera sett niður á Akureyrí eða þá hitt að Akur- eyri muni líða fyrir það að Byggða- stofnun hafi þar aðsetur. Vist er um það, að forstjórinn telur augljóslega að það geti haft slæmar afleiðingar úr þvi að hann telur ástæðu tfl sér- stakrar athugunar á flutningunum. Hann vill sem sé kanna hvaða áhrif það hefur á Akureyri ef þessi landsbyggðarstofnun flytur norður. Á hann von á því að Akureyringar neiti að taka við stofnuninni? Eða að Akureyringar leggist í óreglu? Eða flýi bæinn? Eða smitist af Aids? Eða þá hitt að blessað starf sfólkið i Byggðastofnuninni, sem hefur það verkefni að efla jafnvægi i byggð landsins, neiti sjálft að flytja norð- ur? Það værí nú saga til næsta bæjar ef boðberar landsbyggðarstefnunnar hefðu ekki meiri ást á landsbyggð- inni en svo að þeir neituðu að halda áfram störfum ef þeir sjálfir yrðu fluttir út á iand. Og ef þeir flytja, nauðugir, viljugir, óttast forstjórinn að þeir hafi svo slæm áhríf á bæjar- lifið á Akureyri að það þurfi sérstak- an ráðgjafa til að plægja akurinn. Ekki er þetta góður vitnisburður um Akureyri né heldur Byggðastofnun, hvað þá landsbyggöarpólitíkina. Væri nú ekki ráð fyrir forstjórann og byggðapólitikina i framtíðinni að Byggðastofnun léti kanna almennt, hvort fjáraustur og stofnanaflutning- ur út og suður sé ekki dreifbýlis- plássunum til mestrar óþurftar? Er nokkurt vit í því að gera landsbyggð- inni þann grikk að senda henni pen- inga og stofnanir sem leggja stórbæi á borð við Akureyri í rúst? Og þarf ekki sömuleiðis að kanna hvaða áhrif það hefur á Reykjavík að Byggða- stofnunin sé þar staðsett? Þarf ekki ráðgjafaíþað? Dagfari

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.