Dagblaðið Vísir - DV - 30.10.1985, Blaðsíða 32
<SI
FRÉTTASKOTIÐ
Sími ritstjórnar: 68 66-11. Auglýsingar, áskrift og dreifing, sími 27022.
Hafir þú ábendingu
eða vitneskju um
frétt — hringdu þá i
sima 68-78-58. Fyrir
hvert fréttaskot,
sem birtist eða er
notað i DV, greið-
ast 1.000 krónur og
3.000 krónur fyrir
besta fréttaskotið i
hverri viku,
Fullrar nafnleyndar
er gætt. Við tökum
við fréttaskotum
allan sólarhringinn.
MIÐVIKUDAGUR 30. OKTÓBER 1985.
Þrennt hand-
tekiðíHer-
_ kastalanum
Frá Jánl G. Haukssyni, blaða-
nuuani DV á Aknreyri:
Englendingur og tvær íslenskar
vinkonur hans voru handtekin í
fyrradag í Herkastalanum í
Reykjavík með 150 grömm af
hassi. Eiturlyfin fundust falin í
grind bakpoka. Hassið keyptu þau
þrjú í Marokkó.
Upp komst um fólkið í kjölfar
hassmálsins á Raufarhöfn. Þar
voru tveir menn handteknir um síð-
ustu helgi grunaðir um eiturlyfja-
neyslu. Fundust tvö grömm af
hassi í fórum annars þeirra.
Grunur beindist þegar að Eng-
lendingnum sem hafði unnið í fisk-
„ verkun á Raufarhöfn og bjó í sömu
verbúðogmennimirtveir.
Það var svo á mánudagsmorgun
sl. sem hann var handtekinn í her-
bergi sinu í Herkastalanum, húsi
Hjálpræðishersins. Vinkonur hans
tvær voru einnig handteknar þar.
Þær voru í næsta herbergi við Eng-
lendinginn.
Um 100 grömm fundust í fónun
Englendingsins en 50 grömm hjá
stúlkunum. Þau höfðu farið þrjú til
Marokkó og keypt hassið í sept-
ember sl. Þar voru þau handtekin
af lögreglunni í Marokkó og um eitt
kíló af hassi tekið af þeim.
Marokkólögreglunni yfirsást þó
hassið í grind bakpokans, að sögn
þremenninganna. -JGH.
„Loftsteinninn”:
Þaðvoruþá gæsir
„Þaö kemur oft fyrir á þessum
tlma aö eldglæringar sjáist þegar
fuglar fljúga á rafmagnslinurnar.
Við fengum tilkynningar um það sl.
miðvikudagskvöld að eldglæringar
hefðu sést hér um slóðir. Rafmagn
sló út á Víkurlínu rétt augnablik,”
sagði örlygur Jónasson, rafveitu-
stjóriáHvolsvelli.
''égr „Það voru sendir menn með lín-
unni í gær. Þeir fundu tvær dauðar
gæsir við Berjanesflugvöll. Eg tel
líklegt að gæsimar hafi náö að brúa
á milli línanna, þannig að skamm-
hlaup hafi myndast,” sagði
örlygur.
Það bendir allt til að gæsimar
hafi orðsakað þær eldglæringar
sem sáust á svæðinu á niilli Þverár
og Markarfljóts. -SOS.
BÍLSTJÓRARNIR
AÐSTOÐA
,25050
SENDIBÍLASTÖÐIN HF
DV ræð/r við Hermann Aöalsteinsson sem fékk steinveggyfirsig:
„Kvalimar mestar
fyrst eftir slysiöff
Frá Jóni G. Haukssyni, blaðamanni
DV á Akureyri:
„Eg leið mestu kvalirnar fyrst eft-
ir að veggurinn hrundi yfir mig. Mér
gekk þá mjög illa aö ná andanum og
Varð að taka á öllu sem ég átti. En ég
held nú að það hafi aldrei hvarflað
annað að mér en að ég bjargaðist. Eg
fann mátt í höndum og fótum og var
Hermann Aðalsteinsson á gjörgæsludeild sjúkrahússins á Akureyri i gær. Hann sagðist þrátt fyrir allt hafa
brosað einu sinni undir veggnum. „Það var þegar sveitungi minn, sem ég gantast gjarnan við, kom að
mér. Ég sagði honum að þetta væri allt í lagi. Hann þyrfti ekki að hafa áhyggjur. Þeir risu alltaf upp þessir
gömlu djöflar." DV-mynd JGH.
ekkert að ímynda mér það versta
með því að geta í eyðurnar.”
Þetta sagði Hermann Aðalsteins-
son, 53 ára bóndi og oddviti Tjörnes-
hrepps, í gær. Hann varö fyrir þeirri
ótrúlegu lífsreynslu sl. föstudags-
morgun að 22ja sentímetra þykkur
steinveggur hrundi yfir hann.
Hermann lá á bakinu í möl með
vegginn ofan á sér upp að höku í um
hálfa klukkustund. Hann er nú á
gjörgæsludeild Fjórðungssjúkra-
hússins á Akureyri mjaðmargrind-
ar- og rif beinsbrotinn.
„Mér líður þokkalega. Það er dekr-
að við mig hér. Eg má borða allt,
landbúnaðarafurðir líka,” sagði Her-
mann og kímdi.
Um óhappið sagðist hann hafa ver-
iö að leiðbeina pilti, Jóhannesi Ein-
arssyni, sem var á gröfu að moka
meðfram fiskverkunarhúsinu í
Tungulendingu á Tjörnesi. En fyrir-
hugað var að steypa varnarvegg fyr-
ir framan húsið.
„Eg stóð til hliðar við húsiö og var
að mæla hæðina upp á nýja vegginn
þegar ég skynjaði að veggur hússins
var kominn á hreyfingu. Það gerðist
á sekúndubrotum. Eg henti mér til
hliðar og reyndi að halda andlitinu
fríu. Jóhannes kom þegar út úr gröf-
unni. Hann gróf fyrst með höndunum
undan öxlunum á mér.
Eg sagði honum að það væri skófla
í bílnum mínum. Hann náði í hana og
hélt áfram að moka. Eftir að honum
tókst aö losa aðeins um axlirnar var
léttara fyrir mig að anda. Hann
studdi síðan við mig.
Við töluðum saman allan tímann.
Eg spurði hann hverja hann hefði
náð í í talstöðinni. Eins ræddum við
hvernig best væri að losa mig. Eg
sagði að við skyldum ekki fara að
þessu með neinum látum. ’ ’
Hermann sagði að hann hefði ekki
hugsað svo mikið um biðina. Hann
þekkti vegalengdina sem sjúkraliðið
þurftiaðfara.
-JGH.
Varnarliðsflutningarnir:
Geir líst ekki á lög gegn
einokunarlögunum
— nema Ijóst verði að þau kalli ekki á nýjar verndunaraðgerðir
Lagasetning á Alþingi gegn einok-
un á sjóflutningum til landsins og frá
því er ekki einföld lausn á Rainbow-
deilunni um flutninga varnarliðsins.
Utanríkisráðherra, Geir Hallgríms-
syni, list ekki á þessa leið nema ljóst
verði að hún kalli ekki á nýjar að-
gerðir í Bandaríkjunum til varnar
einokuninni.
Það sem menn óttast er að banda-
rísk verkalýðsfélög trufli eða stöðvi
afgreiðslu á islenskum skipum. Þau
eru meðal eigenda í Rainbow Navi-
gation skipafélaginu og hafa hvort
sem er hagsmuna að gæta vegna
starfsmanna félagsins. Það gæti
semsé skollið á siglingastrið sem
næði langt út fyrir varnarliðsflutn-
inga.
I samtali við utanríkisráðherra
sagði hann að málið væri enn í hönd-
um Bandaríkjamanna. t undirrétti
hefur dómur fallið gegn útboði á
varnarliðsflutningunum. Rök dóm-
arans kveikja síöur en svo bjartsýni
varðandi aðra niðurstöðu eftir áfrýj-
un málsins. Því er málið í blindgötu.
Samt segir utanrikisráðherra að
hann vonist eftir einhverri lausn
áður en langt um líður.
Síðan Rainbow Navigation
hreppti forgöngu að varnarliðsflutn-
ingunum, í skjóli einokunarlaga
varðandi herflutninga Bandarikja-
manna frá 1904, hafa íslensku skipa-
félögin misst af viðskiptum upp á
stórar fúlgur. Utboð myndi á hinn
bóginn ekki tryggja þeim flutning-
ana á ný. Enginn veit hver yrði
lægstbjóðandi, það gæti eins orðið
skipafélag frá einhverri þriðju þjóð,
semsé hvorki íslenskt né bandarískt.
HERB