Dagblaðið Vísir - DV - 22.10.1985, Page 29
DV. ÞRIÐJUDAGUR 22. OKTOBER1985.
29
Peningamarkaður
Sandkorn
Sandkorn
Innlán með sérkjörum
Alþýðubankinn: Stjörnureikningar eru
fyrir 15 ára og yngri og 65 ára og eldri. Inn-
stæður þeirra yngri eru bundnar þar til þeir
verða fullra 16 ára. 65—74 ára geta losað inn-
stæður með 6 mánaða fyrirvara, 75 ára og
eldri með 3ja mánaða fyrirvara. Reikning-
arnir eru verðtryggöir og með 8% nafnvöxt-
um.
Þriggja stjömu reikningar eru með hvert
innlegg bundið í tvö ár, verðtryggt og með 9%
nafnvöxtum.
Lifeyrisbók er fyrir þá sem fá lífeyri frá líf-
eyrissjóðum eða almannatryggingum. Inn-
stæður eru óbundnar og óverðtryggðar. Nafn-
vextir eru 29% og ársávöxtun 29%.
Sérbók. Við fyrsta innlegg eru nafnvextir
27%, en 2% bætast við eftir hverja þrjá mán-
uði án úttektar upp í 33%. Arsávöxtun á
óhreyf ðri innstæðu er 33,5% á f yrsta ári.
Búnaðarbankinn: Sparibók með sérvöxt-
um, Gullbókin, er óbundin meö 34% nafnvöxt-
um og 34% ársávöxtun á óhreyfðri innstæðu
eða ávöxtun 3ja mánaða verðtryggðs reikn-
ings reynist hún betri. Af hverri úttekt drag-
ast 1,7% í svonefnda vaxtaleiöréttingu.
18 mánaða reikningur er með innstæðu
bundna í 18 mánuði á 36% nafnvöxtum og
39,2% ársávöxtun, eða ávöxtun 6 mánaða
verðtryggðs reiknings reynist hún betri.
Iðnaðarbankinn: Bónusreíkningar eru
annaðhvort með 28% nafnvöxtum og 30% árs-
ávöxtun eða verðtryggöir og meö 3,5% vöxt-
um. Hærri ávöxtunin gildir hvern mánuð. A
hreýfðum innstæðum gildir verðtrygging auk
2% vaxta í úttektarmánuðinum. Taka má út
tvisvar á hverju 6 mánaða tímabili án jjess aö
vaxtakjör skerðist. Vextir eru færðir 30.06. og
31.12.
Landsbankinn: Kjörbók er óbundin meö
34% nafnvöxtum og 34% ársávöxtun eða
ávöxtun 3ja mánað verðtryggðs reiknings
reynist hún betri. Af hverri úttekt dragast
-1,7% í svonefnda vaxtaleiðréttingu.
Samvinnubankinn: Hávaxtareikningur
hefur stighækkaridi vexti á hvert innlegg,
fyrst 22%, eftir 2 mánuði 23,5%, 3 mánuði
25%, 4 mánuði 26,5%, 5 mánuöi 28%, eftir 6
mánuði 29,5% og eftir 12 mánuði 31,6%. Ars-
ávöxtun á óhreyfðu innleggi er 34,1%, eða eins
og á 3ja og 6 mánaða verðtryggðum reikning-
um reynist hún betri. Vextir færast tvisvar á
ári.
Útvegsbankinn: Abót ber annaðhvort hæstu
ávöxtun óverðtryggðra reikninga í bankan-
um, nú 34,6%, eða ávöxtun 3ja mánaða verð-
tryggðs reiknings með 1% nafnvöxtum sé
hún betri. Samanburður er gerður mánaðar-
lega en vextir færðir í árslok. Sé tekið út af
reikningnum gilda almennir sparisjóðsvextir,
22%, þann mánuð.
Verslunarbankinn: Kaskóreikningur er
óbundinn. Þá ársfjórðunga sem innstæða er
óhreyfð eða aðeins hefur verið tekið út einu
sinni eru reiknaðir hæstu vextir sparifjár-
reikninga í bankanum. Nú er ársávöxtun ann-
aðhvort 34,8% eða eins og á verðtryggðum 6
mánaða reikningum með 3,5% nafiivöxtum. Af
úttekinni upphæð reiknast almennir spari-
sjóðsvextir, 22%, og eins á alla innstæðuna
innan þess ársfjórðungs þegar tekið hefur
verið' út oftar en einu sinni. Innlegg fær strax
, hæstu ávöxtun sé það óhreyft næsta heila árs-
fjóröung.
Sparisjóðir: Trompreikningur er verö-
tryggður og með ávöxtun 6 mánaða reikninga
með 3% nafnvöxtum. Sé reikningur orðinn 3ja
mánaða er gerður samanburöur á ávöxtun
með svokölluðum trompvöxtum, 32% með
34,3% ársávöxtun. Miðað er við lægstu inn-
stæðu i hverjum ársfjórðungi. Reynist tromp-
vextir gefa betri ávöxtun er þeim mun bætt á
vaxtareikninginn. Hreyfðar innstæður innan
mánaðar bera trompvexti sé reikningurinn
eldri en 3ja mánaða, annars almenna spari-
sjóðsvexti, 22%. Vextir færast misserislega.
Spariskírteini
Spariskírteini Ríkissjóðs Islands eru seld í
Seðlabankanum, viðskiptabönkum, sparisjóð-
um, hjá verðbréfasölum og í pósthúsum. Nýj-
ustu skírteinin eru að nafnveröi 5, 10 og 100
þúsund krónur.
1) Við kaup á viðskiptavíxium og viðskiptaskulda
bréfum er miðað við sérstakt kaupgengi, kge, hjá
þeim bönkum sem þannig er meirkt við, e'mnig hjá
sparisjóðunum í Hafnarfkði, Kópavogi, Keflavík,
Þau eru: Hefðbuudin, til mest 14 ára en inn-
leysanleg eftir þrjú ár, 10.09.88. Nafnvextir
7%. Vextir, vaxtavextir og verðbætur greið-
ast með höfuðstól við innlausn. Með vaxta-
miðum, skírteini til mest 15 ára, innleysanleg
eftir 5 ár, 10.09.90. Vextir eru 6,71% á höfuð-
stól og verðbætur, reiknaðir misserislega og
greiddir út gegn framvísun vaxtamiöa. Verð-
bætur greiðast með höfuðstól við innlausn.
Með hreyfanlegum vöxtum og 50% vaxta-
auka, til 18 mánaða eða 10.03. 87. Vextir eru
meðaltal vaxta á 6 mánaða verðtryggðum
reikningum bankanna og með 50% álagi.
Vextir, vaxtavextir, vaxtaauki og verðbætur
greiðast með höfuðstól við innlausn. Gengis-
tryggð skírteini eru til 5 ára, 10.09.90. Þau eru
bundin safngjaldeyrinum SDR og bera 9%
vexti. Vextir og vaxtavextir greiðast við inn-
lausn með höfuðstól, í samræmi við stöðu
SDR.
Almenn verðbréf
Fasteignatryggð verðbréf eru til sölu hjá
verðbréfasölum. Þau eru almennt tryggð með
veði undir 60% af brunabótamati fasteign-
anna. Bréfin eru ýmist verðtryggð eða óverð-
tryggð og með mismunandi nafnvöxtum.
Þau eru seld með afföllum og ársávöxtun er
almennt 12—18% umf ram verðtryggingu.
Húsnæðislán
Nýbyggingarlán frá Byggingarsjóði
ríkisins, F-lán, nema á 4. ársfjórðungi 1985:
til einstaklinga 720 þúsundum króna, 2—4
manna fjölskyldu 916 þúsundum, 5 manna og
fleiri 1.073 þúsundum, 7 manna og fleiri (í sér-
tilvikum) 1.237 þúsundum. Lánin eru til 31
árs.
Lán til kaupa á eldri íbúðum, G-lán, nema,
á 4. ársfjórðungi 1985: til kaupa í fyrsta sinn.
hámark 348 þúsund krónur til einstaklings,
annars mest 139—174 þúsund. 2—4 manna
fjölskylda fær mest 442 þúsund í fyrsta sinn,
annars mest 177—221 þúsund, 5 manna eða
stærri fær met 518 þúsund í fyrsta sinn,
annars mest 207—259 þúsund krónur. Láns-
tímier21ár.
Húsnæðislánin eru verðtryggð með láns-
kjaravísitölu og með 3,5% nafnvöxtum.
Fyrstu tvö árin er ekki greitt af höfuðstól,
aðeins vextir og verðbætur.
Útlán lífeyrissjóða
Um 90 lífeyrissjóðir eru í landinu. Hver
sjóður ákveður sjóðfélögum lánsrétt, láns-
upphæöir, vextir og lánstíma. Stysti tími að
lánsrétti er 30—60 mánuðir. Sumir sjóðir
bjóða aukinn lánsrétt eftir lengra starf og
áunnin stig. Lán eru á bilinu 150—700 þúsund
eftir sjóðum, starfstíma og stigum. Lánin eru
verðtryggð og með 5—8% vöxtum. Lánstími
er 15—35 ár.
Biðtimi eftir lánum er mjög breytilegur.
Hægt er að færa lánsrétt við flutning milli
sjóða eða safna lánsrétti frá fyrri sjóðum.
Nafnvextir, ársávöxtun
Nafnvextir eru vextir í eitt ár og reiknaðir í
einu lagi yfir þann tíma. Séu vextir reiknaðir
og lagöir við höfuðstól oftar á ári verða til
vaxtavextir og ársávöxtunin verður þá hærri
en nafnvextirnir.
Ef 1000 krónur liggja inni i 12 mánuði á
22% nafnvöxtum verður innstæðan í lok tim-
ans 1.220 krónur og ársávöxtunin þannig 22%.
Liggi 1000 krónur inni í 6+6 mánuði á 22%
nafnvöxtum reiknast fyrst 11% vextir eftir 6
mánuði. Þá er upphæðin oröin 1110 krónur. A
hana koma svo 11% vextir eftir næstu 6 mán-
uði. Þannig verður innstæðan í lok timans
1.232 krónur og ársávöxtunin 23,2%.
Dráttarvextir
Dráttarvextir eru 3,75% á mánuði eða 45%
á ári. Dagvextir reiknast samkvæmt því
1,125%.
Vísitölur
Lánskjaravísitala í október 1985 er 1.266
stig, en var 1.239 stig í september. Miðað er
við grunninn 100 í júní 1979.
Byggingarvísitala á 4. ársfjórðungi 1985 er
229 stig á grunninum 100 frá janúar 1983 en
3.392 stig á grunrii 100 frá 1975.
SparisjóAi Reykjavíkur og Sparisj. vélstj.
21 Vaxtaálag á skuldabréf til uppgjörs vanskilalána
er 2% á ári, bæði é verðtryggó og óverðtryggð lán,
nema í Alþýðubankanum og Verslunarbankanum.
VEXTIR BANKA OG SPARISJÖÐA (%) 11,- 20.10.1985.
INNLAN með sérkjorum SJA sériista s 1 11 lí 11 Búnaóar bankitn á S 11 !Í Íl II U Ú
INNLAN ÚVEROTRYGGÐ
SPARISJOOSBÆKUR Úbundm rastnóa 22,0 22.0 22,0 22.0 22.0 22.0 22.0 22.0 22.0 22.0
SPARIREIKNINGAR 3ja mánaóa uppsbgn 25,0 26,6 25.0 25.0 23.0 23.0 25.0 23.0 25.0 25.0
6 mánaóa uppsogn 31,0 33.4 30.0 28.0 28.0 30.0 29.0
12 máoaóa uppsbgn 32,0 34,6 32.0 31.0 32.0
SPARNAÐUR LANSRÉTTUR Spataó 3 -5 minuói 25,0 23.0 23.0 23.0 23.0 25.0 25,0
Sparaó 6 mán. og mwa 29.0 26.0 23.0 29.0 28.0
INNLANSSKlRTEINI Ti 6 mánaóa 28,0 30,0 28.0
TÉKKAREIKNINGAR ÁvisanareArangaf 17.0 17.0 8.0 8.0 10.0 8.0 8.0 10.0 10.0
Hkaupareiárangar 10,0 10.0 8.0 8.0 10,0 8.0 8.0 10.0 10.0
innlAn verðtryggo
SPARIREIKNINGAR 3p mánaóa uppsogn 2.0 1.5 1.0 1.0 1.0 1.0 1.0 2.0 1.0
6 mánaóa uppsbgn 3,5 3.5 3.5 3,5 3.0 3.0 3.0 3.5 3.0
INNLAN GENGISTRYGGO
GJALDEYRISREIKNINGAR Bandarikfadolarar 8.0 8.0 7.5 7.0 7.5 7.5 7.5 7.5 8.0
Sterlingspund 11.5 11.5 11.0 11.0 11.5 11.5 11.0 11.5 11.5
Vestur þýsk mork 5.0 4.5 4.25 4.0 4.5 4.5 4.5 5.0
Danskar krónur 10.0 9.5 8.0 8.0 9.0 9.0 9.0 10.0 9.0
utlAn úverðtryggð
ALMENNIR VlXLAR Iforvexta) 30.0 30.0 30.0 30.0 30.0 30.0 30.0 30.0 30.0
VIOSKIPTAVlXLAR 32,511) kgo 32.5 kga 32.5 kge kge kge
ALMENN SKULDABRÉF 32.012) 32.0 32.0 32.0 32,0 32.0 32.0 32.0 32,0
VIOSKIPTASKULDABRÉF 33.5 1) kge 33.5 kge 33,5 kge kge kge 33,5
HLAUPAREIKNINGAR Yhrdráttur 31.5 31,5 31.5 31.5 31,5 31.5
útlAn verotryggo
SKU10ABRÉF Að 2 112 ári 4.0 4.0 4.0 4.0 4.0 4.0 4.0 4.0 4.0
Lengn en 2 1/2 át 5.0 5.0 5.0 5.0 5.0 5.0 5.0 5.0 5.0
UTLAN til framleiðslu
VEGNAINNANLANDSSOLU 27.5 27.5 27.5 27.5 27.5 27.5 27,5 27.5 27.5
VEGNA UTFLUTNINGS SOR teéiramynt 9.5 9.5 9.5 9.5 9.5 9.5 9.5 9.5 9.5
Jón Helgason.
Lambaket þykir herramauns-
matur, hvort sem slátrunin er
lögleg eða ólögleg.
Leynisláturhús
Á haustln kemur ævin-
lega upp umræða um leyfis-
veitingar til einstakra slát-
urhúsa. Flest eru þessi mál
leyst í sátt og samlyndi. Þ6
munu vera til menn sem
ekki taka áhættu á synjun
um sláturleyfi og fara því
aðrar og auðveldari leiðir.
Blaðið Ólsarinn í Olaf svík
greindi nýlega frá því að á
Hellissandi væri rekið
„leynisláturhús” við heldur
bágar aðstæður. Segir blað-
ið að þetta sláturhús sé að
sjálfsögðu rekið ólöglega en
afurðirnar seldar Pétri og
Páli.
Rekstur þessa sláturhúss
mun eiga einhverja framtíð
fyrir sér, þótt ólöglegur sé,
því vélvæðing mun hafin
innan veggja. Segir sagan
að þangað hafi nú verið
keypt forláta kjötsög. Og
svo er bara beðið eftir frek-
ari f járfestingum.
Dýr koss
Vinkonurnar voru báðar
orðnar vel gjafvaxta og þvi
vildi spjaU þeirra beinast
svoUtið út í annan kantinn:
„Ég skal segja þér það,”
sagði önnur með andköfum,
„að hann pabbi myndi kála
hverjum þeim manni sem
reyndi að kyssa mig.”
„Nei, svo IangUfur verður
hann nú varla.”
Mikið hefur borið á þjófn-
uðum í Háskólanum í haust.
Eru það aðallega yfirhafnir
sem stoUð er úr fatahengj-
nm
Ekki eru hinir athafna-
sömu að taka hvað sem er
þvi þeir hafa einkum fest
hendur á leðurjökkum.
Hafa flestir þeirra horfið úr
Odda, hinu nýja hugvis-
indahúsi, en þar er engin
gæsla í fatahengjunum
frekar en annars staðar i
Háskólanum.
Nú er það einu sinni svo
að þótt hábölvað sé að
missa góða úlpu þá er enn
tiifinnanlegra að tapa góð-
um leðurjakka. Síðar-
nefndu fUkurnar eru rán-
dýrar og geta kostað 15—
20.000. Hefur verið slegið á
að 10—15 jökkum hafi verið
stoUð síðan skólinn hófst i
haust.
Bæjarstjómin
og trúðurinn
Bæjarstjórnin á Akranesi
lenti í svolitlum vanda um
daginn. Þá barst henni bréf
frá Norræna félaginu þar
sem vakin var athygU á því
að sænskur trúður væri
væntanlegur tU landsins
innan skamms. Ef bæjar-
stjómin teldi sig geta notað
hann þá væri bara að
hnippa í það Norræna.
Að sögn Skagablaðsins
vék bæjarstjómin sér
nokkuð fimlega út úr þessu
vandræðamáU. Hún visaðl
því tU æskulýðsnefndar
bæjarins.
Þegar hin síðamefnda
hafði velt hinu gimUega
trúðstUboði fyrir sér um
hríð komst hún að þeirri
niðurstöðu að koma trúðs-
ins yrði að vera í tengsium
við einhverja aðra
skemmtun. Það væri nefni-
lega ári hæpið að tefla
honum fram einum síns
Uðs.
En að því er fregnir
herma hefur trúðurinn enn
ekki verið endanlega af-
skrifaður. Má því segja að
máUð sé „í biðstöðu”.
En ekki er að spauga að
blessaðri norrænu samvinn-
unni frekar en fyrri daginn!
hetjudáðir
Stöðugt berast tiðindi af
vasklegri framgöngu Jóns
Helgasonar dómsmálaráð-
herra gegn áfengum
drykkjum.
Nýlega opnuðu þrír
Fransmenn veitingahús á
Baldursgötu. Það ber nafn
með rentu og heitir einfald-
lega „Þrír Frakkar”. Vand-
að er til innréttinga á staðn-
um og mikil áhersla lögð á
að bjóða upp á gómsætan
franskan mat.
En vinveitingaleyfi fæst
ekki.
Telst það liklega heims-
met að ekki skuli fást borð-
vin á frönskum veitinga-
stað svo þessi umræddi ætti
fuUt erindi i heimsmetabók
Guinness.
Því var það svo að Frakk-
arnir, sem reka hann, vUdu
ekki trúa að dómsmálaráð-
herra hefði synjað þeim um
leyfið. Þess vegna hélt einn
eigendanna á fund Jóns tU
að leysa úr þessum mis-
skilningi.
En hafi Frakklnn verið
hissa þegar hann fór þá var
hann steinhissa þegar hann
hafði eftir svar ráðherra:
„Hann segja að það er
líka gott-ávaxtasafi! ”
Umsjón:
Jóhanna S. Sigþórsdóttir
Leðurstuldir
Sífelldar
Kvikmyndir Kvikmyndir Kvikmyndir
LAUGARÁSBÍÓ — STICK
★ ★ ★ ★ Frábær ★ ★ ★ Góð ★ ★ Miðlungs ★ Lóleg O Afleit
Stick (Burt Reynolds) ó tali við tvo undirheimamenn.
Stick.
Leikstjórí: Burt Reynolds.
Handrit: Elmore Leonard og Joseph H. Stinson.
Kvikmyndun: Nlck McLean.
Tónlist: Barry de Vorzon og Joseph Conlan.
Aðalhlutverk: Burt Reynolds, George Segal og
Candice Bergen.
Burt Reynolds á að baki sem leik-
stjóri og leikari eina ágæta saka-
málamynd, Sharky’s Machine. Það
hefur greinilega átt að leika sama
leikinn með Stick. Gæðamismunur-
inn er aftur á móti mikiU. Stick er í
flesta staði hin misheppnaða kvik-
mynd. Siakt handrit og leiðinlegur
Burt Reynolds gera það að verkum
að maður er þeirri stundu fegnastur
þegar myndinni lýkur.
I þetta sinn leikur Burt Reynolds
Ernest Stickley, sem er kallaður
Stick. Hann er nýsloppinn úr fangelá
þar sem hann hefur dvaUð í sjö ár. I
Flórída hittir hann fyrrverandi
félaga sinn. Saman taka þeir að sér
að flytja peninga miUi staða. Ekki
fer það betur en svo að vinur hans er
drepinn og Stick sjálfur rétt sleppur.
I ljós kemur að þeir hafa verið í
vinnu fyrir eiturlyfjasmyglara sem
kallaður er Nestor. Hann viU Stick
feigan og hefst nú barátta upp á líf og
dauða. Stick, sem viU hefna vinar
síns, ræður sig í vinnu hjá hálf-
klikkuðum miUjónamæringi sem vill
helst hafa fyrrverandi glæpamenn í
vinnu. Þar kynnist hann Kyle, konu
sem hann verður hrifinn af. Gegnum
miUjónamæringinn kemst Stick aö
því hvar á að leita Nestors. En áður
en tU uppgjörs miUi þeirra kemur
rænir Nestor dóttur Sticks og heldur
henni sem gisl.
Burt Reynolds er takmarkaður
leikari. Yfirleitt hefur hann flotið á
sjarmanum einum saman og í Stick
er hann það eina sem hann hefur
fram að færa. Hann er líkari sólbrún-
um iðjuleysingja en fyrrverandi
fanga sem berst fyrir Ufi sínu.
Candice Bergen leikur Kyle sem á að
vera f jármálaséní. Hún hefur alla tíð
verið takmörkuð leikkona og hér er
hún öll hin vandræðalegasta.
Samleikur hennar og Reynolds er
vægast sagt hallærislegur. Það er
George Segal sem bjargar því sem
bjargað verður. Hann fær allavega
áhorfendur til að hlæja að hinum
kostulega mUljónamæringi Barry
Brahn, sem viU helst vera umsverm-
aður af glæpamönnum.
I heUd er Stick formúlumynd sem
skUur ekkert eftir nema spuminguna
um það hvað Burt Reynolds endist
lengi til að leika sama hlutverkið.
Hilmar Karlsson.
LÚINN REYNOLDS