Dagblaðið Vísir - DV - 30.10.1985, Síða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 30.10.1985, Síða 3
DV. MIÐVIKUDAGUR 30. OKTOBER1985. 3 EF ÞU SEGIR UPP VERDUR MÁIiÐ LÁTIÐ NIÐUR FALLA — buðuráðamenn Landhelgisgæslunnar Höskuldi Skarphéðinssyni Forstjóri Landhelgisgæslunnar, Gunnar Bergsteinsson, í samráði við dómsmálaráðuneytið, bauð Höskuldi Skarphéðinssyni skipherra í vor að segja upp gegn því að málið um röngu áfengisnóturnar yrði látið niður falla. Höskuldur afþakkaði það boð. Ráðamenn Landhelgisgæslunnar gerðu Höskuldi þá nýtt tilboð. Hann færi í ársfrí og málið yröi látið kyrrt liggja. Aftur afþakkaöi Höskuldur og nú með þeim orðum að hann tryði því ekki að réttvísin væri til sölu. Dómsmálaráðuneytið kærði því málið til Rannsóknarlögreglu ríkisins. Rannsóknarlögreglan sendi ríkissak- sóknara niðurstöðu sína 3. júlí í sumar. Saksóknari gaf út opinbera ákæru 15. október, bæði gegn Höskuldi og af- greiðslumanni í áfengisútsölunni við Snorrabraut. Gunnar Bergsteinsson segist ekki ræða mál einstakra starfsmanna í blöðum. Höskuldur Skarphéðinsson er einnig ófús að tala við DV. Hann segist fyrst ætla að skýra frá málinu á þingi Farmanna- og fiskimannasambands Islands í næstu viku. Frá því í maímánuði í vor og þar til nýlega var Höskuldur á biðlaunum. Fyrr í þessum mánuði var hann kall- aður aftur til starfa þegar vantaði mann til að þjálfa kafara. Innan Landhelgisgæslunnar ríkir urgur og reiði vegna þessa máls. Mönnum þykir þar harkalega gengið að Höskuldi sem í gegnum. árin hefur aflaðsérálitsogvirðingar semeinnaf hæfustu skipherrum Landhelgisgæsl- unnar. Þar telja margir að hin ötula fram- ganga Höskuldar, sem formanns Skip- Höskuldur Skarphéðinsson skip- herra. stjórafélags Islands í réttindamálum skipherranna, hafi farið svo í taugarnar á ráðamönnum stofnunar- innar að þeim hafi þótt best að þagga niður í honum með því að gera sem mest úr röngu áfengisnótunum ög kæra málið úr því að Höskuldur vildi ekki segja upp sjálfur. Eins og fram kom í DV í gær voru áfengisnóturnar, sem Höskuldur reyndi að fá endurgreiddar, fjórar að fjárhæð samtals 4.870 krónur. Höskuldur ber því við að hann hafi fengið þessar fjórar nótur í stað einnar, sömu f járhæðar, frá afgreiðslumanni í áfengisútsölunni. Upphaflega nótan hefur hins vegar ekki fundist. Nóturnar hugöist Höskuldur nota í málsókn sinni gegn Landhelgisgæsl- unni til grundvallar kröfum sínum um risnugreiðslur, en forstjóra og skip- herra hefur greint á um hvernig túlka beri ákvæði samninga um risnu. -KMU. Albert ekki í borgarstjórnarpróf kjörið: „$ÆTT\ MIG EKKI VIÐ LOKAÐ PRÓFKJÖR” „Eg sætti mig einfaldlega ekki við lokað prófkjör í Sjálfstæðisflokknum fyrir þessar borgarstjórnarkosningar og verð því ekki með,” segir Albert Guðmundsson um þá ákvörðun sína að draga sig í hlé frá prófkjörinu nú. „Það vita allir aö ég hef ætíð veriö fylgjandi fjöldaþátttöku í ákvörðun frambjóðenda flokksins. Þetta er grundvallarhugsjón fjöldaflokks, að ná til fjöldans. Þaö er ekki hægt aö loka á fólk eftir einhvers konar klíku- hagsmunum þegar ákveða á frambjóð- endur en biðja svo alla að kjósa þá sem þannig eru valdir til framboðsins. Mér finnst eins og þessar nýju reglur sé beinlínis settar mér til höfuðs.” Albert sagði ennfremur getgátur ákveðins blaðs um sérframboð vera óheiðarlegar. Hann hefði aðeins svar- aö því til að um slíkt vildi hann ekki tala. I því hefði ekkert annað falist. HERB. Seltjarnarnes: Borgaraf undur um sjónvarpsmál Seltirningar verða boðaðir til borgarafundar um sjónvarpsmái eftir miðjan næsta mánuð. Þar mun sjón- varpsnefnd, sem bæjarstjórn setti á laggirnar á sínum tíma, gera grein fyrir veigamiklum athugunum og leggja á borðið hugmyndir um stofnun almenningshlutafélags um sjónvarps- mál bæjarins, þar með móttökustöð. Að sögn Sigurgeirs Sigurðssonar bæjarstjóra liggja nú þegar fyrir gríðarlega yfirgripsmiklar upp- lýsingar um þá möguleika sem bjóðast í sjónvarpsmálum, ekki síst varðandi móttöku erlends efnis og dreifingu þess. Ætlunin er að kanna hug bæjarbúa varðandi framhald mála. Bæjarstjóm ætlar að fá þeim frumkvæðið í sínar hendnr, hafi þeir áhuga á framhaldinu. HERB

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.