Dagblaðið Vísir - DV - 22.10.1985, Blaðsíða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 22.10.1985, Blaðsíða 26
* 26 DV. ÞRIÐJUDAGUR 22. OKTOBER1985. Andlát Greta Björnsson listmálari, Noröur- brún 20 Reykjavík , veröur jarösungin frá Fossvogskirkju á morgun, miðvikudag, kl. 13.30. Hanna Kristín Gisladóttir lést 12. októ- ber sl. Hún fæddist í Hafnarfirði 1. desember 1924. Foreldrar hennar voru hjónin Gísli Guðmundsson og Anna Hannesdóttir. Eftirlifandi eiginmaður Hönnu er Ölafur Oskarsson. Þeim hjónum varð fimm barna auöið. Utför Hönnu veröur gerð frá Hafnarf jarðar- kirkju í dag kl. 13.30. Fanný Sigriður Þorbergsdóttir, Austurbrún 2, andaðist í Borgar- spítalanum laugardaginn 19. þessa mánaðar. Brynjólfur Magnússon, Gautlandi 15 Reykjavík, sem andaðist 8. október sl. verður jarðsunginn frá Fossvogs- kirkju fimmtudaginn 24. október kl. 13.30. Hafsteinn Davíðsson, Uröargötu 18 Patreksfirði, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 24. október kl. 16.30. Minningarathöfn um *- hinn látna verður í Patreksfjarðar- kirkju laugardaginn 26. október kl. 13. Einar Guðbjartsson, Efstasundi 6, verður jarðsunginn frá Fossvogs- kirkju miðvikudaginn 23. október kl. 10.30. Sigríður Guðmundsdóttir, Skipholti 18, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 24. október kl. 15. Guðni Bridde rafvirkjameistari, Víöi- hlíð 2, andaðist í Borgarspítalanum 18. október. Randý Kristmannsdóttir Sellevold lést á heimili sínu á Dal í Noregi aðfaranótt 17. október. Einar Kr. Þorbergsson frá Isafirði lést í Borgarspítalanum þann 19. október sl. Hafliði Gísli Gunnarsson, Kjalarlandi 25, lést af slysförum 20. þessa mánaðar. Maria Björnsdóttir, Kárastíg 13, lést í Landakotsspítala 18. október. Aage Nielsen-Edwin myndhöggvari lést í Landspítalanum þann 19. októ- ber. Utförin fer fram frá Nýju kapell- unni í Fossvogi föstudaginn þann 25. októberkl. 10.30. Ásgeir M. Ásgeirsson kaupmaöur, Sjó- búðinni, Grandagarði, Melabraut 7 Seltjarnarnesi, sem lést mánudaginn 14. október sl., verður jarðsunginn frá Neskirkju miðvikudaginn 23. október > kl. 13.30. Tilkynningar Myndasýning hjá félögum ís- lenska alpaklúbbsins Miðvikudaginn 23. október sýna fimm félagar í Islenska alpaklúbbnum myndir frá vel heppnaðri ferð þeirra í Andesfjöll í Perú sl. vor. M.a. verða sýndar myndir af klifri á Kólaraju (8040 m), AUapamayo (5947 m) og hæsta fjall Perú, Huascaran (6768 m). Sýn- ingin verður í Risinu, Hverfisgötu 105, á homi Snorrabrautar og Hverfisgötu, og hefst kl. 20.30. Aðgangseyrir kr. 150. Allir velkomnir. Eiðfaxi, 10. tbl. 1985, er kominn út Það eru nýir ritstjórar sem stýra blaðinu að þessu sinni, Þorgeir Guðlaugsson og Guð- mundur Birkir Þorkelsson. 1 Eiðfaxa eru margar fróðlegar greinar um hesta og hesta- mennsku. Þar er meðal annars að finna grein um folahlaup og er það fyrsti þátturinn af mörgum fyrir krakka og unglinga. Knúið er dyra hjá Asmundi Eysteinssyni á Högnastöð- um, fjallað um Evrópumótið í hestaiþróttum. Skrá er yfir ættbók allra stóðhesta frá númer- unum 1016 til 1033. Einnig er ættbók hryssa sem færöar voru i ættbók árið 1985. Kristinn Hugason skrifar grein nr. 2 um hrossarækt, sagt er frá hestamótunum i Holtsmúla og af móti Snarfara og Öðins í Húnavatnssýslum. Einnig er smælki með ýmsum fróðleiksmol- um. Minningakort Áskirkju Minningarkort Safnaöarfélags Áskirkju hafa eftirtaldir aðilar til sölu: Þuríður Ágústsdóttir, Austurbrún 37, sími 81742. Ragna Jónsdóttir, Kambsvegi 17, sími 82775. Þjónustuíbúðir aldraðra, Dalbraut 27. Helena Halldórsdóttir, Norðurbrúnl. Guðrún Jónsdóttir, Kleifarvegi 5, sími 81984. Holtsapótek, Langholtsvegi84. Verslunin Kirkjuhúsið, Klapparstig 27. Þá gefst þeim, sem ekki eiga heimangengt, kostur á að hringja í Áskirkju, síma 84035, milli kl. 17.00 og 19.00 á daginn og mun kirkju- vörður annast sendingu minningarkorta fyrir þásemþessóska. Opinn fræðslufundur um ónæmistæringu Fimmtudaginn 24. október nk. heldur ung- mennahreyfing Rauöa kross Islands opinn fræðslufund um ónæmistæringu (AIDS) í kennslusal RKI, Nóatúni 21. Læknarnir Sigurður Guðrnundsson og Soili Erlingsson halda fyrirlestra og svara fyrir- spurnum. Fundurinn hefst kl. 20.30 og er ungt fólk sér- staklega boðiö velkomið. Aðalfundur .íþróttafélagsins Leiknis verður haldinn í Gerðubergi 29. október 1985 kl. 20.30. Stjórnin. Aðalfundur Norræna félagsins í Garðabæ verður haldinn í dag, þriðjudaginn 22. okt. kl. 20.30 í Garðaskóla (gengið inn hjá bóka- safninu). Auk venjulegra aðalfundastarfa verður sýnd mynd frá Færeyjum og Hjörtur Pálsson, útvarpsmaður og rithöfundur, mun flytja erindi um Færeyjar þar sem vinabæjar- mót verður haldið í Þórshöfn næsta sumar. Einnig verður kaffi í boði félagsins. Kvennaathvarf Opið allan sólarhringinn, simi 21205. Húsa- skjól og aöstoð við konur sem beittar hafa verið ofbeldi í heimahúsum eða orðið fyrir nauðgun. Skrifstofan að Hallveigarstöðum er opin virka daga kl. 14—16, sími 23720. Póst- gírónúmer samtakanna 4442-1, Pósthólf 1486 121 Reykjavík. Kópavogsbúar — vesturbæingar Fyrrverandi nemendur úr Kársnesskóla og Þinghólsskóla, fæddir 1958, ’56 og '60. Mætum öll á stórdansleik í veitingahúsinu Ríó í Kópa- vogi föstudaginn 1. nóvember. Húsið verður opnað kl. 21. Takið með ykkur gamla góða skólaskapið, makar og kennarar velkomnir. Æskilegt að sem flestir tilkynni þátttöku í símum: ’58 árg. Hóffý s. 46108 eða Harpa s. 11266, '59 árg. Ola Bjarna s . 78653 eða Jana s. 54670. ’60 árg. Hrabba s. 641381 eða Magga s. 45129. 60 ára er í dag, 22. október, Sigurður Sigurjónsson, Teigagerði 12 hér í bæ. Hann ætlar að taka á móti gestum sínum í Ármúla 40 í dag eftir kl. 17.00. 70 ára er í dag, 22. október, frú Björg Anna Sigvaldadóttir frá Hrafna- björgum í Svínadal, A-Hún., Snæfells- Nýlega héldu þessir ungu piltar tombólu í leikherberginu í Suðurhólum 28. Ágóðann, kr. 253, gáfu þeir Rauöa Skeleton Crew til landsins Hingað til lands er væntanleg allsérstæð ensk- amerísk hljómsveit sen kallast Skeleton Crew (Beinagrindaáhöfn). Hún er skipuð þremur fjölbragðamúsíköntum, þeim Fred Frith, Tom Cora og Zeenu Parkins. Þau spila hvert um sig á mörg hljóðfæri samtímis jafnframt þvi sem þau syngja öll. Tom og Zeena störfuðu bæði í sirkus áður en þar njóta svona „One-Man bönd” mikilla vin- sælda. Fred Frith er hins vegar kunnur úr rokkheiminum. Hann hefur m.a. verið í ási 5 Hellissandi. Hún er í dag stödd á heimili dóttur sinnar, Krummahólum 4 í Breiðholtshverfi. Eiginmaður Bjargar önnu var Oskar Bergþórsson bifreiðarstjóri er lést i ágústmánuöi 1984. Tapað -fundiö Búbbúlína er týnd Hún er 7 mánaða bröndótt læða og hvarf frá heimili sinu að Laufásvegi 2A sunnudaginn 20. okt. sl. Hún er merkt og með bláa ól. Þeir sem hafa orðið ferða hennar varir vinsamleg- ast hringi í síma 23611. krossi Islands. Piltamir heita, frá v., Oskar Gíslason og Snorri Marteinsson. hljómsveitunum Henry Cow, Art Bears og Residents. Hann er einnig afar eftirsóttur stúdíógítarleikari og hefur m.a. spilað á plöt- um hjá Brian Eno, Phil Collins, Robert Fripp, Lindsay Cooper, Robert Wyatt o.m.fl. Þá hef- ur Fred Frith sent frá sér nokkrar sólóplötur og 1980 náði hann hátt á vinsældalista meö lagið „Dancing in the Street”, sama lagi og David Bowie og Mick Jagger syngja nú. Hér munu Skeleton Crew koma fram á fjöl- bragðarokkhátiðinni „Velkomin um borð” í Menntaskólanum við Hamrahlið 3. nóv. Heimsmeistarakeppnin íbridgeíBrasilíu Spennandi umf erð í gær Brasilía hefur flest stig í undanúr- slitum heimsmeistarakeppninnar í karlaflokki eftir 3. umferð sem lauk í gærkvöldi. Israel fylgir í kjölfarið og munar aöeins einu stigi. Argentina ef í 3. sæti. Eftir 4 umferðir kemur í ljós hverjir það verða sem spila til úrslita í karlaflokki með Bandaríkjunum og Ástralíu. I kvennaflokki hefur lið Bandaríkj- anna flest stig eftir 3. umferð en í öðru sæti er Argentína. Fjórða umferð verður spiluö í báöum fiokkum í dag. -KB. Olíufélögin fara fram á verðhækkun: Neyðarfarmur af gasolíu f rá Noregi „Verð á unnum oliuvörum hefur hækkaö mjög verulega síöustu fimm mánuði. Við erum að selja nú gamlar olíuvörur undir markaðsverði,” sagði Indriði Pálsson, forstjóri Olíufélagsins Skeljungs, í samtali við DV í gær. Olíu- félögin hafa farið fram á 7,2% hækkun á gasoliu. Verö á gasolíulitra er nú 11,10 kr. en beðið er um 80 aura hækkun. Indriði sagöi aö tonnið af gasoliu hefði hækkaö um 40 dollara siðan 19. maí sl. Tonniö kostar nú 259 dollara sem er meðalverð á Rotterdam- markaði. Ástæðurnar fyrir þessari miklu hækkun sagöi Indriði að væru meiri eftirspurn en framboð en stríð Irans og Iraka hefur áhrif á framboðið. Lækkun dollars hefur einnig áhrif. Hann sagði einnig að Rússar hefðu ekki staðið við umsamdar afgreiðslur á gasoliu til Isiendinga. Þvi heföu nú þurft að gripa til þess aö panta neyðarfarm af gas- olíu frá Noregi og væri hann yfir meðalverði. Flugvélasteinolía hefur einnig hækkað verulega en svartolía lítið. -ÞG Nauðungaruppboð sem auglýst var i 102. tölublaöi Lögbirtingablaðs 1984 og 2. og 8. tölu- blaði þess 1985 á Selási 13, Egilsstööum, þingl. eign Benedikts Vil- hjálmssonar, fer fram samkvæmt kröfu innheimtumanns rikissjóðs á eigninni sjálfri mánudaginn 28. október 1985 kl. 16.45. Sýslumaðurinn I Suður-Múlasýslu. Amadeus Ný hársnyrtistofa hefur verið opnuð í húsi eru Pétur Pétursson og Jökull Jörgensen. Við- Kjörgarðs, Laugavegi 59, 2. hæð. Eigendur skiptavinirgetapantaðtímaísíma 22540.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.